Morgunblaðið - 27.08.2004, Síða 28
MINNINGAR
28 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
essa dagana sjást
fyrstu merki hausts-
ins á Íslandi. Auglýs-
ingar frá búðum sem
selja skólavörur eru
áberandi og börnin halda í skól-
ann, sum í fyrsta skipti, með tösk-
ur á bakinu og fiðring í maganum
vegna þess sem í vændum er. En
það eru blikur á lofti. Grunn-
skólakennarar eiga þessa dagana
í viðræðum við sveitarfélögin um
launamál og hafa boðað verkfall
20. september hafi samningar
ekki náðst fyrir þann tíma.
Vinnudeilur grunnskólakenn-
ara og hugs-
anleg verkföll
vegna
óánægju
stéttarinnar
með kjör sín
eru vissulega
viðkvæmt mál. Fyrir því eru að
minnsta kosti tvær ástæður. Sú
fyrri er auðvitað sú að í grunn-
skólunum er markmiðið að börnin
okkar hljóti menntun og illt er til
þess að hugsa að þau fari á mis
við hluta hennar, leggi kennarar
niður vinnu. Hin ástæðan er sú að
grunnskólinn í dag er ekki ein-
ungis menntastofnun, heldur
treysta vinnandi foreldrar, sér-
staklega þeir sem eiga ung börn,
á að þar sé barnanna gætt, meðan
þeir sinna vinnu sinni. Grunnskól-
arnir eru stór hluti af daglegu lífi
fjölskyldufólks á Íslandi.
Því er ekki skrýtið að margir
megi vart til þess hugsa að kenn-
arar fari í verkfall.
Engu að síður rak mig í roga-
stans þegar ég heyrði frétt Sól-
veigar Bergmann um kjaramál
kennara á Stöð 2, fyrr í þessum
mánuði. Þar lét fréttakonan fara
frá sér ummæli sem ég tel vafa-
samt að sæmi fréttamanni sem
reynir að fjalla um málefni líðandi
stundar með hlutleysi í huga.
Sagði fréttakonan eitthvað á þá
leið að tækjust samningar ekki,
skylli brátt á „enn eitt kennara-
verkfallið“.
Vissulega hafa grunnskóla-
kennarar farið nokkrum sinnum í
verkfall undanfarna áratugi.
Telst mér svo til að verkfall hafi
verið hjá þeim árið 1977, 1984,
1995 og eins dags langt verkfall
var árið 1997. Þetta gerir fjögur
verkföll á 27 árum. Hvort þetta
gefur tilefni til lýsinga af því tagi
sem getið er um að ofan er í besta
falli umdeilanlegt og að mínu
mati helst til þess fallið að vekja
andúð samfélagsins á kennurum
og málstað þeirra. Þrátt fyrir að
ný könnun Gallups sýni að stór
meirihluti þjóðarinnar sé jákvæð-
ur í garð kennara, fer ekki hjá því
að reglulega heyrist fólk agnúast
út í þá. Ekki er langt síðan ég
heyrði karl og konu ræða um
kennara á förnum vegi. Konan
tók málstað þeirra, en karlinn
stagaðist aftur á móti á því hvað
kennarar hefðu það nú gott. Þeir
fengju langt sumarfrí, páskafrí og
jólafrí. Var á karlinum að heyra
að kennarar ættu að hætta að
kvarta yfir kjörum sínum.
Það sem mér finnst eftirtektar-
verðast, þegar kjaramál kennara
eru skoðuð, er að þeir skuli þó
þetta oft hafa talið sig knúna til
að fara í hart til þess að ná fram
kjarabótum. Hvernig stendur á
því að kennarar þurfa ítrekað að
grípa til ráða á borð við verkföll,
til þess að reyna að knýja á um
mannsæmandi laun? Þegar laun
grunnskólakennara eins og þau
eru í dag eru skoðuð virðist í það
minnsta ljóst að það er ekki
græðgi sem rekur þá áfram. Laun
grunnskólakennara hafa vissu-
lega batnað á undanförnum árum,
þótt þau hafi hækkað minna en
laun opinberra starfsmanna. Þau
myndu þó seint teljast góð eða
sanngjörn fyrir að sinna því
mikilvæga og erfiða starfi sem
kennsla grunnskólabarna er.
Samkvæmt vefsíðu Kennara-
sambandsins er 27 ára grunn-
skólakennari, sem sinnt hefur
kennslu í minna en fjögur ár, með
um 155.000 krónur í grunnlaun á
mánuði. Ég er hrædd um að
margt ungt háskólamenntað fólk
myndi ekki una sátt við kjör á
borð við þessi!
Þá kom í síðustu viku út ný
skýrsla á vegum Hagfræðistofn-
unar Háskóla Íslands um arðsemi
menntunar á Íslandi. Þar kom
fram að arðsemi þess að verða sér
úti um réttindi til grunnskóla-
kennslu væri engin. Í frétt Morg-
unblaðsins um málið kemur
áhugaverður flötur á því í ljós.
Þar er bent á að skýrsluhöfundar
setji mikinn fyrirvara við niður-
stöðuna og bendi á að upplýs-
ingar um grunnskólakennara séu
ekki flokkaðar eftir kyni en margt
bendi til þess að námið sé arð-
samt fyrir konur. Þessi nið-
urstaða er hvetur því karla svo
sannarlega ekki til þess að leggja
fyrir sig grunnskólakennslu. Það
borgar sig ekki fyrir þá í pening-
um talið og sennilega yrði banka-
reikningurinn feitari ef þeir
sinntu í staðinn störfum ófag-
lærðra verkamanna.
Raunar þarf ekki annað en
kíkja í heimsókn í hvaða grunn-
skóla sem er til þess að sjá að
karlar hafa ekki þurft upplýs-
ingar Hagfræðistofnunar Háskól-
ans til þess að segja sér þetta.
Það vantar sárlega fleiri karlkyns
kennara í grunnskóla landsins
Hagfræðingar myndu sennilega
segja að fæð karla í starfinu sýni
glögglega að launin teljist ekki
eftirsóknarverð.
Auðvitað væri æskilegast að
grunnskólabörn og foreldrar
þeirra kæmust hjá þeim erfið-
leikum sem óneitanlega skapast
við verkföll kennara þótt vart sé
deilt um rétt þeirra til að grípa til
slíkra aðgerða, bregðist annað.
En til þess að komast hjá verk-
föllum er þó nauðsynlegt að
samningar náist um laun til
handa grunnskólakennurunum
sem eru til þess fallin að gera
kennarastarfið aðlaðandi fyrir
hæft fólk af báðum kynjum. Það
er bráðnauðsynlegt að auka veg-
semd starfsins og virðingu fyrir
kennurum og fyrsta skrefið er að
bæta kjör þeirra.
Enn eitt
verkfallið?
Hvernig stendur á því að kennarar þurfa
ítrekað að grípa til ráða á borð við verk-
föll til þess að reyna að knýja á um
mannsæmandi laun? Þegar laun grunn-
skólakennara eins og þau eru í dag eru
skoðuð virðist í það minnsta ljóst að það
er ekki græðgi sem rekur þá áfram.
VIÐHORF
Eftir Elvu Björk
Sverrisdóttur
elva@mbl.is
✝ Haraldur Krist-jánsson fæddist í
Reykjavík 23. janúar
1912. Hann andaðist
á Landspítalanum
við Hringbraut 16.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Kristján Hansson
trésmiður, f. á Gauta-
stöðum í Hörðudals-
hreppi í Dalasýslu 4.
október 1876, d. 6.
desember 1961 og
Sigríður Friðrikka
Thomsen, f. í Kefla-
vík 7. október 1878,
d. 14. janúar 1965. Systkini Har-
aldar voru: 1) Elín, f. 24. júní 1904,
d. 8. febrúar 1992; maki hennar
var Ágúst Jón Kristjánsson John-
son, f. 9. ágúst 1879, d. 11. nóv-
ember 1949. 2) Hans Pétur, f. 8.
júní 1906, d. 25. febrúar 1994.
Haraldur kvæntist 8. júní 1940
Gerðu Herbertsdóttur, f. 11. maí
1919. Foreldrar hennar voru
Ólafía Guðlaug Árnadóttir, f. 24.
mars 1890, d. 25. október 1981 og
Herbert MacKenzie Sigmundsson,
f. 20. júní 1883, d. 14. apríl 1931.
Börn Haraldar og Gerðu eru: 1)
Herbert, f. 24. ágúst
1942; maki hans er
Hallfríður Jakobs-
dóttir, f. 18. október
1942. Sonur þeirra
er Jón Ingi, f. 29.
ágúst 1963; maki
hans er Laufey El-
ísabet Löve, f. 11.
janúar 1965; sonur
þeirra er Þorri Jak-
ob, f. 31. ágúst 2002.
2) Sigríður, f. 10.
apríl 1947; maki
hennar er Gunnar
Þór Ólafsson, f. 19.
ágúst 1938. Börn
þeirra eru: a) Gerða, f. 29. janúar
1968; maki hennar er Guðmundur
Arnar Jónsson, f. 13. júlí 1966;
börn þeirra eru Arna Rán, f. 5.
janúar 1993 og Jón Gunnar, f. 5.
apríl 1995. b) Lára Guðrún, f. 23.
apríl 1980. Sonur Gunnars Þórs er
Birgir Þór, f. 18. febrúar 1956.
Haraldur lauk prófi frá Verslun-
arskóla Íslands árið 1930 og rak
matvöruverslun ásamt bróður sín-
um, Pétri, allt til ársins 1980.
Útför Haraldar verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Haraldur afi var mér einstaklega
góður og gegndi stóru hlutverki í lífi
mínu, ekki síst í æsku. Frá því að ég
fæddist og fram til sex ára aldurs,
þegar við mamma og pabbi fluttum
til New York, bjuggum við í húsi afa
og ömmu á Ásvallagötunni, fyrst í
kjallaranum og svo í íbúðinni á efstu
hæðinni. Það voru mikil forréttindi
að hafa þau í svona mikilli nálægð og
að fá að njóta hlýju og umhyggju
þeirra dagsdaglega.
Eftir að við fjölskyldan fluttum til
New York fékk ég oft að búa hjá afa
og ömmu á sumrin, m.a. annars þeg-
ar ég var unglingur og farinn að
vinna í símaflokki úti á landi. Á há-
skólaárunum bjó ég líka sjálfur um
tíma í kjallaraíbúðinni á Ásvallagöt-
unni og var þá ómetanlegt að geta
leitað til ömmu og afa sem voru alltaf
jafn góð og þolinmóð við mig, sama á
hverju gekk.
Fyrir utan hvað mér þótti vænt
um afa, leit ég alltaf upp til hans.
Hann var mikils metinn í hverfinu og
rak verslun í félagi við Pétur bróður
sinn á horni Ásvallagötu og Blóm-
vallagötu. Margar mínar skemmti-
legustu æskuminningar eru tengdar
búðinni. Ég man vel hvernig sælu-
straumurinn fór um mig þegar ég
hafði komið mér fyrir uppi á rauðu
Kók-kælikistunni fyrir innan búðar-
borðið með maltflösku í hendinni og
fylgdist með afa rabba við kúnnana.
Þegar ég varð svolítið eldri fékk ég
að vera sendill hjá afa og fór með
pantanir á hjóli um hverfið. Þetta var
mikil ábyrgðarstaða og lærdómsrík,
ekki síst fyrir þær sakir að afi tók
þjónustuna við kúnnana alvarlega.
Hann var mjög vandvirkur og það
var honum greinilega mikilvægt að
standa skil á sínu.
Þrátt fyrir háan aldur var afi ótrú-
lega unglegur og fram á síðustu
stundu fylgdist hann grannt með
heimsmálunum og hafði gaman af að
ræða atburði líðandi stundar. Í síð-
asta skipti sem ég sá hann, tæpri
viku áður en hann dó, ræddum við
ástand mála í forsetakosningaslagn-
um í Bandaríkjunum. Ég á svo sann-
arlega eftir að sakna þessara sam-
verustunda og ég verð ævinlega
þakklátur fyrir að hafa átt svona góð-
an og örlátan afa.
Jón Ingi.
Elsku afi minn, ég sakna þín.
Við áttum yndisleg 36 ár saman.
Ég man vel eftir því að þegar ég
var lítil, fékk ég oft að sitja á rauða
kókkælinum og fylgjast með ykkur
ömmu vinna í búðinni. Margar góðar
minningar þaðan. Seinna fluttist ég
ásamt foreldrum mínum í annan bæj-
arhluta, en kom oft í heimsókn því við
áttum alltaf góðar stundir saman.
Við hjónin fluttumst norður með
börnin árið 1995 og bjuggum á Ak-
ureyri í tæp tvö ár. Hugurinn var oft
hjá ykkur, við vorum jú svo langt í
burtu. Þegar við fluttum aftur til
Reykjavíkur áttum við margar góðar
samverustundir hjá ykkur og á heim-
ili okkar. Það var gaman að ræða við
þig því þú fylgdist svo vel með öllu
sem var að gerast í þjóðfélaginu. Eft-
ir að þú veiktist voru heimsóknir þín-
ar til okkar oft erfiðar, en tókust því
þú ert algjör hetja í mínum huga,
elsku afi minn. Nú þegar þú ert bú-
inn að fá hvíldina, veit ég að þú ert í
góðum höndum og þér líður vel. Ég
mun ávallt varðveita minningu þína
og passa upp á hana ömmu mína.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Þín Gerða.
Elsku afi.
Mig langaði með örfáum orðum að
minnast þín og um leið þakka þér
fyrir allar samverustundir okkar.
Þegar ég lít til baka þá koma margar
góðar minningar upp í hugann, til
dæmis þær stundir sem ég stóð við
píanóið á Ásvallagötunni og söng há-
stöfum lög Sigfúsar Halldórssonar
við fallega undirspilið þitt. Ég man
líka þegar ég var lítil og gisti hjá ykk-
ur ömmu, þá var voðalegt sport að
fara með ömmu fram í eldhús á
sunnudagsmorgnum, hita kaffi og
meðlæti og borða það inn á rúm-
stokknum í svefnherberginu.
Það hefur ósjaldan komið fyrir í
gegnum tíðina, að þú laumaðir aur í
hendina á manni þegar maður kom í
heimsókn og alltaf heyrðist í þér: Æ,
þetta er ekki neitt, þetta er svo lítið.
Það eru hrein og bein forrréttindi
að hafa átt þig sem afa og jafnvel
þegar þú varst sem veikastur var
alltaf jafn stutt í húmorinn og brand-
arana.
Elsku afi, nú ertu kominn á stað
sem þér líður betur á og þó að þú sért
ekki lengur hér á meðal okkar þá veit
ég að þú vakir yfir okkur.
Hvíl í friði elsku afi minn, þín
Lára Guðrún.
Nú ert þú horfinn til betri staðar
Haraldur, eða afi Halli, eins og ég
kallaði þig þegar ég talaði við börnin.
Það voru margar góðar stundir sem
við áttum saman þegar ég og Gerða
komum til ykkar á Ásvallagötuna og
ósjaldan horfðum á beinar útsend-
ingar frá enska boltanum eða hand-
boltanum. Gaman þótti mér að tala
við þig um íþróttirnar því oft náðir þú
að reka mig á gat þótt ég hefði verið
vel inni í hlutunum.
Þegar börnin okkar Arna Rán og
Jón Gunnar voru með í för þá var nú
stundum fjör og læti á Ásvallagöt-
unni. Þú varst alltaf jafn góður við
þau og ég veit að þau sakna þín mjög
mikið því þeim þótti alltaf jafn gam-
an að heimsækja þig, þótt þú værir á
spítalanum og verst þótti Örnu Rán
að geta ekki kysst þig þegar hún sá
þig síðast vegna þess að hún var svo
kvefuð.
Elsku Halli afi, minning þín lifir
hjá mér og börnunum.
Guðmundur Arnar, Arna Rán og
Jón Gunnar.
Þeir hverfa af sjónarsviðinu einn
af öðrum, mennirnir sem settu svip
sinn á nýliðna öld, ekki með fram-
hleypni og sýndarmennsku, heldur
með hógværð og vinnusemi. Einn
þessara manna var Haraldur Krist-
jánsson, kaupmaður en hann rak í
samstarfi við Pétur bróður sinn og
konu sína Gerðu Herbertsdóttur,
verslunina Pétur Kristjánsson h.f. á
Ásvallagötu 19 í Reykjavík. Verslun-
in var nokkurs konar félagsmiðstöð,
staður þar sem fólk hittist og skiptist
á skoðunum. Þegar Haraldur lét af
störfum og seldi reksturinn hafði
hann staðið við afgreiðsluborðið í vel
yfir 50 ár og afgreitt og átt samskipti
við flesta í hverfinu þannig að aldrei
bar skugga á. Fylgst var með íbúum
hverfisins jafnt í gleði og sorg og
mörgum rétt hjálparhönd án þess að
verið væri að orðlengja það. Þessi
þáttur mannlegra samskipta er því
miður að mestu liðin tíð.
Ekki grunaði okkur þegar við
fengum leigða íbúð á Ásvallagötu 22
fyrir 35 árum, að við ættum eftir að
búa í því góða húsi í 13 ár. Í húsinu
bjuggu einnig eigendur hússins,
hjónin Haraldur og Gerða og bar
aldrei nokkurn skugga á sambýlið,
þrátt fyrir tilkomu tveggja sona okk-
ar og allt það umstang sem fylgir
börnum. Alltaf mætti okkur öllum
sama góða viðmótið og til marks um
sambúðina kölluðu synir okkar þau
ömmu og afa.
Það var gaman þegar Haraldur
settist við píanóið og ekki síður þegar
hann tók lagið. Þá var kátt í húsinu
góða. Haraldur hafði afskaplega fal-
lega söngrödd enda söng hann með
Karlakór Reykjavíkur um árabil og
fór með þeim í sögufrægar söngferð-
ir erlendis á þeim árum, þegar menn
voru ekki mikið að ferðast að óþörfu.
Þegar horft er yfir farinn veg kem-
ur margt upp í hugann en fyrst og
fremst þakklæti, þakklæti fyrir
tryggðina og elskusemina sem þau
hjón hafa ávallt sýnt okkur öllum.
Við þökkum Haraldi Kristjánssyni
samfylgdina.
Sigrún og Sveinn Áki.
HARALDUR
KRISTJÁNSSON
Fleiri minningargreinar um Har-
ald Kristjánsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Höfundar eru: Gunnar Jónasson í
Kjötborg, Arna og Finnbogi.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is
(smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda
inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir
hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Myndir Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minning-
argrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana
á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar