Morgunblaðið - 27.08.2004, Page 30
MINNINGAR
30 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Dýrleif Yngva-dóttir fæddist á
Egilsstöðum 23. nóv-
ember 1982. Hún lést
á Landspítalanum
við Hringbraut 19.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar Dýrleifar
eru Svanhvít Þór-
hallsdóttir, f. 27.
ágúst 1960 og Yngvi
Þór Kjartansson, f. 5.
desember 1958. Þau
slitu samvistum 1998.
Eiginkona Yngva er
Veadrana Kjartans-
son. Systkini Dýrleif-
ar eru Berglind, f. 23. október
1981 og Kjartan Þór, f. 21. júlí
1985. Hálfsystir þeirra er Jóna
Yngvadóttir, f. 4.
apríl 1978 og sonur
hennar er Viljar
Máni, f. 14. des 2001.
Móðurforeldrar
Dýrleifar eru Þór-
hallur Árnason, f.
24. júlí 1918, d. 4.
október 2003 og
Dýrleif Ásgeirsdótt-
ir, f. 4. maí 1929.
Föðurforeldrar Dýr-
leifar eru Kjartan
Ingvarsson, f. 5. maí
1931 og Bjarndís
Helgadóttir, f. 14.
desember 1934.
Útför Dýrleifar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30
Elsku Dýrleif.
Okkur langar til að minnast þín
með örfáum orðum. Þú varst nokk-
urra daga gömul þegar þú komst inn
á okkar heimili, og dvaldist þar hjá
okkur um tíma, áður en þú fórst með
foreldrum þínum og systur til
Bakkafjarðar. Þar áttir þú þín fyrstu
æviár í návist við móðurfólk þitt. Tíð-
ar urðu ferðir á milli Bakkafjarðar
og Egilsstaða. Síðan fluttist þú til
Neskaupstaðar og voru þá samveru-
stundirnar fleiri. Þar áttum við
margar dýrmætar stundir saman
með þér og fjölskyldu þinni. Snemma
byrjaðir þú og systir þín að æfa
íþróttir. Oft fóruð þið í keppnisferða-
lög og höfðum við þá miklar áhyggj-
ur af ykkur ef veðrið var vont. Þú
varst mikil keppniskona og hafðir
mikinn metnað. Eftir að þið fluttuð
til Akureyrar fórst þú að æfa knatt-
spyrnu með Þór/KA. Þú tókst þátt í
mörgum mótum, meðal annars í
USA-Cup, sem er stærsta knatt-
spyrnumót unglinga í Bandaríkjun-
um og kom liðið heim með bikar. Þú
varst kraftmikil stúlka og byrjaðir
snemma að vinna þó svo þú værir í
Verkmenntaskólanum. Við hringd-
um í þig á afmælisdaginn þinn 23.
nóv. sl. Þú varst svo glöð og sagðir
„ég verð stúdent í vor og þið komið í
útskriftina mína“. En allt í einu dró
ský fyrir sól. Þú, sem varst svo
hraust og hafðir aldrei verið veik,
fórst að finna fyrir verkjum í höfðinu.
Í byrjun árs varstu greind með
krabbamein í höfði. Það er mikið
áfall fyrir unga stúlku, sem er í
blóma lífsins og á allt lífið framund-
an. Þar með hófst þín mikla barátta
við þennan illvíga sjúkdóm. Þú stóðst
þig eins og hetja og kvartaðir aldrei.
Þú varst glæsileg ung stúlka, heið-
arleg, falleg og samviskusöm. Við er-
um stolt af þér, og þín er og verður
sárt saknað.
Blessuð sé minning þín og Guð
geymi þína ungu sál. Hvíl þú í friði.
Elsku Svana, Yngvi, Vedrana,
Berglind, Kjartan Þór og Jóna megi
góður Guð hjálpa ykkur að takast á
við sorgina og söknuðinn.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Amma Bjarndís (Dídí)
og afi Kjartan.
Elsku Dýrleif.
Þú komst eins og sólargeisli inn í
fjölskylduna, yljaðir og gladdir þá
sem næst þér stóðu og alla sem þér
kynntust. Lífið blasti við þér, þú
fagnaðir hverjum degi með bjarta
brosinu þínu og glaða hlátrinum,
framtíðin var björt, draumarnir svo
margir, heimurinn beið þín með öll
sín tækifæri. Skyndilega breyttist
allt, allt nema þú, þessi ótrúlegi ill-
vígi sjúkdómur kom eins og reiðar-
slag, en þú varst alltaf svo bjartsýn
og æðrulaus, allt virtist ætla að fara
vel. Það er sagt að þeir sem guðirnir
elska deyi ungir, hver veit nema það
sé rétt og þú þessi elskulega stúlka
hafir verið kölluð til mikilvægari
starfa en þú hefðir fengið hér í heimi.
Hvað vitum við. Þórhallur afi sem dó
fyrir tæpu ári, hefur örugglega tekið
vel á móti stúlkunni sinni, þessari
ljúfu góðu sál sem skilur okkur eftir
rík af minningum og með þá vissu, að
líf hennar var eins og blómanna sem
gleðja okkur og gera að betri mann-
eskjum með nærveru sinni, þó þau
fölni gleymum við þeim ekki. Þú
verður okkur nálæg, við minnumst
þín í hvert sinn er við heyrum glaðan
hlátur og fáum hlýtt faðmlag. Að
hafa kynnst þér var mannbætandi.
Takk fyrir samverustundirnar sem
við áttum saman.
Undir háu hamra belti
höfði drýpur lítil rós.
Þráir lífsins vængja víddir
vorsins yl og sólarljós.
Ég held ég skynji hug þinn allan
hjartasláttinn rósin mín.
Er kristallstærir daggardropar
drúpa milt á blöðin þín.
Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað,
krjúpa niður kyssa blómið
hversu dýrðlegt fannst mér það.
Finn ég hjá þér ást og unað
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei, það er minning þín.
(Guðmundur G. Halldórsson.)
Ásgeir, Sigrún, Þórhalla
og Angantýr.
Hver hefði getað ímyndað sér að
þegar ég kvaddi Dýrleifu frænku
mína síðasta sumar, væri það í síð-
asta skipti sem ég sæi hana.
Ég var á Akureyri með fjölskyldu
minni og fór út fyrsta kvöldið þar
með gömlum vinkonum. Þar hitti ég
Dýrleifu sem var hress eins og vana-
lega. Við sátum allt kvöldið og töl-
uðum saman. Daginn eftir hringdi
hún í mig og sótti mig síðan heim til
langafa míns. Við keyrðum heim til
hennar, sátum og borðuðum fransk-
ar með Berglindi systur hennar, og
seinna fórum við út að keyra. Við
keyrðum um allan bæ og út í skóg
þar sem við lögðum bílnum, opnuð-
um gluggana og spjölluðum saman.
Ég, Dýrleif og Berglind, uppáhalds
frænkur mínar. Seinna keyrði hún
mig heim og þegar ég kvaddi hana
fann ég fyrir gleði inní mér yfir því
að ég skyldi hafa eytt þessum tíma
með þeim. Í dag varðveiti ég þessa
minningu af öllu mínu hjarta.
Þegar ég var lítil bað ég alltaf Fað-
ir vorið áður en ég fór að sofa. Eina
nóttina gisti ég hjá Dýrleifu og þá
kenndi hún mér fleiri bænir. Þessar
bænir hef ég beðið á hverjum degi
eftir að ég hóf að biðja Guð um að
hjálpa Dýrleifu og fjölskyldu hennar
í gegnum þessa erfiðu tíma. Guð hef-
ur ástæðu fyrir öllu og þó að Dýrleif
hafi verið ung og örlög hennar
ósanngjörn, þá var hennar tími
greinilega kominn. Það eina sem við
getum gert er að gleðjast yfir því að
Dýrleif er komin á betri stað, þar
sem sársaukinn nær ekki til hennar.
Yngvi, Svana, Berglind og Kjart-
an.
Ég samhryggist ykkur innilega,
og megi Guð vera með ykkur.
Bjarndís Líf.
Elsku Dýrleif.
Við systurnar eigum margar góð-
ar minningar um þig. Þú varst okkur
svo góð frænka, við munum að oft
þegar við fórum í kaffi til hennar
ömmu okkar þá hittum við ykkur
systurnar og spjölluðum við ykkur.
Það var alltaf svo gaman að tala við
þig því að þú varst alltaf svo jákvæð
og skemmtileg. Það er okkur afar
minnisstætt þegar við komum í
heimsókn í Neskaupstað þar sem þið
áttuð heima og þú, Berglind og
Kjartan sýnduð okkur hamstrana
ykkar sem við vorum mjög hrifnar
af. Dýrleif, við lítum alltaf á þig sem
fyrirmynd okkar, þú varst svo dug-
leg í fótbolta og að vinna. Við munum
alltaf dást að þér, þú tókst á við sjúk-
dóm þinn eins og sönn hetja. Vonum
að þér líði vel þar sem þú ert nú.
Jarþrúður og Anna.
Fáein orð í minningu yndislegrar
manneskju, hennar Dýrleifar systur-
dóttur minnar. Minningarnar flæða
um hugann. Dýrleif að koma að aust-
an í heimsókn á Sólvallagötuna með
foreldrum sínum og systkinum,
snaggaraleg, geislandi hnáta, alltaf
jákvæð og aldrei neitt vesen. Dýrleif
að kenna Gunndísi frænku sinni að
pissa í klósett. Dýrleif að laga til hjá
okkur.
Á seinni árum sáumst við sjaldnar
eða þar til í janúar sl. Þá höguðu ör-
lögin því svo til að Dýrleif varð tíður
gestur á heimili okkar í Granaskjóli
ásamt móður sinn allt þar til yfir
lauk. Þarna kynntist ég frænku
minni sem ungri og þroskaðri konu,
fallegri með einstæðan persónuleika.
Hún var óvenju jákvæð, hafði góða
nærveru og mikla útgeislun. Hún
hafði góða kímnigáfu, talaði fallegt
mál og sagði skemmtilega frá. Hjá
henni voru ekki vandamál, bara
verkefni til að leysa, henni fylgdi
mikil birta. Eða eins og systir hennar
Berglind lýsti henni: „Allt sem Dýr-
leif tók sér fyrir hendur leysti hún
vel, sama hvort það voru íþróttirnar,
vinnan eða vinirnir.“ Þetta eru falleg
eftirmæli frá systur sem er aðeins 13
mánuðum eldri. Dýrleif var gædd
miklu innsæi á aðra og tillitssemi.
Eitt sinn þegar við vorum að koma út
frá lækninum hennar, sem hafði fært
henni afar slæmar fréttir, þá sagði
hún: „Þetta hefur nú verið erfitt fyrir
hann Jakob að segja okkur þetta.“
Dýrleif tókst á við alvarleg veikindi
með ótrúlegu æðruleysi, kjarki og
krafti. Hún var þó ekki ein í þeirri
baráttu, því móðir hennar stóð eins
og klettur við hlið hennar allan tím-
ann. Nánari og samstilltari mæðgur
held ég að sé ekki hægt að ímynda
sér. Þær tóku stöðuna hverju sinni
og stefndu síðan ótrauðar á besta
kostinn. Þær virtust ósigrandi. Dýr-
leif ætlaði sér líka að sigra og hún var
þegar búin að sjá að reynsla sem
þessi væri dýrmæt og ekki allir sem
yrðu hennar aðnjótandi og hún hafði
orð á því að hún ætlaði að nýta hana
öðrum til hjálpar. Því miður verður
það ekki á þessu tilverustigi. Þessi
tími með Dýrleifu og móður hennar
mun ávallt verða mér og fjölskyld-
unni afar dýrmætur. Það voru sér-
stök forréttindi að fá að taka svo
mikinn þátt. Elsku Svana, Berglind,
Kjartan, Yngvi og Jóna, missir ykkar
er mikill en það er nokkuð ljóst að
Dýrleifar bíða stór verkefni.
Jarþrúður móðursystir.
Kæra Dýrleif.
Nokkur fátækleg kveðjuorð sem
ekki voru sögð í bráðum aðdraganda
þess að þú yfirgafst okkur – hrifsuð í
burt af ótrúlegri og óskiljanlegri bí-
ræfni. Manni finnst þessi frammi-
staða guðs ekkert til að hrópa húrra
fyrir. Kannski var þetta einhver
snilldarleikur sem manni er ekki ætl-
að að skilja strax. Hver veit nema þú
vitir núna hvað að baki býr.
Þegar þú varst lítil kynntist ég þér
ágætlega, enda samskipti fjöl-
skyldna okkar góð, þó oft væri um
langan veg að fara. Snemma komu
eðliskostir þínir fram: Jákvætt lund-
arfar, hjálpsemi, einlægni í öllum
samskiptum og staðföst eftirfylgni ef
því var að skipta. Einkum er mér
minnisstætt hversu samband þitt við
Gunndísi frænku þína var eðlilegt,
gott og gefandi.
Eitthvað dró úr samskiptunum
eftir að þú komst á unglingsárin og
þar yfir, en alltaf sömu elskulegheit-
in. En samskiptin áttu eftir að aukast
á ný og kom það ekki til af góðu. Upp
úr áramótum greindist þú með heila-
æxli. Í framhaldi af því þurftir þú að
leita þér lækninga í Reykjavík og
dvaldir þá ásamt mömmu þinni hjá
okkur í Granaskjólinu. Erfiður tími
þar sem hvert áfallið rak annað. Í
allri þessari baráttu varstu söm við
þig og gafst meira en þú tókst. Við-
horf þitt til lífsins meðan á þessu öllu
saman stóð var á við allar heimsins
messur. Einstakt æðruleysi og trú á
farsælan endi. Þegar niðurstöður af
rannsóknum og myndatökum bárust
ein af annarri þessa mánuði, allar á
verri veg, sagðirðu yfirleitt: „þetta er
þá bara svona“, tilbúin í næsta slag.
Ég hef aldrei þekkt manneskju með
jafn stóran skammt af æðruleysi og
kjarki. Það var mér mikill heiður að
kynnast þér.
Halldór.
Elsku hjartans Dýrleif mín, ég
trúi því ekki ennþá að ég sé virkilega
að skrifa minningargrein um þig,
elsku vinkona mín. Þetta er svo
óraunverulegt allt saman og svo
ósanngjarnt. En vonandi líður þér
betur núna en þér leið síðustu daga
þína. Allavega verð ég að trúa því að
það sé einhver tilgangur með því að
taka þig frá okkur. Þú sem varst svo
lífsglöð, sæt og yndisleg vinkona og
nú ertu farin. Ég veit að þú verður
alltaf í huga okkar. Þetta er allt svo
sárt, þú sem varst svo hraust og
ákveðin í að sigrast á þessum veik-
indum. Þar sem mamma þín stóð
ávallt þér við hlið sem klettur.
Það er svo sárt að hugsa um það að
aldrei aftur eigum við eftir að hittast,
spjalla saman, djamma, rúnta, borða
saman nammi og allt það skemmti-
lega sem við gátum brallað saman.
En ég vona að eitthvað taki við svo
við getum gert þetta allt saman aftur
þegar minn tími kemur. Minning þín
mun lifa sem ljós í hjarta mínu og
það er svo gott og jafnframt sorglegt
að hugsa um allar góðu stundirnar
sem við höfum átt saman og þá sér-
staklega þær fyrir austan þegar við
vorum yngri. Og mér þótti nú ekki
leiðinlegt að gera þér bilt við eins og
við höfum nú getað hlegið að síðustu
ár.
Með þessum orðum vil ég kveðja
þig í hinsta sinn, elsku vinkona. Megi
guð styrkja fjölskyldu þína á þessari
sorgarstund.
Sofðu rótt, elsku Dýrleif mín.
Saknaðarkveðjur. Þín vinkona
Elma.
Elsku Dýrleif.
Hverjum hefði dottið í hug að ein
af okkur myndi kveðja svona
snemma. Við sitjum hérna og reyn-
um að átta okkur á því að þú sért far-
in frá okkur. Við erum enn að bíða
eftir því að einhver veki okkur af
þessari martröð, en það mun ekki
gerast því þetta er blákaldur raun-
veruleikinn, eins sár og hann er. Þú
varst alltaf svo jákvæð og talaðir
bara um þetta eins og þetta væri
hver önnur flensa, ekkert að stressa
þig á þessu. Þú hefur alltaf verið svo
hraust líkamlega og með mikið
keppnisskap þannig að við héldum að
þú myndir hafa betur í baráttu þinni
við þennan erfiða sjúkdóm. En þessi
hörmulegi sjúkdómur sem tók þig
frá okkur var ósigrandi, þú barðist
eins og hetja alveg fram á seinustu
mínútur. Eftir sitjum við með sárt
hjarta, vitandi að við munum aldrei
sjá þig aftur, hlæja með þér eða upp-
lifa neitt með þér framar. Núna á
alltaf eftir að vanta eitthvað vegna
þess að hluti úr hjarta okkar dó með
þér. En á svona stundum verður
maður að hugsa til baka og vera
þakklátur fyrir að hafa kynnst eins
frábærri stelpu og þér og eiga allar
yndislegu minningarnar um þig.
Við rifjum upp eitt af fjölmörgu
skiptunum sem við gistum saman hjá
Söru. Það var brjálað veður og raf-
magnslaust um alla Akureyri, en
þrátt fyrir veðrið og rafmagnsleysið
dreifst þú okkur allar í snjógalla og
leiddumst við í gegnum blindbyl út í
búð að kaupa nammi. Þegar við kom-
um heim lágum við upp í rúmi alla
nóttina að spjalla, eins og okkur ein-
um er lagið.
Þér fannst alltaf svo gaman að
gera þig fína og þau voru ófá skiptin
sem við þurftum að bíða eftir þér í
lengri tíma á meðan þú varst að taka
þig til. Ekki var auðvelt að keppa við
spegilinn um athygli þína því alltaf
hafði spegillinn betur, aldrei munum
við heldur gleyma fræga spegla-
svipnum þínum sem við gerðum svo
oft grín að.
Við fjórar ætluðum að gera svo
margt saman, ala upp börnin okkar,
ferðast um allan heim og margt fleira
en þar sem þú varst tekin frá okkur
verður þú með í hjarta okkar hvar
sem við erum. Við trúum því að þú
vakir yfir okkur og verðir okkar
verndarengill. Við elskum þig svo
mikið, elsku ástin okkar. Þetta er bú-
ið að vera erfiður tími fyrir okkur og
þá sérstaklega fjölskylduna þína sem
ann þér svo heitt. Við munum hugga
hvert annað og veita hvert öðru
styrk á þessum erfiðu tímum. Við
munum aldrei gleyma þér og við
elskum þig til tunglsins og til baka
Þínar bestu vinkonur
Silja, Íris og Sara.
Elsku Dýrleif.
Það eru erfið sporin sem við göng-
um í dag er við fylgjum þér til grafar.
Vinkonu í blóma lífsins sem á svo
sorglegan hátt var tekin frá okkur.
Þú varst kölluð í stríð sem þú háðir
af svo miklu hugrekki og lést aldrei
bilbug á þér finna. Þú mættir miklum
hindrunum sem þú oftar en ekki
fórst létt með að sigrast á. En nú er
stríðinu lokið og í okkar huga ert þú
sigurvegarinn, þú lést ekkert slá þig
út af laginu og hélst áfram að njóta
lífsins þrátt fyrir að vita að það yrði
styttra en okkar flestra. Við erum
þakklátar fyrir að hafa fengið tæki-
færi til að kveðja þig, það var svo
gott að geta komið til þín á spítalann,
setið hjá þér og haldið í höndina þína.
Við erum svo stoltar af þér, elsku
Dýrleif, og við söknum þín svo mikið.
Við trúum því að þín bíði miklu
stærra og meira hlutverk annars
staðar sem geri okkur enn stoltari af
því að hafa fengið að kynnast þér. Á
þessum erfiðu tímum hugsum við til
baka og yljum okkur við allar minn-
ingarnar um þig sem aldrei verða
teknar frá okkur. Það sem hryggir
okkur nú var eitt sinn gleði okkar.
Þú varst daglegur gestur hjá okk-
ur þegar við bjuggum saman í
Stekkjargerðinu. Þaðan eigum við
margar góðar minningar þar sem oft
var ansi langt liðið á nóttina þegar
við fórum að sofa. Yfirleitt búnar að
innbyrða mikið magn af sælgæti, tala
mikið og hlæja enn meira. Sumarbú-
staðarferðinni gleymum við aldrei,
heil helgi í taumlausri gleði. Við
skoðuðum alla helstu staðina á norð-
austurhorninu og enduðum svo bens-
ínlausar á Kópaskeri þar sem þú
vildir fara á pöbbinn! Þessar minn-
ingar og svo margar fleiri geymum
við í hjarta okkar um ókomna tíð. Þú
ert og verður alltaf hetjan okkar.
Foreldrum þínum, Svönu og
Yngva, systkinum þínum, Berglindi,
Kjartani og Jónu, viljum við senda
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Þau hafa verið svo sterk í gegnum
veikindi þín og verið okkur vinkon-
um þinum mikill styrkur.
Sjáumst aftur á betri stað, elsku
Dýrleif okkar.
Okkur þykir svo vænt um þig.
Þínar alltaf,
Arnrún og Hugrún.
Elsku Dýrleif.
Hví var þessi beður búinn
barnið kæra, þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
DÝRLEIF
YNGVADÓTTIR