Morgunblaðið - 27.08.2004, Side 31

Morgunblaðið - 27.08.2004, Side 31
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 31 Það er kveðjan: ,,Kom til mín!“ Kristur tók þig heim til sín. Þú ert blessuð hans í höndum, hólpin sál með ljóssins öndum (Björn Halldórsson í Laufási.) Foreldrum, systkinum og öðrum aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð. Kveðja bekkjarsystkinin í Brekkuskóla, Akureyri. Elsku Dýrleif. Í dag kveðjum við þig, kæra vin- kona og samstarfsfélagi. Aldrei áttum við von á því að við ættum eftir að setjast niður og skrifa minningargrein um eina af okkur. Þegar þú greindist með krabbamein í janúar varst þú ákveðin í að sigrast á sjúkdómnum. Þú varst alltaf svo sterk og jákvæð og við trúðum aldrei að þetta myndi enda svona. Þú varst alltaf vinur vina þinna og með svo já- kvætt viðhorf til lífsins að hver manneskja ætti að taka þig til fyr- irmyndar. Eftir meðferðina í apríl komst þú og vannst nokkrar vaktir, þú varst ákveðin í að vinna með okkur í sumar og fara svo í skólann og útskrifast í desember. Fyrir um tveimur árum kom mað- ur í Ak-inn og var að bjóða okkur líf- og sjúkdómatryggingu og varst þú fyrst til að skrá þig. Þú lést hann hafa símaskrána okkar og sagðir honum að hringja í okkur allar, þú sagðir að maður vissi aldrei hvað gæti komið fyrir á lífsleiðinni. Það var alltaf gaman að vinna með þér, þú varst svo mikill prakkari eins og þegar þú blést upp tvær blöðrur og hafðir sem brjóst, fórst svo og af- greiddir eins og ekkert væri og á meðan vorum við að springa úr hlátri. Þetta er ein af mörgum góðum minningum sem við eigum um þig. Þú varst engill á jörðu og ert nú engill á himni. Við erum þakklátar fyrir að hafa fengið að kynnast þér, minning þín lifir í hjörtum okkar. Elsku Svana, Yngvi, Berglind, Kjartan, Jóna og aðrir aðstandend- ur, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og biðjum Guð að styrkja ykkur á þessari erfiðu stundu. Við munum sakna þín, elsku Dýr- leif. Stelpurnar þínar í Ak-inn. Elsku Dýrleif mín. Það er svo sárt að þurfa að kveðja þig núna svona snemma, við áttum svo góðar stundir saman. Ég kveð þig með söknuði og í hjarta mínu geymi ég minningar um þig þar sem enginn tekur þær frá mér. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Fjölskyldunni sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Guð varðveiti þig. Örn Kató. Elsku Dýrleif. Við þökkum fyrir þær góðu stund- ir sem við áttum með þér. Nærvera þín var hlý og ljúf og minninguna um þig munum við varðveita. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Hvíl í friði, elsku vinkona. Innilegar samúðarkveðjur send- um við fjölskyldu og vinum Dýrleif- ar. Þóra Kristín, Haukur og Arna Katrín. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt lit og blöð niður lagði líf mannlegt endar skjótt. Svo hleypur æskan unga óvissa dauðans leið sem aldur og ellin þunga, allt rennur sama skeið. Innsigli engir fengu upp á lífsstunda bið, en þann kost undir gengu allir að skilja við. Dauðinn má svo með sanni samlíkjast, þykir mér, slyngum þeim sláttumanni, er slær allt, hvað fyrir er: grösin og jurtir grænar, glóandi blómstrið frítt, reyr, stör sem rósir vænar reiknar hann jafnfánýtt. (Hallgrímur Pétursson.) Elsku Dýrleif. Við urðum svo glöð þegar við heyrðum að Jói væri búinn að eign- ast kærustu. Og ekki varð gleðin minni þegar við kynntumst þér. Við sáum strax hve yndislega góð, falleg og efnileg stúlka þú varst og hvílík gæfa það var fyrir Jóa að hafa eign- ast þig sem náinn vin. Enginn ungur maður hefði getað fengið betri lífs- förunaut en þig. En, því miður eru sumir hlutir allt of góðir til þess að geta verið varanlegir. Ský dró fyrir sólu er í ljós kom að þú varst alvar- lega veik. Dauðinn ætlaði sér þig og gaf ekkert eftir. Það var ótrúlegt að sjá hvað þú stóðst þig vel í veikindum þínum og æðruleysið sem þú sýndir. Nú ert þú skyndilega horfin, elsku Dýrleif, miklu fyrr en við óttuðumst. Eftir sitjum við sorgmædd og sökn- um sárlega góðs vinar. Við viljum þakka þér innilega fyrir alla þá gleði sem þú barst með þér inn í líf okkar. Guð blessi þig, elsku vina. Sigurður og Ingibjörg Heiðdal. Elsku Dýrleif. Kveðjustundir eru alltaf erfiðar, en að þurfa að kveðja vinkonu í blóma lífsins er eitthvað sem engan óraði fyrir en lífið er hverfult og við fáum engu ráðið. Nú ert þú farin frá okkur en eftir standa allar minning- arnar um þig, elsku vinkona. Allt frá því að þú komst brosandi inn í 8. bekk í Brekkuskóla og þar til að þú brostir til okkar nokkrum dögum áð- ur en þú kvaddir þennan heim. Það var svo gott að geta komið til þín og haldið í höndina þína og við vitum að þér þótti það líka notalegt. Það er svo erfitt að sætta sig við það að þú sért farin frá okkur og að við fáum ekki að hitta þig oftar, en við trúum því að þín bíði annað og mikilvægara starf á betri stað og að nú líði þér vel og þú sért fallegur engill á himnum sem vakir yfir öllum sem þér þótti svo vænt um. Þó að þú sért ekki lengur hér hjá okkur þá vit- um við að þegar við vinkonurnar er- um saman komnar þá lætur þú þig ekki vanta og brosir líklega af kjána- skapnum í okkur. Skarðið þitt verður aldrei fyllt. Þú varst og verður alltaf hetjan okkar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem.) Við sendum fjölskyldu og vinum okkar dýpstu samúð. Við söknum þín svo sárt, ástin okkar. Hvíl í friði. Þínar vinkonur, Hulda og Sigríður Jóna. Elsku hjartans Dýrleif mín. Ég trúi ekki að þú sért farin frá okkur, það er svo ósanngjarnt. Ég veit að þér líður miklu betur þar sem þú ert núna, laus við þetta mein sem herjaði á þig. Við erum búnar að eiga svo mikinn tíma saman undanfarnar vikur, fórum út að borða á hverjum degi, þér fannst svo gott að komast aðeins út. Þú varst svo jákvæð í sam- bandi við veikindin, svo dugleg. Þetta er svo sárt og ég veit að ég mun aldrei hætta að finna til í hjart- anu en ég verð að læra að lifa með því. Ég á svo margar minningar um þig ljúfan mín og ég er svo þakklát fyrir að hafa þekkt þig svona vel, þú ert yndisleg manneskja. Ég mun sennilega aldrei skilja hvers vegna þú þurftir að fara, en sá sem ræður því hverjir fara og hverjir koma hlýt- ur að vita hvað hann er að gera, því ætla ég að trúa. Ég sakna þín svo mikið Dýrleif, hvar sem ég kem þá er eitthvað þar sem minnir mig á þig og minnir mig á að þú ert farin frá okk- ur og það er svo erfitt. Mig langar svo að heyra þig í hláturskasti einu sinni enn, það eru ófá skiptin þar sem við höfum gert okkur að fíflum útaf því að við gátum ekki hætt að hlæja. Ég mun alltaf spjalla við þig eins og ég er búin að gera undanfarna daga, ég trúi því að þú heyrir í mér. Guð geymi þig, elsku ástin mín, ég elska þig mest. Þín vinkona Sara Fönn. Dýrleif er farin, hún sem var alltaf svo hress og kát var tekin frá okkur allt of snemma og eftir sitjum við og reynum að skilja af hverju. Svarið fáum við sennilega aldrei en huggum okkur við þá tilhugsun að henni líði vel þar sem hún er og hennar bíði annað og stærra hlutverk annars staðar. Hún var hetjan okkar og barðist við veikindi sín sem slík. Dýr- leif var í stórum vinahóp og eru margar minningar sem við eigum með henni og á erfiðum tímum erum við vinkonurnar búnar að sitja sam- an og rifja upp allar minningarnar sem við eigum um hana og þá er oft ekki hægt annað en að hlæja, þannig var hún, alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast í kring um hana. Við erum allar búnar að standa saman og erum heppnar að eiga hver aðra að til að styðjast við. Þín verður sárt saknað, elsku vin- kona. Ég veit ei slíkt, en vona þó að veröld fögur opnist þér. Ég fel þig dauðans dul og ró því djúpi sem er hulið mér. Elsku Svana, Yngvi, Berglind, Kjartan og Jóna, við biðjum guð að styrkja ykkur í sorg ykkar. Þínar vinkonur, Alma Rún og Lilja Rós. Elsku Dýrleif mín. Alltaf vaknar þessi sama spurning, af hverju þú? Alltaf svo lífsglöð og það var ekk- ert sem stoppaði þig í neinu, þú gerð- ir allt sem þig langaði til að gera. Þú stóðst alltaf fyrir þínu. Elsku Dýrleif mín, ég sakna þín svo rosalega mikið, og mun alltaf geyma minningu þína í hjarta mér. Allar stundirnar sem við höfum átt saman í fótboltanum, það var svo mikil barátta í þér, algjör keppnis- manneskja, á djamminu alltaf svo sæt og fín, þér fannst gaman að haf- aþig til. Allar stundirnar sem við vin- konurnar höfum átt saman, þar var alltaf gaman og mikið hlegið þú varst alltaf svo skondin og alltaf hægt að hlæja mikið með þér og af sniðugu sögunum þínum. Það á eftir að vera erfitt að sætta sig við að þú sért farin, en ég verð að trúa því að það taki eitthvað betra við. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ég votta fjölskyldu og aðstand- endum mínar innilegustu samúðar- kveðjur, megi Guð gefa ykkur styrk í þessari miklu sorg. Þú ert ljóslifandi í minningu minni, megir þú hvíla í ljósi og friði. Þín vinkona, Greta. Elsku Dýrleif mín. Ég sit hérna og minningarnar um þig streyma frá hjartanu. Þú komst inn í líf okkar þegar þú og Jói minn fóruð að vera saman. Yndislegri stúlku en þig hafði ég ekki hitt. Þú hafðir allt til að bera, jákvæðni, dugnað og heiðarleika og varst svo góð við mig og sérstaklega Hrafn, hann sem var svo hrifinn af þér og þykir svo vænt um þig. Ég trúi því ekki enn að þú sért farin frá okkur. Þú varst svo mikil hetja í veikindum þínum allt til enda. Minningarnar um þig munum við alltaf geyma í hjört- um okkar, elsku Dýrleif. Okkur þótti svo vænt um þig. Jói hefur misst svo mikið en við munum reyna að hjálpa honum í gegnum áfallið að missa þig á þennan hátt. Takk fyrir allt sem þú gafst okkur, elsku Dýrleif. Minning þín mun alltaf lifa með okkur. Drottinn vakir, Drottinn vakir daga’ og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir ber hann þig í faðmi sér. Allir þótt þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Löng þá sjúkdómsleiðin verður, lífið hvergi vægir þér, þrautir magnast, þrjóta kraftar, þungt og sárt hvert sporið er, honum treystu, hjálpin kemur, hann af raunum sigur ber. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sigurður Kristófer Pétursson.) Við viljum votta ykkur, fjölskyldu Dýrleifar, okkar innilegustu samúð og biðjum um að Guð megi styrkja ykkur á þessari erfiðu stund. Brynja og Hrafn. Elsku Dýrleif. Ég sit hérna og skrifa minning- argreinina þína, en ég skil ekki ennþá af hverju ég er að því. Þetta er allt svo óraunverulegt að þú, elsku Dýrleif mín, sést farin frá okkur, því þetta tók allt svo snöggan enda að hugsunin um að þú sért farin er ennþá svo langt í burtu. Þú ert komin á betri stað, elskan mín, og munt vaka yfir okkur vinkonunum um ókomna framtíð. Þótt dvöl þín hjá okkur hafi verið alltof stutt, þá eru minningarnar svo ótrúlega margar og allar eru þær glaðlegar því alltaf var svo stutt í þitt yndislega bros. Við kynntumst í Gagganum á Ak- ureyri og eru ófáar minningarnar þaðan, allar stundirnar sem við átt- um saman eru mér ógleymanleg minning. Við fylgdumst að upp í Verkmenntaskóla og tóku þar við ennþá skemmtilegri ár, það var ósjaldan sem við sigruðum rúntinn og vorum við aðalgellurnar og áttum hreinlega bæinn. Allar þessar minn- ingar munum við vinkonurnar geta rifjað upp og hlegið og veit ég að þú munt sitja með okkur og hlæja. Þú áttir svo stóran vinahóp og all- ar stöndum við saman í gegnum þessa erfiðu tíma, þú munt alltaf vera með okkur í anda. Þú ert hetja, þú barðist fram á síðustu mínútu, en þín bíður annað hlutverk á öðrum stað, en við munum hittast aftur, elsku vinkona. Elsku Svana, Yngvi, Berglind, Kjartan og Jóna, megi Guð styrkja ykkur í gegnum sorgina. Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni hér og hlýhug allra vannstu er fengu að kynnast þér. Þín blessuð minning vakir og býr í vinahjörtum á brautir okkar stráðir þú, yl og geislum björtum. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Ég elska þig og mun sakna þín sárt. Þín vinkona, Guðríður. Elsku Dýrleif mín, ég trúi því ekki að það sé kominn tími til að kveðja þig, svo ung og falleg og yndisleg vin- kona. Það eru nú ekki fáar stund- irnar sem við áttum saman og fund- um við vinkonurnar okkur eitthvað að gera og skemmtum okkur yfirleitt konunglega. Það er bara svo sárt og erfitt að hugsa til þess að þú sért far- in og að stundirnar með þér verði ekki fleiri. Ég trúi því samt og vona að þér líði betur núna og sért á góð- um stað þar sem mörg spennandi verkefni bíða eftir þér. Góðir vinir eru vandfundnir en eitt það mikil- vægasta sem maður getur eignast og ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig sem vinkonu og haft þig í lífi mínu. Við stelpurnar reynum saman að komast í gegnum þennan mikla sorg- artíma og við vitum að þú ert hjá okkur í anda, alltaf og um ókomna tíð. Ég geymi allar minningarnar í hjarta mínu að eilífu, ég sakna þín og elska þig. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Svana, Yngvi, Berglind, Jóna og Kjartan, ég samhryggist ykkur af öllu hjarta, megi guð veita ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Þín vinkona, Sigrún Björk. Dýrleif mín. Það eru núna liðnir nokkrir dagar síðan þú fórst frá okk- ur og ég sit hérna og langar að segja þér svo margt. Þetta getur bara ekki staðist, ég er enn að bíða eftir því að einhver veki mig og allt sé eins og áð- ur. Þú varst ein sú hraustasta mann- eskja sem ég þekkti, ég man varla eftir að hafa heyrt þig kveinka þér. Einnig varstu rosaleg keppnismann- eskja. En eftir hetjulega baráttu í þessum erfiðu veikindum þurftir þú að játa þig sigraða. Það sem mér fannst alltaf svo skemmtilegt var að hlusta á þig segja frá, þú lifðir þig svo inn í frásögnina að þú náðir því alltaf einhvern veginn að láta mann finnast að maður hafi verið á staðnum. Þú átt örugglega eitthvert tímamet í að standa fyrir framan spegilinn og það sem við stelpurnar gátum hlegið að því. Ég man þegar þú sagðir, með þitt fallega glott á andlitinu, að þú værir búin að horfa það mikið í spegilinn að þegar þú lokaðir augunum sæir þú sjálfan þig. Þó að söknuðurinn til þín sé hrylli- lega sár get ég huggað mig við það að nú sé sá sársauki sem hrjáði þig síð- ustu vikurnar farinn. Mér er ofar- lega í huga seinasta samtalið okkar, það var undir blálokin og við vissum báðar að það væri ekkert meira hægt að gera, þá sagðir þú: Ég hlýt nú að fara að hressast, þá get ég hitt þig al- mennilega. Núna ertu komin á nýjan stað og örugglega hress á ný en það verður að bíða betri tíma þar til við hittumst og ég mun oft hugsa til þín þangað til. Ég vil biðja góðan guð að hug- hreysta fjölskyldu þína og leiða hana í gegn um þessa miklu sorg. Loforð Guðs: Ég hef aldrei lofað að brautin sé bein og gullskrýddir vegir alla leið heim. Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar á göngunni til himinsins helgu borgar. En lofað ég get aðstoð og styrk og alltaf þér ljós þó leiðin sé myrk. Mundu svo barn mitt að lofað ég hef að leiða þig hvert einasta skref. (Höfundur ókunnur.) Þín vinkona, Þóra Ýr.  Fleiri minningargreinar um Dýr- leifi Yngvadóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Silja Dögg, Íris Björk, María.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.