Morgunblaðið - 27.08.2004, Side 36
MINNINGAR
36 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Geir Magnússonfæddist á Kára-
stíg 6 í Reykjavík 23.
nóvember 1910.
Hann lést á Landspít-
alanum í Fossvogi 20.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Margrét
Geirsdóttir, f. 16.9.
1873, d. 21.9. 1951 og
Magnús Einarsson, f.
30.9. 1874, d. 26.3.
1941. Systkini Geirs
eru: Guðrún, f. 6.7.
1904, d. 29.8. 1981,
Einar Sigurjón, f.
14.10. 1906, d. 20.6. 1989, Árný
Kristín, f. 12.4. 1909, d. 9.10. 1998,
Ellert Ágúst, f. 4.8. 1913, d. 17.6.
1997, Óla Guðrún, f. 23.3. 1916, d.
18.7. 2000, og Inga Torfhildur, f.
28.6. 1918, Hálfbróðir var Eyjólf-
ur Guðsteinsson, f. 3.7. 1897,d.
30.10. 1924. Geir
kvæntist 23. nóv.
1940 Ástdísi Ara-
dóttur f. 28.9. 1919,
d. 22.9. 2001. Börn
Geirs og Ástdísar
eru: 1) Guðbjörn, f.
1. feb. 1943, kvæntur
Þórey Erlendsdóttir,
þau eiga þrjú börn
og sjö barnabörn. 2)
Margrét, f. 1. nóv.
1944, gift Þorsteini
Erni Þorsteinssyni,
d. 27. des. 1991. Þau
eiga þrjú börn og
eitt barnabarn. 3)
Ásthildur, f. 5. apr. 1959, giftist
Brian K. Baity en er nú skilin. Þau
eiga einn son. Geir vann lengst af
hjá Steypustöðinni.
Útför Geirs fer fram frá Frí-
kirkjunni í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Guð blessi minningu þína, elsku
pabbi.
Þín börn
Guðbjörn, Margrét
og Ásthildur.
Elsku afi minn.
Ég kveð þig með tár í augum
um leið og ég hugsa um allar þær
góðu minningar sem ég á um þig.
Við áttum svo vel saman, bæði
vorum við algjörir sælgætisgrísir
og eru það ófá skiptin sem við
gæddum okkur á góðu súkkulaði
og skiptumst á sögum um ferðir
okkar innanlands sem utan. Þú
hafðir alltaf svo gaman af því þeg-
ar ég kom heim úr einhverju
ferðalagi og sagði þér hvert ég
hafði farið og hvað ég gerði. Þú
þekktir Ísland eins og handarbak-
ið á þér og sagðir mér frá ótelj-
andi stöðum sem ég vissi ekki að
væru til, þó að ég hefði verið við
hliðina á þeim. Nú veit ég betur,
þökk sé þér.
Elsku afi minn, það er sárt að
hugsa til þess að þú sért horfinn
úr mínu lífi og við getum aldrei
aftur talað saman, en ég veit innst
inni að þú ert kominn á betri stað
þar sem þér líður betur og færð að
hitta ömmu aftur.
Ég þakka Guði fyrir að hafa
fengið að hafa þig hjá mér svona
lengi. Ég elska þig og sakna þín
sárt.
Þín
Ástdís Þorsteinsdóttir.
GEIR
MAGNÚSSON
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Steypustöðin ehf. er framsækið þjónustu-
og framleiðslufyrirtæki sem skapar ásamt
viðskiptavinum sínum verðmætar gæða-
lausnir.
Starf
í helluverksmiðju
Okkur hjá Steypustöðinni vantar starfsmann
með lyftararéttindi í helluverksmiðju í
Hafnarfirði.
Umsóknir sendist í tölvupósti á netfangið
stefan@steypustodin.is fyrir þriðjudaginn
31. ágúst nk.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Með vísan til 3. mgr. 47. gr. sbr. 35. og 36. gr. nauðungarsölu-
laga nr. 90/1991 verður framhald uppboðs á ný á eftirfarandi
eign og verður það háð á eigninni sjálfri miðvikudaginn
1. september kl. 14.00:
Skarðsá II, fastnr. 211-8057 og 211-8061, Dalabyggð, þingl. eig. Unn-
steinn Eggertsson. Gerðarbeiðendur: Formaco ehf., Merkúr ehf.
og sýslumaðurinn í Búðardal.
Sýslumaðurinn í Búðardal,
26. ágúst 2004.
Anna Birna Þráinsdóttir.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtalinni eign verður háð sem hér
segir:
Reykir, íbúðarhús, fastnr. 214-2915, Sveitarfél. Skagafirði, þingl.
eign Stefaníu Guðjónsdóttur, verður háð á eigninni sjálfri fimmtu-
daginn 2. september 2004 kl. 14.00. Gerðarbeiðendur eru Landssími
Íslands hf., Íslandsbanki hf. og Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
26. ágúst 2004.
Ríkarður Másson.
Auglýsing
um deiliskipulag í Borgarbyggð
Galtarholt 2
Samkvæmt ákvæðum 26. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, er hér með lýst eftir
athugasemdum við ofangreint deiliskipulag.
Um er að ræða lóðir undir frístundahús, íbúð-
arhús og hesthús og þjónustuhús.
Grábrókarhraun, vatnsveita
Samkvæmt ákvæðum 26. gr skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, er hér með lýst eftir
athugasemdum við ofangreint deiliskipulag.
Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi vatns-
tökusvæðis í Grábrókarhrauni.
Tillögur munu liggja frammi á Bæjarskrifstofu
Borgarbyggðar frá 27. ágúst 2004 til 24. sept-
ember 2004.
Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofuna
fyrir 8. október 2004 og skulu þær vera skriflegar.
Borgarnesi, 18. ágúst 2004.
Bæjarverkfræðingur Borgarbyggðar.
TILKYNNINGAR
Auglýsing
um óverulega breytingu á svæðaskipu-
lagi norðan Skarðsheiðar, niðurfellingu
aðalskipulags og breytingu deiliskipulags
í Skorradalshreppi, Borgarfjarðarsýslu.
Samkvæmt ákvæðum 14., 18. og 25. gr. skipu-
lags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með
auglýst óveruleg breyting á svæðaskipulagi
norðan Skarðsheiðar 1997-2017, og niðurfell-
ingu aðalskipulags í landi Dagverðarness í
Skorradalshreppi .Gert er ráð fyrir að svæði
frístundabyggðar stækki úr 59,5 ha í 124 ha.
Fellt er úr gildi aðalskipulag jarðarinnar Dag-
verðarness frá 10. ágúst 1994. Skorradals-
hreppur tekur að sér að bæta það tjón sem ein-
staklingar kynnu að verða fyrir við skipulags-
breytinguna.
Einnig er lýst eftir athugasemdum við nýtt
deiliskipulag fyrir svæði 1, lóð nr. 30 er
stækkuð. Svæði 4, lóðum fjölgað um fjórar
lóðir. Svæði 6, lóðum fjölgað um 26 og eldra
skipulag fellt úr gildi. Tillagan, ásamt bygging-
ar- og skipulagsskilmálum, liggur frammi hjá
oddvita að Grund í Skorradal frá 27. ágúst 2004
til 24. september 2004 á venjulegum skrifstofu-
tíma.
Athugasemdum skal skila fyrir 8. október 2004
og skulu þær vera skriflegar.
Þeir, sem ekki gera athugasemd innan til-
greinds frests, teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Naustabryggja 54, 0205, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Örn Þorvarð-
ur Þorvarðsson, gerðarbeiðandi Sparisjóður Hafnarfjarðar, þriðju-
daginn 31. ágúst 2004 kl. 11:30.
Spóahólar 6, 0301, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Cristito A De La
Cruz, gerðarbeiðandi Og fjarskipti hf., þriðjudaginn 31. ágúst 2004
kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
26. ágúst 2004.
Sálarrannsóknarfélag
Íslands,
stofnað 1918,
sími 551 8130,
Garðastræti 8, Reykjavík
Kynningarfundur um hópa-
starf félagsins verður laugardag-
inn 28. ágúst kl. 14.00.
Kynnt verður um hvað starfið
snýst og ýmsar nýjungar sem
briddað verður upp á í vetur.
Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
SRFÍ.
Píanókennsla
Kenni 1. til 6. stigs í píanóleik.
Get bætt við nokkrum nemendum.
Upplýsingar í síma 553 0211.
Jakobína Axelsdóttir, píanókennari,
Austurbrún 2 (9 5), 104 Reykjavík.
KENNSLA
mbl.is
ATVINNA
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGURJÓNU FRIÐJÓNSDÓTTUR,
Þrastarási 71,
Hafnarfirði.
Friðjón Pálsson, Hrafnhildur Karlsdóttir,
Halldór Pálsson, Helga G. Ólafsdóttir,
Gísli Pálsson, Hrafnhildur G. Sigurðardóttir,
Sigríður G. Pálsdóttir, Helgi Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra er auðsýndu mér og
fjölskyldu minni samúð við fráfall ástkærrar
eiginkonu minnar,
KÖRLU STEFÁNSDÓTTUR,
Kópavogsbraut 1b.
Hlýhugur ykkar og vinátta er mikill styrkur.
Friðrik Jónsson.