Morgunblaðið - 27.08.2004, Síða 39
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 39
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Týndur bangsi í Heiðmörk
KRISTÍN týndi bangsanum sínum
þegar hún fór í skátaútilegu í
Heiðmörk 12.–13. ágúst. Hún
saknar hans afar mikið og biður
þann sem hefur fundið hann að
hafa samband við mömmu hennar
eða pabba í síma 561 3398 eða
562 5020.
Flugubox í óskilum
FLUGUBOX fannst við lækinn
Fullsæl í Biskupstungum. Eigandi
getur vitjað þess eftir lýsingu í
síma 557 3587 eftir kl. 17.
Þessi köttur er týndur
ÞESSI köttur týndist 14. ágúst sl.
Hann er eyrnamerktur (02G24).
Hans er sárt saknað. Þeir sem
geta gefið upplýsingar um hann
eru beðnir að hringja í síma
868 9374 eða 562 0928.
Dáfríður er týnd
KISAN Dáfríður, sem á heima að
Breiðuvík 77, brá sér út laug-
ardagskvöldið 21. ágúst sl. (á
Menning-
arnótt) og
hefur ekki
skilað sér
heim síðan.
Dáfríður er
þrílit: svört
og brún á
baki en hvít
í framan, á
bringu,
maga og
fótum. Annað eyrað brúnt, hitt
svart og svo er hún með svarta
„eyeliners“. Hún var með svart
hálsband og merki með nafni sínu
og upplýsingum. Þá er kennitala
hennar R1119 tattóeruð innan á
hægra eyra. Íbúar, sérstaklega í
Víkurhverfinu og í grennd við
golfvöllinn, eru góðfúslega beðnir
að svipast um eftir henni í bíl-
skúrum eða kjöllurum sínum. Dá-
fríði hættir til, fyrir forvitnissakir,
að skríða inn um allar opnar gáttir
og gæti því hafa lokast inni. Þeir
sem kynnu að verða hennar varir
láti vinsamlega vita í síma
557 4074 eða 690 2000. Fund-
arlaun.
Hljómsveitin Jagúar nær miklum áfanga ámorgun, þegar hún hitar upp fyrir sjálf-an konung sálartónlistarinnar, JamesBrown. Það er mikið um að vera í lífi
sveitarinnar um þessar mundir, en hún réði nýlega
frægan umboðsmann og er nú við upptökur á nýrri
hljómplötu.
Verður þetta ekki toppurinn á ferli hljómsveit-
arinnar, að fá að hita upp fyrir sjálfan James
Brown?
„Jú, þetta er svona eins og að fá að upplifa sína
villtustu drauma. James Brown er náttúrlega guð
þegar kemur að þeirri tónlist sem við fáumst við.
Þegar við vorum að byrja spiluðum við mikið af efni
eftir James Brown og samstarfsmenn hans. Þetta
er toppurinn.“
Ætlið þið að reyna að ganga í augun á meist-
aranum?
„Auðvitað væri gaman ef hann heyrði okkur spila
og við gætum hitt hann. Það verður bara að koma í
ljós. Við ætlum að minnsta kosti að gera okkar besta
til að skemmta áhorfendum.“
Þið voruð að fá nýjan umboðsmann, Keith Harris.
„Já, hann hefur verið okkur innan handar sl. eitt
og hálft ár eða svo. Hann er gríðarlega virtur í Bret-
landi.“
Þetta er þekkt nafn ekki satt?
„Hann er t.d. umboðsmaður Stevie Wonders.“
Og hver er ætlunin með því að ráða hann?
„Ætlunin er einfaldlega að stækka markaðinn
sem við getum unnið á sem tónlistarmenn. Það er
gríðarlega stór „sena“ erlendis fyrir það sem við er-
um að gera. Hann getur stytt leiðina fyrir okkur.“
Þið ætlið í samstarf við Smekkleysu. Út á hvað
gengur það?
„Smekkleysa mun gefa nýju plötuna okkar út á
Íslandi í haust, en það er fyrst og fremst skrifstofan
þeirra í Bretlandi sem heillar okkur. Platan verður
gefin út ytra í janúar eða febrúar.“
Þið hafið verið að vinna með nýjum upp-
tökustjóra. Hver er það?
„Hann heitir Al Stone og hefur unnið með ekki
ófrægari aðilum en Björk, Jamiroquai og Stereo
MC’s.“
Hvað er svo framundan hjá Jagúar? Spila-
mennska erlendis?
„Nú er stefnan að klára plötuna og fylgja henni
eftir sem víðast.“
Tónlist | Hljómsveitin Jagúar hitar upp fyrir James Brown annað kvöld
Þetta er toppurinn
Samúel Jón Samúels-
son er fæddur í Reykjavík
11. nóvember 1974. Hann
lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Sund
vorið 1994, kennaraprófi
frá Tónlistarskóla FÍH árið
1999 og einleikaraprófi frá
sama skóla árið 2000.
Hann hefur starfað sem
atvinnutónlistarmaður frá
1995, bæði sem bás-
únuleikari og útsetjari. Samúel hefur unnið með
helstu tónlistarmönnum þjóðarinnar, svo sem
Sigur Rós, Tómasi R. Einarssyni og Sálinni hans
Jóns míns. Samúel hefur verið meðlimur í
hljómsveitinni Jagúar frá 1998.
Nýtt bragð!
Létt Óskajógúrt með ferskjum og ástaraldinum
er gerð úr léttmjólk og inniheldur engan við-
bættan sykur
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Án viðbætts sykurs!
Aðeins 43 kcal í 100 g!
28
DAN
SLEI
KUR
Bæjarlind 4 Kópavogi
föstudag
27. ágúst
ágúst
laugardag
Í SVÖRTUM FÖTUM
SIGGA BEINTEINS, GRÉTAR ÖRVARS & CO
Classic Rock
Ármúla 5
sími: 568-3590
Það verður grínstuð á Classic Rock
eins og vanalega á Föstudags og
Laugardagskvöldum svo náttúrlega
boltinn í beinni á risaskjám.
FRÍTT INN
N o o r d i n a r y F i s h
Hljómsveitin
HELGIN
50 ÁRA afmæli. Ídag, 27. ágúst,
verður fimmtugur
Kristján E. Gunn-
arsson, forstjóri
Gunnars Eggerts-
sonar hf. Hann verð-
ur að heiman í dag en
mun bjóða til afmæl-
isfagnaðar síðar í tilefni tímamótanna.
40 ÁRA afmæli. Ídag, 27. ágúst,
verður fertugur Ólaf-
ur M. Magnússon,
tenór og fv. sölustjóri
Osta-og smjörsöl-
unnar sf., Fífulind 2,
Kópavogi. Eiginkona
Ólafs er Sigrún
Bjarnadóttir, skólastjóri Hjallaskóla.
Af því tilefni efnir Ólafur og fjölskylda
hans til fagnaðar þann 27. ágúst kl. 20 í
Akogessalnum, Sóltúni 3, Reykjavík og
væri það þeim sönn ánægja að sjá ætt-
ingja og á afmælisdaginn.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Hlutavelta | Þær Júlía, Freydís og
Edda söfnuðu kr. 2.062 til styrktar
Krabbameinsfélagi Íslands.