Morgunblaðið - 27.08.2004, Page 42
MENNING
42 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Stórdansleikur með
Mannakornum í kvöld
Leikhúsgestir munið spennandi matseðil
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
BRIM - e. Jón Atla Jónasson gestasýning
Lau 11/9 kl. 18
Lau 11/9 kl. 21
SVIK e. Harold Pinter
frumsýning 23/9 kl. 20
2. sýning 24/9 kl. 20
HÁRIÐ - sýnt í Íþróttahöllinni gestasýning
fös 24/9 kl. 20 - sala hafin!
LEIKLISTARNÁMSKEIÐ
skráning stendur yfir
HÁRIÐ
Tryggðu þér miða
Endurnýjun áskriftarkorta
er hafin
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Í kvöld kl 20, - UPPSELT,
Lau 28/8 kl 20, Su 29/8 kl 20, - UPPSELT,
Fi 2/9 kl 20, - UPPSELT, Fö 3/9 kl 20 - UPPSELT,
Lau 4/9 kl 20, Su 5/9 kl 20
Takmarkaður sýningafjöldi
Sími miðasölu: 568 8000
Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00
Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00
Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Munið miðasöluna á netinu: www.borgarleikhus.is
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 5/9 kl 14, Su 12/9 kl 14, Su 19/9 kl 14
Su 26/9 kl 14
CHICAGO e. Kender, Ebb og Foss
Grímuverðlaunin: Vinsælasta sýning ársins!
Lau 18/9 kl 20, Lau 25/9 kl 20,
Lau 2/10 kl 20, Lau 9/10 kl 20
"ÁN TITILS" e. Ástrósu Gunnarsdóttur
MANWOMAN e. Ólöfu Ingólfsdóttur
& Ismo-Pekka Heikenheimo
Fö 3/9 kl 20
LÍT ÉG ÚT FYRIR AÐ VERA PALLÍETTUDULA
e. Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og
Margréti Söru Guðjónsdóttur
SO e. Cameron Corbett
GRÆNA VERKIÐ e. Jóhann Björgvinsson
Lau 4/9 kl 16
Su 5/9 kl 20
THINGS THAT HAPPEN AT HOME
e. Birgit Egerbladh
Gestadanssýning frá Teater Pero, Svíþjóð
Lau 4/9 kl 20
NÚTÍMADANSHÁTÍÐ 3/9 - 11/9
"ÁN TITILS" e. Ástrósu Gunnarsdóttur
MYNDBAND e. Helenu Jónsdóttur
THE CONCEPT OF BEAUTY e. Nadiu Banine
WHERE DO WE GO FROM THIS
e. Peter Anderson
Su 5/9 kl 16
MYNDBAND e. Helenu Jónsdóttur
THE CONCEPT OF BEAUTY e. Nadiu Banine
WHERE DO WE GO FROM THIS
e. Peter Anderson
Fi 9/9 kl 20
MANWOMAN e. Ólöfu Ingólfsdóttur
& Ismo-Pekka Heikenheimo
Fö 10/9 kl 20
Lau 11/9 kl 20
„Se iðand i og sexý sýn ing sem d regur
f ram hina r unda r l egustu kennd i r . “
- Va l d ís Gunna rsdó t t i r , útva rpskona -
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
Fös . 27 .08 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Lau . 28.08 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Lau . 04.09 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Sun . 05.09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 11 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Sun . 12 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008
JÓNSI
SVEPPI
Fös. 3. sept. kl. 19.30
Lau. 4. sept. kl. 18.00
Sun. 5. sept. kl. 19.30
SÍÐUSTU SÝNINGAR:Í I :
Hefðbundin starfsemi Vetrargarðs Smáralindar fer nú brátt að hefjast
og því kveður SUMARSMELLURINN FAME í September.
Síðustu sýningar á söngleikinn “sem hefur skemmt þúsundum
Íslendinga konunglega í allt sumar” Eru eftirfarandi:
Fim. 9. sept. kl. 19.30
Fös. 10. sept. kl. 19:30
Lau. 11. sept. kl. 19.30
Allra síðasta sýning:
lau. 28. ágúst kl. 20.00
Athugið! Aðeins þessar sýningar
Örfá sæti laus
CHERIE Blair, eiginkona Tony
Blair forsætisráðherra Bretlands,
opnar ásamt Alp Mehmet, sendi-
herra Bretlands á Íslandi, sýningu á
verkum Boyle-fjölskyldunnar í
Listasafninu á Akureyri á laug-
ardag, 28. ágúst, en sýningin er liður
í viðamikilli dagskrá, Akureyrarvöku
sem efnt er til árlega í tilefni af af-
mæli Akureyrarbæjar sem er 29.
ágúst.
Sýningin ber yfirskriftina Ferð að
yfirborði jarðar. Meginuppistaðan á
þessari yfirlitssýningu eru jarðverk,
skranverk, sett saman úr brotajárni
frá því snemma á sjötta áratugnum
og kvikmyndir. Einnig er þar að
finna strandir, 14 verk í eigu Comp-
ton Verney House Trust safnsins,
sem gerð voru árið 1969. Verkin
sýna sama strandhluta á flóði og
fjöru með 12 tíma millibili í eina viku
og þær breytingar sem áttu sér stað
á svæðinu – fingraför náttúrunnar.
Öll verkin, hvort sem um er að ræða
strönd, gangstétt eða iðnaðarsvæði,
líta út eins og skorið hafi verið út
margra tonna stykki úr jörðinni og
það hengt upp á vegginn, en þau eru
í raun gerð úr trefjaplasti og máln-
ingu. Hvaða svæði verður fyrir val-
inu er oftast fullkomlega háð til-
viljun.
„Það er þónokkurt fyrirtæki að
gera þessi verk út um alla heima og
geima og mikill tími sem fer í það,
jafnvel heilt ár, en inn á milli vinnum
við að öðrum verkum í Bretlandi. Við
erum öll haldin knýjandi þörf fyrir
að láta hendur standa fram úr erm-
um á vinnustofunni. Ef það líður heill
dagur án þess að við blöndum trjá-
kvoðu í eina fötu, þá er eins og sá
dagur hafi farið í súginn. Við teljum
okkur trú um að þetta sé vegna þess
að við þurfum að ganga úr skugga
um nýjar hugmyndir og prófa okkur
áfram með nýjar trjákvoðublöndur
og önnur efni, svo við getum ráðið
fram úr vandamálum sem við stönd-
um hugsanlega frammi fyrir á nýjum
stað. En í raun fáum við einfaldlega
svo mikið út úr því að gera þessi
verk, að fara á staðinn og velta því
fyrir okkur hvernig sé hægt að fara
að hlutunum, hitta heimamenn og
rabba við þá, blanda litina og trjá-
kvoðuna, smíða ramma og ná loftból-
unum úr trefjaglerinu, uns við á end-
anum getum virt fyrir okkur fullgert
verkið. Fremur en að segja að við
séum listamenn, væri nær sannleik-
anum að segja að við séum fjórir fíkl-
ar sem fá sinn daglega skammt á
vinnustofunni,“ segir Sebastian
Boyle, en hann var ásamt systur
sinni Georgiu að hengja myndirnar
upp í húsakynnum Listasafnsins í
vikunni. Foreldrar þeirra, Mark og
Joan, voru þá væntanleg til landsins,
en öll verða þau viðstödd opnun sýn-
ingarinnar. Þau vinna saman sem ein
heild, einn listamaður, að öllum verk-
um sínum. Boyle-fjölskyldan var
fulltrúi Bretlands á Feneyjatvíær-
ingnum 1978 og eru einu skosku
listamennirnir sem haldið hafa
einkasýningu á breska sýning-
arsvæðinu, en Mark er fæddur í
Glasgow og Joan í Edinborg. Tvær
síðustu stórsýningar þeirra í Bret-
landi voru í Hayward galleríinu í
London 1986 og Skoska nútíma-
listasafninu í Edinborg 2003.
Mark og Joan gerðu fyrstu jarð-
sneiðina, nákvæma eftirmynd af
jarðsvæði, árið 1964. Fjórum árum
seinna hófu þau verkefni sem nefnist
Ferð að yfirborði jarðar. Takmark
þeirra var að gera nákvæma eft-
irmynd af 1000 hlutum yfirborðs
jarðar, valda af handahófi. Ævintýr-
ið byrjaði þegar bundið var fyrir
augu áhorfenda og þeir beðnir um að
kasta pílum í risastórt heimskort til
að finna nákvæma staðsetningu; 70%
af pílunum lentu í sjó, en sú fyrsta
stakkst í Ísland fyrir 40 árum. Því
næst ferðuðust þau til margra landa
og gerðu ofurraunsæja lágmynd af
því svæði þar sem pílan hafði lent.
Nákvæmu landakorti af svæðinu var
síðan stillt upp og annarri pílu skutl-
að í það úr góðri fjarlægð. Að lokum
var ramma verksins hent á loft og
það svæði sem hann afmarkaði afrit-
að nákvæmlega, sandkorn fyrir
sandkorn. Aðferðin sem þau nota við
að endurskapa jarðsvæðin svona ná-
kvæmlega – oft úr óstöðugum efnum
eins og sandi, mold og ís – er vel
varðveitt leyndarmál. Fjölskyldan
hefur aldrei komið til Íslands,
áfangastaðar fyrstu pílunnar, eða
haldið þar sýningu fyrr en nú.
Mark og Joan eru gamalreyndir
„Fluxarar,“ vinir og samstarfmenn
listamanna á borð við Jimmy Hend-
rix og Dieter Roth. Með Hendrix
bjuggu þau til eitt vinsælasta „skyn-
víkkunarljósasjó“ skemmtistaðanna,
sem bregður fyrir í bíómyndum
hippatöffarans Austin Power.
Boyle-fjölskyldan skipar mik-
ilvægan sess í listasögu Bretlands og
kemur Cherie Blair sérstaklega
norður til Akureyrar vegna hennar.
Með henni í för er einkaritari og
fylgdarlið frá breska sendiráðinu
auk lífvarðar. Hann kom og skoðaði
aðstæður á Listasafninu á Akureyri
á þriðjudag og fór yfir öryggismál
þess. Í tilefni af sýningunni kemur
einnig hingað til lands gagnrýnandi
eins stærsta dagblaðs Bretlands, In-
dependent, en hann mun fjalla um
sýninguna, safnið og Akureyr-
arvöku. Tekin hefur verið frá heil
síða í blaðinu fyrir umfjöllun hans,
en blaðið er gefið út í 400 þúsund ein-
tökum. Að auki mun birtast stór
grein um sýninguna í Modern Pain-
ters. „Það er mjög ánægjulegt að
finna fyrir því hvernig Listasafnið á
Akureyri hefur ekki aðeins haslað
sér völl á Íslandi heldur víðs vegar
um Evrópu og Bandaríkin, jafnvel á
Indlandi og Rússlandi, baltnesku
ríkjunum og arabaheiminum,“ segir
Hannes, en Der Spiegel gerði safn-
inu ágæt skil fyrr á þessu ári.
Dagblaðið Male on
Sunday sendir ljósmyndara og
blaðamann á opnunina til að fá
einkaviðtal við Cherie Blair og lista-
mennina. Þeir hafa m.a. áhuga á mál-
inu því hún hefur aldrei opnað mynd-
listarsýningu áður.
„Landfræðilegar skilgreiningar
setja því auðsýnilega listinni ekki
takmörk. Hún slær þar sem hjartað
slær ákaft og viljinn er fyrir hendi.“
Fyrir áhugasama listaverkasafnara
má í lokin geta þess að nokkur verk-
anna eru til sölu, þau kosta um 20 til
25 milljónir króna stykkið.
Sýning Boyle-fjölskyldunnar í Listasafninu á Akureyri
Haldin knýjandi þörf fyrir að láta
hendur standa fram úr ermum
Systkinin Sebastian og Georgia
Boyle undirbúa sýninguna.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
maggath@mbl.is
SÝNINGU á nokkrum skúlptúrum
Kristínar heitinnar Eyfells er nýlokið
í galleríinu First Street í Chelsea í
New York. Sýningin var haldin á veg-
um listamálmsmiðjunnar The Art Fo-
undry sem sérhæfir sig í bronsaf-
steypum og viðhaldi verka ýmissa
þekktra listamanna, s.s. Louise Bo-
urgois, Henry Moore og Max Ernst.
Málmsmiðjan rekur einnig sýningar-
sal og aðstoðar myndhöggvara við að
koma verkum sínum á framfæri en
sýning Kristínar var fyrsta einkasýn-
ingin á þeirra vegum. Skúlptúrarnir
eru frá því um 1970 og upphaflega
unnar í steypu en steyptir í brons á
síðasta ári. Eru verkin kennd við „re-
ceptualisma“, sem er nýyrði og skil-
greint sem ný nálgun við verundina,
til þess fallið að blása nýju lífi í sögn-
ina „að vera“.
Kristín Eyfells lést fyrir tveimur
árum og starfaði lengst af ævi sinni á
Flórída í Bandaríkjunum ásamt
manni sínum Jóhanni Eyfells, mynd-
listarmanni og arkitekt. Verk Krist-
ínar hafa verið sýnd víða um Banda-
ríkin en þekktust varð hún fyrir stór
og litrík portrettmálverk sín af ýms-
um frægum persónum lífs og liðnum.
Auk þess að leigja húsnæði hjá
galleríinu í Chelsea undir sýningu á
verkum Kristínar gengst málmsmiðj-
an fyrir sýningu á fleiri skúlptúrum
listamannsins í sýningarsal sínum í
Maine-ríki um þessar mundir.
Skúlptúrar Kristínar
Eyfells í New York
New York. Morgunblaðið.
Kristín Eyfells við eitt verka sinna.