Morgunblaðið - 27.08.2004, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Sneiddur ostur
í n‡jum umbú›um
Endurlokanlegar
umbúðir
„VIÐ erum úti að vinna og verðum
ekkert varir við þetta fyrr en það fer
að draga niður í vélinni og þá er allt
orðið of seint,“ sagði Halldór J. Eg-
ilsson, skipstjóri á Björgvin ÍS 468,
sem sökk um 17 sjómílur undan
Dýrafirði í gærmorgun. Tveir menn
voru um borð og sakaði hvorugan.
Atvikið bar brátt að. Þegar Hall-
dór uppgötvaði lekann og sá í hvað
stefndi hafði hann rétt tíma til að
gefa merki í gegnum sjálfvirku til-
kynningarskylduna, STK, áður en
þeir félagar fóru í flotgalla og blésu
upp björgunarbátinn. Vélarrúm
bátsins var þá orðið hálffullt af sjó.
Tæpum hálftíma síðar var mönn-
unum bjargað um borð í annan bát
og sökk báturinn skömmu síðar.
„Þetta er skrýtin tilfinning. Mað-
ur er kannski ekki búinn að átta sig
á þessu fyrr en maður vaknar og
ætlar á sjóinn,“ sagði Halldór.
Mannbjörg varð einnig um 8 sjó-
mílur suðaustur af Gjögri um fjög-
urleytið í gærdag þegar leki kom að
bátnum Fjarka ÍS 44. Einn maður
var um borð og komst hann í gúm-
björgunarbát og var skömmu síðar
bjargað um borð í nærliggjandi bát.
Reynt var að taka Fjarka í tog en
hann sökk skömmu síðar.
Báturinn var orð-
inn hálffullur af sjó
Ljósmynd/Sæmundur Kr. Þorvalds
Skipbrotsmennirnir, Halldór J. Egilsson, skipstjóri á Björgvin ÍS 468, t.h. og
Jón Emil Svanbergsson um borð í Steinunni ÍS 817, sem kom þeim til bjargar. Höfðu ekki/4
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra telur ákveðna möguleika á
að leysa deilur Íslendinga og Norð-
manna um síldveiðimál eftir viðræður
við Jan Petersen, utanríkisráðherra
Noregs, í gær, og ætla ráðherrarnir
að vera í sambandi næstu daga til að
koma viðræðum um málið á skrið.
„Við áttum saman um það bil
klukkustundar fund, og fórum yfir
málið, hann frá sinni hlið og ég fór yfir
rök okkar Íslendinga. Við ákváðum að
vera í sambandi næstu daga og rædd-
um ákveðnar hugmyndir um að setja
málið í nýjan farveg,“ sagði Halldór í
samtali við Morgunblaðið eftir fund-
inn. „Á fundinum kom fram vilji til að
finna lausn sem báðir aðilar gætu
sætt sig við, en lengra komumst við
nú ekki.“
Spurður um samningsvilja hjá
Norðmönnum segir Halldór: „Ég er
hvorki bjartsýnn né svartsýnn. Ég tel
að það séu ákveðnir möguleikar til að
leysa málið, en ég get afskaplega lítið
meira sagt um málið á þessu stigi.“
Halldór fundaði með Petersen í
Noregi á leið sinni heim frá fundi ut-
anríkisráðherra Norðurlandanna og
Eystrasaltsríkjanna í Litháen í gær.
Á fundinum voru málefni Mið-Aust-
urlanda í brennidepli, fulltrúar Pal-
estínumanna og Ísraela sóttu fundinn
og ræddu ástandið.
Bann á fiskimjöl í dýrafóður
Á fundinum ræddi Halldór einnig
atkvæðagreiðslu sem verður innan
Evrópusambandsins í haust um hvort
leyfa eigi fiskimjöl í dýrafóður. Hann
sagði bann við því óþægilegt fyrir Ís-
lendinga, og nú sé vinna í gangi til
þess að fá Evrópusambandið til að af-
létta banninu. „Ég hafði þarna tæki-
færi til að ræða við utanríkisráðherra
sex ríkja, og í framhaldinu mun ég
tala við fleiri,“ segir Halldór.
Ákveðnir mögu-
leikar á lausn
Utanríkisráðherrar Íslands og
Noregs funduðu um síldveiðideilu
Unnið er að niðurrifi gamla Landsímahússins, sem stóð
á milli Skúlagötu og Sölvhólsgötu. Götumyndin breyt-
ist og í baksýn blasa nú við Þjóðleikhúsið og íþróttahús
Jóns Þorsteinssonar, sem nú má sjá af Skúlagötunni.
Morgunblaðið/ÞÖK
Breytt götumynd við Skúlagötu
ÓVISSA ríkir um það hvort rík-
ið eða sveitarfélög eigi að greiða
fyrir tónlistarnám nemenda á
framhaldsstigi sem sækja tón-
listarskóla utan síns sveitarfé-
lags í vetur.
Ásrún Davíðsdóttir, aðstoðar-
skólastjóri Söngskólans, segir
að þetta sé mjög erfitt fyrir
nemendur sem stundað hafi tón-
listarnám lengi og að bæjar-
félögin beiti þrýstingi og óvönd-
uðum vinnubrögðum til að koma
kostnaðinum yfir á ríkið. Málið
hefur verið til umfjöllunar hjá
nefnd á vegum menntamála-
ráðuneytisins og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga en endan-
leg niðurstaða liggur ekki fyrir.
Fjármögnun óviss
Reykjavíkurborg greiddi
lengi vel með öllum tónlistar-
skólanemum í borginni, óháð
lögheimili þeirra, en hætti því í
fyrra. Tónlistarnemendur á
framhaldsstigi hafa því leitað til
sinna heimasveitarfélaga um
stuðning og hafa Reykjanesbær
og Hvolsvöllur staðfest að slíkur
stuðningur fáist en Hafnarfjarð-
arbær mun ekki greiða með
þessum nemendum. Önnur
sveitarfélög hafa hins vegar
ekki svarað og vita tónlistar-
nemendur á framhaldsstigi úr
þeim sveitarfélögum því ekki
hvernig nám þeirra verður fjár-
magnað í vetur.
Fái nemendur ekki fjárhags-
stuðning frá sveitarfélögunum
getur kostnaður þeirra numið
hundruðum þúsunda króna.
Hópur
nema
í erfið-
leikum
Óvissa um fram-
haldsnám í tónlist
Tónlistarnám/10
BRESKA danshljómsveitin Prodigy er vænt-
anleg til landsins og mun hún halda tónleika
í Laugardalshöll 15. október næstkomandi.
Tónleikarnir hér á landi marka upphaf
tónleikaferðar um Evrópu sem ætlað er að
fylgja eftir útkomu nýrrar hljómplötu sveit-
arinnar, „Always Outnumbered, Never Out-
gunned“, sem kom út í vikunni. Hún situr nú
í fyrsta sæti breska breiðskífulistans.
Það er hljómleikafyrirtækið Kisi ehf. sem
flytur sveitina til landsins. Að sögn tals-
manna Kisa eru meðlimir Prodigy miklir Ís-
landsvinir, enda hafa þeir komið hingað
þrisvar sinnum, en nú eru sjö ár síðan síðasta
plata kom út.
Hefja Evrópuferð á Íslandi
Danshljómsveitin Prodigy.
FH komið
í þriðju
umferðina
FH vann í gær frækinn sigur á
skoska liðinu Dunfermline 2:1 í Skot-
landi í Evrópukeppni félagsliða.
Skotarnir komust yfir á 72. mín-
útu en FH-ingar skoruðu tvö mörk á
síðustu sjö mínútum leiksins og
tryggðu sér farseðilinn í þriðju um-
ferð þar sem í pottinum verða lið eins
og Newcastle og Lazio. Það var
Tommy Nielsen sem skoraði sigur-
mark FH á síðustu mínútu leiksins.
„Þetta er bara stórkostlegur áfangi
fyrir FH-inga og alla Hafnfirðinga,“
sagði Heimir Guðjónsson, fyrirliði
FH, eftir hinn frækilega sigur.
Frábær sigur/C2
Sjónvarpsþættirnir um Latabæ,
Lazytown, voru frumsýndir í Banda-
ríkjunum í síðustu viku og áttu mest
áhorf alls barnaefnis fyrir börn á
aldrinum 2 til 11 ára fyrstu daga
sína í sýningu.
Alls horfðu um 10 milljónir manna
á þættina í síðustu viku á barnasjón-
varpsstöðinni Nick Jr. en enginn nýr
þáttur hefur fengið eins mikið áhorf
á stöðinni síðustu fjögur ár, að því er
fram kemur í tilkynningu frá að-
standendum Latabæjar á Íslandi.
Þættirnir eru hugarfóstur Magn-
úsar Scheving og fer hann jafnframt
með hlutverk Íþróttaálfsins katt-
liðuga.
En það voru ekki aðeins börn sem
kunnu að meta Íþróttaálfinn, Sollu
stirðu, Glanna glæp og alla hina íbúa
Latabæjar því þættirnir mældust
með mesta áhorf meðal kvenna á
aldrinum 18 til 49 ára í allt sumar
hjá Nick Jr.
Áhorfsmet
í Banda-
ríkjunum
Latabæ vel tekið
♦♦♦