Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Seinni hálfleikur í fjölmiðlaleikunum ætlar ekki að verða síður spennandi. Hjá Alcan á Íslandier unnið sam-kvæmt jafnrétt- isáætlun og hefur hlutfall kvenna í starfsliði álvers- ins hækkað undanfarin ár. Það sama hefur gerst hjá Norðuráli þar sem verið er að skoða, m.a. í samstarfi við sveitarfélög á Vestur- landi, leiðir sem miða að því að fjölga konum enn frekar hjá fyrirtækinu. Fulltrúar beggja álver- anna sem Morgunblaðið ræddi við í gær telja að erfitt gæti orðið að upp- fylla markmið Fjarðaáls, um að helmingur starfs- mannanna verði konur, þar sem iðnmenntunar sé þörf í mörgum starfanna og hlut- fallslega fáar konur hafi menntun í rafvirkjun og vélvirkjun enn sem komið er. Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá því að verksmiðja Fjarðaáls á Reyðarfirði verður hönnuð með það í huga að markmiðið náist, t.d. verði allir hlutir sem þarf að lyfta hannaðir upp á nýtt og einnig hugsað um hæð hluta. Samkvæmt upplýsingum Hrannars Péturssonar, upplýs- ingafulltrúa Alcan á Íslandi, er ekkert í vinnuumhverfi álversins í Straumsvík sem gerir konum ófært að vinna þar og í sama streng tekur Ragnar Guðmunds- son, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs Norðuráls á Grundartanga. Hrannar segir það sjást best á því að konur séu í alls konar störfum í álveri Alcan; í framleiðsludeildum, stjórnun, á skrifstofunni og ýmsum þjónustu- deildum svo eitthvað sé nefnt. Reynt sé markvisst að gera fyr- irtækið fjölskylduvænna og eru vaktirnar t.d. átta tímar í verk- smiðjunni í stað lengri vakta. End- urskoðun á vinnutíma er í gangi hjá Norðuráli en þar er nú unnið á 12 tíma vöktum. Hlutfall kvenna er mjög mis- munandi milli starfshópa. Hjá báð- um álverunum eru 15% starfs- manna konur en hlutfallið hefur farið hækkandi undanfarin ár. Hjá báðum fyrirtækjum tekur öll að- staða, t.d. búningsaðstaða og snyrtingar, tillit til beggja kynja. „Við fylgjumst markvisst með því að vinnuaðstaðan geri ekki upp á milli kynjanna [...] og þó að sann- arlega vinni hér fleiri karlar en konur hefur þróunin verið í rétta átt,“ útskýrir Hrannar. „Við telj- um okkur hafa gengið á undan með góðu fordæmi hvað varðar jafnréttismál, t.d. er launajafnrétti hér við lýði, við störfum eftir jafn- réttisáætlun og höfum komið upp markvissum aðferðum til að taka á málum sem kunna að koma upp varðandi kynferðislega áreitni.“ Jafnrétti beggja kynja Ragnar segir að lögð sé áhersla á jafnrétti beggja kynja í öllum störfum hjá fyrirtækinu, t.d. hvað varðar launamál. Í tengslum við stækkun álvers Norðuráls, þar sem 130 ný störf skapast, hafa að undanförnu verið kannaðir mögu- leikar á að auka hlutfall kvenna meðal starfsmanna. „Við höfum verið í viðræðum við sveitarfélögin um hvernig væri hægt að gera konum auðveldara að vinna hjá okkur og jafnframt erum við að skoða skipulag vinnunnar,“ segir Ragnar. T.d. er verið að skoða þjónustutíma leik- og grunnskóla sem og skipulag vinnutímans. Unnið sé á 12 tíma vöktum við framleiðsluna í álverinu sem konur virðast síður sækja um, sérstak- lega þegar um næturvinnu sé að ræða. Störf í skautsmiðju, þar sem unnið er eingöngu á daginn, virð- ast þó höfða jafnt til karla og kvenna. Ragnar segir störf í nú- tímaálverum ekki krefjast líkam- legra burða og henti því báðum kynjum. Hann segist ekki hafa orðið var við það að hönnun á tækj- um og öðru hjá Norðuráli sé haml- andi í þessu sambandi. Hann segir konur oft gefa þá skýringu á minni áhuga á vaktavinnu að rekstur heimila og umsjón barna hvíli meira á herðum kvenna. Þetta sé sá veruleiki sem við blasi, sem komi vonandi til með að breytast með aukinni umræðu um jafnrétti kynjanna. Hann bendir einnig á að í álverum starfi að jafnaði nokkur fjöldi verkfræðinga en fáar konur hafa þó sótt í þau störf hjá Norður- áli þótt sífellt fleiri konur mennti sig í þeim fræðum. Fagna markmiðum Fjarðaáls Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir markmið Fjarðaáls fagnaðarefni og athyglihvert hvernig reynt verður að sjá til þess að vinnufyrirkomulag og tækja- búnaður verði ekki hindrun fyrir konur. Í ljós verði hins vegar að koma hvort markmiðin náist. Aðalbjörn Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Afls, starfsgreina- félags Austurlands, segir áhyggju- efni að störfum í þjónustu, sem konur hafi m.a. sinnt, hafi fækkað, t.d. á Egilsstöðum en á sama tíma hefur störfum, sem hingað til hafa verið álitin hefðbundin karlastörf, fjölgað verulega. Hann segir kon- ur hafa brugðist við þessum breyt- ingum sjálfar og nefnir hann sem dæmi að margar þeirra hafi sótt vinnuvélanámskeið. Fréttaskýring | Hlutfall kvenna í störfum í álverum að hækka Konur 15% starfsfólks Engar hindranir fyrir konur í vinnuumhverfi Norðuráls og Alcan Konur geta unnið öll störf í álverum Norðuráls og Alcan. Aðrir ættu að taka Fjarða- ál sér til fyrirmyndar  Í gær voru 93 skráðir atvinnu- lausir á Austurlandi skv. tölum Vinnumálastofnunar, þar af 63 konur. Aðalbjörn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Afls, starfs- greinafélags Austurlands, segir fá ný atvinnutækifæri hafa skap- ast fyrir konur á Austurlandi undanfarið og því taki hann fregnum af jafnréttismark- miðum Fjarðaáls fagnandi. „Ég myndi vilja sjá öll fyrirtæki, allar stofnanir, sveitarfélög sem aðra, setja sér sambærileg markmið.“ sunna@mbl.is Haraldsson, hæstaréttarlögmaður. Jafnframt hefur Þormóður Þor- móðsson, fyrrverandi formaður rannsóknarnefndarinnar, verið skip- aður forstöðumaður nefndarinnar. Í rannsóknarnefnd sjóslysa eiga sæti Ingi Tryggvason, lögfræðingur, formaður Hilmar Snorrason, skip- stjóri, Agnar Erlingsson, verkfræð- ingur, Pétur Ágústsson, skipstjóri og Pálmi K. Jónsson, vélfræðingur. Forstöðumaður Rannsóknarnefndar STURLA Böðvarsson samgöngu- ráðherra hefur skipað þrjár rann- sóknarnefndir í samgöngumálum frá og með 1. september til fjögurra ára. Þetta eru rannsóknarnefnd flug- slysa, rannsóknarnefnd sjóslysa og rannsóknarnefnd bílslysa. Í rannsóknarnefnd flugslysa eiga sæti Geirþrúður Alfreðsdóttir, flug- stjóri og vélaverkfræðingur, formað- ur, Ragnar Guðmundsson, flugvéla- verkfræðingur og Ólafur sjóslysa er Jón Arilíus Ingólfsson. Í rannsóknarnefnd umferðarslysa eiga sæti Símon Sigvaldason, lög- fræðingur, formaður Inga Her- steinsdóttir, verkfræðingur og Jón Baldursson, yfirlæknir. Starfsmaður Rannsóknarnefndar umferðaslysa er Ágúst Mogensen. Hafin er vinna við frumvarp til laga um rannsókn umferðarslysa og er stefnt að því að leggja það fram á Alþingi í upphafi haustsþings. Ráðherra skipar þrjár rannsóknarnefndir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.