Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. FJARÐAÁL SÝNIR GOTT FORDÆMI Fjarðaál-Alcoa á Íslandi, semundirbýr nú byggingu ál-vers á Reyðarfirði, hefur gengið fram með góðu fordæmi með því að setja það markmið að helmingur starfsmanna verði kon- ur, eins og fram kom í frétt á for- síðu Morgunblaðsins í gær. Hrönn Pétursdóttir, starfs- mannastjóri og upplýsingafulltrúi fyrirtækisins, sagði í samtali við Morgunblaðið að verið væri að ganga mjög langt til að þetta markmið gæti náðst. „Við erum að hanna alla verk- smiðjuna út frá þessu,“ sagði Hrönn. „Alla verkferla, öll tæki og tækni sem notuð verður í ál- verinu. Til dæmis eru allir hlutir sem þarf að lyfta hannaðir upp á nýtt með tilliti til þyngdar og einnig hugsað um hæð hluta. Allt verður hannað með það fyrir aug- um að hver meðalkona geti starf- að í álverinu.“ Hrönn sagði jafnframt að á sama hátt væri nú verið að kanna bestu leiðir í vaktafyrirkomulagi, með tilliti til hagræðis fyrir fjöl- skyldufólk. Ekki væri komist hjá vaktafyrirkomulagi, þar sem starfsemi þyrfti að vera í álverinu 24 tíma á sólarhring alla daga ársins, en hugsanlega mætti keyra á lágmarksfjölda starfs- manna yfir blánóttina. Það er ánægjulegt að einkafyr- irtæki taki slíka stefnumarkandi ákvörðun, ekki síst í stóriðju- rekstri, þar sem karlar hafa lengst af verið í miklum meiri- hluta starfsmanna. Og ákvörðunin er sérlega jákvæð í ljósi þess að atvinnutækifæri kvenna á Austur- landi hafa verið takmörkuð og konur flytja þaðan í mun meira mæli en karlar. Helga Björg Ragnarsdóttir, atvinnu- og jafn- réttisráðgjafi í Norðausturkjör- dæmi, hefur bent á að hlutfall at- vinnutekna kvenna af atvinnu- tekjum karla á Austurlandi sé að meðaltali um 49%, eða það lægsta á landinu. Austurland sé í raun láglaunasvæði fyrir konur. Helstu rökin fyrir byggingu virkjunar og álvers á Austurlandi voru þau að tryggja þyrfti atvinnu í landsfjórðungnum, en ýmsir hafa svarað því til að stóriðja gerði lítið til að bæta atvinnu- ástand kvenna. Störf við stóriðju væru gjarnan vel launuð og því væru ennfremur líkur á að kjara- munur karla og kvenna ykist enn með tilkomu álversins. Það er skynsamlegt af Fjarðaáli að bregðast við þessari gagnrýni með því að vinna markvisst að því að fá konur til starfa, ekki síður en karla, og án efa til þess fallið að bæta ímynd álversins og fram- kvæmdanna í heild. Ástæða er til að fagna því að Fjarðaál-Alcoa leggi áherslu á að veita konum jöfn tækifæri og körlum til starfa í hinu væntan- lega álveri við Reyðarfjörð. Lög og reglugerðir sem tryggja eiga jafnrétti kynjanna stoða nefnilega lítið ef hefðir og uppbygging sam- félagsins, þar á meðal stofnanir atvinnulífsins, taka ennþá frekara mið af öðru kyninu. H araldur, sem er virtur prófessor í eldfjalla- fræðum við háskól- ann í Rhode Island í Bandaríkjunum, lauk í síðustu viku sex vikna leiðangri til Sumbawa, þangað sem hann fór með 30 manna hóp á eldfjallið Tambora. Fjallið gaus gífurlegu sprengigosi árið 1815, sem grandaði 117 þúsund manns á Sumbawa og nærliggjandi eyjum. Er þetta talið mesta eldgos á sögulegum tíma og hefur manntjón ekki orðið meira í slíkum náttúru- hamförum. Með Haraldi í för voru tveir vísindamenn frá Indónesíu, 20 burðarmenn, matráðskonur, ljós- myndari og fimm manna fjölþjóðlegt kvikmyndatökulið sem hyggst gera heimildarmynd um rannsóknir Har- aldar á fjallinu, til sýningar á sjón- varpsstöðinni Discovery Channel á næsta ári. Tökuliðið komst heldur betur í feitt því leiðangurinn heppn- aðist það vel að þorpið fannst sem Haraldur hafði leitað að til margra ára. Fundurinn hefur ekki spurst út víða ennþá en er samt farinn að vekja athygli í heimi jarðvísindanna. Hefur tímaritið National Geographic falast eftir grein frá Haraldi með myndum ljósmyndarans Florians Breiers. Tíu sinnum stærra en Skaftáreldar Gosið í Tambora er tíu sinnum stærra en Skaftáreldar, skilaði frá sér 100 rúmkílómetrum af kviku- magni og olli miklum loftslagsbreyt- ingum á jörðinni næstu árin á eftir, t.d. frosthörku að sumri til í Mið- Evrópu árið 1816. Í hlíðum fjallsins hurfu heilu byggðirnar undir ösku, gjósku og hraunkviku, m.a. bærinn Tambora sem Haraldur fann. Er tal- ið að þar hafi búið á bilinu sex til tíu þúsund manns. Haraldur hefur til margra ára stundað rannsóknir á mörgum fræg- ustu eldfjöllum heims, m.a. Vesúv- íusi á Ítalíu, sem lagði Pompei í auðn árið 79 e. Krist, og Krakatau í Indónesíu sem gaus árið 1883 og felldi 36 þúsund manns. Fyrir störf sín hlaut hann í vor verðlaun Geo- logical Society of London, sem er ein helsta viðurkenning sem jarðfræð- ingum hlotnast. Fjallinu Tambora kynntist hann fyrst fyrir alvöru árið 1986 og fór svo þangað aftur árið 1988. Fjallið er 60 kílómetrar í þvermál og er nú 2.800 metra hátt, var yfir 4.000 metrar fyr- ir gosið 1815. Við gosið myndaðist stór askja sem er sjö kílómetrar í þvermál og 1.250 metra djúp. Undir lok ferðarinnar 1988 heyrði Haraldur af þorpinu eftir frásögnum heimamanna. Sá sem kom honum þó mest á sporið var leiðsögumaður hans sem fundið hafði muni í einu gili ofarlega í Tambora. Gekk þetta svæði undir nafninu „safnið“ meðal eyjarskeggja. Það tók Harald svo nokkur ár að undirbúa og fjármagna leiðangurinn í sumar og kynna sér nánar sögu þessa svæðis. Um dýran, flókinn og erfiðan leiðangur var að ræða. Gífurlegur hiti í gosinu Þorpið Tambora var ofarlega í skógivöxnu fjallinu, um 20 kílómetr- um frá sjálfum gígnum. Byrjað var að grafa á svæðinu upp á von og óvon. En Haraldur og félagar höfðu heppnina með sér. Í ljós komu húsa- rústir. Með aðstoð radartækja og malarskóflna var grafið um þrjá metra niður á rústirnar en húsin á þessum slóðum voru öll úr timbri. Fundust leifar ýmissa heimilis- áhalda og skrautmuna og tvær beinagrindur, sem taldar eru af karli og konu. Einnig kom upp fatnaður og kínverskir postulínsmunir. „Allt var þetta kolað því h svo gífurlegur í gosinu. V sprengigos myndaðist gj þar sem niður fjallið streym ösku og vikri, blandað gasi. eins og snjóflóð nema að gj ið er 500 til 800 stiga heitt, til 200 kílómetra hraða á stund og dreifist í allar átt gos er banvænt, það eydd gróf þennan bæ niður,“ se aldur þegar hann lýsir áhr gossins fyrir tæpum 200 áru Spurður segir hann það lega hafa verið sérstaka ti að finna þorpið og byrja að g upp, sér í lagi að finna beina Hann er þó ekki að lenda aðstæðum í fyrsta sinn. Á tók hann þátt í uppgreftri þorpum sem gjöreyddust í Mexíkó og hundruð mann auk rannsókna við Vesúvíus eldfjöll. „Ég hef ekki áður fund bæ eins og þennan. Að hlu þetta heppni en það er ekk vera heppinn. Þú verður hverjum steini og gá hvað Ég hef velt mörgum steinum ina og þarna náðist góður Þetta var stórkostleg ferð Fann þorp í Indónesíu sem hvarf í mesta eldgo „Varla búinn að átta mig“ Eftir áralangar rann- sóknir og leit á eld- fjallaeyjunni Sumbawa í Indónesíu fann Har- aldur Sigurðsson eld- fjallafræðingur 6–10 þúsund manna bæ sem hvarf undir ösku þegar eldfjallið Tambora gaus árið 1815. Björn Jóhann Björnsson ræddi við Harald um uppgröftinn frá í sum- ar, sem líkja má við fund Pompei. Ljósmynd/Flor Haraldur Sigurðsson mokar frá beinagrind í rústum hússins sem ar voru upp í sumar. Bak við hann sést í öskulögin úr gosinu 181HEILL ÞÉR, NORRÆNN GESTUR Karl Gústaf Svíakonungur er íopinberri heimsókn á Ís- landi ásamt Sylvíu drottningu og Viktoríu krónprinsessu. Það hef- ur færzt í vöxt að opinberar heim- sóknir samanstandi ekki ein- göngu af veizlum, skoðunar- ferðum og ræðuhöldum, heldur séu raunverulegar vinnuheim- sóknir, þar sem stjórnmála- og kaupsýslumenn treysta bönd, leita nýrra tengsla og tækifæra og leitast við að efla gagnkvæman hag. Það á við um þessa heimsókn Svíakonungs; í fylgdarliði hans er að þessu sinni mikið af athafna- mönnum og forsvarsmönnum at- vinnulífs í Svíþjóð. Á ráðstefnu, sem haldin var í gær á vegum sænska sendiráðs- ins og atvinnulífssamtaka í Sví- þjóð, og bæði Svíakonungur og forseti Íslands sátu, kom fram að mörg tækifæri væru í viðskiptum ríkjanna. Sænskur útflutningur til Íslands stendur á gömlum merg en mörg ónýtt sóknarfæri eru fyrir Ísland á sænska mark- aðnum. Hafa þó ýmis íslenzk fyr- irtæki haslað sér völl þar á und- anförnum árum svo eftir hefur verið tekið, t.d. KB banki, Baugur og Össur. Hin pólitísku tengsl Íslands við Svíþjóð eru líka mikilvæg; á grundvelli Norðurlandasam- starfsins tengjast Svíar okkur nánum böndum og eru jafnframt mikilvægir bandamenn okkar á vettvangi Evrópusamstarfsins. Síðast en ekki sízt er Svíakon- ungur fulltrúi einnar af okkar nánustu vinaþjóðum, sem við eig- um mesta samleið með í menning- ar- og stjórnmálum, og því au- fúsugestur. Sjálfur vakti hann máls á því í viðtali í Morgun- blaðinu fyrir skömmu hvernig skyld tungumál og menning tengdu þjóðirnar saman. Það á því við um hann, sem Tómas Guð- mundsson orti í kvæðinu Norður- lönd: „Og heill þér, norrænn gest- ur, vér gætum sama arfs.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.