Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 12
ERLENT 12 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á einn vinsælasta áfanga- stað við ströndina við Barcelona, Lloret de Mar. Gott hótel með góðri aðstöðu, fallegum garði, sundlaug, veitingastöðum. Örstutt í golf og 10 mínútna gangur á ströndina. Öll herbergi með baði, sjónvarpi og síma. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 39.990 Flug, gisting, skattar, fullt fæði allan tímann. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 2.400. Aukaferð – uppselt 9. sept. Lloret de Mar 16. september frá kr. 39.990 með fullu fæði í viku DEMÓKRATAR í Bandaríkjunum brugðust í gær illa við ummælum Dicks Cheneys, varaforseta Banda- ríkjanna, frá því á þriðjudagskvöld er hann sagði að næði John Kerry, forsetaframbjóðandi Demókrata- flokksins, kjöri væri hætta á að annað hryðjuverk yrði unnið í Bandaríkjunum. Cheney var á kosningaferðalagi í Des Moins í miðvesturríkjunum og lét þá meðal annars þessi ummæli falla: „Það er höfuðatriði að við veljum rétt í kosningunum 2. nóv- ember. Ef við veljum rangt er hættan sú, að við verðum fyrir ann- arri árás,“ hélt hann áfram, og gaf í skyn að Kerry væri ekki eins stað- ráðinn og George W. Bush forseti í því að berjast gegn öfgasinnum og hryðjuverkamönnum. Cheney sagði hættu á að horfið yrði aftur til þeirrar „hugmynda- fræði sem ríkti fyrir 11. september“ næði Kerry kjöri og vísaði þar með til árásar hryðju- verkamanna á Bandaríkin árið 2001. Hin herskáa stefna Bush forseta væri líklegri til að tryggja öryggi Bandaríkja- manna þar eð hún kvæði á um rétt- mæti þess að ráðast gegn ógninni áður en hryðjuverkamenn næðu að hrinda áformum sínum í fram- kvæmd. Varaforsetaefni Kerrys, John Edwards, brást hinn versti við og sagði Cheney hafa „farið yfir strik- ið“. Í yfirlýsingu frá Edwards sagði um orð Cheneys: „Hræðsluáróður Dicks Cheneys fór yfir strikið í dag, og hann sýndi eina ferðina enn að hann og George Bush eru tilbúnir að gera hvað sem er og segja hvað sem er til að halda vinnunni.“ Madeleine Albright, fyrrum utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að yfirlýsing Cheneys væri „ábyrgðarlaus“ og „hræðsluáróð- ur“. Albright sem er demókrati sagði ljóst að Kerry myndi leitast við að uppræta hryðjuverkaógnina yrði hann kjörinn forseti Bandaríkj- anna. Cheney vændur um „ábyrgð- arlausan hræðsluáróður“ Varaforsetinn segir hættu á hryðju- verkum aukast verði John Kerry kjörinn Bandaríkjaforseti Dick Cheney Des Moins. AP. MASOODA Jalal, 41 árs barna- læknir, er eina konan á meðal sautján forsetaefna í fyrstu kosn- ingunum í Afganistan eftir fall stjórnar talíbana árið 2001. Jalal hóf kosningabaráttuna á þriðjudag með því að ávarpa um 100 ekkjur og börn í brauðgerð- arhúsi sem konur reka í Kabúl. Orðaval hennar einkenndist af því að hún er læknir og hún kvaðst ætla að „bera smyrsl á sár Afgan- istans“. „Eins og læknir vil ég græða sár Afganistans. Eins og móðir vil ég bæta líf afgönsku fjölskyldunnar,“ sagði hún við mikinn fögnuð kvennanna. Flestar þeirra klædd- ust búrka-kuflum sem huldu þær frá hvirfli til ilja. Jalal var kynnt fyrir konunum sem „góður múslími sem hefur far- ið í pílagrímsferð til Mekka, að- stoðaði við að reisa þetta bakarí og hélt áfram góðu starfi sínu á valdatíma talíbana“ þrátt fyrir kúgun þeirra á konum. „Ég er þjónn ykkar,“ sagði hún og hét því að uppræta spillingu og berjast gegn hvers konar glæpum í landinu yrði hún kjörin forseti í kosningunum 9. október. Jalal starfaði áður fyrir Samein- uðu þjóðirnar og sóttist eftir því að verða bráðabirgðaforseti Afganist- ans áður en Hamid Karzai varð fyrir valinu eftir fall talíb- anastjórnarinnar. Jalal nýtur einkum stuðnings í Kabúl og fleiri borgum þar sem menntaðar konur geta fengið at- vinnu – og þar sem eiginmennirnir leyfa þeim að kjósa þá sem þær vilja. Þar sem hún hefur enga vopnaða hreyfingu á bak við sig gæti hún fengið atkvæði Afgana sem hafa fengið sig fullsadda á valdabaráttu stríðandi fylkinga sem beita jafnvel ofbeldi og hót- unum til að fá fólk til stuðnings við sig. Vill græða sár Afganistans Kona á meðal 17 forsetaefna í Afganistan Reuters Afganska forsetaefnið Masooda Jalal ræðir við konur í Kabúl. ’Eins og móðir vilég bæta líf afgönsku fjölskyldunnar.‘ UM 100–120 stúlkur hafa sniðgengið bann við íslömskum höfuðklútum í frönskum ríkisskólum, að sögn Francois Fillon, menntamálaráð- herra Frakklands, í gær. Lög sem banna íslamska höfuð- klúta og önnur áberandi trúartákn í ríkisskólunum tóku gildi í vikunni sem leið. Fillon sagði að verið væri að ræða við stúlkurnar, sem virtu ekki bannið, og kvaðst vongóður um að langflestar þeirra samþykktu að hætta að nota höfuðklúta í ríkisskól- unum. Samkvæmt lögunum á að ræða við þá sem brjóta þau og beri viðræð- urnar ekki árangur eftir nokkrar vikur verður þeim vísað úr skólun- um. Yfir 100 virtu ekki slæðubann París. AP. NÍTJÁN manns fórust og 17 slösuðust þegar mikil eldur gaus upp í göngum í koparnámu í bænum Kure í norðanverðu Tyrklandi í gær. Björgunarmenn bera hér námumann sem tók þátt í slökkvistarfinu. Námumenn urðu innlyksa um 150 m undir yf- irborðinu þegar eldurinn blossaði upp í gærmorgun af völdum logsuðutækis. Það tók fjórar klukkustundir að slökkva eldinn og leitað var í göngunum í gær- kvöldi til að ganga úr skugga um hvort fleiri væru þar. AP Nítján farast í eldsvoða í námu ÞAÐ er kominn tími til, að foreldrar axli meiri ábyrgð á heilsu barna sinna og stjórn- málamenn verða að átta sig á, að óhófleg sykurneysla er jafnhættuleg reykingum. Kemur þetta fram í viðtali, sem norska blaðið Aftenposten átti við næringarfræðinginn Svein Olav Kolset, en hann bendir á, að svokölluð sykur- sýki 2, sem áður fannst aðeins hjá fullorðnu fólki, verði æ al- gengari í yngstu aldursflokk- unum. Þar fyrir utan sé vitað, að sumt krabbamein er tengt miklu sykuráti svo ekki sé tal- að um vaxandi tannskemmdir. „Sykur og gos eru hrein kaloríusprengja og sýnileg- ustu afleiðingarnar eru offita,“ sagði Kolset en hann vill, að skattar á gosdrykki verði tvö- faldaðir. Segir hann, að bar- áttuaðferð sælgætis- og gos- framleiðenda sé nú sú að hafa sem flest í ofurstærðum. Dagsneysluna megi því frem- ur mæla í kílóum en grömm- um. Sykur jafn hættulegur tóbakinu FULLTRÚI Matvælahjálpar Sam- einuðu þjóðanna segir að viðbrögð við ákalli til þjóða heims um að koma fórnarlömbum flóða í Bangladesh til hjálpar hafi verið dræm. Fulltrúi samtakanna sagði í sam- tali við fréttaritara breska útvarps- ins, BBC, í Dhaka, höfuðborg Bangladesh, að einungis hefði tekist að safna um fimmtungi þeirrar fjár- hæðar sem fram á hefði verið farið. Í liðnum mánuði fór Matvælahjálpin fram á 74 milljónir Bandaríkjadala, um 5.400 milljónir króna, til að unnt reyndist að lina þjáningar fólks sem orðið hefur illa úti vegna flóða í Bangladesh. Rúmlega 600 manns týndu lífi í flóðunum. Þá þykir líklegt að um 20 milljónir manna þurfi á matvælaaðstoð að halda á næstu mánuðum af þessum sökum. Að auki þarf að laga vegi og treysta flóða- varnir. Fulltrúi Matvælahjálparinnar, Douglas Casson Coutts, sagði að svo virtist sem stjórnvöld víða um heim teldu að vandinn væri liðinn hjá þar sem flóðin væru nú í rénun. Dræm við- brögð við neyðarkalli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.