Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 24
UMRÆÐAN 24 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Þ að er skemmtileg til- breyting að við á er- lendri fréttadeild Morgunblaðsins skul- um gagnrýndir frá hægri fyrir fréttaskrif okkar. Ekki er langt síðan vefritið Múrinn hafði uppi ómálefnalega gagnrýni á fréttaflutning okkar um Íraksmálin og maður verður var við að sumir vinstrimenn telja okkur í stuðningsliði George W. Bush Bandaríkjaforseta. Nú ber hins vegar svo við að vinur minn á Viðskiptablaðinu, fjölmiðlarýn- irinn og frjálshyggjumaðurinn Ólafur Teitur Guðnason, gagn- rýnir fréttaskrif okkar af flokks- þingi repúblikana í New York í síðustu viku. Ólafur Teit- ur ber saman umfjöllun Morgunblaðs- ins um flokks- þing repúblik- ana annars vegar og demókrata hins vegar (hann fjallar reyndar um alla fjölmiðla á landinu en ég læt vera að svara því sem hann segir um aðra). Af máli hans má helst skilja, að úr því að fjallað var á einn veg um flokksþing demókrata hafi átt að fjalla á nákvæmlega sama hátt um flokksþing repúblikana – sama hvaða fréttir væri þaðan að hafa, sem hugsanlega teldust ekki re- públikönum í hag (svo sem fréttir af mótmælum gegn Bush Banda- ríkjaforseta í New York og heim- sókn hins umdeilda kvikmynda- gerðarmanns Michaels Moore á þingið). Ef notast hefði verið við þetta viðmið má segja að umfjöllun um flokksþing demókrata fyrir mán- uði hefði verið búin að skilyrða fyrirfram umfjöllun um fund repúblikana í síðustu viku. En þannig háttar því nú til að umfangsmikil mótmæli fóru fram (gegn Bush og flokki hans) í New York-borg á meðan repúblikanar héldu flokksþing sitt þar og ég leyfi mér að fullyrða að allir geti verið sammála um að þar var um frétt að ræða. Ekki var um sam- bærileg mótmæli að ræða í tengslum við flokksþing demó- krata í Boston þó að sjálfsagt hafi þar kraumað einhver ágreiningur undir niðri, eins og gengur. Mótmælin í New York eru til marks um að Bush Bandaríkja- forseti er umdeildur, menn skiptast mjög í tvö horn í afstöðu til hans. Eðlilegt var (og er) að gera því skil á sem ítarlegastan hátt. Ekki má gleyma því að George W. Bush er sitjandi for- seti og því sjálfkrafa meira í sviðs- ljósinu og kannski um leið sjálf- krafa meira skotspæni: það er jú verið að kjósa um feril hans á for- setastóli fyrst og fremst, hina um- deildu innrás í Írak o.s.frv. (Þess ber þó að geta að bar- áttan vestra hefur upp á síðkastið þróast þannig að í raun virðast kosningarnar ætla að verða þjóð- aratkvæðagreiðsla um John Kerry, en ekki Bush – þetta er til marks um að Bush hefur rekið ár- angursríka kosningabaráttu.) Almennt tel ég ekki að við höf- um gert of mikið úr mótmælunum í New York; frétt í mánudags- blaðinu fyrir viku (með mynd) fjallaði um mótmælin daginn áð- ur, eftir það var áhersla umfjöll- unar blaðsins á það sem fram fór á flokksþinginu sjálfu. Björn Bjarnason dóms- málaráðherra gerir flokksþing repúblikana líka að umtalsefni á vefsíðu sinni um síðustu helgi og fjallar þar, rétt eins og Ólafur Teitur, um umfjöllun íslenskra fjölmiðla. Nefnir hann þar að hon- um hafi þótt Ríkisútvarpið eyða of miklu púðri í fréttir af mótmæla- aðgerðum í New York. Mér þykir hins vegar sér- staklega athyglisvert það sem Björn segir um muninn á íslensk- um og bandarískum stjórnmálum; hann bendir á að átakamálin séu ólík og hefðir allt aðrar (ég gerði þessa staðreynd raunar að um- talsefni í viðhorfi fyrir fjórum vik- um síðan). Björn upplýsir jafnframt að innan Sjálfstæðisflokksins „geta menn skipst í fylkingar eftir því, hvort þeir hallast að sjónarmiðum repúblikana eða demókrata“. Athyglisvert er að fá staðfest að sjálfstæðismenn telji ekki endi- lega sjálfgefið að þeir séu í stuðn- ingsliði repúblikana (og að þeir skiptist í fylkingar vegna afstöðu sinnar til stjórnmála vestra). Mig grunar þó að þessi skoðanamunur tengist einkum þessum tiltekna forseta, þ.e. Bush, og að sjálfstæð- ismenn að jafnaði telji sig eiga meiri samleið með repúblikönum (þó að vel megi halda því fram að sú afstaða byggist á misskilningi, vegna þess sem Björn nefnir um ólíkt eðli íslenskra og bandarískra stjórnmála). Sjálfstæðismenn eru langt frá því einir um að hafa efasemdir um Bush (sé um slíkar efasemdir að ræða, sem ég leyfi mér að gefa mér í tilefni ummæla dóms- málaráðherra). Bendi ég á grein í nýjasta hefti vikuritsins The Economist því til sönnunar. Þar kemur fram að samband Michaels Howards, leiðtoga breska Íhalds- flokksins, og Bush-manna sé við frostmark um þessar mundir. Jafnframt kemur þar fram sú ágiskun að næstum helmingur þingmanna Íhaldsflokksins sé hallari undir Kerry en Bush. Þetta vekur athygli í ljósi tengsla flokkanna tveggja í gegn- um tíðina, einkum og sér í lagi sambands Ronalds Reagans og járnfrúarinnar Margrétar Thatcher á ofanverðri síðustu öld. The Economist segir Malcom Rifkind, síðasta utanríkisráðherra ríkisstjórnar Johns Majors, á þeirri skoðun að Íhaldsflokkurinn eigi að heyja baráttu vegna næstu þingkosninga á grundvelli and- stöðu við innrásina í Írak, and- stöðu við Bush og stuðnings við stofnanakerfi Sameinuðu þjóð- anna. Þetta er sérlega athygl- isvert því The Economist heldur því líka fram að Rifkind sé líkleg- ur eftirmaður Howards fari svo að íhaldsmenn tapi næstu kosn- ingum og Howard víki úr leiðtoga- sætinu í kjölfarið. Nú spyr maður sig hvort önnur hvor fylkinganna í Sjálfstæð- isflokknum eigi ef til vill samleið með Rifkind hvað þetta varðar. Bush er umdeildur Athyglisvert er að fá staðfest að sjálf- stæðismenn telji ekki endilega sjálfgefið að þeir séu í stuðningsliði repúblikana (og að þeir skiptist í fylkingar vegna af- stöðu sinnar til stjórnmála vestra). VIÐHORF Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is HINN 4. september var haldinn fundur í Iðnó þar sem rætt var um stöðuna í jafnréttismálum kvenna á Íslandi nú. Þótt ég telji mig ekki til femínista er ég þó jafnréttissinni enda sómir ekki annað nokkurn veginn skynsömum manni. Ekki voru margir karlmenn viðstaddir og er það skaði því margt fróðlegt var að heyra. Til dæmis var vakin athygli á því hve fín- gerð og dulin mörg brot á jafnrétt- iskröfum eru. Þar skipta mál og myndir miklu. Stundum er sagt um konur sem geta sér orð fyrir dugnað og harðfylgi að þær séu frekar. Ég man varla eftir að hafa heyrt svipað um karlmenn, þeir sýni auðvitað bara dugnað og harðfylgi og þykir það venjulega lofsvert. Þessi munur skipti engu máli ef ekki væri dregin sú ályktun að frekar konur væru ekki vel hæfar til að gegna ábyrgðarstörfum. Það mætti nefna mörg slík dæmi. En þó keyrði um þverbak þegar ég fletti Morgunblaðinu hinn 5.9. Þar getur að líta heilsíðuauglýsingu frá Þjóðminjasafni Íslands. Meg- ininnihald auglýsingarinnar er „Saga þjóðar í mörgum bindum“ og við hlið- ina er hrúga af hálsbindum af ýmsum gerðum og litum. Það sem mér finnst hneykslanlegt við auglýsinguna er að hún höfðar til dulinna tilfinninga. Auðvitað kemur ósjálfrátt í hugann að sagan á síðustu öld hafi verið mót- uð af karlmönnum sem báru háls- bindi. En voru þeir þjóðin? Hvað um allar stúlkurnar sem báru út saltfisk til þurrkunar eða söltuðu síld í rign- ingu og kulda og öfluðu með því þjóð- inni tekna? Hvað um allar vinnukon- urnar og kaupakonurnar sem gerðu landbúnað á Íslandi yfirleitt mögu- legan í margar aldir? Og settu engar konur svip á þjóðina á síðustu öld – nógu mikinn að minnsta kosti til að setja slæðu eða hálsklút einhvers staðar á milli bindanna? En auglýsingastofan sem gerði auglýsinguna var auðsýnilega alltof hrifin af orðaleiknum með bindi til að sjá neitt annað. Það hefði kannski mátt bæta við myndina nokkrum dömubindum en ég get ímyndað mér að saga þeirra sé ekki síður athygl- isverð en saga hálsbindanna. REYNIR VILHJÁLMSSON, Snorrabraut 32, Reykjavík. Jafnrétti Frá Reyni Vilhjálmssyni: BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Eftirfarandi greinar eru á mbl.is: Jón Steinsson: „Það er engin tilviljun að hlutabréfamarkaðurinn í Banda- ríkjunum er öflugri en hlutabréfa- markaðir annarra landa.“ Regína Ásvaldsdóttir: „Eitt af markmiðum með stofnun þjónustu- miðstöðva er bætt aðgengi í þjónustu borgaranna.“ Jónas Gunnar Einarsson: „Áhrifa- laus og mikill meirihluti jarðarbúa, svokallaður almenningur þjóðanna, unir jafnan misjafnlega þolinmóður við sitt.“ Jakob Björnsson: „Mörg rök hníga að því að raforka úr vatnsorku til ál- framleiðslu verði í framtíðinni fyrst og fremst unnin í tiltölulega fámennum, en vatnsorkuauðugum, löndum...“ Tryggvi Felixson: „Mikil ábyrgð hvíl- ir því á þeim sem taka ákvörðun um að spilla þessum mikilvægu verðmætum fyrir meinta hagsæld vegna frekari ál- bræðslu.“ Stefán Örn Stefánsson: „Ég hvet alla Seltirninga til að kynna sér ítar- lega fyrirliggjandi skipulagstillögu bæjaryfirvalda ...“ Gunnar Finnsson: „Hins vegar er ljóst að núverandi kerfi hefur runnið sitt skeið og grundvallarbreytinga er þörf...“ Eyjólfur Sæmundsson og Hanna Kristín Stefánsdóttir: „Öryggismál í landbúnaði falla undir vinnuverndar- lög og þar með verksvið Vinnueftirlits- ins.“ Jakob Björnsson: „Með þvílíkum vinnubrögðum er auðvitað lítil von um sættir.“ Guðmundur Hafsteinsson: „Því eru gráður LHÍ að inntaki engu fremur háskólagráður en þær sem TR út- skrifaði nemendur með, nema síður sé.“ Á mbl.is Aðsendar greinar SÍÐASTLIÐINN mánudag skrif- aði ég stutta grein hér í Morg- unblaðið þar sem ég beindi spurn- ingum til yfirvalda í Reykjavík, í fyrsta lagi hversu oft það tíðkaðist að fólk væri borið út úr íbúðarhúsnæði í eigu borgarinnar, í öðru lagi hvern skilning borgaryfirvöld legðu í 5. grein húsnæðislaga þar sem skyldur sveit- arfélaga í húsnæðis- málum eru skilgreindar og í þriðja lagi hvort það tíðkaðist að loka fyrir hita og rafmagn hjá efnalitlu fólki í van- skilum og hvort slíkt væri gert í samráði við félagsmálayfirvöld. Við þessu brást formaður félagsmálaráðs, Björk Vilhelmsdóttir að bragði og svaraði hún spurningum mínum í Morgunblaðinu sl. þriðju- dag. Björk segir borgina tilbúna að semja við fólk um húsaleiguskuldir „og ganga yfirleitt mjög langt í að koma til móts við þarfir fólks.“ Ekki véfengi ég þetta. Engu að síður hefur fjórum sinnum á þessu ári komið til þess að fólk er borið út úr íbúðar- húsnæði í eigu borgarinnar. Í þeim hópi er væntanlega sá maður sem varð tilefni skrifa minna. Í formála að spurningum mínum til yfirvalda í Reykjavík sagði eftirfar- andi: „Síðastliðinn föstudag var krabbameinssjúkur öryrki borinn út með lögregluvaldi úr leiguhúsnæði í eigu Reykjavíkurborgar eftir lang- varandi vanskil á greiðslum. Viku fyrr hafði formlega verið farið fram á að útburði yrði frestað um nokkra mánuði á meðan ástand mannsins yrði kannað betur og leitað lausna. Fallist var á að fresta útburði um eina viku svo trúnaðarlækni borgarinnar gæfist færi á að skila greinargerð um málið. Engu að síður voru, áður en læknisrannsókn fór fram, gerðir út af örkinni menn til að loka fyrir raf- magn í íbúð mannsins. Af hálfu borg- arinnar hefur enginn grennslast fyrir um afdrif þessa einstaklings eftir að hann var rekinn á dyr.“ Um þessa stuttu greinargerð mína segir formaður félagsmálaráðs: „Ýmsar rangfærslur komu fram í for- mála þingmannsins að spurningum sem ekki er tök á að svara enda und- irrituð bundin trúnaði um málefni einstaklinga.“ Ekki veit ég hvað for- maður félagsmálaráðs á hér við. Í fyrsta lagi vísa ég í lögregluvald. Eft- ir því sem ég veit best komu fulltrúar sýslumannsembættisins til að sjá til þess að dómsúrskurði um útburð yrði framfylgt. Síðan vísa ég í erindi sem ég sjálfur sendi borginni og þekki því frá fyrstu hendi. Í þriðja lagi er vísað í veikindi einstaklingsins en upp- lýsingar mínar um það efni hef ég frá lækni sem rannsakað hefur manninn. Í fjórða lagi segir að menn hafi kom- ið á vettvang til að loka fyrir rafmagn þegar viku frestur var veittur á útburði á meðan trún- aðarlæknir borgarinnar fjallaði um málið. Í fimmta lagi hafði eng- inn grennslast fyrir um manninn þeg- ar grein mín var skrifuð. Ekki veit ég betur en allt þetta sé satt og rétt. Síðan hefur vissulega ýmislegt gerst. Mér er kunnugt um að fulltrúi Félagsþjónustunnar hefur haft sam- band við umræddan einstakling og svo öllu sé til haga haldið hafði fram- kvæmdastjóri Félagsíbúða samband við mig til að segja að hann teldi að réttu máli hefði verið hallað þegar talað hefði verið um útburð með lög- regluvaldi. Fulltrúar sýslumanns- embættisins hafi fyrst og fremst ver- ið að gæta hagsmuna einstaklingsins sem í hlut átti. Ekki veit ég hvernig á að skilgreina slíka hagsmunagæslu því þegar maðurinn kom heim til sín hafði íbúðin verið brotin upp, hún tæmd og búslóð hans komin út á gangstétt! Í svari sínu segir formaður Félags- málaráðs að mikilvægt sé að jafn- ræðis sé gætt: „Reykjavíkurborg gætir þess að vinna samkvæmt sett- um reglum til að gæta fyllsta jafn- ræðis sem þýðir að fólk sem býr við svipaðar aðstæður á rétt á sambæri- legri málsmeðferð. Ekki er hægt að gera undantekningu frá greiðslu lágrar leigu á meðan aðrir í svipaðri stöðu eða enn verri standa skil á sínu. Ef slíkt væri misnotað værum við far- in að misnota kerfið og komin út í gamaldags fyrirgreiðslupólitík sem á engan rétt á sér.“ Því fer fjarri að ég sé talsmaður þess, sem hér er kallað „fyr- irgreiðslupólitík“. Ég er hins vegar talsmaður þess að velferðarþjónustan þjóni þeim tilgangi, sem við ætlumst til af henni og að samfélagið ræki þær skyldur, sem það sjálft hefur und- irgengist bæði í lögum og pólitískum heitstrengingum. Þótt menn hafni fyrirgreiðslupólitík svokallaðri og vilji að réttlæti ríki í kerfinu, skyldu menn engu að síður fara varlega í að alhæfa um aðstæður og þarfir ein- staklinga. Fram hefur komið að fjórir ein- staklingar eða fjölskyldur hafa verið bornar út það sem af er árinu. Þetta þykja mér alvarleg tíðindi. Útburður úr húsnæði á vegum borgarinnar á ekki að eiga sér stað en lágmarks- krafa hlýtur að vera að fólki, sem er þvingað út úr húsnæði sínu, sé boðið upp á önnur úrræði. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að stundum getur verið úr vöndu að ráða fyrir Fé- lagsþjónustuna en að bera heimili fólks út á götu er hins vegar uppgjöf og ekki kostur sem forsvaranlegt er að sætta sig við. Félagsþjónustan í Reykjavík er að sönnu öflug og gerir margt mjög vel. Varla er hún þó hafin yfir gagnrýni. Að sjálfsögðu ekki. Það er henni meira að segja lífsnauðsyn að hafa aðhald og það er okkar allra að veita það aðhald. Ég efast ekki um góðan hug starfsfólks Félagsþjónustunnar, Félagsíbúða hf. eða þeirra stjórn- málamanna sem stýra þessum málum hjá borginni. Upp koma þó tilvik þar sem velferðarþjónustan bregst. Það hefur að mínu mati gerst í þessu máli en með því hef ég fylgst um nokkurt skeið. Þegar svo er komið að lokað er fyrir rafmagn hjá efnalitlu fólkið og það síðan borið út með valdi þá verða menn að geta tekið því að slíkum að- förum sé mótmælt. Það á ekki að eiga sér stað að efnalítið fólk sé borið út Ögmundur Jónasson svarar Björk Vilhelmsdóttur ’Félagsþjónustan íReykjavík er að sönnu öflug og gerir margt mjög vel. Varla er hún þó hafin yfir gagnrýni. ‘ Ögmundur Jónasson Höfundur er alþingismaður og formaður BSRB.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.