Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 20
                                                                                                    ! "#$%&   '   (   ) (   *  +    ,      NÚ ER berjauppskera í hámarki og á mörgum heimilum er keppst við að sulta, gera saft og frysta berin. En hvað er það sem við sækjumst eftir í berjunum fyrir utan bragðið sem freistar? Hólmfríður Þorgeirsdóttir, næringarfræðingur hjá Lýð- heilsustöð, segir að í berjum séu ým- is góð efni og fáar hitaeiningar. Berin eru sérstaklega rík af C- vítamíni og aðalbláber, krækiber og rifsber eru trefjarík. Þá er talsvert af E-vítamíni í bláberjum og að- albláberjum og af járni í krækiberj- um. Hólmfríður segir að auk þess séu ýmis önnur hollustuefni í sumum berjanna. „Í bláberjum er til dæmis mikið af andoxunarefninu antho- cyanid, segir hún, „en andoxunar- efnin búa yfir þeim eiginleika að hindra myndun skaðlegra sind- urefna í frumum líkamans. Sind- urefnin eru talin tengjast framgangi ýmissa annars óskyldra sjúkdóma og hrörnunar, allt frá æðakölkun og krabbameini til augnsjúkdómsins vagls (ský á auga). E-vítamín, C- vítamín og beta-karóten hafa einnig andoxunarvirkni. Þess má geta að ráðlagður dag- skammtur af C-vítamíni er 60 mg, E-vítamíni 8–10 mg og járni 12–15 mg fyrir fullorðna. Ráðlögð neysla á trefjum er er 25 g á dag ef miðað er við 2.400 kílókalóría fæði. Fólasín í hindberjum Í jarðarberjum og hindberjum er talsvert af hinu mikilvæga vítamíni fólasíni. Hólmfríður segir neyslu fól- asíns afar mikilvæga, sérstaklega fyrir konur á barneignaraldri, en rannsóknir hafa sýnt að rífleg neysla á fólasíni minnkar líkur á klofnum hrygg eða heilaleysu í fóstri. Einnig getur lítil fólasínneysla leitt til þess að amínósýran homosystein hækkar í blóði en hún er kröftugur áhættu- þáttur hjarta- og æðasjúkdóma. Af þessum sökum hefur ráðlagður dag- skammtur fyrir fólasín verið aukinn. En það er ekki auðvelt að varðveita öll þessi hollu efni sem eru í berj- unum. Auðvitað fær maður mest af þeim með því að borða þau strax. En oft er meira tínt en hægt er að neyta á staðnum og ef varðveisla efnanna góðu er fyrst og fremst höfð að leið- arljósi er best að frysta berin án þess að sprengja, merja eða mauka þau. En auðvitað þarf líka að hugsa um bragðlaukana og þá er að sulta og búa til saft til að geta notið góða bragðsins allan veturinn.  MATUR Berin eru fjörefna- og trefja- rík og hitaeiningasnauð Morgunblaðið/Sverrir Holl: Ýmis góð efni eru í berjum en fáar hitaeiningar. TENGLAR .............................................. www.lydheilsustod.is asdish@mbl.is DAGLEGT LÍF 20 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Samsung SGH-X450 Fallegur 3 banda sími með hágæða skjá. Skútuvogur 2 :: 104 Reykjavik Sími: 522-9000 :: Fax: 522-9001 Opnunartími: Mán-föst 11-18.30 Laugard 10-18 Sunnud 13-17 UMRÆÐAN AÐ vera í vinnu og félagslega tengdur hefur áhrif á heilsu og vel- líðan. Því setur WHO þessa þætti á oddinn þegar skipuleggja á þjón- ustuúrræði fyrir geð- sjúka. Rannsóknir sýna hins vegar að fagfólk hefur almennt litla trú á getu geð- sjúkra og gerir sér ekki grein fyrir mik- ilvægi og batahvetj- andi áhrifum atvinnu- þátttöku og félagslegra tenginga því þeir nefna þessa þætti aldrei sem að- almarkmið þjónustu sinnar. Bráðainnlögn á sjúkrahús á alltaf að vera síðasta úrræði, en er því miður stundum eini kosturinn þar sem fátt er um úrræði í sam- félaginu sjálfu fyrir fólk sem leitar sér aðstoðar í bráðaveikindum. Eftir sjúkrahúsinnlögn er miklu erfiðara og kostnaðarsamara að ná ein- staklingnum aftur út á vinnumark- aðinn og aðstoða hann við að öðlast á ný hlutverk í samfélaginu. Fólk þarf því stuðning á atvinnumark- aðinum sjálfum, í skólum, á heim- ilum og í hringiðu mannlífsins. Geðræn vandkvæði eru algeng hér á landi ef miðað er við öll þau geðlyf sem innbyrt eru á degi hverjum. Töl- fræðin segir okkur að einn af hverjum fjórum muni einhvern tíma á ævinni þurfa að kljást við geðræn vandamál. Þótt hægt sé að að- stoða flesta með hefð- bundnum aðferðum eru alltaf einhverjir sem heltast úr hringiðu mannlífsins og ná ekki aftur tökum á lífinu. Geðsjúkir missa oft vinn- una, fjölskylduna, vinina, heimilið, ímyndina og enda sem öryrkjar og Geðheilbrigðismál koma öllum við Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar um geðheilbrigðismál Elín Ebba Ásmundsdóttir ÝMISLEGT athyglisvert hefur komið fram í jafnréttisbaráttu kvenna að undanförnu, en fátt kem- ur þó á óvart. Konur búa í karla- samfélagi og svo hefur það verið nánast alla okkar þekktu mann- kynssögu. Karlar eða karlasamfélagið er smátt og smátt að gefa eftir nokkuð af sínum völdum til kvenna en á langt í land á heims- vísu þó að nokkur lönd standi framar öðrum að þessu leyti. Karlasamfélagið líð- ur undir lok fyrr eða síðar. Þó að barátta kvenna fyrir eðlilegum réttindum sínum skipti sköpum er mikilvægt að hafa í huga að karlasamfélagið hefur aldrei verið „manneskjuvænt“, m.ö.o. konur og langflestir karlar hafa þjáðst í þannig samfélögum. Slík samfélög hafa aldrei náð að þróast nægilega frá hegðun frum- stæðari dýrategunda/dýrahópa og einkennast því af því að svokölluð „stórmenni“ og skyldmenni/vinir sem eru „stórættuð“ kúga aðra til hlýðni og „þvingaðrar virðingar“. Slíkir hafa náð því að matreiða ofan í hina, „lýðinn“, hvað sé rétt og rangt í þessum heimi, þar á meðal staða kvenna og svokallaðra „óæðri“ karla. Hinum „óæðri“ körlum hefur verið viss huggun að vera þó settir skör ofar en konur í metorðastig- anum, eða goggunarröðinni. Mót- staðan, sem jafnréttisbarátta kvenna hefur mætt hefur því oft ver- ið sterk úr þessum hópi karla. Karl- ar úr þessum hópi og konur hafa hins vegar smátt og smátt náð sam- an um ýmis málefni og munu vænt- anlega þegar fram líða stundir af- nema karlasamfélagið, a.mk. neikvæðar hliðar þess. „Goggunarröð“ skiptir sköpum. Strax í uppruna- fjölskyldu okkar lend- um við á ákveðnum stað í goggunarröðinni og ræður fæðingarröðin þar oftast mestu. Strax þá fer gjarnan að bera á mismunandi gogg- unarröð hjá strákum og stelpum sérstaklega ef systkinin eru mörg. Hér er venjulega um ómeðvituð ferli að ræða. Hreinir karla- hópar hafa sína eigin goggunarröð, og hrein- ir kvennahópar einnig. Þannig gæti karlmaður, sem er efst í gogg- unarröð í hreinum karlahópi, upp- lifað að kona eða konur sem hleypt er inn í hópinn, virði ekki stað hans í goggunarröðinni, heldur finnist ein- hver annar lægra settur vera merki- legri og veki meiri virðingu þeirra. Það gilda gjarnarn önnur lögmál um hvað konum finnst merkilegt í fari karla, en körlum sjálfum. Einfalt dæmi er t.d. unglingsstrákahópur þar, sem „efsti“ strákurinn trónir þar vegna líkamlegra burða og skap- ofsa, sem hræðir hina til hlýðni og „þvingaðrar“ virðingar. Hann er e.t.v. ekki með útlitið með sér, sem er mælikvarði mikilvægur unglings- stúlkum og þær líta því ekki upp til hans í hópnum og hefja aðra lægra setta til vegs og virðingar. Þannig getur innganga kvenna kallað á end- urröðun í goggunarröðinni í karla- hópnum, oft gegn vilja þeirra er Konur þrífast illa í „reykfylltum bakherbergjum“ Einar Guðmundsson fjallar um valdníðslu Einar GuðmundssonBURT með bunkann af gulnuðum jólakortum frá árinu 1985 og sömu leið með öll fötin sem maður hefur ekki gengið í síðasta árið. Það eru 95% líkur á að maður komi ekki til með að nota þau aft- ur. Eitthvað á þessa leið hljóða setningar í bókinni sem heitið gæti Taktu til í lífi þínu á íslensku og fjallað er um á vef Berlingske Tidende nýlega. Í þessari þýsku bók, sem verið hefur á metsölulistum, er kynnt til sögunnar sjö spora aðferð, reynd- ar upprunnin í Bandaríkjunum, sem hjálpar manni að taka til á heimilinu, á vinnustaðnum og í fjárhagnum. Gefur manni einnig meiri tíma og betra samband við aðra og sjálfan sig. Bókin er ný- komin út á dönsku undir heitinu „Ryd op i dit liv“. Höfundurinn, Werner Tiki Küst- enmacher, leggur m.a. það verk- efni fyrir lesendur að taka til í eigum sínum. En það er hægara sagt en gert því tölfræðinni sam- kvæmt á hver og ein manneskja um tíu þúsund hluti og margir eiga erfitt með að henda drasli. Gömlu barnateikningarnar og skólabækurnar þurfa að hverfa til að skapa rými fyrir nýja orku og framtíðarsýn, að mati höfundar. Svona fer maður að Tilvalið er að byrja um helgi. Finnið skúffu, hillu eða körfu fulla af einhverju dóti og tæmið á gólf- ið. Hreinsið ílátið og skiptið inni- haldinu í þrjár hrúgur: Frábæru hrúguna, þar sem aðeins eru hlut- ir sem maður notar mikið og sem maður myndi reyna að fá sér aftur ef þeim væri stolið. Ruslhrúguna, þar sem allt er ónýtt, skemmt eða hefur ekki verið notað í meira en ár og fer strax í ruslið. Spurn- ingahrúguna, þar sem hlutir sem hvorki eru frábærir né rusl lenda. Þeim er pakkað ofan í kassa sem settur er í geymsluna í hálft ár. Þegar maður lítur á hlutina aftur verður auðveldara að henda a.m.k. einhverjum. Og eftir heilt ár er hægt að henda öllum hlutunum úr spurningahrúgunni. Fleiri ráð eru gefin um einfald- ara og skipulagðara líf. Hreinir fletir eru nauðsynlegir. Borð og gluggakistur verða oft yfirfull af hlutum og drasli. Það getur verið pirrandi að þurfa alltaf að rýma borðstofuborðið áður en hægt er að leggja á borð fyrir matinn. Í bókinni er lagt til að borðstofu- borðið verði t.d. „heitt svæði“ þar sem bara má borða.  BÆKUR Einfaldara og skipu- lagðara líf Eftir: Allt komið í röð og reglu. Morgunblaðið/Ásdís Fyrir: Ringulreið í þessum skáp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.