Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga ENN eru útistandandi um 49 milljarðar króna vegna lána úr Byggingasjóði ríkisins, sam- kvæmt ’86 kerfinu svonefnda. Vextir lánanna eru breytilegir samkvæmt ákvörðun ríkis- stjórnarinnar hverju sinni. Þeir voru upphaf- lega 3,5%, en voru hækkaðir 1991 um 1,4 pró- sentustig í 4,9% og hafa verið það síðan. Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir að þetta sé eitt þeirra atriða verið sé að yfirfara. Þessi lán hafi þá sérstöðu að þau séu með breytilegum vöxtum öfugt við öll lán í húsbréfa- kerfinu sem hafi verið veitt með föstum vöxtum. „Þetta er eitt af því sem við erum að fara yfir,“ sagði Árni í samtali við Morgunblaðið. Húsnæðislánakerfið frá 1986 var sett á lagg- irnar í tengslum við kjarasamninga á því ári. Lánin eru með breytilegum vöxtum öfugt við húsbréfalán sem eru með föstum vöxtum og leystu húsnæðislánakerfið frá 1986 af hólmi. Lánin voru veitt á árabilinu 1984–89 og var láns- tíminn 40 ár á þeim lánum sem veitt voru eftir 1986, en þá var fjármagn til kerfisins stóraukið, og eru því 20–25 ár eftir af lánstíma þeirra nú. Hreyfist eins og almennu vextirnir Friðrik Sophusson, þáverandi fjármálaráð- herra, sagði á fréttamannafundi á þessum tíma að ríkisstjórnin ætlaði sér að láta þessa vexti hreyfast eins og almennu vextina. „Það sem skiptir mestu máli í sambandi við hækkun húsnæðislánavaxtanna er að fólk átti sig á því þessi aðgerð þýðir það að ríkisstjórnin ætlar sér að láta þessa vexti hreyfast eins og al- mennu vextina,“ sagði hann orðrétt samkvæmt frásögn Morgunblaðsins á þeim tíma. Fastir vextir húsbréfalána voru í upphafi árið 1989 ákveðnir 5,75%. Þeir hækkuðu síðan fljót- lega í 6% og lækkuðu síðan aftur skömmu síðar í 5,1% og voru þeir vextir á húsbréfalánum allt þar til kerfið var lagt af um mitt þetta ár. Síðan hafa vextir íbúðalána lækkað mikið eins og kunnugt er og eru nú 4,35% á lánum Íbúðalána- sjóðs og 4,2% hjá bönkum og sparisjóðum. Greiðslubyrðin jókst um 21,9% Þegar vextir húsnæðislánanna samkvæmt 1986 kerfinu hækkuðu úr 3,5% í 4,9% 1991 kom fram að það þýddi að greiðslubyrði lánanna jókst um 21,9%. Á þeim tíma voru 20–21 þúsund einstaklingar skrifaðir fyrir lánunum og var gert ráð fyrir að tekjuaukning vegna vaxta- hækkunarinnar yrði á bilinu 600–700 milljónir kr. á ári. Húsnæðislánakerfið frá 1986 eitt þeirra atriða sem verið er að fara yfir 49 milljarðar í lánum með vöxtum sem má breyta „ÞAÐ verður mikill kraftur í þessum tón- leikum,“ segir Maríus Sverrisson, ein- söngvari á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld, en hetjur af ýmsum gerð- um eru þema tón- leikanna. Maríus var ein af stjörnum sýningar Neue Flora-leikhússins í Hamborg á söng- leiknum Titanic. Sýn- ingin gekk fyrir fullu húsi í tíu mánuði og alls sá hana hálf milljón manna. Maury Yeston, höfundur þessa Tony-verðlaunaða Broadway-söngleiks um glæsiskipið ósökkvandi, varð svo hrifinn af flutningnum í Hamborg að hann samdi nýj- an dúett sérstaklega fyrir Maríus og söng- konuna Jasmin Madwar og bætti honum við verkið./35 Höfundur Titanic samdi nýtt atriði Maríus Sverrisson SÆNSKA konungsfjölskyldan lét votvirði ekki stöðva sig í að skoða blásandi borholur á Nesjavöllum í gær undir leiðsögn Ásgeirs Mar- geirssonar, aðstoðarforstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Ásgeir segir að það hafi gert úrhellisdembu þegar þau gengu um svæðið og blásið hressilega. Áður hafði þeim verið kynnt orkuvinnslan inni í virkjun Nesjavalla þar sem umhverfismál bar nokkuð á góma. Að því loknu fóru gestirnir á Þingvelli og þáðu hádegisverð í boði Davíðs Odds- sonar forsætisráðherra og Ástríðar Thorarensen, eiginkonu hans. Karl Gústaf Svíakonungur hefur sagt Þingvelli uppáhaldsstað sinn á Íslandi./10 Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon Tignir gestir í votviðri á Nesjavöllum ÍSLAND tapaði naumlega 2:3 fyrir Ung- verjum í landsleik í knattspyrnu sem fram fór í Búdapest í gærkvöldi. Mörk Íslands skoruðu Eiður Smári Guðjohnsen og Indr- iði Sigurðsson. Dómari leiksins var norsk- ur og þótti halla mjög á Íslendinga í dóm- gæslunni./Íþróttir AP Naumt tap í Búdapest STJÓRNARFORMENN tveggja stærstu sparisjóða landsins, SPRON og Sparisjóðs vélstjóra, SPV, segja að hjá þeim sé áhugi fyr- ir samruna sparisjóðanna á höfuðborgarsvæð- inu. Þetta sé vænlegur kostur. Engar viðræð- ur um samruna séu þó í gangi. „Það er að mínu mati lykilþáttur að reyna að sameina sparisjóðina á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformað- ur SPV, í viðtali við Viðskiptablað Morgun- blaðsins í dag. „Það er vissulega áhugi fyrir því hjá okkur en hefur ekkert reynt á það.“ Óskar Magnússon, stjórnarformaður SPRON, tekur í sama streng: „Menn hafa áhuga á sameiningu sparisjóða og sjá í því ein- hverja skynsemi, ekki síst í ljósi nýjustu tíð- inda á fjármálamarkaði. Lengra er það ekki komið. Engar viðræður eru í gangi en almenn- ur áhugi er vissulega til staðar,“ segir Óskar. Fram kemur í Viðskiptablaðinu að samein- ing sparisjóða á landsvísu sé talin fremur langsótt og ólíklegt að litlir sparisjóðir á lands- byggðinni vilji hverfa inn í einn stóran spari- sjóð, í það minnsta á næstunni. Það sem helst er talið að standi í veginum fyrir samruna sparisjóða er spurningin um hver ætti að leiða slíkan samruna en ekki eru allir á eitt sáttir um að það yrðu SPRON og SPV. Áhugi á samruna sparisjóða á höfuðborgarsvæðinu  Áhugi/1C 15% STARFSFÓLKS álvera Norðuráls og Alcan á Íslandi eru konur en Fjarðaál-Alcoa hefur sett sér það markmið að helmingur starfsmanna verði konur. Fulltrúar Norðuráls og Alcoa sem Morg- unblaðið ræddi við í gær segja ekkert í vinnuumhverfi álvera sinna sem geri konum ófært að vinna þar. Þeir telja að erfitt gæti orðið að uppfylla markmið Fjarðaáls þar sem iðnmenntunar sé þörf í mörgum starf- anna og fáar konur hafi menntun í rafvirkj- un og vélvirkjun enn sem komið sé. Í álveri Alcan í Straumsvík er unnið sam- kvæmt jafnréttisáætlun og hefur konum fjölgað hjá fyrirtækinu jafnt og þétt. Það sama er uppi á teningnum hjá Norðuráli og verið er að skoða, m.a. í samstarfi við sveit- arfélög á Vesturlandi, leiðir sem miða að því að fjölga konum enn frekar hjá fyrirtækinu. Í því samhengi er m.a. litið til þjónustutíma leik- og grunnskóla og endurskoðun á vinnutíma starfsmanna en nú er unnið þar á 12 tíma vöktum. Í Straumsvík er nú unnið á átta tíma vöktum í þeim tilgangi að gera fyrirtækið fjölskylduvænna./8 Konum hefur fjölgað hjá álverunum ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.