Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 13
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 13
Ný tækifæri til verslunarreksturs
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Ef þú ert með góða hugmynd um verslunarrekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
þá gæti tækifærið verið á næsta leiti. Efnt verður til forvals um verslunarrekstur
í flugstöðinni. Um er að ræða brottfarasvæði bæði í eldri og nýrri byggingu
stöðvarinnar sem og á móttökusvæði farþega utan fríverslunarsvæðisins.
Allir sem telja sig vera með góða hugmynd um rekstur sem á erindi inn á þetta eftirsótta
verslunarsvæði eru hvattir til að kynna sér málið og taka þátt í forvalinu.
Kynningarfundur
Kynning á forvalinu og þeim breytingum sem framundan eru í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
verður á Grand Hótel fimmtudaginn 16. september n.k. og hefst hún klukkan 13.30.
KYNNINGARFUNDUR
á Grand Hótel
16. september
kl. 13.30
Rekur þú verslun?
Á kynningarfundinum verður hægt að kaupa forvalsgögn og kosta þau 5.000 krónur. Einnig verður
hægt að nálgast gögn um forvalið eftir fundinn á rafrænu formi á heimasíðu Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar, www.airport.is. Í forvalsgögnunum er meðal annars að finna leiðbeiningar um forvalið
og hvernig skila beri umsóknum.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Tæplega 200
týna lífi í Kína
AÐ minnsta kosti 180 hafa látist
af völdum óveðurs, sem gengið
hefur yfir suðvesturhluta Kína
undanfarna daga, og 64 til við-
bótar er saknað.
„Fram að þessu hafa 97 manns
farist og 39 er saknað. Um 10.880
hafa slasast eða veikst af völdum
veðursins,“ sagði embættismaður í
Sichuan-héraði í samtali við AFP-
fréttastofuna í gær. Í Chongqing-
héraði, sem er í næsta nágrenni,
hafa 75 látist og 25 er saknað að
sögn yfirvalda þar.
Talið er að enn fleiri eigi eftir
að láta lífið af völdum veðursins.
Manntjónið hefur einkum orðið
af völdum flóða og aurskriða.
Áfangasigur
Fischers
BOBBY Fischer, fyrrum heims-
meistari í skák, fékk sett lögbann
á það fyrir dómi í Japan í gær að
honum yrði vísað úr landi. Úr-
skurðurinn kveður á um að fyrst
þurfi að ganga
dómur í máli
sem Fischer hef-
ur höfðað gegn
því að verða
framseldur til
Bandaríkjanna.
„Það gæti tekið
um eitt ár að
ljúka málinu fyr-
ir dómi,“ sagði
John Bosnitch,
sem fer fyrir samtökum sem
reyna að fá Fischer leystan úr
haldi.
Hann hefur verið eftirlýstur af
bandarískum stjórnvöldum frá því
1992 fyrir að þiggja meira en
þrjár milljónir dollara í verð-
launafé á skákmóti í fyrrum Júgó-
slavíu í í andstöðu við alþjóðlegt
viðskiptabann sem þá var í gildi
gagnvart Júgóslavíu.
Sjálfsvíg mann-
skæðari en stríð
Á ÁRI hverju styttir tæp milljón
manna sig lífi og þeir sem fyr-
irfara sér eru fleiri en þeir sem
eru myrtir eða falla í stríði.
Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin (WHO) skýrði frá þessu í gær
og sagði að sjálfsmorð væri fram-
ið einhvers staðar í heiminum á
hverjum 40 sekúndum. Sjálfs-
morðstíðnin er mest í Eystrasalts-
ríkjunum þar sem um 40 af hverj-
um 100.000 íbúum fyrirfara sér.
Hollendingi
bregður í brún
HOLLENDINGUR varð fyrir
óskemmtilegri reynslu á dög-
unum. Hann var á ferð í bíl sínum
þegar tankbíll með fljótandi saur
sprakk skyndilega við hliðina á
bílnum og skall eðjan þá á honum.
„Þetta var hlýtt og notalegt kvöld
svo að hann hefur sennilega opnað
gluggann þegar hann stoppaði við
umferðarljós,“ sagði talsmaður
lögreglu í Drenthe í Hollandi.
Um 1.700 lítrar af saur voru í
tankbílnum. Maðurinn mun ekki
hafa orðið fyrir líkamstjóni en bíll
hans var dreginn af staðnum.
AP
Hús á kafi í Chongqing í Kína.
Bobby Fischer
GENESIS, mannlaust geimfar
bandarísku geimvísindastofnunar-
innar (NASA), brotlenti í eyði-
mörkinni í Utah í gær eftir að
fallhlífar, sem hægja áttu á för
þess til jarðar, opnuðust ekki.
Óljóst er hvað hefur orðið um
brothættan farm geimfarsins, sýni
úr atómum í sólvindi sem vonast
var til að gætu meðal annars veitt
upplýsingar um uppruna sólkerf-
isins.
Vísindamenn töldu að viðkvæm-
ir diskar sem sýnin, ótaldir millj-
arðar atóma úr sólvindi, söfnuðust
á myndu brotna, jafnvel þótt fall-
hlífarnar drægju úr hraða farsins
í lendingunni. Átti því að reyna að
krækja í farið með sérútbúnum
þyrlum undir stjórn áhættuleikara
frá Hollywood áður en það lenti.
„Við munum ná sýnunum út, en
það verður mun erfiðara ef allt er
brotið og bramlað,“ sagði Roger
Wiens, talsmaður NASA. Rann-
sóknarleiðangur Genesis tók þrjú
ár og kostaði um 260 milljónir
dollara. Sýnin eftirsóttu eru sam-
anlagt á stærð við nokkur salt-
korn.
Genesis brotlenti
Dugway-rannsóknastöðinni í Utah. AP.
AP
Maður nálgast Genesis eftir lendinguna í eyðimörk Utah-ríkis.