Morgunblaðið - 09.09.2004, Page 14
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 5171020
Opið:
mán. - föstud.11-18
laugard.11-15
Spennandi
gjafavörur og húsgögn
Slóg- og
slordælur
með
öflugum
karbít
hnífum.
Áratuga
reynsla.
fg wilson
Sími 594 6000
Slógdælur
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap-
ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
Gæsin át upp akurinn | Upp-
skerustörfum á kornökrunum á Lóns-
flæðum í Kelduhverfi er lokið. Sáð var á
tveimur stöðum, að því er fram kemur á
vef Kelduneshrepps. Stykkið sem var úti
við gám á Ytri-Flæðum varð gæsinni að
bráð. Hún hreinsaði upp öxin svo ekki
tók því að fara með þreskivélina á ak-
urinn.
Af stykkinu sem er í Lónabotni rétt
hjá seiðastöð Rifóss komu tæplega 2,5
tonn. Þykir það rýr uppskera, miðað við
það sem þekkist í suðursýslunni, segir á
vefnum. Er það rakið til lítillar áburð-
argjafar og þurrka. Þá leikur grunur á
að gæsin hafi einnig smakkað á korninu,
eins og á hinum akrinum. Haft er eftir
búnaðarráðunaut að árangurinn sé við-
unandi miðað við að ræktunin sé að hefj-
ast. Kornið var súrsað og verður gefið fé
í vetur.
HreppsnefndHöfðahrepps áSkagaströnd hef-
ur samþykkt að skora á
stjórnvöld að fresta álagn-
ingu veiðileyfagjalds.
Í ályktun hrepps-
nefndar, sem Adolf H.
Berndsen oddviti mælti
fyrir, er vakin athygli á
erfiðu rekstrarumhverfi
sjávarútvegsins um þessar
mundir og lýst áhyggjum
af álagningu veiðileyfa-
gjalds.
Komi hins vegar til
álagningar gjaldsins telur
nefndin að ráðstafa ætti
innheimtum fjármunum til
uppbyggingar á lands-
byggðinni, þar sem
stærstur hluti sjáv-
arútvegsins er starf-
ræktur, og að hafnarsjóðir
sveitarfélaga fái hluta.
Veiðigjald
Þær fylgjast frið-samar með ski-paumferðinni inn
eftir Norðfirðinum, þess-
ar dúfur sem hnappast á
þakkvist ofarlega í bæn-
um í Neskaupstað. Það
munar jú öllu að hafa
góða út- og yfirsýn á um-
hverfi sitt, þegar
skyggnst er um eftir æti
og aðsteðjandi hættum.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Dúfur á útkikki
Sofus Berthelsen íHafnarfirði kastarstundum fram stök-
um. Morgunblaðið fékk
tvær sendar fyrir nokkr-
um dögum.
Sofus er meðal annars lið-
tækur í Bridsfélagi aldr-
aðra í Hafnarfirði. Eitt
sinn er hann hafði lokið
spili sagði Sofus við félaga
sína:
Loksins fékk ég fögur spil
feginn skoðaði gögnin.
En samt fór hún fjandans til
fjagra spaða sögnin.
Sofus var með trilluútgerð
framan af ævinni. Einn
morgun leit hann út fjörð-
inn og sagði við viðstadda:
Þegar aldan himin há
hífir fald á Ægir.
Þá er sjaldan fisk að fá
fyrr en kaldann lægir.
Loksins fékk ég
fögur spil
frett@mbl.is
Akureyri | Þeir voru verklegir, félagarnir sem
unnu við það í gærdag að stoppa upp ísbjörn á
heimreiðinni að Eyrarvegi 2 á Akureyri, heimili
Sigurðar Guðmundssonar uppstoppara. Hann
hafði fengið til liðs við sig lærimeistara sinn frá
Danmörku, Erling Mörk og þrjá sænska ham-
skera, þá Ove Lundström, Lennart Petterson og
Jan Fredrikson. „Við erum að græja kroppinn
núna,“ sagði Sigurður. Hann keypti skinnið í Dan-
mörku og flutti inn sútað, en skrokkinn fékk hann
í Svíþjóð. „Það er svo heilmikil vinna við að stilla
þetta saman,“ sagði hann, en hann gerði ráð fyrir
tveggja daga vinnu við verkefnið fyrir félagana
fimm. Sigurður sagði uppátækið vissulega kostn-
aðarsamt, „en þetta hefur verið draumur minn í
mörg ár og nú er hann að rætast. Þetta er frábært
tækifæri, að fylgjast með þessum snillingum að
störfum og læra af þeim.“ Sigurður sagði óvíst
hvað yrði um ísbjörninn, „ég sé til, ef einhvern
vantar ísbjörn … “
Morgunblaðið/Kristján
Stoppa upp ísbjörn
Samvinna
Reykholt | Um 400 gestir sóttu samkomu
sem haldin var í Reykholti um helgina í
tilefni aldarminningar Guðmundar Böðv-
arssonar, skálds og
bónda á Kirkjubóli í
Hvítársíðu. Snorrastofa
og Minningarsjóður
Guðmundar Böðvars-
sonar og Ingibjargar
Sigurðardóttur konu
hans stóðu fyrir sam-
komunni.
Á dagskrá voru er-
indi, ljóðaupplestur og
söngur auk þess sem
veitt voru Borgfirsk
menningarverðlaun og
ljóðaverðlaun Guð-
mundar Böðvarssonar.
Minningarsjóður
Guðmundar Böðvars-
sonar og Ingibjargar
Sigurðardóttur veitir
tvenn verðlaun á
þriggja ára fresti. Að
þessu sinni, á aldaraf-
mæli skáldsins, komu Ljóðaverðlaun Guð-
mundar Böðvarssonar í hlut Þorsteins frá
Hamri fyrir óvenju langan og fágaðan
ljóðferil.
Borgfirsk menningarverðlaun voru
veitt Braga Þórðarsyni, bókaútgefanda á
Akranesi, fyrir útgáfu og söfnun borg-
firskra fræða sem hann hefur sinnt af
mikilli ræktarsemi. Bragi gaf meðal ann-
ars út heildarritsafn Guðmundar Böðv-
arssonar og ævisögu hans og nú á ald-
arafmæli skáldsins gaf hann út bókina
Ljóðöld sem hefur að geyma úrval ljóða
Guðmundar.
Ingibjörg Bergþórsdóttir afhenti Braga
verðlaunin og Böðvar Guðmundsson af-
henti Þorsteini ljóðaverðlaunin. Báðir
verðlaunahafarnir þökkuðu fyrir sig með
nokkrum orðum og Þorsteinn las nokkur
ljóða sinna.
Menningar-
og ljóðaverð-
laun afhent
Þorsteinn frá
Hamri
Bragi Þórðarson
Þingeyjarsveit | Sveitarstjórn Þingeyj-
arsveitar ræddi um stöðu fráveitumála í
sveitarfélaginu á síðasta fundi. Samþykkt
var að hefja átak sem byggist á að unnt
verði að sækja um styrk til fráveitunefnd-
ar. Var málinu vísað til umhverfisnefndar
sem falið er að gera hið fyrsta tillögu um
framkvæmd átaksins.
Undirbúa
átak í frá-
veitumálum
♦♦♦
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
Hveitigraspressa
verð kr. 4.500
Græni töfrasafinn
Hægt að nota sem
ávaxtapressu líka
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Friðsamlegur fundur | Síðasti fundur
bæjarstjórnar Garðs fer væntanlega í
sögubækurnar fyrir það að meirihluti bæj-
arfulltrúa var konur, í fyrsta skipti. Bæj-
arfulltrúar eru sjö en fjórar konur sátu
umræddan fund, þær Guðrún S. Alfreðs-
dóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Ásta
Agnes Woodhead og Hrönn Edvinsdóttir.
Það mun hafa komið einu sinni fyrir í
langri sögu hreppsnefndar að konur sátu í
meirihluta á fundi, þannig að ennþá telj-
ast svona skipaðir fundir til frásagnar
verðir.
Tekið er fram á vef Sveitarfélagsins
Garðs að umræddur bæjarstjórnarfundur
hafi verið stuttur og mjög friðsamlegur en
það hefur ekki alltaf verið raunin í Garði
á síðustu árum.
Vilja annast Þingey | Sveitarstjóri
Þingeyjarsveitar lagði til á síðasta fundi
sveitarstjórnar að sveitarfélagið óskaði
eftir viðræðum við Héraðsnefnd Þing-
eyinga um að Þingeyjarsveit taki við
umsjá og hugsanlega eignarryfirráðum
Þingeyjar í Skjálfandafljóti. Sveit-
arstjórnin tók jákvætt í þessa hugmynd
og fól sveitarstjóranum að hefja viðræður
um málið.
Pokapésar | Lionsklúbburinn Æsa í
Njarðvík er að hefja sitt átjánda starfsár.
Eins og venja er hefja félagskonur fjár-
öflun ársins með sölu á svokölluðum
„pokapésum“. Í þeim eru plastpokar og
álpappír. Allur ágóði rennur til líkn-
arstarfa.