Morgunblaðið - 09.09.2004, Side 17
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 17
LANDIÐ
Fljót | Ný fjárrétt, sem verið er að
byggja í Austur-Fljótum, verður
tekin í notkun næstkomandi laug-
ardag.
Réttin stendur í landi jarðarinnar
Nýræktar, skammt frá þjóðveg-
inum um sveitina. Nýja réttin, sem
heitir Holtsrétt, leysir af hólmi
mjög gamla og úr sér gengna rétt
með sama nafni á Holtsdal og einn-
ig að verulegu leyti Stíflurétt sem
er talsvert framar í sveitinni, en
hún stórskemmdist í snjóflóði síð-
asta vetur.
Nýja réttin er ásamt dilkum, sem
eru átta talsins, 55 sinnum 25 metr-
ar að stærð. Hún er að mestu byggð
úr timbri en allar uppistöður eru
járnrör sem eru steypt niður. Einn-
ig eru allar hurðir á dilkum úr járni
sem og hurðir á almenningi. Að
jafnaði hafa fjórir menn unnið að
byggingunni. Yfirsmiður er Óðinn
Rögnvaldsson og Vélaverkstæði KS
á Sauðárkróki sá um járnsmíði.
Það er Sveitarfélagið Skagafjörð-
ur sem kostar byggingu réttarinnar
og er heildarkostnaður áætlaður
liðlega 4 milljónir. króna. Með í
þeim kostnaði er jarðvegsvinna á
byggingarstað og vegalagning að
réttinni. Þessi nýja rétt verður aðal-
rétt sveitarinnar í stað Stífluréttar.
Með tilkomu hennar verður
gangnafyrirkomulagi í sveitinni
breytt. Göngur hefjast nú á fimmtu-
degi í stað föstudags áður. Á laug-
ardegi verður rekið til hinnar nýju
réttar og verður þá smalað frá jörð-
inni Lundi og niður sveitina ásamt
Holtsdal, en að norðan verður byrj-
að við bæinn Hraun og smalað fram
og munu gangnamenn svo mætast
við Holtsréttina.
Þess má geta að 2.800 kindur
voru á forðagæsluskýrslu í Austur-
Fljótum síðasta vetur og má bást
við að talsverður hluti þeirra verði
rekinn í nýju réttina á laugardag-
inn.
Ljósmynd/ÖÞ
Smiðir: Þeir unnu við byggingu réttarinnar. Frá vinstri: Rúnar Númason,
Óðinn Rögnvaldsson, Guðjón Ólafsson og Gunnar Steingrímsson.
Ný Holtsrétt leysir
tvær réttir af hólmi