Morgunblaðið - 09.09.2004, Side 32
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ÞETTA ER EINN AF ÞESSUM DÖGUM
SEM MAÐUR KEMUR ENGU Í VERK
ÉG VEIT ALVEG HVAÐ
ÞÚ ÁTT VIÐ...
1994 VAR
ÞANNIG HJÁ MÉR
Lalli lánlausi
© LE LOMOMBARD
HÆ KALLI!
ÞETTA ER
PATTA... HVAÐ
SEGIR ÞÚ?
ÉG ÞARF Á HJÁLP ÞINNI AÐ
HALDA KALLI. LIÐIÐ OKKAR
Á AÐ SPILA Á EFTIR OG EINN
LEIKMAÐURINN OKKAR ER
VEIKUR ÞANNIG AÐ...
VILTU AÐ ÉG SPILI FYRIR
LIÐIÐ ÞITT Í DAG?
NEI, OKKUR VANTAR BARA
AÐ FÁ HANSKANN ÞINN
LÁNAÐANN...
MAMMA, FÆ ÉG PENING
TIL ÞESS AÐ
KAUPA PLÖTU MEÐ
DJÖFLADÝRKANDI
ROKKHLJÓMSVEIT
Í SJÁLFSVÍGS-
HULEIÐINGUM
KALVIN, SÚ STAÐREYND AÐ
ÞEIR ERU EKKI BÚNIR AÐ
FREMJA SJÁLFVÍG Í
TRÚARATHÖFN TIL HEIÐURS
MYRKRAHÖFÐINGJANUM
SÝNIR AÐ ÞEIR ERU BARA Í
ÞESSUM BRANSA TIL ÞESS
AÐ FÁ PENING EINS OG ALLIR
AÐRIR. ÞANNIG AÐ ÞETTA
HNEYSLAR
ENGANN
LENGUR
ER ÞÁ
EKKI EINU
SINNI HÆGT
AÐ TREYSTA
SJÁLFS-
HATRI?!
ÞVÍ MIÐUR
KALLINN
MINN
ÞAÐ ER SVO ERFITT
FYRIR KRAKKA AÐ
BERJAST GEGN KERFINU
EFTIR HVERJU ERTU AÐ BÍÐA LALLI?
FARÐU AÐ BÚA TIL KUBBINN ÞINN
OG BRJÓTA ÞANNIG
LÖG UM UMHVERFISVÆNT
UMHVERFI FYRIR
NEMENDUR? NEI!
ÞÚ FÆRÐ MIG EKKI TIL ÞESS.
ÉG ER ENGINN BARBARI SEM
SPILLIR UMHVERFINU
BARBARI?
SJÁÐU BARA
ÞETTA! ÞETTA
ER KARTON OG HVAÐ MEÐ
KARTONIÐ?
ÞAÐ ER
KLÓRHREINSAÐ
UMHVERFISVÆNN
NEMANDI VINNUR EKKI MEÐ
PAPPÍR SEM HEFUR VERIÐ
HREINSAÐUR MEÐ KLÓR!
VEISTU HVAÐ MARGIR
HEKTARAR AF SKÓGI ERU LAGÐIR Í
EYÐI Á HVERJUM DEGI?
EF ÉG FÆ ENDURUNNINN PAPPÍR ÞÁ SKAL ÉG
GERA ÞENNAN HEIMSKULEGA KUBB
AUMI GRÆNFRIÐUNGUR!! ÞÚ ERT EKKI Í
SKÓLA TIL ÞESS AÐ VERNDA REGNSKÓGANNA
HELDUR TIL ÞESS AÐ EYÐA BUXUNUM ÞÍNUM
Á SKÓLABEKK!!
Dagbók
Í dag er fimmtudagur 9. september, 253. dagur ársins 2004
Víkverji naut þessað heyra aftur í
Bjarna Felixsyni lýsa
samantekt frá ensku
úrvalsdeildinni á Rík-
issjónvarpinu. Það var
líkast því að hverfa
mörg ár aftur í tím-
ann að heyra í Bjarna,
allt með sama sniðinu
og áður og Víkverji
minntist vetrardaga
sem barn þegar hann
að loknum leik í ensku
deildinni undir
tryggri lýsingu
Bjarna hljóp út á
snævi þakinn fótbolta-
völl hverfisins til þess að fá útrás
fyrir óhemjandi sparkhneigð, sem
vaknaði við það að horfa á enska
boltann og hlusta á Bjarna Fel-
ixson.
x x x
Nú, einum þrjátíu árum síðar, erVíkverji enn að sparka bolta
nokkrum sinnum í viku, sér til
heilsubótar og meiðsla annað veif-
ið. Það er engin kvöð heldur hrein
ánægja að mæta og aðra hreyfingu
stundar Víkverji ekki. Hann hefur
hins vegar þegar nokkrar áhyggjur
af því hvað við taki þegar hann
getur ekki lengur spilað fótbolta
enda nokkur forréttindi, miðað við
það sem hann heyrir
utan á sér, að geta
stundað hreyfingu
sem hann hefur
hreinlega gaman að.
Víkverji hefur reynt
að stund sund, hlaupa
einsamall nokkra kíló-
metra í hverri viku en
hefur alltaf gefist upp
á endanum og yf-
irleitt ekki enst lengi í
þessu þar sem ánægj-
una hefur vantað og
oft hreinasta pína að
koma sér af stað. Ein-
mitt af þessum sökum
hefur Víkverji reynt
að halda sig við fótboltann.
x x x
Víkverji sér sig alls ekki í andamæta í þreksali og hlaupa þar
á brettum eða hjóla á þrekhjóli
horfandi á sjónvarpsskjái, finnst
eins og allur leikur og gaman sé þá
út úr myndinni. En er á meðan er
og „den tid, den sorg“ eins og Dan-
ir segja.
Víkverji heyrir á orðum margra
kunningja og félaga að það er þeim
þó nokkurt erfiði að stunda hreyf-
ingu eða líkamsrækt, svona ekki
ósvipað og að mæta til tannlæknis:
ekki skemmtilegt en nauðsynlegt
eigi að síður.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Gamla bíó | Íslenska óperan kynnti í gær vetrardagskrá sína með óhefð-
bundum hætti. Óperan sýnir í vetur óperutryllinn Sweeney Todd, sem fjallar
um ógurlega hefndarför bartskerans Sweeney Todd gegn úrkynjuðum dóm-
ara sem svipti hann lífinu og hamingjunni. Sweeney hakkar fórnarlömb sín
niður og nýtur aðstoðar frú Lóett, sem býr til úr þeim kjötbökur. Í þeim anda
bar sópraninn Ingveldur Ýr Jónsdóttir, sem fer með hlutverk hennar fram
„girnilegar kjötbökur.“ Örn Árnason leikari, sem þreytir nú frumraun sína
hjá Óperunni, kunni vel að meta veitingarnar.
Það er barítóninn Ágúst Ólafsson sem fer með hlutverk Sweeney, en
frændi hans Davíð Ólafsson fer með hlutverk hins „kynferðislega brenglaða“
dómara, sem að sögn Davíðs er vægast sagt viðbjóðsleg persóna. Ágúst segir
hlutverk Sweeney afar krefjandi og óhefðbundið barítónhlutverk. „Ég hef
aldrei séð svona barítónhlutverk, það er skrifað mjög lágt og gerir kröfur til
breiðs raddsviðs,“ segir Ágúst sem kveðst nú vinna á fullu við að koma sér
inn í persónu Sweeney.
Morgunblaðið/Golli
Kynjóttar kjötbökur
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Himnarnir segja frá Guðs dýrð, og festingin kunngjörir
verkin hans handa. (Sl. 19, 2.)