Morgunblaðið - 09.09.2004, Qupperneq 34
DAGBÓK
34 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert skapandi og nýjungagjörn/gjarn í
eðli þínu og nú langar þig til að gera ein-
hvers konar breytingar í vinnunni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Foreldrar ættu að reyna að forðast
valdabaráttu við börn sín í dag. Sýndu
umburðarlyndi og þolinmæði og minntu
þig á að oft vægir sá sem vitið hefur
meira.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er hætt við valdabaráttu innan fjöl-
skyldunnar í dag. Reyndu að missa ekki
stjórn á þér. Það mun ekki styrkja mál-
stað þinn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú gætir orðið fyrir hörðum aðgangi ein-
hvers sem vill sannfæra þig um eða selja
þér eitthvað í dag. Stattu fast á þínu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekki ganga of hart fram í peningamál-
unum í dag. Staldraðu við og íhugaðu
hvað það er sem þú sækist raunverulega
eftir. Annars er hætt við að þú missir
sjónar á því.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú gætir þurft að takast á við einhvers
konar andstöðu í dag. Reyndu að gera
velgengni þína að velgengni hópsins.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er óvenjumikil hætta á því að þú
verðir fórnarlamb einhvers konar glæps
í dag. Haltu þig frá hættulegum stöðum
og ofbeldishneigðu fólki.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Vinur þinn gæti reynt að sannfæra þig
um eitthvað í dag eða þá að þú reynir að
sannfæra vin þinn um eitthvað. Ekki láta
þetta þróast út í valdabaráttu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er óvenju hætt við að hugmyndir
þínar verði kveðnar í kútinn í dag.
Reyndu að forðast að leggja of mikið
undir því það eru mestar líkur á að þú
mætir ofjarli þínum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ekki reyna að telja aðra á skoðanir þín-
ar í trúmálum og heimspeki í dag eða
láta aðra telja þig á sitt band. Fólk hefur
rétt á sínum skoðunum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það eru miklar líkur á að einhvers konar
spenna komi upp varðandi sameigin-
legar eignir í dag. Þetta er því ekki góð-
ur dagur til að ganga frá samningum eða
eignaskiptum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til
að koma illa fram í dag, sama hversu
innilega þú telur aðra eiga það inni hjá
þér. Annað mun einungis koma í bakið á
þér síðar.
Stjörnuspá
Frances Drake
Meyja
Afmælisbörn dagsins:
Eru greind og fljót að hugsa og hafa
mikla þörf fyrir að sanna sig bæði fyrir
sjálfum sér og öðrum. Næsta árið verður
mikið að gera hjá þeim í félagslífinu.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html
Lárétt | 1 karlmenn, 4 slá,
7 skrökvar, 8 hreysi, 9
kvendýr, 11 hina, 13 fyrr,
14 svalls, 15 ryk, 17 skaði,
20 hugsvölun, 22 áma, 23
látnu, 24 rödd, 25 víðan.
Lóðrétt | 1 bunga, 2 hor-
aður, 3 magurt, 4 hjól-
barði, 5 örðug, 6 sigar, 10
núningshljóð, 12 ílát, 13
kærleikur, 15 gleður, 16
sólar, 18 Gyðingum, 19
yndi, 20 til sölu, 21 belti.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 munnræpan, 8 mögur, 9 illar, 10 Týs, 11 nærri,
13 terta, 15 laufs, 18 hruns, 21 ker, 22 gagna, 23 aðall, 24
þrásinnis.
Lóðrétt | 2 uggur, 3 narti, 4 ærist, 5 aular, 6 smán, 7 brúa,
12 rif, 14 eir, 15 laga, 16 ungur, 17 skass, 18 hrafn, 19 un-
aði, 20 sálm.
Myndlist
Gallerí i8 | Fimmtudaginn 9. september kl.
17 opnar Gjörningaklúbburinn sýninguna
Fjölleikahús hjartans í i8. Þetta er önnur
sýning hópsins í i8, en þær sýndu í gallerí-
inu árið 2000.
Skemmtanir
Kaffi List | Spilabandið Runólfur leikur
létta syrpu fimmtudagskvöld frá 22.30.
Tónlist
Kaffi Rosenberg | John Michaelz, tónlist-
armaður frá Nýja Sjálandi, flytur tónlist á
Kaffi Rosenberg á fimmtudag klukkan tíu.
Þá mun Michael Pollock telja í nokkur lög
með John.
Grand Rokk | Hljómsveitirnar Líkn og
Númer núll spila á Grand Rokk fimmtudag-
inn 9. september kl. 22.
Múlinn - Hótel Borg | Jazzklúbburinn Múl-
inn er að hefja sitt áttunda starfsár í
Gylltasalnum á Hótel Borg fimmtudags-
kvöldið 9. september. Sænska jazztríóið
Daisy með þeim Joakim Rolandson saxó-
fónleikara, Thommy Larsson trommur og
bassaleikaranum Peter Janson munu ríða
á vaðið. Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Tónlistarskóli Garðabæjar | Haukur Páll
Haraldsson, söngvari við Ríkisóperuna í
München, kemur fram á hádegistónleikum
í Tónlistarskólanum í Garðabæ, fimmtu-
daginn 9. september kl. 12.15.
Fyrirlestrar
Háskóli Íslands | Alberto Alesina, prófess-
or við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum og
forseti hagfræðideildar skólans, heldur op-
inn fyrirlestur um stærð þjóða föstudaginn
10. september kl. 12.15–13.15, í stóra saln-
um í Öskju. Alberto Alesina er virtur hag-
fræðingur á sínu sviði í heiminum í dag.
Oddi | Fyrsti hádegisfyrirlestur Rann-
sóknastofu í kvenna– og kynjafræðum
(RIKK) verður haldinn fimmtudaginn 9.
september kl. 12.15–13.15 í stofu 101 í Odda.
Katarina Leppänen heimspekingur flytur
erindið „Er siðmenningin ónáttúruleg?
Hugleiðingar um „Vekjaraklukku“ Elínar
Wägner.“
Snorrastofa | Í skólahúsinu í Reykholti,
föstudaginn 10. september kl. 13–17. Að
málþinginu standa Snorrastofa, Fornleifa-
vernd ríkisins, Þjóðminjasafn Íslands og
Háskólinn á Hólum. Frekari upplýsingar um
dagskrá á vef Snorrastofu, www.snorra-
stofa.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Jóga hefst kl. 9 í dag og
myndlist kl. 13 hjá Sheenu.
Árskógar 4, | Bað kl. 8–12, handavinna kl.
9–16.30, boccia kl. 9.30, helgistund kl.
10.30, leikfimi kl. 11, smíði kl. 13–16.30,
myndlist kl. 13.30.
Félag eldri borgara | Hafnarfirði Bingó í
dag kl. 13.30.
Félag eldri borgara | Reykjavík Brids í dag
kl. 13.
Félagsstarf aldraðra, | Garðabæ Kynning-
ardagur félagsstarfsins kl. 14 í Garðabergi.
Starfið fram að jólum kynnt. Karlaleikfimi
kl. 13.
Hraunbær 105 | Hjúkrunarfræðingur kl. 9,
boccia kl. 10, félagsvist kl. 14.
Hvassaleiti 56–58 | Boccia kl. 10. Opin
vinnustofa allan daginn, bútasaumur, hann-
yrðir. Félagsvist kl. 13.30. Á morgun, föstu-
dag verður síðdegiskaffi og klassískur
söngur.
Hæðargarður 31 | Opin vinnustofa/gler-
skurður kl. 9, leikfimi kl. 10–11, hárgreiðslu-
stofa kl. 9–12, aðstoð við böðun kl. 9, hver
með sínu nefi kl. 13.30.
Norðurbrún 1 | Kl, 9–12 leirmótun, kl. 9–
16.30 opin vinnustofa, kl. 10–11 ganga, kl.
13–16.45 leirmótun.
Vitatorg | Smiðjan kl. 8.45–11.45, hár-
greiðsla kl. 9–16, morgunstund kl. 9.30–10,
boccia kl. 10–11, handmennt kl. 9.30–16,
fótaaðgerðir kl.10–16, brids frjálst kl.13–16.
Kirkjustarf
Akraneskirkja | KK, Kristján Kristjánsson,
heldur tónleika í Akraneskirkju fimmtu-
dagskvöldið 9. sept. kl. 20.30. Þeir bera
yfirskriftina: Ljós af ljósi og eru trúarlegir
tónleikar og standa í klukkustund. Enginn
aðgangseyrir. Tónleikarnir eru í boði Akra-
nessafnaðar. Allir velkomnir.
Digraneskirkja | Foreldramorgnar á
fimmtudagsmorgnum kl. 10–12 í fræðslusal
á neðri hæð. Allir eru velkomnir.
Grensáskirkja | Hversdagsmessur eru
hvert fimmtudagskvöld í Grensáskirkju. Frá
kl. 18.15 er hægt að fá léttan kvöldverð í
safnaðarheimili kirkjunnar. Kl. 19 hefst
guðsþjónusta með léttu sniði fyrir alla fjöl-
skylduna.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund í hádegi
alla fimmtudaga kl. 12. Orgelleikur, íhugun.
Léttur málsverður eftir stundina.
Laugarneskirkja | Kyrrðarstundir eru í há-
degi alla fimmtudaga kl. 12. Léttur máls-
verður á kostnaðarverði í safnaðarheim-
ilinu á eftir.
Óháði söfnuðurinn | Boðið verður upp á
tólf sporin, andlegt ferðalag, í kirkju Óháða
safnaðarins í vetur. Annar kynningarfundur
verður fimmtudaginn 9. september kl. 19
og er öllum opinn. Umsjón og upplýsingar
hjá Ragnari í síma 690 6694.
Landspítali Háskólasjúkrahús | Grensás.
Guðsþjónusta Grensás kl. 20. Sr. Gunnar R
Matthíasson.
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12, æfing barnakórs kl. 15.30. æf-
ing stúlknakórs kl. 17, samhygð kl. 20.30.
Staðurogstund
idag@mbl.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á „Staður og stund“ undir „Fólkið“ á mbl.is.
Meira á mbl.is
HLJÓMSVEITIN Grafík heldur afmælistónleika í Austurbæ í kvöld. Þar munu þeir meðal
annars leika lög af plötunni „Get ég tekið Cjéns,“ sem var endurútgefin á dögunum. Egill
Rafnsson, sonur Rafns heitins Jónssonar, trommara Grafíkur, tekur við hlutverki föður
síns á tónleikunum og hefur þótt standa sig með prýði. Drengirnir voru við æfingar í gær
þegar ljósmyndari Morgunblaðsins heimsótti þá og var ekki annað að heyra en þeir næðu
vel saman, enda um atvinnutónlistarmenn að ræða.
Morgunblaðið/Þorkell
Æft fyrir afmælistónleika
Á opnu borði.
Norður
♠--
♥ÁKDG2
♦ÁD
♣765432
Vestur Austur
♠1098762 ♠543
♥-- ♥1087654
♦KG ♦432
♣KDG98 ♣10
Suður
♠ÁKDG
♥93
♦1098765
♣Á
Suður spilar sex grönd og fær út
laufkóng.
Hver er vinningsleiðin á opnu
borði?
Lausn: Stefið í þessari þraut er
fyrst og fremst skemmtilegt. Sagn-
hafi fær fyrsta slaginn á laufás og
tekur svo fjóra efstu í spaða. Sem er
svo sem ekkert merkilegt, nema
hvað hann hendir fjórum efstu í
hjarta úr blindum! Svo svínar sagn-
hafi tíguldrottningu og tekur tígulás-
inn. Spilar loks hjartatvisti úr borði
að níunni. Austur á ekkert nema
rauð spil eftir, hjörtu og einn tígul-
hund. Hann getur tekið á hjarta-
tíuna, en neyðist svo til að spila suðri
inn.
E.s. Í sjónvarpsþáttunum The
Fear Factor eru áhorfendur varaðir
við að leika eftir listir þátttakenda.
Sem er undarleg viðvörun, því það
skásta sem þarna er gert er að éta
ánamaðka og velta bílum. Nokkuð
sem enginn gerir ótilneyddur. Hið
sama má segja um spilamennskuna
að ofan – að henda ÁKDG í sex
gröndum. En til að hafa allt á hreinu
er rétt að segja eins og þeir í Fear
Factor: – „Dońt do this at home!“
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
DEMANTSBRÚÐKAUP | Í dag, 9.
september, eiga 60 ára hjúskapar-
afmæli hjónin Lára Herbjörnsdóttir
og Ásgeir Ármannsson, Ásgarði 63,
Reykjavík. Þau eru að heiman í dag.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
Rf6 5. 0–0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3 0–0 8.
h3 d6 9. c3 Ra5 10. Bc2 c5 11. d4 Rd7
12. Rbd2 exd4 13. cxd4 Rc6 14. d5
Rce5 15. Rxe5 Rxe5 16. a4 Bb7 17. f4
Rg6 18. Rf3 Bh4 19. Hf1 Bg3 20. f5
Re5 21. Rg5 Bh4 22. f6 g6 23. Dd2
Rd7
Staðan kom upp á franska meistara-
mótinu sem lauk fyrir skömmu í Val
d’sere. Laurent Fressinet (2.637) hafði
hvítt gegn Jean Roux (2.498). 24.
Rxh7! Bxf6 ill nauðsyn þar sem svart-
ur hefði verið mátaður hefði hann þeg-
ið riddarafórnina. 25. Rxf6+! Rxf6 26.
Dh6 Rh7 27. Hf4 og svartur sá sig
knúinn til að gefast upp enda staðan
harla vonlítil eftir 27. … Dg5 28. Dxg5
Rxg5 29. Hf6.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.