Morgunblaðið - 09.09.2004, Side 35
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 35
Líkamsvara sem
mótar línurnar
eins og sokkabuxur?
Ótrúlegt.
GEL SEM MÓTAR, STYRKIR
OG GRENNIR
heimsæktu www.lancome.com
Body Sculptesse, með Tight Skin™ tækni,
þéttir húðina strax við fyrstu notkun svo það
er engu líkara en þú hafir farið í sokkabuxur.
Silkikennt gelið gerir húðina fíngerðari og
þéttari og útlínurnar mótaðri og grennri.
T R Ú Ð U Á F E G U R Ð
Sími: 568 5170
Haustið er komið og því fylgja ákveðnar áherslur! Ráðgjafi frá Lancôme verður í versluninni í dag
og á morgun föstudag. Virkar líkamsvörur, haust- og vetrarlitirnir eru komnir, tilboðspakkningar
í ýmsum kremum og margt fleira. Flottir, veglegir kaupaukar.
Í kjölfar vaxtalækkana hefur sala eigna aukist verulega. Okkur vantar
eignir fyrir trausta og örugga kaupendur. Í mörgum tilfellum er boðið
upp á staðgreiðslu eða langan afhendingartíma:
• Einbýli/parhús/raðhús í vesturbæ Rvíkur og Seltjarnarnesi.
Kaupendur að eignum að verðbili 25-100 millj.
• Einbýli/parhús/raðhús í Hafnarfirði. Höfum kaupendur að bæði litlum
húsum í gamla bænum og glæsivillum í nýrri hverfum.
• Hæðum í Hlíðunum, Laugarneshverfi og Vesturborginni.
• 2ja, 3ja og 4ra herb. fyrir opinberan aðila. Langur afhendingartími
getur verið í boði.
• Einbýli/parhús/raðhús í Fossvogi og smáíbúðahverfi. Verðbil 20-60
millj.
• Einbýli/parhús/raðhús í Grafarvogi og Grafarholti. Verðbil 25-50 millj.
HAFIÐ SAMBAND OG VIÐ SKOÐUM SAMDÆGURS.
VERÐLEGGJUM EIGNIR YKKUR AÐ
KOSTNAÐARLAUSU.
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 Fax 552 1405
www.fold.is fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401
VANTAR EIGNIR
Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali.
M
aríus Sverrisson verður stjarna
kvöldsins á fyrstu tónleikum
starfsárs Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í kvöld, en
Maríus var ein af stjörnum
sýningar Neue Flora leikhússins í Hamborg á
söngleiknum Titanic. Sýningin gekk fyrir fullu
húsi í tíu mánuði og alls sá hana hálf milljón
manna. Maury Yeston, höfundur þessa Tony-
verðlaunaða Broadway-söngleiks um glæsi-
skipið ósökkvandi, varð svo hrifinn af flutn-
ingnum í Hamborg að hann samdi nýjan dúett
sérstaklega fyrir Maríus og söngkonuna Jasm-
in Madwar og bætti honum við verkið.
En nú er Maríus kominn heim, og verður
hér framan af hausti.
„Ég varð mjög spenntur þegar það var
hringt í mig í vetur og ég beðinn um að syngja
með hljómsveitinni. Það er heiður fyrir mig að
fá tækifæri til að koma heim og syngja með
svona frábærri hljómsveit, og svo er þetta líka
svo spennandi og skemmtilegt. Útsetning-
arnar sem við erum með eru alveg frábærar,
og fyrir söngvarann er það mjög mikilvægt.
Það er ekkert skemmtilegra en að syngja
svona góða tónlist í góðum útsetningum,“ segir
Maríus.
Hann hafði sitt að segja um val efnisskrár-
innar, og segir það hafa strax verið ákveðið að
taka eitt lag úr Titanic, söngleiknum sem hann
hefur verið að syngja í Þýskalandi síðustu
misserin. „Úr því ég hef ekki enn haft tækifæri
til að syngja söngleikinn allan fyrir Íslendinga,
þá ákvað ég að syngja í það minnst eitt lag úr
honum, vegna þess hvað þetta verkefni hefur
verið mikilvægt fyrir mig á mínum ferli. Ég
syng líka þrjú íslensk þjóðlög í útsetningu
Jóns Þórarinssonar, og það er nokkuð sem ég
hafði mikinn áhuga á að gera og fannst viðeig-
andi. Þetta eru mansöngvar og Jón útsetti þá
sérstaklega fyrir þessa tónleika.
Hetjur og andhetjur
Hetjur eru eins konar þema í efnisskránni,
og þá á ég ekki bara við hetjur í hefðbundnum
skilningi, heldur líka hvunndagshetjur, hetjur
hafsins, og jafnvel líka andhetjur. Ég syng líka
lag eftir Stephen Sondheim, sem er höfundur
Sweeney Todd, sem Óperan frumsýnir á næst-
unni. Þetta lag heitir Broadway Baby, og er
það sem kallað er ekta showstopper.“
Hljómsveitin heldur hetjuþemanu á lofti í
verki eftir Erich Korngold um Hróa hött og
Birni að baki Kára úr Sögusinfóníu Jóns Leifs.
„Það verður mikill kraftur í þessum tón-
leikum,“ segir Maríus.
Hetjan í Titanic, sem Maríus ljær rödd sína
á tónleikunum, er kyndarinn; karlinn á botni
þess lagskipta samfélags sem var um borð í
þessu sögufræga skipi, og mokar kolum í vél-
arnar sem knýja það áfram. Og saga hans er
sönn, þótt margar persónur söngleiksins séu
uppdiktaðar. „Kyndarinn bjargaði ótal manns-
lífum á Titanic, og í lagi sínu er hann að syngja
um fólkið um borð og muninn á háum og lág-
um.“
Maríus hefur auðheyrilega komið sér vel
fyrir á evrópska söngleikjasviðinu á liðnum ár-
um. Hann hefur sungið í Sound of Music í
Innsbruck, í Cabaret í Vínarborg, sungið í
söngleikjum í Schiller Théater í Berlín og víð-
ar og víðar og í fleiri, fleiri verkum. Fyrir
blaðamann, sem ekki hefur heyrt í Maríusi síð-
an hann söng Hans Grétubróður í Skilaboða-
skjóðu Þorvaldar Þorsteinssonar í Þjóðleik-
húsinu fyrir um áratug, eru þetta talsverð
afrek á ekki lengri tíma. „Skilaboðaskjóðan –
já, hún var rosalega skemmtileg,“ segir Mar-
íus og hlær, „henni var líka svo frábærlega
leikstýrt af Kolbrúnu Halldórsdóttur. Það er
alveg kominn tími til að sýna verkið aftur.“
Maríus segir Íslendinga kunna vel að meta
söngleikjatónlist og hafi mikinn áhuga á henni.
„Mér finnst ekkert erfitt að segja að við séum
söngelskasta þjóð í heimi. Við erum söng-
þjóðin, par excellence. Þess vegna er sér-
staklega spennandi og mikill heiður að syngja
fyrir Íslendinga – maður veit að þeir hafa vit á
því sem maður er að gera. Og áhuginn er ekki
að minnka, því fólk hefur stöðugt auðveldari
aðgang að alls konar músík.“
Maður er alltaf að segja sögu
Þótt Maríus sé fyrst og fremst söngvari í
dag, þá hófst ferill hans á söngleikjasviðinu úti
ekki í söngnum, heldur í dansinum. „Í mörgum
söngleikjum er mikil og góð dansmúsík, og það
var eitt af því sem heillaði mig strax við söng-
leikina. Þar var tækifæri til að nýta hæfileika
bæði í dansi, söng og leik, og sú blanda hreif
mig. Ef maður hefur hæfileika í þessar áttir,
og kann að meta þessa tónlist, þá vill maður
auðvitað geta nýtt hæfileikana alla – ekki bara
að hluta. En það er fleira sem mér finnst
heillandi við söngleikjatónlist. Textinn er mjög
mikilvægur. Maður er alltaf að segja sögu.
Auðvitað er það þannig í allri söngmúsík, en í
söngleikjunum er gríðarlega mikið lagt upp úr
skilningi á textanum, túlkun hans og fram-
burði. Í söngleikjum eru textar unnir út frá
leiknum – ekki út frá röddinni, eins og í óper-
unni. En röddin fylgir auðvitað. Í óperunni er
það þannig, að verulega góður óperusöngvari
getur túlkað allt með röddinni einni. Hann
þarf ekki annað. Þar er munurinn að mínu
mati.“
Maríus segir að söngleikurinn hafi gengið í
gegnum hæðir og lægðir eins og önnur list.
„Þetta er commercial leikhús,“ segir hann, og
mikið lagt upp úr skemmtanagildinu og af-
þreyingunni, jafnvel þótt um dramatísk verk
sé að ræða.
Hann segir að söngleikurinn hafi verið á
miklu flugi fyrir um fimmtán árum, þegar
Webber og slíkir kappar sömdu hvern smell-
inn á fætur öðrum, Phantom of the Opera,
Vesalingana, Cats, og slík verk. „Það er auð-
vitað ennþá verið að semja söngleiki, en þróun-
in hefur samt verið sú að í dag er mikið verið
að semja poppsöngleiki, þar sem lögum, sem
þegar hafa öðlast vinsældir er skellt saman ut-
an um nýjan söguþráð, en svo er líka verið að
lífga gömlu klassísku söngleikina við upp á
nýtt; verk eins og Annie get your Gun, Gypsy
og 42nd Street. Stóru söngleikirnir, eins og
Lion King og Cats halda samt alltaf velli og
eru stöðugt í gangi.“
Maríus þreytir frumraun sína í Íslensku
óperunni nú í haust, í söngleiknum Sweeney
Todd eftir Sondheim, og hann fer einnig með
hlutverk í kvikmynd Róberts Douglas, Strák-
unum okkar, sem verður frumsýnd eftir ára-
mót. Fleiri verkefni bíða hans, bæði á Ítalíu, í
Þýskalandi og víðar. Hann kýs lausamennsk-
una, og kann henni vel. „Maður getur hagað
seglum eftir vindi, og ég kýs þann sveigjan-
leika sem því fylgir. Það hentar ekki öllum, en
það hentar mér. Ég er líka farinn að hugsa um
næsta geisladisk, sem ég hlakka mjög til að
gera, og mig langar að hafa hann í klassískari
kantinum, með nútímalegu ívafi, þótt ég sé
ekki að tala um klassíska tónlist.“
Ísland er ennþá „heim“ í huga Maríusar,
jafnvel þótt það sé ekki á dagskrá í bili að
dvelja langdvölum á Íslandi. „Ég er farinn að
hugsa þetta svolítið öðruvísi núna. Ég á heima
á Íslandi, og þegar ég kem heim er alltaf tekið
vel á móti mér. Þess vegna finnst mér ég eiga
heima hér þótt ég sé ekki hérna öllum stund-
um. Ég er ekki búin að koma mér upp heimili
eða athvarfi á Íslandi, en það er á dagskrá.“
Tónlist | Maríus Sverrisson syngur á fyrstu tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar
Við erum söngþjóðin
Morgunblaðið/Sverrir
„Það verður mikill kraftur í þessum tónleikum,“ segir Maríus Sverrisson, en hann er gestur
Sinfóníuhljómsveitar Íslands á fyrstu tónleikum starfsársins í Háskólabíói í kvöld.
begga@mbl.is
Nýlega kom út 293. bindiDictionary of Literary Bio-graphy (DLB) og er það
helgað íslenskum rithöfundum.
Þetta er mikið rit, 476 blaðsíður í
stóru broti. Fjallað er um rithöf-
unda frá nítjándu öld fram til okkar
daga. Elstur þeirra er Jónas Hall-
grímsson og sá yngsti er Gyrðir Elí-
asson, fæddur
1961. Alls er
fjallað um 44
höfunda. Um
hvern og einn
er skrifað talsvert mál, eigi að síður
er ritið fremur takmörkuð heimild
um íslenskar bókmenntir síðustu
tveggja alda. Það er ágætt uppfletti-
rit um þá fjörutíu og fjóra höfunda
sem um er fjallað en sem uppflettirit
um íslenskar bókmenntir á nítjándu
og tuttugustu öld er það ekki gott.
Í formála bókarinnar fjallar rit-nefnd DLB um hlutverk þessara
bóka. Þar segir að lögð sé áhersla á
rithöfunda, verk þeirra og feril. Það
er þó ekki aðeins ætlunin að veita
upplýsingar um höfunda heldur og
að setja þá í stærra bókmennta-
sögulegt samhengi.
Ritstjóri bókarinnar er Patrick J.
Stevens, sem starfar í bókasafni
Cornell-háskóla í Bandaríkjunum,
og ritar hann inngang um sögu Ís-
lands og íslenskra bókmennta. Eins
og í ritgerðum um einstaka höfunda
er megináhersla lögð á að skoða
bókmenntir í sögulegu og fé-
lagslegu samhengi í innganginum.
Minna er rýnt í bókmenntalega þró-
un og einkenni höfunda, stíl, frá-
sagnarhátt, hugmyndafræðilegt
samhengi o.s.frv. Er þetta í raun
megingalli ritsins. Sá sem ætlar að
nota það til þess að átta sig á bók-
menntasögu síðustu tvö hundruð
ára á Íslandi á satt að segja erfitt
verk fyrir höndum. Í innganginum
hefur hann svolítið efni úr að moða
um sögu Íslands frá landnámi og
fremur ágripskennda bókmennta-
sögu. Í meginköflunum 44 fær hann
svo ævisögur jafnmargra höfunda,
oft ævisögulegan lestur á helstu
verkum þeirra eða ferilslýsingu.
Lesandinn stendur því uppi með
grunnþekkingu á sögu lands og
þjóðar, allbrotakennda mynd af því
hverjir eru höfundar íslenskra bók-
mennta síðustu tvö hundruð ár og
fremur takmarkaða tilfinningu fyr-
ir samhenginu á milli þeirra, við út-
lönd, við hugmyndafræðilega og
bókmenntalega strauma. Lesandinn
veit með öðrum orðum kannski ekki
nægilega mikið um það hvernig
bókmenntir hafa verið skrifaðar hér
á þessu tímabili og í hvaða sam-
hengi.
44 dæmi ’… sem uppflettirit umíslenskar bókmenntir á
nítjándu og tuttugustu
öld er það ekki gott.‘
AF LISTUM
Þröstur Helgason
throstur@mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111