Morgunblaðið - 09.09.2004, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Mjáumst
í bíó!
Uppáhalds köttur allrar
fjölskyldunnar er
kominn í bíó!
Sjáið frábæra
gamanmynd
um frægasta, latasta
og feitasta kött í heimi!
Sýnd kl. 6. ísl tal.Sýnd kl. 5.45.
Nicole Kidman
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 10.15.
Ný íslensk mynd gerð eftir
samnefndri metsölubók,
í leikstjórn
Silju Hauksdóttur,
með Álfrúnu Helgu
Örnólfsdóttur í
titilhlutverkinu.
Stórskemmtileg nútímasaga
úr Reykjavík sem tekur á
stöðu ungs fólks í
íslenskum samtíma með
húmorinn að vopni.
óvenjulega venjuleg stelpa
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 14 ára.
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4 og 6. ísl tal.
Sýnd kl. 4, 6 og 10. Enskt tal.
Yfir 25.000 gestir!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
NOTEBOOK
NOTEBOOK
HJ MBL
"Fjörugt bíó"
Þ.Þ. FBL
Kem í bíó 10 sept
kl. 8 og 10.
Ný íslensk mynd gerð eftir samnefndri metsölubók,
í leikstjórn Silju Hauksdóttur,
með Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur í titilhlutverkinu.
Stórskemmtileg nútímasaga úr Reykjavík sem tekur
á stöðu ungs fólks í íslenskum samtíma með
húmorinn að vopni.
óvenjulega venjuleg stelpa
Mjáumst
í bíó!
ÝMISSA grasa kennir í hljómplötu-
útgáfu þetta haustið, en nú fer í hönd
aðalútgáfutími ársins, enda er plötu-
sala jafnan mest fyrir jólahátíðina.
Margt áhugavert er að finna í útgáfu-
áætlun hljómplötufyrirtækjanna,
sem láta ekki deigan síga þótt sagt sé
að lögleg útgáfa fari halloka fyrir nið-
urhali á Netinu. Hér á eftir fer yfirlit
yfir það helsta í dægurtónlistinni
þetta haustið.
Skífan
Skífan gefur út tvær plötur í sept-
ember; Meira sítt að aftan, óbeint
framhald Sítt að aftan, safnplötu með
lögum frá níunda áratugnum, og
Bestu barnaplötuna í öllum heim-
inum, sem er tvöföld safnplata með
vinsælustu barnalögum Íslands.
Aðalfjörið hjá Skífunni hefst þó
ekki fyrr en í október, þegar flestir
titlarnir líta dagsins ljós. Einna at-
hyglisverðust er ný plata með Sölva,
Tiny og félögum í Quarashi, en ekki
er komið nafn á gripinn. Þá kemur út
safnplata með hljómsveitinni Maus,
Maus 1994–2004. Safn bestu laga
sveitarinnar, prufutökur og nýtt efni.
Einnig sendir Bubbi Morthens frá
sér nýja plötu, en nú hefur hann snú-
ið sér að sveitatónlistinni, svokallaðri
„bluegrass“-tónlist. Annar meistari,
Björgvin Halldórsson, fer fyrir
Brimkló, sem sendir frá sér nýtt efni
eftir 23 ára hlé. Platan heitir Brimkló
við heygarðshornið og er að sögn í
svipuðum stíl og fyrri plötur sveit-
arinnar. Því má segja að þessir tveir
pólar íslenskrar popptónlistar mæt-
ist í sveitatónlistinni árið 2004.
Rokkaðasta plata Skífunnar þetta
árið verður ugglaust ný plata frá
Brain Police. Poppararnir eiga þó
líka skjól hjá fyrirtækinu, ber þar
fyrstar og fremstar að nefna tvær
Idol-stjörnur, Kalla Bjarna og Jón
Sigurðsson. Kalli syngur íslensk lög
sem samin eru fyrir plötuna, en Jón
einbeitir sér að erlendum lagasmíð-
um. Nylon söngflokkurinn vinsæli
lætur ekki sitt eftir liggja og ljær
geislaplötu raddir sínar fyrsta sinni.
Óli Palli heldur áfram með Rokk-
landssafnplötuna; Rokkland 2004
inniheldur það helsta úr útvarps-
þættinum þetta árið.
Skífan uppfyllir óskir í október
með safnplötunum Óskalögin 8 og
Óskastundin 3, en sú fyrrnefnda hef-
ur að geyma íslenskar dæg-
urlagaperlur frá seinni hluta tíunda
áratugarins. Óskastundin 3 er safn-
plata með íslenskum dægurlagaperl-
um frá sjöunda áratugnum, í umsjá
Gerðar G. Bjarklind. Aðrar plötur
sem sækja í alíslenskan brunn eru
plata frá skagfirska söngbóndanum
Jóhanni Má Jóhannssyni og safn-
plötur með lögum hinna ástsælu
söngkvenna Helenu Eyjólfsdóttur og
Ellýjar Vilhjálms. Hvalreki fyrir
unnendur þeirra.
Börnin eru ekki skilin útundan hjá
Skífunni í október. Stóru börnin okk-
ar, Birgitta, Jónsi, Sveppi og fleiri,
syngja fyrir krakkana. Unnendur
R&B-tónlistar fá líka eitthvað fyrir
sinn snúð, með erlendri safnplötu. Á
henni verða ný, nýleg og eldri lög úr
þeim geira.
Þá ber að nefna slökunarplötu frá
Friðriki Karlssyni, gítarleikaranum
snjalla, sem teljast verður ókrýndur
konungur slíkrar tónlistar á Íslandi
og jafnvel víðar.
Í nóvember þeysast strákarnir í Í
svörtum fötum fram á útgáfusviðið
með fjórðu plötu sína. Annar jöfur ís-
lenskrar popptónlistar, Páll Rósin-
kranz, sendir líka frá sér plötu í mán-
uðinum, með nýjum lögum með
íslenskum textum. Hipp-hopp sveitin
Igore sendir frá sér fyrstu plötuna og
ein af jólaplötunum í ár verður plata
systranna Dísellu, Ingibjargar og
Þórunnar Lárusdætra. Síðast en
ekki síst ber að nefna safnplötuna
Pottþétt, sem verður númer 36 í röð-
inni, hvorki meira né minna.
Zonet
Zonet-útgáfa sendir frá sér athygl-
isvert efni. 20. september kemur
„nýtt gamalt“ efni frá KK, á plötu
sem heita mun Upphafið. Þar er um
að ræða áður óútgefnar upptökur
KK og The Grinders, frá því áður en
Lucky One kom út.
Tvær væntanlegar plötur frá Zon-
et koma frá endurreistum goðsögn-
um íslenskrar tónlistar. Hljómar
senda frá sér plötuna Hljómar 1. nóv-
ember og Fræbbblarnir halda upp á
aldarfjórðungsafmæli sitt mánuði
seinna með glænýrri plötu, Trubbbl.
Allt í góðu eftir Ólaf Hauk Sím-
onarson kemur út 1. október, en þar
koma fram listamenn á borð við
Heiðu, KK, Björn Jörund og Jón
Ólafsson.
7. nóvember gefur Zonet út aðra
plötu sjálfra Búdrýginda, sem unnu
Músíktilraunir 2002. Forvitnilegt
verður að heyra afraksturinn, sem
ekki hefur enn hlotið nafn. 15. nóv-
ember koma út tvær ólíkar plötur; ný
hljóðversplata með KK og geislaplata
með fleiri perlum frá barnastjörn-
unni Robertino. Þá er verið að vinna
að útgáfu á safnplötu með perlum ís-
lenskrar dægurtónlistar.
12 tónar
12 tónar ætla að láta til sín taka
fyrir jólin. Tvær plötur koma frá
Erni Elíasi Guðmundssyni, Mug-
isyni, en Mugison samdi tónlistina við
kvikmyndina Næsland eftir Friðrik
Þór Friðriksson auk þess sem önnur
hljómplata hans kemur út fyrir jólin.
Færeyska drottningin Eivör Páls-
dóttir sendir frá sér aðra plötu sína
fyrir 12 tóna, en á henni verða lög á
íslensku, færeysku, ensku og
sænsku.
Þórir Georg Jónsson, nítján ára
gítarleikari úr harðkjarnasveitunum
Fighting Shit og Hryðjuverkum,
sendir frá sér fyrstu plötu sína, I
Believe in This, á vegum 12 tóna.
Tónlist hans er harla ólík harðkjarn-
anum, lágstemmd og í ætt við þjóð-
lagatónlist Nicks Drakes, Wills Old-
hams og Elliotts Smiths.
Þá gefa 12 tónar út tónlistina úr
leikriti Þjóðleikhússins um Edith
Piaf og jólaplötu með Sigrúnu Hjálm-
týsdóttur, Diddú, og Blásarasextett
Reykjavíkur.
Geimsteinn
Geimsteinn Rúnars Júlíussonar
gefur út nokkra titla fyrir jólin. M.a.
nýjan disk með Breiðbandinu, Af full-
um þunga, plötu reggíbandsins
Hjálma, Hljóðlega af stað og 60 ára af-
mælisútgáfu með tónlist Þóris Bald-
urssonar. Þar verður um tvöfalda
plötu að ræða, enda ekki annað við
hæfi þegar maður á við Þóri á í hlut.
Steinsnar
Fjórar nýjar plötur koma út frá
Steinsnar, útgáfufyrirtæki Steinars
berg Ísleifssonar. Fyrst er að nefna
sólóplötu frá Ragnheiði Gröndal sem
ber heitið Aðventan með Ragnheiði
Gröndal. Plötuna umleikur hlý og
vetrarleg stemning og inniheldur hún
ný og gömul íslensk lög, m.a. fjögur ný
eftir Magnús Þór og fjögur eftir
Ragnheiði sjálfa. Það er Jón Ólafsson
sem sér um upptökustjórn. Helgi P.,
meðlimur úr Ríó Tríó, sendir þá frá
sér sólóplötu. Hér er á ferðinni safn
laga sem heillað hafa Helga í gegnum
tíðina, þekkt erlend lög sem eiga það
sameiginlegt að hafa ekki náð fótfestu
hér á landi og verða öll þeirra með
nýjum íslenskum textum eftir Jónas
Friðrik, hirðskáld Ríó tríós. Að sögn
Steinars langaði Helga til að fjarlæga
sig aðeins frá hljóðheimi Ríósins en á
þessari plötu má heyra óm kántrí-
blúss og honkí tonks. Hinn kunni gít-
arleikari Björn Thoroddsen mun gefa
út nýstárlega sálmaplötu, byggða á
sálmum Marteins Lúthers, upp-
færðum í þann djassaða bræðings-
búning sem Björn hefur orðið þekktur
fyrir.
Söngkonan Ellen Kristjáns gefur
einnig út sálmaplötu og um er að ræða
íslenska sálma í nútímabúningi.
Þá koma tvær eldri plötur frá Stein-
snar út aftur og nú í tvöföldum hátíð-
arbúningi, þ.e. Íslensk ástarljóð og Ís-
lenska vísnaplatan.
Smekkleysa
Nýútkomin er sérstök viðhafn-
arútgáfa af plötu múm, Summer
Make Good að ógleymdri Medúllu
Bjarkar. Þá er væntanleg breiðskífa
með hljómsveitinni Jan Mayen, sem
vakti athygli í fyrra með stuttskífu,
samnefndri sveitinni. Ske gefa þá út
nýja plötu í október, sem fylgir í kjöl-
far hinnar lofuðu Life, Death, Happ-
iness & Stuff. Einnig verða gefnir út
tónleikar sem fram fóru á Listahátíð í
sumar þar sem stórsveit undir stjórn
Samúels J. Samúelssonar lék sér með
tónlist Tómasar R. Tómassonar.
Ný plata hinna funheitu fönkhunda
í Jagúar kemur svo í nóvember.
Síðast ber að nefna Lagboða Iðunn-
ar, fjóra geisladiska og 300 blaðsíðna
bók sem gefið er út af tilefni 75 ára af-
mælis rímnafélagsins Iðunnar.
Rímnakveðskapur hefur verið nokkuð
í deiglunni undanfarinn ár, ekki síst
fyrir tilstilli Steindórs Andersen, for-
manns Iðunnar og hljómsveitarinnar
Sigur Rósar.
Tónlistarútgáfa | Fjöldi athyglisverðra platna á leiðinni fyrir jólin
Bubbi og Bo
mætast í sveita-
tónlistinni
Í svörtum fötum gefur út fjórðu plötu sína fyrir jólin.
Morgunblaðið/Sverrir
Ragnheiður Gröndal gefur út Aðventan með Ragnheiði Gröndal.
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
KK stendur að tveimur hljómplötum þetta haustið.