Morgunblaðið - 15.09.2004, Page 1
STOFNAÐ 1913 251. TBL. 92. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Bílar og Íþróttir í dag
Bílar | Íslandsmeistaramót í torfæru Reynsluakstur á Volvo
og Kia Cerato Íþróttir | Arsenal og Chelsea á sigurbraut
Handknattleiksvertíðin hafin Vont veður hjá kylfingum
DAVÍÐ Oddsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins og forsætisráðherra, stýrði sín-
um síðasta ríkisstjórnarfundi í gærmorgun
eftir rúmlega þrettán ára samfellt starf
sem forsætisráðherra. Hann tekur við
starfi utanríkisráðherra af Halldóri Ás-
grímssyni, formanni Framsóknarflokksins,
á ríkisráðsfundi á Bessastöðum, sem hefst
kl. 13 í dag.
Halldór tekur þá við embætti forsætis-
ráðherra og Sigríður Anna Þórðardóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokks, verður um-
hverfisráðherra í stað Sivjar Friðleifs-
dóttur, sem verður óbreyttur þingmaður.
„Þetta var mjög skemmtilegur fundur og
góður andi á honum,“ sagði Davíð við
fréttamenn eftir ríkisstjórnarfundinn. „Það
er auðvitað kátt eftir þennan langa tíma að
geta lokið störfum af þessu tagi með þá til-
finningu að það sé sterk og góð sátt og
samstarfsvilji innan ríkisstjórnarinnar.“
Halldór sagði eftir fundinn að hann léti af
embætti utanríkisráðherra með ákveðnum
trega. Það væri þó tilhlökkunarefni að tak-
ast á við ný verkefni. „Ég ætla að fara
fremur hægt af stað og undirbúa næstu
daga,“ sagði hann inntur eftir því hver hans
fyrstu verk yrðu í nýju embætti.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Davíð Oddsson forsætisráðherra ásamt starfsliði ráðuneytisins á tröppum Stjórnarráðsins í gær: Fremsta röð frá vinstri: Óðinn Helgi Jónsson,
Ólafur Davíðsson, Edda Rúna Kristjánsdóttir, Davíð Oddsson, Kristján Andri Stefánsson, Halldór Árnason, Illugi Gunnarsson. Önnur röð frá
vinstri: Birna Kolbrún Gísladóttir, Hrafnhildur Vilhelmsdóttir, Guðbjörg Sigurðardóttir, Katrín Magnúsdóttir, Anna Fríða Björgvinsdóttir, Mar-
grét Hilmisdóttir, Ásthildur Helgadóttir, Ragnheiður Harðardóttir, Snjólaug Ólafsdóttir, Ólafía G. Kristmundsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Jón
Árnason, Þorkell Samúelsson, Guðmundur Einarsson, Halla B. Baldursdóttir, Júlíus Hafstein, Gunnar Ólafur Haraldsson, Salína Helgadóttir,
Kristján Torfason, Sigrún Björnsdóttir, Sigurður Gíslason.
Sterk og góð sátt innan stjórnarinnar
Þakklátur/6
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra mun
víkja sæti við skipun dómara við Hæstarétt
vegna málefna eins umsækjanda um stöð-
una, Hjördísar Hákonardóttur héraðsdóm-
ara. Hjördís á í viðræðum við dómsmálaráðu-
neytið vegna niðurstöðu kærunefndar
jafnréttismála sem taldi dómsmálaráðherra
hafa brotið jafnréttislög með því að skipa
Ólaf Börk Þorvaldsson í embætti hæstarétt-
ardómara í fyrra. Geir Haarde fjármálaráð-
herra mun því skipa í stöðuna.
Í bréfi Björns, dagsettu 10. september, til
forsætisráðherra um málið segir eftirfar-
andi:
„Embætti dómara við Hæstarétt Íslands
var auglýst laust til umsóknar í Lögbirtinga-
blaðinu hinn 13. f. m. Meðal umsækjenda er
Hjördís Hákonardóttir dómstjóri. Hún var
einnig meðal umsækjenda um það dómara-
embætti sem Ólafi Berki Þorvaldssyni var
veitt hinn 19. ágúst 2003 og bar þá skipan
undir kærunefnd jafnréttismála. Nefndin
komst að þeirri niðurstöðu að ákvörðun mín
um skipan í það embætti hefði brotið gegn 1.
mgr. 24. gr. laga nr. 96/2000, um jafnan rétt
og jafna stöðu kvenna og karla, og beindi því
til mín að finna „viðunandi lausn á málinu“.
Viðræður í því skyni hafa farið fram en er
ekki lokið. Meðan þær hafa ekki verið til
lykta leiddar tel ég að aðrir umsækjendur
megi með réttu draga í efa óhlutdrægni mína
við val á umsækjendum í það embætti sem
nú er laust, sbr. 6. tölul. 1. mgr. 3. gr. stjórn-
sýslulaga nr. 37/1993. Af þeim sökum tel ég
ekki verða hjá því komist að víkja sæti við
meðferð og töku ákvörðunar um veitingu
þess skv. 4. gr. s. l.“
Forsætisráðherra tilkynnti dómsmálaráð-
herra með bréfi dagsettu. 13. september, að
forseti Íslands hefði að tillögu forsætisráð-
herra sett Geir H. Haarde fjármálaráðherra
til að fara með málið og taka ákvörðun í því.
Skipun dómara við Hæstarétt
Geir tekur
sæti Björns
SÝRLENDINGAR beittu efna-
vopnum í tilraunaskyni gegn
óvopnuðu fólki í Darfur-héraði í
Súdan í júní og urðu tugum
manna að bana, að því er fram
kemur í þýska dagblaðinu Die
Welt í dag.
Blaðið hefur þetta eftir ónafn-
greindum heimildarmönnum í
vestrænum öryggisstofnunum.
Liður í hernaðarsamstarfi
Die Welt segir að efnavopnun-
um hafi verið beitt eftir heræf-
ingu Sýrlendinga og Súdana í
maí. Sýrlenskir embættismenn
hafi þá átt fund í Khartoum með
yfirmönnum súdanska hersins til
að ræða möguleikann á að auka
samstarf ríkjanna tveggja í her-
málum.
Sýrlensku embættismennirnir
lögðu til náið samstarf við að þróa
efnavopn og að þeim yrði beitt í
tilraunaskyni gegn uppreisnar-
mönnum í Suður-Súdan, að sögn
Die Welt. Blaðið segir að þar sem
uppreisnarmennirnir hafi tekið
þátt í friðarviðræðum á þessum
tíma hafi stjórn Súdans lagt til að
efnavopnin yrðu reynd á íbúum
Darfur.
Í frétt Die Welt kemur ekki
fram hvers konar efnum var beitt.
Bandaríkjastjórn hefur sakað
Sýrlendinga um að hafa reynt að
þróa efnavopn og heldur því fram
að Súdanar hafi einnig þreifað
fyrir sér á því sviði í mörg ár.
Stjórn Súdans hefur verið sök-
uð um að hafa vopnað og stutt ar-
abíska vígamenn, sem hafa herjað
á blökkumenn í Darfur-héraði síð-
ustu nítján mánuði. Talið er að
um 50.000 manns hafi beðið bana í
héraðinu og um 1,4 milljónir Darf-
urbúa hafa flúið heimkynni sín.
Sagðir hafa notað
efnavopn í Darfur
Reuters
Súdönsk börn nálægt flótta-
mannabúðum í Darfur-héraði.
Tugir manna sagðir falla í tilraun með sýrlensk vopn
Berlín. AFP.
TAKA þarf samtengingu skólastiga frá
leikskóla að framhaldsskóla til gagngerrar
endurskoðunar og endurhanna námskrár,
m.a. með það markmið að færa ákveðið
námsefni á milli
skólastiga, að mati
höfunda nýrrar
skýrslu um breytta
námskipan til stúd-
entsprófs.
Í skýrslunni
Breytt námskipan til
stúdentsprófs – auk-
in samfella í skóla-
starfi, er m.a. lagt til
að samþætting leikskóla, grunnskóla og
framhaldsskóla verði tekin til gagngerrar
endurskoðunar.
Lagt er til að nemendum verði gert auð-
veldara en áður að ljúka síðustu þremur ár-
um grunnskólans, 8.–10. bekk, á tveimur ár-
um. Sá möguleiki er til staðar í dag, en
hefur ekki verið nýttur mikið. Skýrsluhöf-
undar leggja til að leyfilegt verði að taka
samræmd próf sem nú eru tekin við lok 10.
bekkjar tvisvar ef nemandi vill það, einu
sinni eftir 9. bekk og aftur eftir 10. bekk.
OLÍUINNFLUTNINGURINN
í Kína jókst um tæp 40% á
fyrstu átta mánuðum ársins,
miðað við sama tímabil í fyrra,
að sögn kínversku fréttastof-
unnar Xinhua.
Kínverjar fluttu inn alls 79,9
milljónir tonna af olíu frá janúar
til ágúst. Gert er ráð fyrir því að
olíuinnflutningurinn í ár verði
110 milljónir tonna og 20% meiri
en í fyrra.
Olíunotkunin hefur stóraukist
í Kína á síðustu árum vegna
mikils hagvaxtar. Kína fór ný-
lega fram úr Japan í olíunotkun
og aðeins eitt land, Bandaríkin,
notar nú meiri olíu.
Aukin olíueftirspurn í Kína er
ein af helstu ástæðunum fyrir
því að verð á hráolíu hefur
hækkað um 30% á heimsmark-
aði á árinu. Sérfræðingar telja
að hlutdeild Kína í olíunotkun-
inni í heiminum kunni að tvö-
faldast og verða 14% á næstu tíu
árum, að sögn fréttavefjar BBC.
Olíunotkun
stóreykst
í Kína
♦♦♦
Vilja endur-
skoða tengingu
skólastiga
Kennsludögum/10
Brjóstsykursgerð
í frístundum
Býr til brjóstsykur og hlaup í öllum
regnbogans litum | Daglegt líf