Morgunblaðið - 15.09.2004, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FLEIRI fyrirtæki en Íslandsbanki
og Sjóvá-Almennar hyggjast skipu-
leggja einhvers konar daggæslu fyr-
ir börn starfsmanna komi til verk-
falls grunnskólakennara. KB banki,
Eimskip og Össur eru t.a.m. öll að
skoða möguleika á slíku. Þá hyggst
Íþróttafélagið Grótta bjóða upp á
leikjanámskeið á skólatíma fyrir
yngri börn í grunnskólum á Seltjarn-
arnesi.
Í Morgunblaðinu gær sagt frá því
að Íslandsbanki og Sjóvá-Almennar
ætla að bjóða starsfólki að senda
börn á aldrinum 6-11 ára í svokall-
aðan Heilsuskóla sem verður til húsa
í Þróttaraheimilinu í Laugardal.
Þegar hafa um 50 börn verið skráð í
skólann, sem hefur göngu sína nk.
mánudag, komi til verkfalls. Fleiri
fyrirtæki hafa á prjónunum að bjóða
slíka þjónustu.
Í tilkynningu frá Sjóvá Almennum
og Íslandsbanka segir að stofnað sé
til Heilsuskólans í því skyni að börn
starfsfólks fyrirtækjanna eigi sér
samastað á meðan verkfallinu stend-
ur og greiða foreldrar fyrir gæslu
barna sinna.
Undrast viðbrögð KÍ
Forsvarsmenn Íslandsbanka
undrast viðbrögð Kennarasambands
Íslands við ráðstöfuninni, en sam-
bandið sendi frá sér tilkynningu þar
sem fram kemur að það telji dag-
gæsluna verkfallsbrot. „Okkur sýn-
ist KÍ vera að misskilja málið,“ segir
Jón Þórisson aðstoðarforstjóri bank-
ans. „Með þessu erum við eingöngu
að tryggja börnum starfsmanna ein-
hvern samastað. Ég get ekki séð að
það þjóni hagsmunum KÍ að börnin
séu í reiðileysi. Þó að sett sé upp
dagskrá sem byggir á næringu, vin-
áttu og heilbrigðri útivist þá kemst
hún ekki nálægt því að koma í stað-
inn fyrir skólana.“
Forysta KÍ kemur til fundar við
forsvarsmenn Íslandsbanka í dag, að
ósk Íslandsbanka, til að ræða málin.
Grótta með starfsemi
allan daginn í verkfalli
Vilji er fyrir því innan íþrótta-
félagsins Gróttu á Seltjarnarnesi að
bjóða upp á leikjanámskeið fyrir
krakka í 1.–4. bekk, komi til verk-
falls. „Við höfum hug á að gera þetta
en það hefur ekkert verið auglýst
enn. Auðvitað viljum við ekki vera
beint aðilar að kjaradeilu,“ segir
Bjarni Torfi Álfþórsson, formaður
Gróttu. Hátt í 250 börn eru í 1.–4.
bekk á Seltjarnarnesi.
Að sögn Jónínu A. Sanders, starfs-
mannastjóra hjá Eimskip, er verið
að greina þarfir starfsmanna fyrir
gæslu á 6–11 ára börnum og meta
hvort ástæða sé til þess að fyrirtækið
stilli upp einhverri dagskrá fyrir
börn starfsmanna. „Við erum með
ákveðnar hugmyndir en finnst ekki
tímabært að greina frá þeim fyrr en
við vitum um fjölda barna og aldurs-
samsetningu.
Við vonum í lengstu lög að aðilar í
þessari kjaradeilu nái saman. En við
teljum að okkar skylda sé fyrst og
fremst að veita viðskiptavinum okk-
ar þjónustu. Það er alveg ljóst að það
er fjöldinn allur af foreldrum sem
munu nýta sér tilboð hinna ýmsu fyr-
irtækja,“ segir Jónína.
Að sögn Svala Björgvinssonar,
starfsmannastjóra KB banka, er
verið að skoða þörfina fyrir dag-
gæslu í verkfalli. Hugmyndir séu
uppi um að bjóða upp á íþrótta- og
leikjanámskeið frá kl. 9–16 fyrir
börn í yngstu bekkjum grunnskól-
anna í Valsheimilinu, svipuð Sumar-
búðum í borg sem starfræktar hafa
verið þar um margra ára skeið.
Að sögn Svala er verið að skoða
hvernig hægt væri að manna slíka
gæslu, en hugsanlega komi hann
sjálfur og fleiri starfsmenn KB
banka til með að gæta barnanna.
Hann telur bankann ekki vera að
blanda sér í kjaradeilu kennara og
sveitarfélaga með því að bjóða upp á
slíka gæslu. „Alls ekki. Þessi deila er
algjörlega fyrir utan það sem við er-
um að gera. Við erum í fjármála-
starfsemi og erum að reyna að
tryggja að við getum þjónað við-
skiptavinum bankans. Til þess að
geta það þurfa foreldrar þessara
barna að vera til staðar. En ég styð
baráttu kennara heilshugar,“ segir
Svali.
Hjá fyrirtækinu Össuri var einnig
verið að kanna þörf og áhuga starfs-
manna á því að fyrirtækið setti af
stað einhvers konar daggæslu fyrir
börn á grunnskólaaldri. „Við erum
að skoða þennan möguleika til að
raska sem minnst okkar starfsemi.
Þó við höfum samúð með kennurum
og skiljum þá, þá þurfum við að
hugsa um okkur,“ segir Jón Kr.
Gíslason, starfsmannastjóri Össur-
ar. Jón Kr. tekur fram að forsvars-
menn og starfsmenn fyrirtækisins
vilji ekki gerast verkfallsbrjótar.
Fleiri fyrirtæki bjóða gæslu
fyrir börn starfsmanna
KENNARAR við einkaskóla eru
ekki allir aðilar að Kenn-
arasambandi Íslands og því
leggst starfsemi þeirra ekki niður
komi til verkfalls grunnskóla-
kennara á mánudag.
Kennarar við Tjarnarskóla
fara ekki í verkfall á mánudag
þótt aðrir grunnskólakennarar
fari í verkfall. Alls eru þrjú stöðu-
gildi kennara við skólann sem
fjórir einstaklingar skipa. Kenn-
arar semja sérstaklega um kjör
sín við eigendur skólans. Að sögn
Maríu Solveigar Héðinsdóttur,
skólastjóra Tjarnarskóla, geta
kennarar skólans falið Kenn-
arasambandi Íslands að semja
fyrir sína hönd en hafa ekki gert
það.
Hjá Skóla Ísaks Jónssonar eru
16 kennarar og eru þeir allir í KÍ.
Hópurinn er tvískiptur, sex kenn-
arar eru með skipun sem svo er
kölluð, eða æviráðnir skv. eldri
samningum kennara, en tíu eru
ráðnir skv. nýrri samningum til
skólans. Fyrri hópurinn er þann-
ig líklegri til að fylgja grunn-
skólakennurum í verkfall en síð-
ari hópurinn, sem getur samið
sérstaklega við skólann um kjör.
Að sögn Eddu Huldar Sigurð-
ardóttur, skólastjóra Ísaksskóla,
er allt kapp lagt á að leysa málið
svo að ekki þurfi að koma til
verkfalls hjá kennurum skólans.
Hjallastefnan ehf. hefur gert
samning við Kennarasambandið
þannig að kennarar Barnaskóla
Hjallastefnunnar fara ekki í verk-
fall. Þá mun starfsemi Landakots-
skóla ekki raskast vegna verk-
falls kennara.
Lítil sem engin röskun
á starfsemi einkaskóla
MENNTAMÁLARÁÐHERRA mun
setja námstefnu um menntun fagfólks
og meðferð kynferðisbrotamála í
Kennaraháskólanum við Stakkahlíð
nk.föstudag kl. 9. Þar munu fulltrúar
flestra deilda HÍ og Lögregluskólans
gefa innsýn í hvað námskrár ólíkra
menntastofnana segja um kynbundið
ofbeldi, hvernig þeim er fylgt eftir og
hvernig tryggja megi að kynbundið
ofbeldi sé á dagskrá á sem flestum
námsbrautum. Kynnt verða dæmi um
aðgerðaáætlanir og starfsreglur á
vinnustöðum þegar upp koma kyn-
ferðisbrotamál.
Að sögn Rúnu Jónsdóttur, upplýs-
ingafulltrúa Stígamóta, lýsir þörfin
fyrir slíka námstefnu sér í því m.a. að
dæmi eru um þolendur kynferðisof-
beldis, sem hafi prófað að leita sér
hjálpar, en hætt við af ýmsum ástæð-
um. „Þegar við fórum að kanna
hverju þetta sætti, læddist að manni
sá grunur að þekking ólíkra fagstétta
um kynferðisofbeldi væri takmörk-
uð,“ segir Rúna. „Þess vegna kom sú
hugmynd upp að setja þennan mála-
flokk á dagskrá. Okkur var vel tekið
hjá öllum þeim sem við leituðum til og
á námstefnunni verða fulltrúar allra
þeirra fagstétta sem tengjast málinu.
Markmiðið er að hver og einn líti í eig-
in barm og athugi hvort ekki megi
bæta fræðslu um kynferðislegt of-
beldi á meðal þess fagfólks sem sinnir
fórnarlömbum ofbeldisins.“
Námstefna um menntun fagfólks
og meðferð kynferðisbrotamála
Skoðað hvort
bæta megi fræðslu
VEGNA frétta um að Íslandsbanki
og Sjóvá-Almennar hyggist bjóða
börnum starfsmanna upp á vist í
Heilsuskólanum okkar vilja for-
svarsmenn hans því á framfæri að til
hans var ekki stofnað vegna yfirvof-
andi verkfalls Kennarasambands Ís-
lands. „Heilsuskólinn okkar hefur
verið starfræktur í sl. tvö ár og er
stofnandi hans Ásgerður Guðmunds-
dóttir, sjúkraþjálfari. Þjónusta
Heilsuskólans okkar er í boði fyrir
fyrirtæki, stofnanir, skóla og íþrótta-
félög,“ segir í tilkynningu.
Heilsuskólinn okkar hefur áður
verið í samstarfi við Íslandsbanka og
Sjóvá-Almennar í vetrarfríum og á
starfsdögum kennara. Í tilkynningu
frá skólanum er það harmað að hann
skuli hafa tengst umræðum um
hugsanlegt verkfall KÍ. „Sú þjónusta
sem Heilsuskólinn okkar veitir felst
fyrst og fremst í leikjanámskeiðum
fyrir börn og kemur auðvitað á eng-
an hátt í staðinn fyrir kennslu í
grunnskólum.“
Heilsuskóli ekki stofnaður
vegna kennaraverkfalls
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra veitti viðtöku fyrsta
eintaki bókarinnar Forsætisráðherrar Íslands – ráðherrar
Íslands og forsætisráðherrar í 100 ár, við athöfn í Þjóð-
menningarhúsinu í gær.
Bókin fjallar um alla 24 ráðherra Íslands og forsætis-
ráðherra frá því Íslendingar fengu heimastjórn árið 1904,
og kviknaði hugmyndin að útgáfu bókarinnar hjá fjögurra
manna verkefnisstjórn sem forsætisráðherra skipaði síð-
astliðið sumar sem átti að gera tillögur um hvernig mætti
minnast 100 ára afmælis heimastjórnar.
„Mér líst afar vel á bókina, þetta er eiguleg og skemmti-
leg bók,“ sagði Davíð Oddsson í samtali við Morgunblaðið
eftir athöfnina. „Hún er aðgengileg því þarna er í stuttum,
snörpum köflum fjallað um þessa 24 menn sem hafa haft
mikil áhrif á þróun íslenskrar sögu, og það er margur fróð-
leikur sem kemur meira að segja manni eins og mér á
óvart. Þetta er gert með þeim hætti að þetta er ekki stagl-
kenndur stíll hjá mönnum heldur læsilegur og lipur, þann-
ig að ég held að þetta sé hin eigulegasta bók.“
Davíð segir bókina eiga fullt erindi við almenning, enda
sé hún aðgengileg og þægileg. „Ég er búinn að lesa alla
bókina, ég byrjaði og gat eiginlega ekki stoppað. Það er
skemmtilegt hvað þetta fjallar um ólíka karaktera og ólíka
menn.“
Gaf málverk af Hannesi Hafstein
Ólafur Teitur Guðnason, blaðamaður og ritstjóri bók-
arinnar, afhenti Davíð fyrsta eintakið, og sagði ýmislegt í
bókinni sem ekki hefði komið áður fyrir sjónir almennings.
Í ræðu sinni sagði Ólafur Teitur að lagt hefði verið upp
með að höfundar skrifuðu ekki fræðilegan texta heldur
eitthvað sem skemmtilegt væri að lesa, og átti einkum að
fjalla um ráðherrana sem stjórnmálamenn, og það tímabil
sem þeir sátu við stjórnvölinn.
Við þetta tækifæri gaf Davíð Oddsson – fyrir hönd rík-
isstjórnarinnar allrar – Ólafi Kvaran, forstöðumanni
Listasafns Íslands, málverk Þórarins B. Þorlákssonar
sem sýnir Hannes Hafstein og Friðrik konung VIII á
hestbaki árið 1907. Ólafur þakkaði gjöfina, og sagði mynd-
ina merkilega í listasögunni þar sem hún væri sam-
tímamynd, máluð eins og fréttamyndir dagsins í dag til að
sýna ákveðinn atburð í sögunni.
Fékk fyrsta eintakið af bók um forsætisráðherra Íslands
„Ég byrjaði og gat
eiginlega ekki stoppað“
Morgunblaðið/Golli
Mikill fjöldi fólks var samankominn í Þjóðmenningarhúsinu í gær þar sem fyrsta eintak bókarinnar var afhent.