Morgunblaðið - 15.09.2004, Side 13
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 13
PORTÚGALSKUR fulltrúi á þingi Evrópu-
sambandsins (ESB) heldur því fram að við mót-
un sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu aðildar-
ríkjanna sé ekkert tillit tekið til umhverfis,
vísindalegrar þekkingar eða hagsmuna fólks
sem býr við sjávarsíðuna. Líkir hann sjávarút-
vegsstefnunni við nýlenduhyggju Evrópuríkja
fyrr á tíð.
Þessi sjónarmið Paulo Casaca koma fram í
grein eftir hann í nýjasta hefti tímaritsins Parl-
iament Magazine, sem kemur út á tveggja
vikna fresti og fjallar um Evrópuþingið, fram-
kvæmdastjórn ESB, ráðherraráðið og önnur
evrópsk málefni.
Casaca vísar til nýlegs úrskurðar Evrópu-
dómstólsins sem felur í sér að fiskimið við Azor-
eyjar verða að hluta til opnuð fyrir flota ESB-
ríkja. Segir hann úrskurð þennan til marks um
hvað í vændum sé nú þegar Evrópusambandið
hafi aukið ítök sín á vettvangi sjávarútvegsmála
aðildarríkjanna.
Casaca, sem situr í sjávarútvegsnefnd Evr-
ópuþingsins, heldur því fram að Evrópusam-
bandið hundsi vísvitandi upplýsingar um nei-
kvæðar afleiðingar hinnar sameiginlegu
sjávarútvegsstefnu og eigi það við á sviði um-
hverfis-, efnahags- og félagsmála. Þetta segir
hann gert til að gæta hagsmuna þeirra aðild-
arríkja sem ráða yfir stórum fiskiskipaflota.
Þetta hafi m.a. í för með sér að réttindi fjar-
lægra, smárra fiskimannasamfélaga séu hund-
suð.
Casaca segir að hugtök á borð við „jafna að-
stöðu“ og „frjálsan aðgang“, sem eru fyrirferð-
armikil á vettvangi Evrópusambandsins, séu í
raun aðeins tilraun til að fela „raunveruleg yf-
irráð“ í anda nýlendustefnu fyrri tíma. Lýðræð-
islega yfirstjórn skorti, ákvarðanir séu teknar á
vettvangi sjávarútvegsmála á bak við lokaðar
dyr og Evrópuþingið sé skipulega hundsað.
Casaca er þeirrar hyggju að sameiginlegu
sjávarútvegsstefnunni (CFP) hafi verið breytt í
grundvallaratriðum. Í fyrstu hafi hún stuðst við
heilbrigða skynsemi en nú hafi verið mótuð
heildarstefna sem grafi undan lífskjörum
þeirra Evrópumanna sem búa á eyjum og við
ströndina.
Halldór Ásgrímsson, fráfarandi utanríkis-
ráðherra, sagði í setningarræðu sinni á alþjóð-
legri ráðstefnu Íslandsbanka um sjávarútveg
sem haldin var á Akureyri í liðinni viku að ESB
hefði sýnt ósveigjanleika gagnvart fiskveiði-
þjóðum við Norður-Atlantshaf. Sagði Halldór
Ásgrímsson að afstaða ESB gagnvart þjóðum
þessum líktist mest nútímanýlendustefnu.
Segir ESB fylgja nýlendustefnu
Portúgalskur
Evrópuþingmaður
segir hagsmuni
stórþjóða móta sam-
eiginlega sjávarút-
vegsstefnu ESB
STARFSMENN í skipasmíðastöðinni Izar í
Cadix á sunnanverðum Spáni mótmæltu í gær
atvinnuleysi og áformum stjórnvalda um að
einkavæða að hluta stöðina.
Reuters
Á móti
einkavæðingu
AÐ minnsta kosti 47 biðu bana og 114 særðust
þegar bílsprengja sprakk nærri lögreglustöð í
Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær auk þess sem
þrír menn féllu annars staðar í borginni. Þetta
er eitt mannskæðasta sprengjutilræðið í Bagd-
ad um nokkurt skeið. Þá voru 13 íraskir lög-
reglumenn og einn óbreyttur borgari drepnir í
skotárás í Baquba, rétt norður af Bagdad, í
gær. Loks féllu minnst 10 manns í átökum í
borginni Ramadi og tugir særðust.
Sprengingin í Bagdad í gær, sem varð við
Haifa-stræti, skildi eftir sig þriggja metra
stóran gíg, fjöldi bíla er gjörónýtur og
skemmdir urðu einnig á nokkrum byggingum í
nágrenninu. Lögreglustöðin sjálf slapp þó að
mestu óskemmd.
Önnur sprengja sprakk nánast samtímis ut-
an við aðra stjórnarbyggingu í nágrenninu og
særðust þar tveir Írakar, að sögn talsmanna
heilbrigðisráðuneytisins íraska.
Samtök al-Zarqawis ábyrg
Vitni að blóðbaðinu í gær sögðu að hópur
manna hefði staðið í biðröð fyrir framan lög-
reglustöðina um klukkan tíu í gærmorgun að
staðartíma, rétt eftir klukkan sex að íslenskum
tíma, þegar bifreið hlaðin sprengiefni var ekið
upp að kaffihúsi við hliðina á lögreglustöðinni
og þar sprengd í loft upp. Höfðu margir þeirra
sem bugðust sækja um starf á lögreglustöðinni
leitað þar skjóls undan hitanum.
Samtök Abu Mussabs al-Zarqawis, sem talin
eru tengd al-Qaeda-hryðjuverkasamtökunum,
hafa lýst ábyrgð á ódæðinu á hendur sér en
hryðjuverkamennirnir álíta þá Íraka sem vilja
vinna fyrir írösku bráðabirgðastjórnina og
Bandaríkjamenn réttmæt skotmörk.
„Það biðu meira en 200 manns fyrir framan
aðalinnganginn. Ég kom ásamt sex vinum mín-
um og nú er ég aleinn. Þeir eru dánir, allir dán-
ir,“ sagði Nabeel Mohammed í samtali við
AFP-fréttastofuna en hann særðist lítillega í
sprengingunni.
Svo öflug var sprengjan að líkamshlutar
fórnarlambanna lágu hvarvetna eins og hráviði
og blóð litaði göturnar. Hrópuðu margir þeirra
sem komu aðvífandi eftir sprenginguna ókvæð-
isorð gegn Bandaríkjunum og George W. Bush
Bandaríkjaforseta. Beindist reiði manna einn-
ig að bráðabirgðastjórn Iyads Allawis for-
sætisráðherra.
AP
Írösk kona í öngum sínum á vettvangi tilræðisins í Bagdad í gær. Alls féllu yfir 70 manns í Írak í gær, þar af nokkrir hermenn.
„Þeir eru allir dánir“
Að minnsta kosti 73 féllu í tilræðum og bardögum í Írak í gær
Bagdad, Baquba. AFP, AP.
NOTA skal samræmda stafsetningu í lönd-
unum sem nota sameiginlega Evrópugjald-
miðilinn og rita euro. Var þetta samþykkt á
fundi fjármálaráðherra Evrópusambandsins
á laugardag í Hollandi. Euro hefur sem kunn-
ugt er verið nefnd evra hér á landi.
Fulltrúar frá Ungverjalandi, Lettlandi,
Litháen og Slóveníu bentu á að heitið euro
væri stafað með öðrum hætti í löndum þeirra
til að auðvelda framburðinn. Sums staðar rita
þarlendir því fremur „euria“. En ráðherrarn-
ir 25 samþykktu að rita skyldi euro á seðla og
myntir í öllum aðildarlöndunum. Sem stendur
nota nú 12 af sambandsríkjunum 25 evruna.
„Okkur kom á óvart að þetta vandamál
væri til staðar en við leystum það. Sjáið bara
hvað ráðherrar geta stundum verið
ákveðnir!“ sagði fjármálaráðherra Hollands,
Gerrit Zalm.
Samræming í ESB
Euro eini lög-
legi rithátturinn
Scheveningen. AFP.
TVEIR norskir prófessorar segja að Norð-
menn hafi verið of bláeygðir í afstöðu sinni til
innflytjendamála og hugsa þurfi þau mál upp á
nýtt, að sögn Aftenposten nýverið. Annar
þeirra, læknirinn Berthold Grünfeld, gagnrýnir
það sem hann nefnir „Kardimommubæjar-
þankaganginn“ og segir að ekki séu allir inn-
flytjendur góðmenni með mikinn félagslegan
þroska og reiðubúnir að laga sig að norsku sam-
félagi.
Grünfeld segir að innflytjendur verði að
þvinga til að læra norsku, þeir verði að tileinka
sér norsk gildi og norskar venjur og leggja
meira af mörkum sjálfir.
„Ég kalla þetta fjöldainnflutning og við erum
nú í miðjum klíðum í þeim efnum. Við höfum
ekki gert okkur grein fyrir því að þetta er ákaf-
lega erfitt viðureignar og lærum það smám
saman,“ segir prófessorinn. Hann telur að enn
sé langt í land með að samfélagið einkennist af
umburðarlyndi og gagnkvæmri virðingu.
Thomas Hylland Eriksen, sem er prófessor í
félagslegri mannfræði, er sammála Grünfeld
um að óvænt vandamál hafi komið upp í sam-
bandi við innflutning fólks frá fjarlægum svæð-
um. Þeir segja báðir að Norðmenn verði að
íhuga að koma á fót búðum í Afríku fyrir þar-
lent fólk sem sækir um hæli í Noregi.
„Við skulum ekki útiloka þann möguleika að
það myndi vera betra fyrir fjölmarga sómalska
flóttamenn að fá tilboð sem veitir þeim öryggi
og ýmsa möguleika í grennd við heimaslóðir,“
segir Hylland Eriksen. „Það er ekki víst að það
sé mest í anda framsækinnar stefnu og andúðar
á rasisma að leyfa sem allra flestum að koma
hingað, fólki sem ekki vill endilega búa hér.“
Umræður í Noregi
Vilja nýja inn-
flytjendastefnu
ÍSRAELSK stjórnvöld hafa samþykkt að
greiða fjölskyldum sem gert verður að flytja frá
Gaza-svæðinu í samræmi við áætlanir Ariels
Sharons forsætisráðherra á bilinu 14 til 21
milljón íslenskra króna. Frá þessu var greint í
gær.
Öryggisráð ríkisstjórnar Sharons samþykkti
endurgreiðslurnar með níu atkvæðum gegn
einu og var aðeins Zevulun Orvel, ráðherra vel-
ferðarmála, á móti. Orvel er þingmaður fyrir
Trúarflokkinn, sem talar fyrir hönd ísraelskra
landtökumanna en þeir eru alfarið á móti áætl-
un Sharons um að loka landnemabyggðum gyð-
inga á Gaza.
Eran Sternberg, talsmaður landnemanna,
fór mikinn gegn áætlunum Sharons í gær og
sagði hann ekkert umboð hafa til að hrinda
þeim í framkvæmd. „Þessi ákvörðun er ólögleg,
ósiðleg og glæpsamleg,“ sagði hann.
Segir Arafat verða vísað á brott
Sharon ítrekaði fyrr í gær þá afstöðu sína að
ekki komi til greina að halda þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið en athygli vakti í fyrradag
þegar fjármálaráðherrann Benjamin Net-
anyahu, helsti keppinautur Sharons um leið-
togaembættið í Likud, tók undir kröfur þar að
lútandi.
Þá ítrekaði Sharon að stefnt væri að því að
hrekja Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna,
frá Vesturbakkanum. Lagði hann áherslu á að
þetta yrði gert „þegar það hentar okkur“.
Landnemar fá
greiddar bætur
Jerúsalem. AFP.
VLADÍMÍR Ústínov, ríkissaksóknari Rúss-
lands, greindi frá því í gær að enginn þeirra sem
stóðu fyrir árásinni á barnaskólann í Beslan í
Suður-Rússlandi fyrr í mánuðinum hefði komist
undan.
Ústínóv sagði í viðtali við Interfax-fréttastof-
una að 32 hryðjuverkamenn hefðu staðið fyrir
gíslatökunni. Alls hefðu 30 þeirra verið felldir í
átökunum. Einn maður hefði sprengt sjálfan sig
í loft upp en einn hefði verið handtekinn. Sá væri
Tétseni. Tekist hefði að bera kennsl á lík 14
þeirra hryðjuverkamanna sem felldir voru.
Sagði Ústinov það hafa komið fram í framburði
fólks sem komst lífs af úr blóðbaðinu að menn-
irnir hefðu alls verið 32.
Í máli saksóknarans kom ekki fram hvaðan
hryðjuverkamennirnir voru. Óstaðfestar fregn-
ir herma að arabískumælandi menn hafi tekið
þátt í árásinni. Rússneskt dagblað hefur birt
nöfn tíu meintra hryðjuverkamanna og eru sex
þeirra Tétsenar, þrír Íngúsar og einn Osseti.
Hryðjuverkahópurinn í Beslan
Enginn
komst undan
Moskvu. AFP.
♦♦♦
♦♦♦