Morgunblaðið - 15.09.2004, Síða 15
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 15
LEIÐSÖGUNÁM
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og mynd-
um. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal að
leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám.
Helstu námsgreinar:
Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.
Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
Mannleg samskipti. Skyndihjálp og skipulag.
Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum.
Boðið er uppá dag- og kvöldnám, auk þess sem farið er í vettvangsferðir.
Umsögn:
„Síðasta haust hóf ég leiðsögunám við Ferðamálaskóla Íslands.
Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið
um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á
landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög
skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhalds-
nám. Þetta nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem
kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“.
FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS
Bíldshöfða 18, sími 567 1466,
Opið til kl. 22.00.
Heimasíða: www.menntun.is
Martha Jensdóttir
kennari.
Karfa á fæti með hjólum
Tilboð kr. 23.920
H
ön
nu
n:
G
un
na
r
S
te
in
þ
ór
ss
on
/
M
ar
ki
ð
/
09
. 2
00
4
Tilboð
kr. 22.425
Tilboð
kr. 23.625
Tilboð kr. 8.925
Einföld róla
kr. 3.950
Vandaðar rólur frá
KETTLER, CE merktar
ÚTSALA
Vandið valið og verslið í sérverslun.
Karfa með neti
kr. 1.991 Karfa og
spjald kr. 8.925
Tilboð minni kr. 2.950
stærri (mynd) kr. 4.950
20-50% afsláttur
Fleiri gerðir af
rólum og körfum
á frábæru tilboði
il i i . .
i ( ) . .
Reykjavík | Samgöngunefnd Reykjavíkur-
borgar hefur samþykkt að hefja undirbúning
að breytingum á gatnamótum Miklubrautar
og Kringlumýrarbrautar þannig að þrjár ak-
reinar verði fyrir beina strauma og tvær fyr-
ir allar vinstri beygjur.
Sérstök áhersla verður lögð á að tryggja
almenningsvögnum og leigubílum forgang að
gatnamótunum auk þess sem hefja á und-
irbúning að breytingum á Miklubraut frá
Kringlumýrarbraut í austri að Snorrabraut í
vestri. Áætlaður kostnaður við breytingar á
umræddum gatnamótum er um 600 milljónir
króna og segist Árni Þór Sigurðsson, formað-
ur samgöngunefndar, binda vonir við að
hægt verði að ráðast í framkvæmdir á næsta
ári.
Vill að mislæg gatnamót hafi forgang
Kjartan Magnússon, fulltrúi sjálfstæðis-
manna í samgöngunefnd, segist mjög ósáttur
við tillögu R-lista. Þótt hún kunni að draga
úr slysum á gatnamótunum svo einhverju
nemi sé það óverulegt miðað við ef ráðist yrði
í gerð mislægra gatnamóta, auk þess sem
án þess að kosta til of miklum fjármunum
eða fara af stað með umfangsmiklar fram-
kvæmdir. Óháð því hvort farið verði í frekari
framkvæmdir á gatnamótunum síðar meir
séu þessar framkvæmdir fyrsti áfanginn í
þeirri vinnu.
Árni Þór segir tímasetningar á upphafi
framkvæmdanna ráðast af því hvort hún
þurfi að fara fyrir umhverfismat og verður
fyrirspurn um það send Skipulagsstofnun
innan tíðar. Sérfræðingar borgarinnar telji
raunar að svo sé ekki og því gætu fram-
kvæmdir hafist á næsta ári.
Miklabraut við Stakkahlíð í stokk?
Þá eru áformaðar breytingar á Miklubraut
milli Kringlumýrarbrautar og Snorrabrautar.
Árni Þór segir að mikilvægt sé að huga að
breytingum á nærliggjandi gatnamótum í
framhaldi af breikkun gatnamóta Kringlu-
mýrar- og Miklubrautar og í því sambandi
hafi verið rætt um að setja Miklubraut í
stokk á kaflanum frá Stakkahlíð og í vestur í
átt að Miklatúni. Að sínu viti sé það mesti
flöskuhálsinn í umferðinni á þessum slóðum.
ekki sé dregið úr loft- né hávaðamengun.
Kjartan minnir á að jafnvel þótt haldið yrði
áfram af fullum þunga við að skipuleggja
mislæg gatnamót við Kringlumýrarbraut og
Miklubraut sé umhverfismatsþátturinn það
viðamikill að 15–18 mánuðir myndu líða áður
en framkvæmdir gætu hafist. Fulltrúar R-
lista í samgöngunefnd hafa sem kunnugt er
lýst því yfir að ekki standi til að ráðast í gerð
mislægra gatnamóta þar á næstu árum.
Sjálfstæðismenn lögðu fram tillögu á fundi
nefndarinnar í gær þar sem lagt var til að
gerð mislægra gatnamóta á þessum stað yrði
sett í forgang samhliða því að skipulagsvinnu
vegna lagningar Sundabrautar yrði hraðað,
sem var hafnað.
Að sögn Kjartans benda útreikningar
tryggingafélaganna til þess að fækka mætti
slysum um 90% við gatnamótin ef þar væru
mislæg gatnamót. Breytingar á gatnamótum
Miklubraut og Skeiðarvogs hafi t.d. leitt til
92% fækkunar á slysum.
Árni Þór Sigurðsson segir að með þessum
breytingum sé bæði unnt að auka afkasta-
getu gatnamótanna og auka umferðaröryggi
Breytingar verða á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar
Þrjár akreinar áfram
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Vesturbær | Þórólfur Árnason
borgarstjóri safnaði liði og keppti í
knattspyrnu við valda kappa úr KR í
opnunarleik á nýjum gervigrasvelli á
KR-svæðinu sl. laugardag.
Lið KR undir stjórn Guðjóns Guð-
mundssonar, formanns KR, tók vel á
móti borgarstjóra. Leikurinn var
æsispennandi og endaði í víta-
spyrnukeppni þegar bæði lið höfðu
skorað tvö mörk á venjulegum leik-
tíma. Borgarstjóri hafði m.a. í liði
sínu fyrrum atvinnumennina Arnór
Guðjohnsen og Guðna Bergsson,
auk Helenu Ólafsdóttur, landsliðs-
þjálfara kvenna. Þrátt fyrir einvala-
lið tapaði lið borgarstjóra í víta-
spyrnukeppninni þegar Þórólfur
brenndi af eftir að Ellert B. Schram
hafði skorað af öryggi fyrir KR.
Hinn gamalreyndi dómari Magn-
ús Pétursson tók að sér að halda
uppi lögum og reglu á vellinum þrátt
fyrir að vera kominn yfir sjötugt og
sagði hann að leikmenn hefðu verið
ákaflega prúðir.
Leikið úti allan veturinn
Örn Steinssen, framkvæmdastjóri
KR, er að vonum ánægður með nýja
völlinn og segir að nýja aðstaðan
breyti öllu fyrir knattspyrnuiðkun
hjá félaginu „Við getum verið með
meistaraflokk, annan og þriðja flokk
og jafnvel fjórða flokk úti allan vet-
urinn. [...] Það er náttúrulega miklu
betra að geta æft úti á meðan veður
er svona þokkalegt og eins og hefur
verið undanfarna tvo eða þrjá vetur
hefur ekki verið mikill snjór.“ Gervi-
grasið minnkar álagið á grasvell-
inum en notkun á grasvellinum hef-
ur verið gífurlega mikil.
Örn segir að gervigrasið verði
notað bæði til æfinga og keppni eftir
því sem þurfi. Völlurinn er 105 sinn-
um 68 metrar og verður flóð-
ljósabúnaði komið upp síðar í haust.
Völlurinn kemur einnig til með að
vera upphitaður en Örn segist von-
ast til að það verði þegar á næsta ári.
Kostnaður er um 103 milljónir kr.
Ljósmynd/ Guðmundur Jóhannesson
Borgarstjóri á fleygiferð með knöttinn ásamt nokkrum af bestu knattspyrnumönnum Íslands í gegnum tíðina.
Lið borgarstjóra tapaði fyrir liði KR
TVEIR gervisgrasvellir voru vígðir
í Reykjavík um helgina, við Fram-
heimilið í Safamýri og á KR-
vellinum í Frostaskjóli. Vellirnir
eru í fullri stærð, um 8.100 fermetr-
ar, flóðlýstir og upphitaðir og upp-
fylla allar nýjustu kröfur UEFA.
Að sögn Ómars Einarssonar,
framkvæmdastjóra Íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur, verður
þriðji völlurinn tekinn í notkun um
næstu helgi við íþróttamiðstöð
Fylkis í Árbæ. Áætlaður kostnaður
vegna vallanna þriggja er um 300
milljónir króna en þeir eru í eigu
Reykjavíkurborgar.
Í Safamýri var vígsluleikur
gervigrasvallarins háður milli ný-
krýndra Íslandsmeistara Fram í
flokki 40 ára og eldri og stjörnuliðs
Ómars Ragnarssonar fréttamanns.
Leiknum lauk með sigri Framara.
Af sama tilefni var vetrarstarf fé-
lagsins kynnt og boðið upp á
skemmtiatriði. Um 400 manns sóttu
hátíðina.
Þrír gervigrasvellir teknir í notkun
Reykjavík | Morgunverðarfundur um
borgarmál undir yfirskriftinni Pabbi,
mamma, börn og bíll verður haldinn á
Grand hóteli á fimmtudag í tilefni af evr-
ópskri samgönguviku sem stendur yfir
16.–22. september nk. Alls taka 350 borg-
ir víðsvegar í Evrópu þátt í verkefninu að
þessu sinni og er meginþemað „Öryggi
barna í umferðinni“. Tilgangur sam-
gönguviku er að sögn borgaryfirvalda að
vekja almenning til umhugsunar um um-
ferðarmenningu og hversu margar hliðar
eru færar fólki sem vill efla umferðar-
menningu og draga úr mengun.
Með erindi á fundinum verða:
Haraldur Sigurðsson, sérfræðingur á
skipulags- og byggingarsviði borgarinn-
ar, sem fjallar um ferðavenjur borgarbúa,
Ólafur Bjarnason, forstöðumaður Verk-
fræðistofu á umhverfis- og tæknisviði
borgarinnar, sem fjallar um samgöngu-
mannvirki frá ferli til framkvæmdar og
Ómar Ragnarsson fréttamaður sem
fjallar um „naumhyggju í samgöngum“.
Fundarstjóri er Salvör Jónsdóttir,
sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs
Reykjavíkurborgar.
Pabbi, mamma,
börn og bíll