Morgunblaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 16
MINNSTAÐUR
16 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Henson peysur í úrvali
Garðatorgi 3 210 Garðabæ s: 565-6550
Hafnarstræti 106 Akureyri s: 462-5000
Samsung SGH-X450
Expert, Skútuvogi 2, sími 522 9000 • www.expert.is
Opið virka daga frá kl. 11.00 - 18:30
Laugardaga frá kl 10.00 - 18.00
Sunnudaga frá kl. 13.00 - 17.00
Fallegur
3 banda sími
með hágæða skjá.
Nýr formaður | Gylfi Þórhallsson var kjörinn formaður Skák-
félags Akureyrar á aðalfundi í vikunni. Rúnar Sigurpálsson
sem gegnt hefur formennsku undanfarin tvö ár óskaði ekki eftir
endurkjöri. Með Gylfa í stjórn verða Eymundur Eymundsson,
Smári Ólafsson, Sigurður Eiríksson og Þór Valtýsson.
Starfsemi félagsins fer svo á fullt með Startmóti, á fimmtu-
dagskvöld, 16. september kl. 20.
Að venju er teflt í Íþróttahöllinni.
Fyrirlestur | Mannúðaraðstoð á átakasvæðum er heiti á fyr-
irlestri Helgu Báru Bragadóttur á Félagsvísindatorgi í dag,
miðvikudaginn 15. september kl. 16.30 í stofu L201 á Sólborg.
Í erindi sínu mun Helga Bára Bragadóttir gefa yfirsýn yfir
aðferðir sem eiga að koma í veg fyrir að minnka líkur á óbeinum
neikvæðum afleiðingum mannúðaraðstoðar og fjalla í því sam-
bandi sérstaklega um aðferðir sem Alþjóðasamband lands-
félaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans er að innleiða í
sínu starfi.
Helga Bára hefur B.A. gráðu í mannfræði frá Háskóla Ís-
lands auk M.A. gráðu í ágreiningslausnum frá University of
Bradford í Englandi. Helga Bára mun ljúka M.Phil rannsókn-
arnámi í friðarfræðum frá sama háskóla í október 2004.
„ÞIÐ hafið unnið afrek og eigið
heiður skilinn,“ sagði Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Ak-
ureyri, en hann var á Krossanes-
bryggju um hádegi í gær þegar
Vilhelm Þorsteinsson EA kom
inn til löndunar eftir mettúr.
Bauð bæjarstjóri áhöfninni af því
tilefni upp á gómsæta tertu, „því
ég veit að Guðmund var farið að
langa í marsípan,“ sagði hann og
gaf öðrum skipstjóranum af
tveimur, Guðmundi Þ. Jónssyni,
góð ráð varðandi kökuátið, „svo
hún myndi ekki klessast öll í
skeggið“.
Vilhelm Þorsteinsson hélt til
veiða frá Akureyri í byrjun sum-
ars, 7. júní, og hefur á þeim
tæpu 100 dögum sem liðnir eru
landað tæplega 8 þúsund tonnum
af frystum síldarafurðum Verð-
mæti aflans er um hálfur millj-
arður og nema launagreiðslur
um 160 milljónum króna, en 26
manns eru í áhöfn.
Veidd voru um 15 þúsund tonn
úr Norsk íslenska síldarstofn-
inum og núna síðast rúm þúsund
tonn úr íslensku sumargotssíld-
inni. Síldveiðar hafa gengið vel hjá Vilhelm á árinu, en skipið
hefur aflað um 10 þúsund tonn af síldarafurðum, landað 20
sinnum, þar af 11 sinnum úti á rúmsjó.
„Heyrðu, já, þetta eru 500 milljónir á um 100 dögum, tæp
8 þúsund tonn af síld. Við getum bara ekki annað en verið
ánægðir,“ sagði Guðmundur. Og hélt varlega um kökudisk-
inn. Hann sagði síðasta sprettinn, nú í september á Halanum
hafa verið snarpan. „Við stíluðum upp á að vera snemma á
ferðinni. Við höfum gert það tvö undanfarin haust, komið
snemma og lent í ágætis afla. Þetta er bara kropp núna, ekk-
ert að hafa.“ Arngrímur Brynjólfsson, sem einnig er skip-
stjóri á Vilhelm, sagði góða áhöfn og útgerð skipta sköpum
varðandi gott gengi, „og auðvitað má líka þakka þetta því að
við fengum að landa á hafi úti,“ sagði hann. „Þetta var heil-
mikil aksjón, maður verður að vera vakandi yfir þessu.“
Skipverjar sem lögðu leið sína í borðsalinn spurðu bæj-
arstjóra, sem skar tertusneiðar í gríð og erg, hvort væru að
koma kosningar. „Nei. Það er langt í þær,“ svaraði hann að
bragði. Kristján Þór sagðist færa mönnum glaðninginn fyrir
hönd bæjarbúa í tilefni af glæsilegum árangri og því sem þeir
legðu af mörkum til bæjarfélagsins. Miklar kröfur væru
gerðar til sjávarútvegsins í landinu, en mikilvægt væri fyrir
Akureyringa, sem hefðu mikla hagsmuni í tengslum við
rekstur sjávarútvegsfyrirtækja, Eyfirðinga og landsmanna
allra, að hafa í huga að hann „væri bisness, ekki atvinnubóta-
vinna“.
Vilhelm Þorsteinsson í heimahöfn eftir mettúr
Loksins heima: Skipverjar á Vilhelm Þorsteinssyni EA ganga
frá landganginum við bryggju í Krossanesi.
Fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA kemur til hafnar í
Krossanesi í gær en haldið var til veiða frá Akureyri í byrjun
júní, eða fyrir nær 100 dögum.
Morgunblaðið/Kristján
Getum bara ekki
annað en verið ánægðir
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, tók á móti Vilhelm Þorsteinssyni EA í
Krossanesi í gær og bauð skipverjum og fulltrúum Samherja upp á tertu. F.v. Kolbrún
Ingólfsdóttir, eiginkona Kristjáns Vilhelmssonar útgerðarstjóra, Helga Steinunn Guð-
mundsdóttir, eiginkona Þorsteins Más Baldvinssonar forstjóra, Arngrímur Brynjólfsson
skipstjóri, Kristján Þór og Guðmundur Jónsson skipstjóri.
„ÞETTA var þrælerfitt, en líka skemmtilegt,“ sagði
Guðún Arngrímsdóttir, sem hefur verið um borð í Vil-
helm síðustu tvo túra. Kom um borð í lok ágúst og
ætlar að fara einn túr til viðbótar áður en hún heldur
til Ítalíu að læra tungu þarlendra.
Guðrún er dóttir Arngríms skipstjóra og segir að
sig hafi alltaf langað að prófa að fara til sjós. „Ég
kveið alveg rosalega fyrir, vissi ekki hvernig þetta
yrði, ég ein með strákunum,“ sagði hún en bætti strax
við að allur ótti hefði verið ástæðulaus. „Þeir hafa ver-
ið ferlega almennilegir og góðir við mig. Alltaf til-
búnir að kenna mér réttu handtökin, en ég kunni ekk-
ert á þetta fyrst. Þessi tími hefur því bara verið mjög
fínn,“ sagði Guðrún, sem aðeins fann til sjóveiki enn
dag, „en þá var vitlaust veður. Að öðru leyti var veðr-
ið gott.“
Fyrr í sumar vann Guðrún á Hrafnistu og sagði
störfin þar og um borð í stóru fjölveiðiskipi gjörólík á
allan hátt. Bæði hafi sína kosti og galla, „en launin eru
sjálfsagt betri á sjónum,“ sagði hún án þess þó að hafa
hugmynd um hvað hún fengi útborgað eftir túrinn.
Þrælerfitt en
skemmtilegt
Strákarnir bara fínir: Guðrún Arngrímsdóttir, háseti á
Vilhelm Þorsteinssyni, lét vel af veru sinni um borð.
AKUREYRI