Morgunblaðið - 15.09.2004, Side 18

Morgunblaðið - 15.09.2004, Side 18
DAGLEGT LÍF 18 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Slóg- og slordælur með öflugum karbít hnífum. Áratuga reynsla. fg wilson Sími 594 6000 Slógdælur Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900 www.ef.is • Hagstætt verð GRUNDARHVARF 1 - OPIÐ HÚS – PERLA VIÐ ELLIÐAVATN Til sýnis í dag á milli klukkan 18 og 20 þetta glæsilega parhús við Grundarhvarf 1, Vatnsenda. Húsið er á einni hæð með rúmgóðum innbyggðum bílskúr. Falleg ræktuð lóð og ómótstæðilegt útsýni yfir Elliðavatnið og til fjalla. Hannað fyrir einstakling eða hjón, sérlega skemmtilega unnið á allan hátt og hentar kröfuhörðum kaupanda. Húsið er innréttað skv. teikningum Guðbjargar Magnúsdóttur. Rafteikningar og lýsing frá Lúmex. Verð 36 millj. Sölumenn á staðnum veita frekari upplýsingar. Vegna gatnaframkvæmda er ekið í gegnum Funahvarf að vatninu og beygt til vinstri að Grundarhvarfi. S igurbjörg Nielsdóttir fékk einn daginn þá hugmynd að fikra sig áfram með brjóstsykursgerð. Hún fann allt sem hún þurfti til sælgætisgerðarinnar á Netinu og pantaði það nauðsynlegasta inn frá Danmörku. „Mér fannst þetta mjög skemmti- legt en ég var dálítið þreytt á að bíða alltaf eftir efninu frá Dan- mörku. Þess vegna datt mér í hug að flytja inn í félagi við foreldra mína þessar vörur í stærri einingum og selja öðrum í leiðinni. Hún viðaði að sér bókum um gerð sætinda og þegar hún var komin upp á lagið með brjóstsykursgerð- ina fór hún að prófa að búa til hlaup. En hvers vegna í ósköpunum langaði hana að búa til eigin sæt- indi? „Ég hef gaman af því að föndra við hitt og þetta, hef verið að leira dálítið og fannst spennandi að sjá hvernig brjóst- sykur væri bú- inn til. Svo þegar ég sá að þetta lék í hönd- unum á mér fór ég að leyfa öðr- um að prófa og flestum þótti þetta skemmti- legt, sérstaklega þó krökkum.“ Sigurbjörg segir þó að fólk þurfi að gæta ýtrustu varkárni þegar börn eru að búa til brjóstsykur því sykurinn er mjög heitur. Það er auðveldara fyrir þau að búa til hlaup af ýmsum gerðum. Þá er massinn búinn til fyrirfram og börnin hjálpa svo til við að móta hlaup og skera það niður. Sig- urbjörg er með ýmsar bragðteg- undir við brjóstsykurs- og hlaupgerðina og flest eru efnin nátt- úruleg. „Núna er ég farin að selja á Netinu það sem þarf til sælgætisgerð- arinnar, þrúgusykur, bragðefni, litarefni, hitamæli og dúk til að hnoða á sykur svo og nauðsyn- lega spaða. Í byrjendapökkunum segir hún að séu vinsælustu bragðefnin sem þarf þá til að búa til kóngabrjóstsykur, jarðarberja-, kóla- og lakkrísmola. Þegar hún er spurð í lokin hvort margir hafi gaman af því að spreyta sig við slikkerísgerðina segir hún að það sé ótrúlegasta fólk sem langi að prófa og ekki síður karlmenn en konur.  HANDVERK | Býr til eigin brjóstsykur og hlaup Hlaup: Bragðast vel en má einnig nota til skreytinga. Litskrúðugur: Brjóstsykur með mismunandi bragðefnum. Morgunblaðið/Jim Smart Sigurbjörg Nielsdóttir: Býr til brjóstsykur og hlaup í öllum regnbogans litum. Upplýsingar um uppskriftir og að- ferðir við sælgætisgerðina er hægt að nálgast á www.slikkeri.is. Einnig má hafa samband með tölvupósti: slikkeri@slikkeri.is Áhugasamir geta svo lært sæl- gætisgerðina hjá Sigurbjörgu því hún íhugar að halda námskeið fyr- ir jólin. NOKKRIR sænskir skólar hafa tekið upp sveigjanlegan vinnutíma fyrir nemendurna, unglinga sem eru að vaxa og þurfa þar af leiðandi mikinn svefn. Þetta kemur m.a. fram á vef Dagens Nyheter. Í einum skólanum geta unglingarnir ráðið hvenær þeir mæta tvo daga vikunnar. Þeir morg- unhressu mæta korter í átta en þeir sem hafa vakað lengi kvöldið áður geta komið í síð- asta lagi 9.40. Nemendurnir eru ánægðir með fyr- irkomulagið og finnst þeir hafa áhrif og ráða sínum tíma að nokkru leyti. Sveigjanlegur vinnutími hefur víða verið tekinn upp þar sem honum verður við komið. Samtök atvinnu- lífsins í Svíþjóð hafa hvatt til þess að fleiri vinnustaðir bjóði sveigjanlegan vinnutíma þar sem alls ekki sé nauð- synlegt að allir mæti til vinnu á sama tíma. Vinnutaktur fólks er einnig mis- munandi. Sumir eru A-manneskjur, þ.e. vinna best á morgnana, aðrir eru B-manneskjur og komast seinna í gang. Á unglingsárunum er mikið að gerast í líkamanum og þeir sem vaxa hratt þurfa mikinn svefn. Sérfræð- ingur í svefni og streitu við Karolinska Institutet í Stokkhólmi segir í DN að margir unglingar sofi allt of lítið því þeir vilji njóta frelsisins og þess að horfa á sjónvarpið, vera í tölvunni og með félögunum. Svefnmynstur þeirra sé alls ekki í takt við skólann. Rannsóknir hafa sýnt að börn og unglingar á Vesturlöndum sofa minna en foreldrar þeirra gerðu þeg- ar þeir voru ungir. Börn sofi hálftíma skemur á nóttu en unglingar klukku- stund skemur. Styttri svefn getur haft slæm áhrif á ónæmiskerfið, hormóna og vöxt. Börn sem sofa of lítið geta átt erfiðara með að einbeita sér og bent er á að hegðunarvanda- mál og óróleiki í skólastofunni geti átt rætur að rekja til þess að börnin sofi of lítið. Börn ættu að fara að sofa á u.þ.b. sama tíma alla daga vikunnar og þannig er líkamsklukkan stillt snemma.  HEILSA | Vinnutími í stíl við líkamsklukkuna Morgunblaðið/Árni Sæberg Sveigjanleiki: Þeir morgunhressu mæta korter í átta í skólann en þeir sem hafa vakað lengi kvöldið áður geta komið í síð- asta lagi kl. 9.40. Unglingarnir fá að sofa lengur Kóngabrjóstsykur og lakkríshlaup er meðal þess sem hún Sigurbjörg Nielsdóttir dundar sér við að búa til í frístundum. Karlmenn alveg eins lagnir við brjóstsykursgerðina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.