Morgunblaðið - 15.09.2004, Page 20
UMRÆÐAN
20 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Á SÍÐUSTU árum hefur kynlíf
og vísanir í það orðið æ fyrirferð-
armeira í fjölmiðlum. Þetta á eink-
um við í auglýsingum,
tónlistarmyndböndum
og tísku þar sem
áherslan á ögrandi
kynþokka og nekt er
nánast orðin allt-
umlykjandi. Ekki þyk-
ir lengur tiltökumál
þegar ungstirni á borð
við Britney Spears
birtist fáklætt í tónlist-
armyndböndum sem
höfða eiga fyrst og
fremst til barna og
unglinga. Samhliða
þessu hefur framboð
og aðgengi að klámi
vaxið stórkostlega,
einkum á Netinu en
einnig í öðrum fjöl-
miðlum. Alls staðar er
klámaukningin merkj-
anleg, og það sem
verra er, klám er nán-
ast orðið hversdags-
legt. Klámfengið efni,
sem fyrir tíu árum
þreifst einvörðungu
fyrir luktum dyrum, er
í dag borið á torg og
blasir víða við. Ýmsir
hafa goldið varhug við
þessari þróun og mótmælt henni en
með litlum árangri. Klámvæðingin
virðist komin til að vera.
Klám getur haft skaðleg áhrif á
börn og unglinga
Ekki þarf að fjölyrða um neikvæð
áhrif þessarar kynlífs- og klámvæð-
ingar á börn og unglinga. Rann-
sóknir hafa sýnt að þessi þunga
áhersla á kynlíf í dægurmenningu
hefur bein og óbein áhrif á sjálfs-
mynd neytenda sem í raun eru ekki í
aðstöðu til að velja eða hafna. Ljóst
er að óhörðnuð börn og unglingar
eru viðkvæmust fyrir þessum áhrif-
um. Dapurlegt er til þess að vita að
sífellt yngri börn og unglingar hafa
aðgang að klámi og komast þannig í
kynni við það áður en þau hafa dóm-
greind og þroska til. Þannig er hætt
við, og raunar mörg dæmi um, að
börn og unglingar ali
með sér margs konar
ranghugmyndir um
kynlíf og samskipti
kynjanna. Fréttir af æ
grófari nauðgunum og
öðru kynferðisofbeldi,
þar sem gerendur og
þolendur eru afar ung-
ir að árum, staðfesta
hörmuleg áhrif kláms-
ins á ungt fólk.
Hvað vill
Norðurlandaráð?
Ofangreindur vandi
hefur verið til umfjöll-
unar á vettvangi Norð-
urlandaráðs enda er
um alþjóðlega þróun að
ræða sem birst hefur
með svipuðum hætti á
Norðurlöndunum.
Samstaða er meðal
norrænna stjórnmála-
manna um að berjast
þurfi gegn þessum
vanda og um að vernda
beri rétt einstaklinga
til að vera lausir við
klám úr umhverfi sínu.
Margir eru þeirrar
skoðunar að lagasetningarleiðin sé
óheppileg og ekki sé vænlegt til ár-
angurs að beita boðum og bönnum í
baráttunni gegn klámvæðingunni.
Aðrir telja lagasetningarleiðina
meðal fleiri sem þurfi að beita. Klám
á ekki að vera þröngvað upp á fólk á
almannafæri og stöðva ber þá þróun
að klámefni berist einstaklingum án
þess að þeir beri sig sérstaklega eft-
ir því. Þetta er kjarni málsins:
Klámefni á ekki að blasa hvarvetna
við börnum og unglingum eða öðr-
um sem ekki bera sig sérstaklega
eftir því. Þess vegna hefur Norð-
urlandaráð skorað á fjölmiðlafyr-
irtæki, hótel, bensínstöðvar, sölu-
turna og önnur fyrirtæki þar sem
klámefni er tiltækt, að virða rétt al-
mennings til að vera laus við klám í
umhverfi sínu með því að hafa klám-
efni hulið og á afmörkuðum stöðum.
Framleiðendur og sölumenn klám-
efnis eiga ekki að hafa rétt til að
þröngva varningi sínum upp á al-
menning hvar og hvenær sem er.
Þvert á móti hafa einstaklingar rétt
til að sjá ekki klám ef þeir bera sig
ekki eftir því. Þann rétt ber að virða.
Ýmsar leiðir færar
Klámvæðingin verður ekki stöðvað
með boðum og bönnum einum. Mjög
mikilvægt er að allur almenningur
láti sig þessa þróun varða og að hug-
arfarsbreyting eigi sér stað í sam-
félaginu. Ef almenningur hafnar því
að klám sé hvarvetna á boðstólum
og lætur í sér heyra, mun mark-
aðurinn bregðast fljótt við því.
Einnig geta stjórnvöld gripið til
staðfastra aðgerða til að draga úr
aðgangi að klámi. Þannig geta skól-
ar sett sérstakar síur á leitarvélar
sínar til að tryggja að skólabörn og
unglingar geti unnið á tölvur án
þess að klámið finni sér leið inn á
tölvuskjáinn. Norðurlandaráð hefur
skorað á norræna mennta-
málaráðherra að beita sér fyrir
þessu, auk þess sem dóms-
málaráðherrar Norðurlandanna eru
hvattir til að skoða leiðir til að nota
refsirammann til að stöðva klám á
almannafæri. Norðurlandaráð styð-
ur einnig norrænar rannsóknir til að
skoða áhrif kláms á kynjamyndir
ungs fólks sem ráðherrar jafnrétt-
ismála hafa sett í gang hjá Norrænu
rannsóknarstofunni um kvenna- og
kynjarannsóknir. Þetta eru dæmi
um norrænar aðgerðir sem dregið
geta úr klámvæðingu samfélagsins.
Einstaklingar og fjölskyldur
þeirra eiga skýlausan rétt til að vera
laus við klám. Að tryggja þann rétt
er verkefni okkar allra.
Klámvæðing og
réttur einstaklinga
Jónína Bjartmarz og
Rannveig Guðmundsdóttir
fjalla um klámvæðingu ’Einstaklingar og fjöl-skyldur þeirra eiga ský-
lausan rétt til að vera
laus við klám úr um-
hverfi sínu. Að tryggja
þann rétt er verkefni
okkar allra. ‘
Jónína Bjartmarz
Höfundar eru alþingismenn.
Jónína er formaður og Rannveig
varaformaður Íslandsdeildar
Norðurlandaráðs.
Rannveig
Guðmundsdóttir
NÚ í september eru liðin 10 ár frá
því að Félag áfengisráðgjafa, var
stofnað. Á þessum tíu árum hefur
ýmislegt gengið vel og
annað síður. Nú eru
áfengisráðgjafar orðn-
ir meðvitaður starfs-
hópur sem leitast við
að auka þekkingu sína
og færni.
Þjálfun og kennsla
Starf ráðgjafans þró-
aðist með fíknimeðferð
hér á landi. Í upphafi
meðhöndluðu ráð-
gjafar nær eingöngu
áfengisfíkn og sér-
stakir fjölskylduráð-
gjafar voru aðstand-
endum áfengissjúkra
innan handar. Fljót-
lega eftir að starfsemi
SÁÁ varð víðtækari
sameinuðust þessir
tveir hópar í eitt og
áfengisráðgjafar fóru
að meðhöndla alla fíkla
og aðstandendur
þeirra.
Í gegnum árin hefur SÁÁ þjálfað
og kennt nær öllum ráðgjöfum sem
vinna að meðferð á Íslandi. Framan
af voru það læknar SÁÁ sem önn-
uðust fræðslu fyrir ráðgjafa auk þess
sem fjölmargir áttu kost á að sækja
ráðstefnur og námskeið heima og er-
lendis. Nú eru það reynslumestu ráð-
gjafarnir sem ásamt læknum og öðr-
um heilbrigðisstarfsmönnum veita
nýliðum þá fræðslu og þjálfun sem
nauðsynleg er til að fíkni- og fjöl-
skyldumeðferð beri góðan árangur.
FÁR
Á níunda áratug síðustu aldar og
fram á þann tíunda gerðu ráðgjafar
nokkrar tilraunir til að sameinast í
einu félagi. Tilgangurinn var að auka
samheldni og vinna að sameig-
inlegum hagsmunum stéttarinnar.
Þessi viðleitni varð svo að veruleika í
september 1994 og hefur Félag
áfengisráðgjafa starfað óslitið síðan.
Á ýmsu hefur gengið en strax á
fyrsta stjórnarfundi var rætt um að
komast í samstarf við NAADAC
Landssamtök ráðgjafa í USA. Til-
gangurinn var að sækja þekkingu ís-
lenskum ráðgjöfum til vegsauka. Til
eru bréf sem send voru á milli þess-
ara samtaka á árunum 1994 og 1996
þar sem fram kemur vilji beggja til
að hefja samstarf. Það samstarf hef-
ur nú komist á fyrir harðfylgi núver-
andi formanns FÁR, Hjalta Björns-
sonar, og verður nánar greint frá
þessu samstarfi síðar. En framlag
stjórna FÁR hefur verið mikið og
óeigingjarnt til að gera starf ráðgjafa
að viðurkenndri og fullgildri heil-
brigðisstarfsgrein. Það er ekki nægj-
anlegt að segjast vera alkóhólisti til
að verða ráðgjafi og
starfa sem slíkur. Nauð-
synlegt er að afla sér
mikillar þekkingar, læra
fagið og fá starfsþjálfun
undir leiðsögn reyndra
ráðgjafa. Sem betur fer
hafa ráðgjafar í FÁR
borið gæfu til þess að
gera miklar kröfur til
sín og sinnar starfs-
greinar. Við höfum þar
notið stuðnings vinnu-
veitenda okkar og má
þar sérstaklega þakka
SÁÁ.
Fagleg þjónusta
Í Félagi áfengisráðgjafa
eru nú milli og 40 og 50
ráðgjafar, læknar og
hjúkrunarfólk, sem
starfa að meðferð fíkn-
isjúklinga og aðstand-
enda þeirra. Félögum í
FÁR fer stöðugt fjölgandi því sem
stærri heild getum við veitt betri og
faglegri þjónustu á mismunandi
starfsstöðum og getum þannig sam-
einað þekkingu okkar og reynslu
skjólstæðingum okkar til heilla.
Félagar í FÁR leggja mikið á sig
til að viðhalda og auka þekkingu sína.
Þeir miðla hver öðrum og sækja end-
urmenntun til starfandi ráðgjafa og
annarra heilbrigðisstarfsmanna um
heim allan. Þeir starfa undir mjög
ströngum siðareglum sem teknar eru
upp bæði að erlendri og innlendri fyr-
irmynd. Þær eru hugsaðar til að
vernda skjólstæðinginn, ráðgjafann
og þá stofnun sem veitir meðferð.
Víðtæk þekking
Það getur ekki hver sem er kallað sig
áfengisráðgjafa jafnvel þó viðkom-
andi eigi einhverja reynslu sem teng-
ist fíknisjúkdómum. Ráðgjafinn er
fyrst og fremst fagmaður og þarf að
hafa víðtæka þekkingu og reynslu.
Hann verður að kunna skil á mörgum
þáttum fagsins, svo sem að greina
vanda, gera meðferðaráætlanir, geta
metið stöðu einstaklings í meðferð og
ekki síst að hafa innsýn í hvernig
meðferð er byggð upp og hvernig
meðferð er stjórnað. Hann þarf að
kunna skil á tækni til að grípa inn í
vanda einstaklinga. Hann þarf að
hafa innsýn í áfallahjálp og vera
skipulagður í verkum sínum. Ráð-
gjafinn þarf að kunna skil á siðfræði,
hafa lágmarksþekkingu á þeim laga-
reglum sem kunna að eiga við og vera
óhræddur að leita til annarra fagaðila
eftir aðstoð. Að auki þarf ráðgjafinn
að gera sér grein fyrir eigin við-
horfum og gæta þess að þau trufli
hann ekki í starfi. Aðeins þannig get-
ur hann meðhöndlað fólk án tillits til
þjóðernis, kynhneigðar, fötlunar eða
úr hvernig menningarumhverfi skjól-
stæðingur hans kemur.
Það segir sig sjálft að áfeng-
isráðgjöf er ekki hægt að læra á
stuttu námskeiði. Nám í áfeng-
isráðgjöf tekur í það minnsta tvö ár
og þarf námið að vera bæði bóklegt,
starfstengt og skipulega upp byggt
til að það nýtist sem slíkt. Í framhaldi
af slíku námi er nauðsynlegt að við-
halda þekkingu sinni, afla sér nýrrar
og vera í stöðugu og góðu sambandi
við samstarfsfólk sitt. Að öðrum kosti
brennur einstaklingurinn upp í starfi,
einangrast og staðnar.
Af þessu má sjá hversu mikilvægt
það er að til starfa í áfengisráðgjöf
veljist heilsteyptir einstaklingar sem
geta nýtt sér þekkingu og reynslu í
starfi, geta unnið með öðrum stéttum
í hóp og sótt sér þekkingu for-
dómalaust.
FÁR, Félag áfeng-
isráðgjafa, 10 ára
Hörður J. Oddfríðarson
fjallar um áfengisvarnir
Hörður J. Oddfríðarson
’Mikilvægt erað til starfa í
áfengisráðgjöf
veljist heil-
steyptir ein-
staklingar. ‘
Höfundur hefur starfað við áfeng-
isráðgjöf í átta ár og situr í stjórn
FÁR, Félags áfengisráðgjafa.
SPURNINGUNA
hér að ofan bið ég þig
að hugleiða, nú þegar
aðeins tæp vika er til
íbúaþings í Íþrótta-
höllinni á Akureyri.
Á þessu íbúaþingi
verða lagðar línur að
framtíðarskipulagi
miðbæjarins okkar og
þar getur þú í fyrsta
sinn haft bein áhrif á
útlit hans til fram-
búðar, með þínum
óskum og hug-
myndum.
Þetta þing er því frá
þínum sjónarhóli, án
efa einn merkasti við-
burður síðari ára, hér
í höfuðstað Norður-
lands.
Hve oft hefur þú
ekki hugsað um það, sem þér fannst
miður fara í framkvæmdum við
miðbæinn, hnussað og jafnvel lýst
vanþóknun þinni á „allri vitleys-
unni“ í vina hópi og fjölskylduboð-
um.
Hve oft hefur þig ekki langað til
að segja álit þitt á þeim svo tekið
væri eftir.
Nú er tími þinn kominn. Tæki-
færið er nk. laugardag, hinn 18.
september, á íbúaþinginu í Íþrótta-
höllinni á Akureyri.
Þar getur þú komið skoðunum
þínum, hugmyndum og draumum
um glæsilegan miðbæ á framfæri.
Og tekið þátt í að móta
miðbæinn eins og þér
finnst að hann ætti að
líta út.
Miðbæ, sem iðar af
lífi og bæjarbúar sækja
til bæði í frístundum
sínum og starfi.
Miðbæ, þar sem
saman fara fagrar
byggingar, fjölskrúð-
ugt mannlíf, fjölbreytt
þjónusta og góð af-
þreying.
Er þetta ekki þín
framtíðarsýn eins og
okkar hinna? Finnur
þú ekki hjá þér þörf til
að taka þátt í þessu
með okkur? Finnst þér
ekki að þér beri jafnvel
nokkur skylda til að
standa að þessu verk-
efni með okkur, sem íbúi á Akureyri
og velunnari bæjarins? Heldurðu
ekki að það verði erfitt í framtíðinni
að ræða miðbæjarskipulag Ak-
ureyrar við vini og kunningja nema
hafa mætt á íbúaþingið? Heldurðu
ekki að þú verðir þá spurð(ur):
„Hvar varst ÞÚ hinn 18. sept-
ember“.
Hvar verður þú
hinn 18. september?
Sigurður K. Harðarson fjallar
um „Akureyri í öndvegi“
Sigurður K. Harðarson
’Er þetta ekkiþín framtíð-
arsýn eins og
okkar hinna? ‘
Höfundur er umdæmisstjóri VÍS á
Norðurlandi og situr í stýrihópi verk-
efnisins „Akureyri í öndvegi“.
Eftirfarandi greinar eru á
mbl.is:
Jón Steinsson: „Það er engin
tilviljun að hlutabréfamarkað-
urinn í Bandaríkjunum er öfl-
ugri en hlutabréfamarkaðir
annarra landa.“
Regína Ásvaldsdóttir: „Eitt
af markmiðum með stofnun
þjónustumiðstöðva er bætt að-
gengi í þjónustu borgaranna.“
Jónas Gunnar Einarsson:
„Áhrifalaus og mikill meirihluti
jarðarbúa, svokallaður almenn-
ingur þjóðanna, unir jafnan
misjafnlega þolinmóður við
sitt.“
Jakob Björnsson: „Mörg rök
hníga að því að raforka úr
vatnsorku til álframleiðslu
verði í framtíðinni fyrst og
fremst unnin í tiltölulega fá-
mennum, en vatnsorkuauðug-
um, löndum …“
Tryggvi Felixson: „Mikil
ábyrgð hvílir því á þeim sem
taka ákvörðun um að spilla
þessum mikilvægu verðmætum
fyrir meinta hagsæld vegna
frekari álbræðslu.“
Stefán Örn Stefánsson: „Ég
hvet alla Seltirninga til að
kynna sér ítarlega fyrirliggj-
andi skipulagstillögu bæjaryf-
irvalda …“
Gunnar Finnsson: „Hins veg-
ar er ljóst að núverandi kerfi
hefur runnið sitt skeið og
grundvallarbreytinga er
þörf…“
Eyjólfur Sæmundsson og
Hanna Kristín Stefánsdóttir:
„Öryggismál í landbúnaði falla
undir vinnuverndarlög og þar
með verksvið Vinnueftirlits-
ins.“
Jakob Björnsson: „Með þvílík-
um vinnubrögðum er auðvitað
lítil von um sættir.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Því eru gráður LHÍ að inntaki
engu fremur háskólagráður en
þær sem TR útskrifaði nem-
endur með, nema síður sé.“
Á mbl.is
Aðsendar greinar