Morgunblaðið - 15.09.2004, Side 31
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 31
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingu
á deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, er hér með auglýst til kynningar
tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Elliðaárdalur, Rafstöðvarsvæði.
Um er að ræða tillögu að breytingu á deili-
skipulagi Rafstöðvarsvæðis í Elliðaárdal en
skipulag þess var samþykkt var í borgarstjórn
þann 5. febrúar 2004. Breytingin lýtur að
lóðinni nr. 5-9 við Rafstöðvarveg þar sem gert
er ráð fyrir að rísi orkuminjasafn, fræðslustofa,
fornbílasafn og skrifstofur. Tillagan gerir ráð
fyrir að í stað þess að byggingarreitur á lóðinni
skiptist í 4 hluta verði honum skipt í þrjá hluta.
Þá er leyfilegt byggingarmagn á lóðinni
minnkað og verður nýtingarhlutfall lóðarinnar
0,5 eftir breytinguna en var 0,73. Bílastæða-
þörf minnkar úr 109 stæðum í 97. Þá heimilar
tillagan að rífa megi turnbyggingu við Aðveitu-
stöð 11 sem stendur á lóðinni nr. 14 við Raf-
stöðvarveg.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1.
hæð, virka daga kl. 08:20 – 16.15, frá 15.
september til og með 27. október 2004. Einnig
má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins,
skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hags-
muna að gæta hvattir til að kynna sér
tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við
hana skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa
eigi síðar en 27. október 2004.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan til-
skilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 15. september 2004
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur.
Mosfellsbær
Breyting á
deiliskipulagi
Víðigrundar I og II í
Mosfellsdal, Mosfellsbæ
Á fundi bæjarstjórnar þann 1. september
2004 var samþykkt tillaga um breytingu á
deiliskipulagi Víðigrundar I og II í Mosfells-
dal, Mosfellsbæ.
Skipulagstillagan tekur til lóðanna Víði-
grundar I og II og gerir ráð fyrir breyting-
um á lóðamörkum, stærðum lóða, bygg-
ingarreitum og skilgreiningu á nýtingu
byggingarreita. Einnig er aðkoma að lóð-
unum færð til austurs
Tillagan verður til sýnis í Þjónustuveri
Mosfellsbæjar, Þverholti 2, fyrstu hæð, frá
15. september 2004 til 20. október 2004,
einnig má skoða tillöguna á www.mos.is
undir: Framkvæmdir, deiliskipulag.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu
hafa borist skipulagsnefnd Mosfellsbæjar
fyrir 3. nóvember 2004.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan til-
skilins frests, teljast samþykkir tillögunum.
Bæjarverkfræðingurinn í Mosfellsbæ.
Auglýsing um skipulagsmál
í uppsveitum Árnessýslu
Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafn-
ingshreppi, Hrunamannahreppi og
Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Samkvæmt 2. mgr 21. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með aug-
lýst eftir athugasemdum við eftirfarandi
tillögu að óverulegri breytingu á gildandi
aðalskipulagi Gnúpverjahrepps 1993-
2013:
Sultartangalína 3 frá Sultartanga að
Svartá á Gnúpverjaafrétti.
Í breytingunni felst að Sultartangalína 3 (SU3)
er lögð meðfram Sultartangalínu 1 (SU1).
Breytt skipulag er í samræmi við tillögu að að-
alskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps en
vinna við það skipulag er á lokastigi. Breytingu
á svæðisskipulagi miðhálendisins vegna Sult-
artangalínu 3 hefur verið staðfest og matsferli
á umhverfisáhrifum hefur farið fram.
Skipulagstillögurnar liggja frammi á skrif-
stofu Skeiða-og Gnúpverjahrepps í Árnesi
og hjá embætti skipulagsfulltrúa upp-
sveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugar-
vatni á skrifstofutíma frá 15. september
til 6. október 2004. Athugasemdum við
skipulagstillöguna skulu berast til skipu-
lagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu í síðasta
lagi miðvikudaginn 6. október 2004 og
skulu þær vera skriflegar. Hver sá, sem
ekki gerir athugasemdir við tillöguna inn-
an tilskilins frests, telst vera samþykkur
henni.
Laugarvatni, 7. september 2004,
Arinbjörn Vilhjálmsson,
skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu.
TILKYNNINGAR
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
BORGARFULLTRÚAR og vara-
borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
komu í heimsókn í Múlalund, vinnu-
stofu SÍBS, fyrir skömmu, ræddu við
starfsmenn og kynntu sér starfsem-
ina. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins fara í hverri viku í vinnu-
staðaheimsóknir í borginni og hafa
frá síðasta hausti farið í um 70 slíkar
heimsóknir. Þeir sem komu í Múla-
lund voru borgarfulltrúarnir Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, Guðrún
Ebba Ólafsdóttir, Guðlaugur Þór
Þórðarson, Kjartan Magnússon,
varaborgarfulltrúarnir Jórunn Frí-
mannsdóttir, Ívar Andersen og
Magnús Þór Gylfason, starfsmaður
borgarstjórnarflokksins.
Þeir skoðuðu framleiðslu á möppu
frá grunni og þar til hún er tilbúin til
afhendingar viðskiptavinum.
Áhugavert þótti hve margir koma
við sögu í framleiðsluferli á einni
möppu. Einnig var rætt um heiti á
EGLA möppunum en nafnið kemur
úr Egils sögu Skallagrímssonar. Það
er nokkuð um að fólk haldi að þetta
sé erlent nafn eins og þær sem eru
innfluttar fullbúnar.
Jafnframt því sáu borgarfulltrú-
arnir vöruúrval í Múlalundi og voru
hissa á því að ekki væri keypt meira
af vörum sem kæmu þaðan, segir í
frétt frá Múlalundi.
Magnús Þór Gylfason, Helgi Kristófersson, framkvæmdastjóri Múlalundar,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Kjartan Magnússon og Hörður Magnússon,
framleiðslustjóri Múlalundar.
Borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins í Múlalundi
VEIÐI er nú lokið í Fljótaá í Fljót-
um og veiddust alls 233 laxar. Er
það gífurleg umskipti frá síðasta
sumri er aðeins 49 laxar voru
færðir til bókar. 2003 þótti raunar
með eindæmum lélegt sumar, en
þessi umskipti til hins betra ná yfir
flestar ef ekki allar ár á norð-
anverðu landinu. Auk laxanna
veiddust 600 sjóbleikjur og voru
margar þeirra mjög vænar.
Að sögn kunnugra var talsvert
af stórum laxi í bland við smálax-
inn í sumar, eða alls milli 50 og 60
af veiddum löxum og auk þess voru
stórir lurkar í ánni sem ekki veidd-
ust. Sá stærsti sem veiddist var 20
punda og nokkrir stórir voru í
kringum 15–18 pund. Veiði fór ró-
lega af stað, en frá miðjum júlí var
veiði jöfn og góð út vertíðina, yf-
irleitt 30 laxar á viku að jafnaði. Í
veiðibók kemur fram að hængar
voru 141 og hrygnur 92.
Merktur endurheimtur
Hulda Orradóttir gerði sér far
um að merkja þrjá laxa sem hún
veiddi og sleppti aftur í Fljótaá 1.
ágúst. Einn þeirra laxa, 5 punda
hæng, veiddi Hörður Júlíusson aft-
ur 9. september og hafði laxinn
fært sig ögn neðar í ánni.
Sjóbirtingsskot
Vel hefur aflast í Varmá og Þor-
leifslæk að undanförnu, en eftir
flóðrigningu á dögunum virðist
talsvert af fiski hafa gengið í ána.
Dæmi um gott gengi var stuttur
túr tveggja Dana sem fengu saman
40 birtinga og bleikjur á einum
degi fyrir skemmstu. Fiskur er vel
dreifður á svæðinu, sem er langt.
Þá eru að tínast upp nýrunnir
birtingar í Steinsmýrarvötnum,
þar var t.d. holl fyrir skemmstu
með 12 fiska, allt að 7 punda þá
þyngstu.
Morgunblaðið/GolliFrá Fljótaá í Fljótum.
Veiði í Fljótaá margfaldaðist
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Í MORGUNBLAÐINU í gær birtist
mynd af Örnu Maríu Geirsdóttur, en
þar átti að vera mynd af Önnu Maríu
Geirsdóttur. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
LEIÐRÉTT
Röng mynd