Morgunblaðið - 15.09.2004, Side 35
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 35
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
HEIMSÞEK
KTIR
EINLEIKA
RAR
aðeins
2.380 kr.
á mánuði
Gul
tónleikaröð
VERÐ FRÁ 14.280 KR. FYRIR 7 TÓNLEIKA,
eða 2.380 kr. á mánuði í sex mánuði í sætaröð 21–28
og 16.600 kr. í sætaröð 1–20 eða 2.767 kr. á mánuði
í 6 mánuði sé greitt með Visa kreditkorti.
16. SEPTEMBER Framúrskarandi fiðlutónar
14. OKTÓBER Hetjur, kempur og keisarar
2. DESEMBER Þrír kóngar
20. JANÚAR Lenín er ekki hér
24. FEBRÚAR Frá Kárahnjúkum til Prag
14. APRÍL „10. sinfónía Beethovens“
19. MAÍ Þrír Tékkar og tvær klarinettur
Gul áskriftarröð skartar framúrskarandi einleikurum sem fá að sýna listir sínar með hljómsveitinni í vetur.
Fáðu þér áskrift að öruggu sæti og betra verði hjá Sinfóníuhljómsveitinni í vetur.
Aðeins fyrir
huguðustu
einleikara
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á WWW.SINFONIA.IS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
FYRSTUTÓNLEIKARNIRERU Á MORGUN
LISTRÆN stefna og verkefnaval Sinfóníuhljómsveitar Íslands voru gagn-
rýnd í tveimur greinum í Morgunblaðinu í kring um síðustu helgi. Bergþóra
Jónsdóttir menningarblaðamaður ræddi rýran hlut íslenskrar samtíma-
tónlistar á komandi vetri í pistlinum Af listum, og Jónas Sen, tónlistar-
gagnrýnandi blaðsins, fjallaði í grein í Lesbók um minnkandi bil milli há- og
lágmenningar, meðal annars á kostnað nýrra íslenskra tónverka.
Morgunblaðið leitaði viðbragða við greinunum hjá nokkrum forsvars-
aðilum þeirra sem eiga hagsmuna að gæta í málinu.
Eini vettvangurinn
Kjartan Ólafsson er formaður
Tónskáldafélags Íslands: „Mér
finnst mjög jákvætt að þessi mál séu
komin inn í um-
ræðuna, því við
höfum oft bent á
það við forsvars-
menn Sinfóníu-
hljómsveitar-
innar að það væri
æskilegt fyrir
tónlistarlífið hér-
lendis að hún
legði meiri
áherslu á íslensk
sinfónísk verk.
Hún er í raun eini vettvangurinn til
að flytja slíkt tónlistarform.“
Hann segir það óhjákvæmlega
fylgifisk þess þegar íslensk verk séu
sjaldan flutt, að færri séu skrifuð.
„Færri og færri íslensk hljómsveit-
arverk eru að verða til, og þátttaka
Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur
mjög afgerandi áhrif á tilurð slíkra
verka. Við höfum séð að frumflutn-
ingur á íslenskri tónlist hefur
minnkað, gróft á litið, og segja þessi
skrif í blaðinu sitt um það mál. Það
er því á óskalista íslenskra tón-
skálda að íslenskum hljómsveitar-
verkum fjölgi á dagskrá Sinfóníunn-
ar.“
Lítil djörfung í efnisvali
Sigfríður Björnsdóttir er fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar tónverka-
miðstöðvar: „Sinfóníuhljómsveitir í
kring um okkur
glíma allar við
sama fyrirbærið,
annars vegar að
varðveita og
bjóða aðgang að
perlum menning-
ararfsins og hins
vegar að starfa í
samtíma sínum.
Hljómsveitir
virðast vera
íhaldssamar í eðli
sínu og Sinfóníuhljómsveit Íslands
er þar ekki undanskilin. Ef við líkj-
um sinfóníuhljómsveit við dýr, þá
myndi ég segja að hún væri stund-
um eins og risaeðla, stórkostleg og
kraftmikil, en byltist um í ókunnu
umhverfi sem hún reynir stöðugt að
laga að eigin þörfum. Ef hún aðlag-
ast ekki samtímanum, speglar hann
og tekur sér með frumkvæðum
hætti stöðu í samfélaginu, verður
hún skotmark þeirra sem gagnrýna
sóun á almannafé.“
Sigfríður leggur á það áherslu að
sinfóníuhljómsveitir á hverjum stað
verði að endurspegla umhverfi sitt
og menningu þess og skapa sér
þannig sérstöðu. „Það eru mikil von-
brigði að sjá hversu lítil djörfung er í
efnisvali Sinfóníunnar núna. Mér
finnst ekki skipta neinu máli úr
hvaða geira góðir hlutir koma, en því
meiri vinna, þekking og reynsla sem
er að baki tónverki því meiri líkur
eru á að það hafi að geyma þennan
gimstein sem Sinfóníuhljómsveitin á
að mínu mati stöðugt að leita að. Að-
eins með hennar tilstilli verða af-
hjúpuð og uppgötvuð íslensk lista-
verk á sviði stórverka sem krefjast
hljómsveitarflutnings sem þá geta
gegnt hlutverki sínu sem burðar-
stoðir menningar okkar inn í óljósa
framtíð.“
Verður að halda
faglegri reisn
Steinunn Birna Ragnarsdóttir sit-
ur í verkefnavalsnefndinni fyrir
hönd Reykjavíkurborgar: „Ég verð
að taka undir sjónarmið þeirra
Bergþóru og Jónasar og hafa
áhyggjur af því að Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands sé ef til vill að teygja
sig of langt, ekki
bara frá lögboðn-
um markmiðum
heldur einnig frá
því sem ég tel að
sé faglega eftir-
sóknarvert. Þó að
samfélagið geri
sífellt auknar
kröfur um að af-
þreying taki
stærri hluta af
því sem fólk sæk-
ir í utan vinnutíma, finnst mér að
menningarstofnun eins og Sinfón-
íuhljómsveit Íslands, sem er í raun
þjóðarhljómsveitin okkar, verði að
halda faglegri reisn og finna skyn-
samlegan milliveg. Því auðvitað er
ekki hægt að þrjóskast við og spila
bara tónlist sem ekki nýtur al-
mennra vinsælda, en Sinfónían hef-
ur hlutverk sem eins konar kyndil-
beri í íslensku tónlistarlífi og má því
ekki fara of geyst í þá átt að mæta
markaðssjónarmiðum. Mér þykir
leitt ef sú leið verður ofaná.“
Steinunn nefnir sem dæmi að Sin-
fóníuhljómsveit Íslands ætti ekki að
vera í undirleikshlutverki fyrir
popphljómsveitir að hennar mati.
„Með fullri virðingu fyrir þeim, enda
eru margar þeirra að gera mjög
góða hluti. Hljómsveitin getur bara
svo miklu meira, auk þess sem það
ýtir undir þann möguleika að fólk
fari ekki til að hlusta á Sinfóníu-
hljómsveitina á hennar eigin for-
sendum, heldur heyra einhverja allt
aðra hluti sem færi kannski betur á
með öðrum hætti.“
Listrænn stjórnandi
ræður verkefnavali
Óskar Ingólfsson, aðstoðarskóla-
stjóri Tónlistarskólans í Reykjavík,
hefur verið formaður verkefnavals-
nefndar Sinfóníu-
hljómsveitar Ís-
lands síðan í vor:
„Ég fagna þess-
ari umræðu og
finnst grein Jón-
asar mjög góð.
Ég vil þó gjarnan
benda á að verk-
efnavalsnefndin
er einungis ráð-
gefandi, en þegar
það er listrænn
stjórnandi til staðar sem tekur
ábyrgð á sínu starfi, eins og Rumon
Gamba gerir, er hann auðvitað mjög
valdamikill. Þannig var það ekki áð-
ur. Um nokkurn tíma voru ekki fast-
ráðnir stjórnendur við hljómsveit-
ina, og þá hafði verkefnavalsnefndin
mikið vægi. Nefndin er auðvitað allt-
af ráðgefandi, en listrænn stjórnandi
ræður verkefnavali, svo framarlega
að stjórn Sinfóníuhljómsveitarinnar
samþykki það. Verkefnavalsnefnd
kemur þannig með hugmyndir að
efnisskrám, sem fara fyrir listrænan
stjórnanda og eru síðan endanlega
samþykkt af stjórn hljómsveitar-
innar, sem hefur úrslitavaldið.“
Hver, ef ekki Sinfónían?
Ekki náðist í Rumon Gamba, aðal-
hljómsveitarstjóra Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands sem jafnframt er list-
rænn stjórnandi
hennar, en rifja
má upp að í við-
tali við Morgun-
blaðið þann 5.
september 2002
sagði hann meðal
annars:
„Ég lít ekki
endilega á það
sem skyldu eða
kvöð að flytja ís-
lensk verk, mér
finnst það bara mikilvægt vegna
þess að Sinfóníuhljómsveit Íslands
er ekki borgarhljómsveit eins og
margar hljómsveitir erlendis, - held-
ur hljómsveit allra Íslendinga. Það
er mikilvægt að íslensk tónlist heyr-
ist hvort sem hún er góð eða slæm; -
við komumst ekki að því hvernig hún
er nema heyra hana. Það er líka sér-
staklega mikilvægt að ung tónskáld
fái tækifæri með hljómsveitinni og
njóti þess að heyra hljómsveitarverk
sín lifna við. Hvaða hljómsveit ætti
að spila þau ef ekki Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands?“
Þröstur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
vildi ekki tjá sig um málið að svo
stöddu.
Tónlist | Ekki mörg ný íslensk tónverk á efnisskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands í vetur
Verkefnavalið gagnrýnt
Kjartan
Ólafsson
Rumon
Gamba
Steinunn Birna
Ragnarsdóttir
Óskar
Ingólfsson
Sigfríður
Björnsdóttir
Stjórn:
Þorkell Helgason, formaður,
fulltrúi menntamálaráðuneytis
Júlíus Vífill Ingvarsson,
fulltrúi fjármálaráðuneytis
Hilmar Oddsson, fulltrúi
Reykjavíkurborgar
Dóra Ingvadóttir, fulltrúi
Ríkisútvarpsins
Sigurður Þorbergsson, fulltrúi
starfsmannafélags SÍ
Verkefnavalsnefnd (ráð-
gefandi um verkefnaval)
Óskar Ingólfsson, formaður,
fulltrúi menntamálaráðuneytis
Steinunn Birna Ragnars-
dóttir, fulltrúi Reykjavíkur-
borgar
Bergljót Anna Haraldsdóttir,
fulltrúi Ríkisútvarpsins
Rumon Gamba, aðalhljóm-
sveitarstjóri SÍ
Guðný Guðmundsdóttir/
Sigrún Eðvaldsdóttir, konsert-
meistarar
Emil Friðfinnsson, fulltrúi
hljóðfæraleikara
Tryggvi M. Baldvinsson,
fulltrúi Tónskáldafélags Ís-
lands
Skipan
stjórnar og
verkefnavals-
nefndar SÍ