Morgunblaðið - 15.09.2004, Síða 37

Morgunblaðið - 15.09.2004, Síða 37
MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 37 Það er ótrúlegt en sattað Möguleikhúsiðsem frá upphafi hef- ur einsett sér að gera leik- sýningar eingöngu fyrir börn skuli nú vera að hefja sitt 15. starfsár. Þetta væri auðvitað ekki hægt ef stofn- endurnir, Bjarni Ingvarsson og Pétur Eggerz, hefðu ekki verið lífið og sálin í starfinu; höfundar, leikarar og leik- stjórar – svo öll hin störfin þeirra í leikhúsinu séu ekki tíunduð líka – skrif- stofuhald, smíðar, tækni- vinna og miðasala, og senni- lega er ekkert sem þeir hafa ekki gert í leikhúsinu sínu á þessum 15 árum. Jafnframt hafa þeir þegjandi og hljóðalaust eignast eigið leikhús utan um starfsemina og reka hana hallalaust og veita að öllum jafnaði fjór- um til átta listamönnum vinnu auk sjálfra sín meðan á leikárinu stendur. Geri aðrir betur. Reykjavíkurborg viðurkenndi starfsemi Möguleikhússins sl. vetur með því að gera við það starfsamn- ing til þriggja ára og Mennta- málaráðuneytið gerði á sama tíma samning til eins árs. Minna mátti það ekki vera. „Svona samningar gera gæfumuninn fyrir okkur því þá er loks hægt að skipuleggja starfið lengra fram í tímann og ráða lista- menn með lengri fyrirvara.“    Undanfarin ár hefur Möguleik-húsið leikið sýningar sínar ríflega 200 sinnum að jafnaði og þá fyrir um 20 þúsund áhorfendur en flestar hafa sýningarnar orðið 315 og áhorfendafjöldinn 27 þús- und. Í vetur verða sjö sýningar á dag- skránni og lögð er áhersla á fjöl- breytt úrval verka fyrir börn og unglinga að sögn Bjarna Ingvars- sonar. „Æfingar standa nú yfir á Land- inu vifra, en það er leiksýning byggð á barnaljóðum Þórarins Eldjárns. Úr þessu hefur leikstjór- inn Ágústa Skúladóttir, ásamt leik- hópnum, gert mjög skemmtilegt og sérstætt verk sem segir frá ferðalagi íbúa landsins sem sagt er frá titilljóðinu. Tónlistin er eftir Atla Heimi Sveinsson, útsetningar eftir Guðna Franzson og Katrín Þorvaldsdóttir sér um búninga og leikmynd ásamt Bjarna Ingv- arssyni. Leikarar eru Aino Freyja Järvelä, Alda Arnardóttir og Pétur Eggerz. Æft verður fram í síðari hluta september en æfingum síðan fram haldið eftir áramót og frum- sýnt í lok janúar.“ Áður en að þessu kemur heldur Möguleikhúsið uppi hefðinni í starfi sínu með frumsýningu á jóla- leikritinu Smiður jólasveinanna eftir Pétur Eggerz, sem síðast var á dagskrá Möguleikhússins fyrir níu árum og naut mikilla vinsælda og var á dagskránni í fjögur ár. Jólaleikrit hafa alltaf verið mik- ilvægur þáttur í starfseminni og er greinilega ekkert lát á því. Leikstjóri sýningarinnar er Pét- ur Eggerz og tónlist er eftir Ingva Þór Kormáksson. Leikarar eru Bjarni Ingvarsson, Aino Freyja Järvelä, Alda Arnardóttir og Pétur Eggerz.    Auk þessara nýju sýninga verðateknar upp að nýju sýningar á fimm verkum frá fyrra leikári, en það eru Hattur og Fattur og Sigga sjoppuræningi eftir Ólaf Hauk Símonarson,Völuspá eftir Þórarin Eldjárn, Tónleikur eftir Stefán Örn Arnarson og Pétur Eggerz, Heiðarsnælda eftir leikhópinn og Tveir menn og kassi eftir Torkild Lindebjerg, en sú sýning var til- nefnd til Grímunnar, íslensku leik- listarverðlaunanna, sem barnasýn- ing ársins 2004. Bjarni segir að árangur starfsins í þessi 15 ár sé margvíslegur en þó sé skemmtilegast hvað nýir áhorf- endur bætist sífellt við og þeir eldri séu jafnvel farnir að koma aftur. „Um daginn kom á sýningu til okkar kona sem hafði séð sýn- ingar hjá okkur þegar hún var í leikskóla. Hún var núna mætt á sýningu með litla dóttur sína.“ Að sögn Bjarna hafa orðið nokkrar breytingar á sýningahald- inu í gegnum árin. „Við sýndum meira fyrir leikskólabörn fyrstu árin. Þetta er orðið jafnara á milli leikskóla og grunnskóla. Skólarnir eru mjög jákvæðir fyrir okkar starfi og þeir sem eru í forsvari fyrir foreldrafélögin í grunnskól- unum og leikskólunum eru í góðu samstarfi við okkur. Það skiptir mjög miklu máli að samskiptin við þessa aðila séu traust því nálægðin er mikil.“    Loks má nefna að Möguleik-húsið tekur þátt í íslensku menningarkynningunni í París sem nefnist Islande – de glace & de feu eða Ísland – ís og eldur, og stendur frá 27. sept. – 10. október. Þar verður Möguleikhúsið með sýningu þann 6. október á Völuspá eftir Þórarin Eldjárn, í leikstjórn Peter Holst. Sýnt verður í Maison des Cultures du Monde. Völuspá er ein rómaðasta og vinsælasta sýn- ing Möguleikhússins frá upphafi og hefur verið sýnd víða, bæði hér heima og erlendis, við frábærar undirtektir. Völuspá var frumsýnd árið 2000 á Listahátíð í Reykjavík og hlaut Grímuna árið 2003 sem besta barnaleiksýningin. Sýningar eru orðnar ríflega 160. Það er því óhætt að binda vonir við samstarf leikhússins við Þórarin Eldjárn með nýju sýninguna sem boðuð er í vetur. Barnaleikhús í 15 ár Pétur Eggerz, Aino Freyja Järvelä og Alda Arnardóttir í Landinu vifra, nýju barnaleikriti Þórarins Eldjárns sem frumsýnt verður í janúar. ’Eiga leikhúsið ogreka það hallalaust og veita að öllum jafnaði fjórum til átta lista- mönnum vinnu.‘ AF LISTUM Hávar Sigurjónsson havar@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir HANDAVINNUNÁMSKEIÐ í Kópavogi og Selfossi Boðið er upp á kennslu í silkiborðssaumi (1-2 og 3), hvítsaumi, upphleyptum ullarsaumi, herpisaumi, „kunstbroderi“, svartsaumi, þrívíddarsaumi, harðangri og annarri almennri handavinnu. Innritun og upplýsingar hjá Jóhönnu Snorradóttur í síma 554 1774 eða 697 8030. Listagallery Ingu. Inga Holdø Seljavegur 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is Hræðilega fyndið, rokkað og flugbeitt: ELDAÐ MEÐ ELVIS eftir Lee Hall • Föstud. 1/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS • Laugard. 2/10 kl. 20 Sýningin hlaut tilnefningu sem vinsælasta leiksýningin á Grímunni 2004. Aðeins nokkrar aukasýningar í haust. Tryggið ykkur miða! Frumsýnt á morgun: HINN ÚTVALDI eftir Gunnar Helgason • Miðvikud. 15/9 kl. 18 UPPSELT forsýning • Fimmtud. 16/9 kl. 19 ÖRFÁ SÆTI frumsýning • Sunnud. 19/9 kl. 14 LAUS SÆTI • Sunnud. 26/9 kl. 14 552 3000 ☎ 552 3000 ☎ Jón Nordal ::: Gríma John Adams ::: Fiðlukonsert Robert Schumann ::: Sinfónía nr. 1 í B-dúr, op. 38 „Vorsinfónían“ HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 16. SEPTEMBER KL. 19.30Gul #1 Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba Einleikari ::: Leila Josefowicz Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is Í flokki fremstu einleikara heims Þrátt fyrir að Leila Josefowicz sé aðeins 26 ára gömul er hún á góðri leið með að leggja heiminn að fótum sér í krafti glæsilegrar spila- mennsku og spennandi verkefnavals. Hún er æ oftar nefnd í sömu andrá og fremstu fiðluleikarar heims og hefur leikið með þekktustu hljómsveitum heims. Nú er komið að Sinfóníuhljómsveit Íslands. H V ÍT A H Ú S IÐ / 1. flokki 1989 – 56. útdráttur 1. flokki 1990 – 53. útdráttur 2. flokki 1990 – 52. útdráttur 2. flokki 1991 – 50. útdráttur 3. flokki 1992 – 45. útdráttur 2. flokki 1993 – 41. útdráttur 2. flokki 1994 – 38. útdráttur 3. flokki 1994 – 37. útdráttur Húsbréf Koma þessi bréf til innlausnar 15. nóvember 2004. Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum birt hér í blaðinu í dag. Upplýsingar um útdregin húsbréf má einnig finna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs: www.ils.is. Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: Útdráttur húsbréfa Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.