Morgunblaðið - 19.09.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 255. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Heimsmeistari í
fuglamerkingum
Óskar J. Sigurðsson vitavörður
á Stórhöfða í Vestmannaeyjum 20
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímaritið | Rassinn í buxunum Hjálparstarf í kapphlaupi við tímann Rit-
höfundurinn Boris Akúnin Gunnlaugur Egilsson ballettdansari Atvinna |
Leitað að fólki með hugbúnaðarþekkingu Styrkir til náms og rannsókna
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
LÖGFRÆÐINGAR bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins komust að þeirri niðurstöðu á sjöunda
áratugnum að það jafngilti broti á varnarsamningi
Bandaríkjanna og Íslands að kalla orrustu-
þoturnar í Keflavík heim án samþykkis íslenskra
stjórnvalda. Þetta kom fram í fyrirlestri Vals Ingi-
mundarsonar sagnfræðings á ráðstefnu um mál-
efni smáríkja í Norræna húsinu í gærmorgun.
„Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur
hafnað grundvallaratriðinu í túlkun íslenskra
stjórnvalda á varnarsamningnum, það er að ein-
hliða burtkvaðning orrustuþotnanna jafngilti
broti á varnarsamningnum,“ sagði Valur.
„Bandarísk skjöl sýna hins vegar að lögfræðingar
Pentagon höfðu þegar á sjöunda áratugnum
komist að sömu niðurstöðu og íslensk stjórnvöld:
að það myndi brjóta gegn nokkrum greinum hans
– einkum þeim, sem snúast um stærð og samsetn-
ingu heraflans – ef þoturnar yrðu kvaddar brott
án samþykkis Íslendinga.“
Valur vitnaði í skjalið þar sem segir: „Komist
hefur verið að þeirri niðurstöðu að samþykki rík-
isstjórnar Íslands væri nauðsynlegt áður en haf-
ist yrði handa við að kalla heim orrustuflugvéla-
sveitina … Án samþykkis ríkisstjórnar Íslands
gætu Bandaríkin ekki kallað orrustuflugvéla-
sveitina heim án þess að brjóta gegn greinum III
og IV í varnarsamningnum. Án slíks samþykkis
myndu slíkar aðgerðir gefa íslenskum stjórnvöld-
um tilefni til að ógilda samninginn.“
Ísland utan við endurskoðun
herafla Bandaríkjanna
Fyrirlestur Vals nefnist „Endalok „öryggis-
samfélags“ Bandaríkjanna og Íslands?“ Þar rek-
ur hann þróun samskipta ríkjanna eftir lok kalda
stríðsins og fjallar sérstaklega um viðræðurnar
um varnarsamninginn og deiluna um orrustuþot-
urnar.
Valur segir í fyrirlestrinum að til þess að draga
úr spennunni milli Íslands og Bandaríkjanna hafi
stjórn George Bush forseta ákveðið að allsherj-
arendurskoðun á herafla Bandaríkjanna næði
ekki til Íslands eins og upphaflega hefði verið
gert ráð fyrir. „Því er það svo að á þessu stigi
málsins mun samdráttur hermanna í Þýskalandi,
Kóreu og Japan ekki hafa áhrif á Íslandi,“ sagði
Valur. „Enn á ný er litið á Ísland sem sérstakt
vandamál.“
Eftirlitsvélarnar burt fyrir fullt og allt
Í febrúar á þessu ári voru P-3 Orion-eftirlits-
vélar varnarliðsins sendar á brott héðan. Í frétt-
um þá kom fram að bandarísk stjórnvöld segðu
að það fælist engin efnisleg breyting á varnar-
samstarfinu í því að ákvörðun hefði verið tekin
um að flytja kafbáta- og skipaeftirlitsvélar á veg-
um varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli af landi
brott. Í fyrirlestri sínum fjallaði Valur um Orion-
vélarnar, sem hafa síðan á sjöunda áratugnum
verið helsta herfræðilega ástæðan fyrir því að
hafa varnarliðið í Keflavík, og sagði að í einka-
samtölum segðu bandarískir embættismenn að
þær hefðu verið sendar brott fyrir fullt og allt.
Brot að kalla þoturnar
burt án leyfis Íslendinga
Lögfræðiálit Pentagon um varnarsamninginn frá sjöunda áratugnum
Samband ríkjanna/6
Vinsæl höfnunarþjónusta
Moskvu. AFP.
HUGVITSSAMLEG símaþjón-
usta, sem felst í því að hjálpa kon-
um að losa sig við karlmenn sem
þær kæra sig ekki um, nýtur nú
mikilla vinsælda í Moskvu.
„Halló. Þetta er höfnunarþjón-
usta Moskvu. Manneskjan sem lét
þig hafa þetta símanúmer vill
ekki tala við þig. Bless.“
Þetta eru skilaboðin sem marg-
ir Moskvubúar fá þegar þeir
hringja í númerið sem konurnar
láta þá hafa þegar þeir ganga eft-
ir þeim með grasið í skónum.
Að sögn rússneska dagblaðsins
Gazeta hefur höfnunarþjónustan
fengið yfir 100.000 hringingar á
mánuði og að meðaltali um 20 á
mínútu. Eru vinsældirnar slíkar
að auglýsendur hafa tekið við sér
og vilja nú margir fá að kaupa sér
tíma fyrir auglýsingar í lok síma-
skilaboðanna.
Pavel Aladyshev, 27 ára plötu-
snúður, stofnaði þjónustuna eftir
að vinkonur hans kvörtuðu yfir
ágengni daðurgjarnra karlmanna
sem þrábáðu þær um símanúmer
þeirra.
Símsvari sér um að
hafna vonbiðlunum
NAFN neyt-
endafrömuðarins
Ralphs Naders
verður á kjör-
seðlum í Florida í
forsetakosning-
um í nóvember.
Hæstiréttur í
Florida felldi úr-
skurð þessa efnis
á föstudag.
Ákvörðunin í Florida er álitin mik-
ilvæg, enda var mjótt á mununum í
Florida í síðustu forsetakosningum,
eins og menn muna. Niðurstaðan í
Florida skipti þá sköpum um hvor
bæri sigur úr býtum, repúblikaninn
George W. Bush eða demókratinn Al
Gore, og fékk Bush aðeins 527 at-
kvæðum meira en Gore skv. opinber-
um tölum. Nader fékk 97.421 at-
kvæði í Florida og því líklegt að Gore
hefði sigrað í ríkinu ef Nader hefði
ekki verið þar í framboði.
Nafn Naders
á kjörseðla
í Florida
Tallahassee. AFP.
Ralph Nader
AÐ minnsta kosti tuttugu Írakar biðu bana
í sjálfsmorðssprengjuárás í borginni Kirk-
uk í gærmorgun og er þá tala fallinna í Írak
komin yfir 400 í þessum mánuði. Sextán til
viðbótar særðust, að því er haft var eftir
Anwar Mohammed Amin, yfirmanni þjóð-
varðliðsins í Kirkuk, en bækistöðvar þjóð-
varðliðsins voru vettvangur tilræðisins.
Ástandið í Írak hefur verið afar slæmt
síðustu daga og vikur en breska blaðið The
Daily Telegraph sagði einmitt frá því í gær
að fyrir innrásina í Írak hefði Tony Blair,
forsætisráðherra Breta, fengið send leyni-
skjöl frá helstu ráðgjöfum sínum þar sem
varað var við því að stjórnleysi tæki við ef
Saddam Hussein væri steypt af stóli. M.a.
lét Jack Straw, utanríkisráðherra Bret-
lands, í ljós þessar skoðanir í bréfi til Blairs
í mars 2002. Sagði Straw að enginn hefði
fært sannfærandi rök fyrir því að sú stjórn
sem við tæki yrði endilega betri en stjórn
Saddams. „Írak hefur enga lýðræðishefð,“
benti Straw á. Þá mun Sir David Manning,
ráðgjafi Blairs, hafa sent Blair skýrslu í
mars 2002, eftir að hann hafði átt fundi í
Washington, þar sem hann sagði að margt
benti til að ráðamenn vestra vanmætu þá
erfiðleika sem kynnu að fylgja innrás í Írak.
Hóta að drepa gíslana
Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera
sýndi í gærmorgun myndband frá samtök-
um uppreisnarleiðtogans Abu Mussabs al-
Zarqawis en þar má sjá tvo Bandaríkja-
menn og einn Breta sem samtökin rændu í
Bagdad á fimmtudag og halda nú í gíslingu.
Myndbandinu fylgdi hótun þess efnis að
mennirnir yrðu drepnir ef ekki yrði búið að
gefa frelsi öllum kvenkyns föngum í Írak
innan tveggja sólarhringa.
Tuttugu
biðu bana
í Kirkuk
Tony Blair var varaður
við stjórnleysi í Írak
Kirkuk, London, Doha. AP, AFP.
AP
Íbúar í Fallujah skoða afleiðingar loft-
árása Bandaríkjahers í fyrrinótt.
VIÐ Litlu kaffistofuna á Hellisheiði er nú hægt að fá
sér far með hundakerru sem dregin er af níu græn-
lenskum sleðahundum. Yfirleitt draga hundarnir
sleða á snjó en Berglind Erlendsdóttir Pedersen hjá
Dog steam tours segir að vagnadrátturinn sé til-
raun, þar sem enginn snjór sé enn á heiðum verði
látið reyna á hvort markaður sé fyrir vagnaferðum.
Hundarnir léku nýlega í tónlistarmyndbandi með
Björk og brá fyrir í bandarísku bíómyndinni Tomb
Raider sem að hluta til var kvikmynduð hér á landi.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Vagnahundar á Hellisheiði