Morgunblaðið - 19.09.2004, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
Beach Boys
til Íslands
The Beach Boys árið 2002.
ÍSLENDINGAR og íslensk list verða áber-
andi í dönskum leikhúsum í vetur. Tvö ís-
lensk leikverk, Sellófón eftir Björk
Jakobsdóttur og Englabörn eftir Hávar
Sigurjónsson, eru frumsýnd í Kaupmanna-
höfn um þessar mundir. Þá hefur Egill
Heiðar Anton Pálsson leikstjóri verið
fenginn til að vinna nýja sýningu ásamt
tveimur samstarfsmönnum sínum inn í
Túrbínusalinn, nýtt svið Konunglega leik-
hússins í Kaupmannahöfn, en Egill Heiðar
Anton leikstýrir jafnframt verkinu, sem
verður frumsýnt í nóvember.
Egill Heiðar Anton hefur verið valinn
einn fjögurra norænna leikstjóra til að
leikstýra verki að eigin vali eftir evr-
ópskan samtímahöfund á leiklistarhátíð-
inni Norden nu möter Europa í Helsinki í
Finnlandi.
Nýtt og glæsilegt óperuhús sem óðum
er að taka á sig fullbúna mynd við höfn
Kaupmannahafnar er prýtt ljósaskúlptúr-
um eftir Ólaf Elíasson myndlistarmann, en
í fyrstu uppfærslu í húsinu, eftir áramót,
mun Kolbeinn Ketilsson óperusöngvari
deila hlutverki Radamesar í Aidu, með
stórtenórnum Roberto Alagna/53.
Íslendingar
áberandi
í dönskum
leikhúsum
GRÍÐARLEGT tjón varð þegar
fiskvinnsluhús Klumbu ehf. brann
til kaldra kola í Ólafsvík í fyrrinótt.
Mikill eldur var í húsinu þegar
slökkvilið bar að garði og fram eftir
nóttu kváðu við sprengingar og
drunur úr húsinu. „Það varð ekki
við neitt ráðið,“ sagði slökkviliðs-
stjóri Snæfellsbæjar.
Húsið er gjörónýtt, þakið er
hrunið að mestu og í gríðarlegum
hitanum bráðnaði allt sem bráðnað
gat innandyra.
Vegfarandi, sem átti leið fram
hjá iðnaðarhverfinu þar sem húsið
stóð, tilkynnti um eldinn til Neyð-
arlínu um klukkan 1:30.
Tveir slökkvibílar frá Ólafsvík
og einn frá Grundarfirði voru send-
ir á staðinn en Jón Þór Lúðvíksson
slökkviliðsstjóri sagði að það hefði
þurft margfalt meira lið og miklu
meira vatn til að eiga einhverja
möguleika á að bjarga húsinu.
„Þetta leit strax illa út,“ sagði
hann. Mikill eldur hefði verið í hús-
inu þegar að var komið, eldtungur
stóðu út um glugga á austurhlið og
reykur liðaðist víða út úr bygging-
unni.
Vatnshani er nálægt húsinu en
hann dugði slökkviliði illa. Sökum
þess að vont var í sjóinn og þar að
auki fjara var ekki heldur hægt að
dæla upp sjó til að sprauta á eldinn.
Tankbíll var fenginn á staðinn en
dælur slökkviliðsins voru fljótar að
klára vatnið úr honum. „En það
hefði svo sem ekki breytt neinu.
Þetta gerðist hratt,“ bætti Jón Þór
við. Hann sagði húsið hafa verið
gamalt og illa hólfað niður. Innan-
dyra var mikill eldsmatur, milligólf
úr timbri, fiskikör, umbúðir, beit-
ingalínur, gaskútar og fleira. Norð-
anstrekkingur gerði illt verra.
Jón Þór sagði að of hættulegt
hefði verið að senda menn inn í
húsið og því miðaði slökkvistarf að
því að bjarga verðmætum sem
stóðu nálægt Klumbu, m.a. var
stór olíutankur dreginn frá húsinu
og hann kældur. Einnig var vatni
sprautað á nálæga skemmu til að
koma í veg fyrir að eldurinn bærist
í hana. Um klukkan sex hafði mest-
ur eldurinn slokknað enda hafði þá
allt brunnið sem brunnið gat. Um
klukkan átta var að mestu lokið við
að drepa í glæðum en slökkviliðið
vaktaði húsið áfram.
Lögreglan í Ólafsvík hugðist
hefja rannsókn á eldsupptökum
síðar um daginn.
Erfiðar aðstæður fyrir slökkvilið þegar fiskvinnsluhús brann í Ólafsvík
„Varð ekki við neitt ráðið“
HJÁ Klumbu unnu 27 manns og
uppgangur var hjá fyrirtækinu að
sögn Ævars Þórs Sveinssonar
verkstjóra. Hann telur að í brun-
anum í fyrrinótt hafi orðið tjón
upp á hundruð milljóna.
Húsið, sem var um 1.200 m² að
stærð, var nokkuð komið til ára
sinna og nokkrum sinnum hafði
verið byggt við það og það end-
urbætt. Í húsinu var m.a. hausa-
þurrkun og lítið frystihús. Í sum-
ar var húsið enn endurbætt og
m.a. settur í það nýr stór laus-
frystir. „Þetta er kjaftshögg,“
sagði Ævar Þór. „Við vorum á
uppleið, ekki á niðurleið.“
Eldurinn var mestur í austur-
hluta hússins þegar að var komið.
Ævar Þór sagði að þar hefði verið
um 1 MW rafmagnsketill sem hit-
aði vatn fyrir hausaþurrkunina.
Giskaði hann á að eldurinn hefði
kviknað út frá katlinum.
Tjón upp á hundruð milljóna
Eldtungurnar stóðu hátt í loft upp og hitinn frá húsinu var gríðarlegur enda mikill eldsmatur innandyra.
Í UNDIRBÚNINGI er gerð minnisvarða
um breska sjómenn sem fyrirhugað er
að reisa í Vík í Mýrdal og Hull í Bret-
landi. Frumkvæði að gerð minnisvarð-
ans er komið frá Menningarfélagi um
Brydebúð í Vík og fyrrverandi og nú-
verandi sendiherrum Bretlands á Ís-
landi, John Culver og Alp Mehmet.
Menningarfélagið hefur m.a. sett upp
sýningu í Brydebúð um sögu skips-
stranda við suðurströnd Íslands á síð-
ustu öld, en fyrirhugaður minnisvarði
tengist þeirri sögulegu staðreynd að
brátt verða 30 ár liðin frá lokum
þorskastríðanna./Tímarit
Skúlptúrar
í Vík og Hull
UM 6.000 handslökkvitæki með haloni eru enn í
umferð hér á landi, en bannað er að nota þau við
slökkvistörf og þau flokkuð sem hættulegur úr-
gangur sem mönnum ber að skila.
„Þetta er mikið magn,“ segir Heiðrún Guð-
mundsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofn-
un. Halon er öflugasta ósoneyðandi efnið sem
þekkist, en Heiðrún telur að fólk geri sér ekki
grein fyrir hvað það er með í höndunum þar sem
handslökkvitækin eru. Hún sagði tækin hafa
verið keypt í miklum mæli fyrir röskum áratug
og dreifst um land allt, en árið 1993 gekk í gildi
bann við innflutningi umræddra tækja. Þau
hafa hins vegar aldrei verið innkölluð og ekkert
fé eyrnamerkt sértaklega til að mæta kostnaði
við eyðingu þeirra.
Heiðrún sagði mikilvægt að tækjunum yrði
skilað inn til efnamóttöku Sorpu eða spilliefna-
móttöku sveitarfélaganna. Einstaklingar geta
skilað tækjunum inn sér að kostnaðarlausu, en
fyrirtæki þurfa að greiða um 700 krónur fyrir
hvert kíló, þ.e. slökkvitækið í heild er vigtað,
þannig að kostnaður fyrirtækja getur numið
nokkur þúsund krónum fyrir hvert tæki.
Notkun ósoneyðandi efna hefur dregist sam-
an á Íslandi undanfarin ár, en þó er enn flutt inn
umtalsvert magn slíkra efna til notkunar á kæli-
og frystikerfi fiskiskipa og hefur innflutning-
urinn aukist síðastliðin fjögur ár. Í fyrra voru
t.d. flutt inn um 90 tonn af ósoneyðandi kæli-
miðlum, þar af voru tæp 50 tonn endurunnið
efni og rúm 40 tonn af nýframleiddu efni. Heið-
rún segir neikvætt að sjá í opinberum skýrslum
að við höfum aukið innflutning þessara efna.
Um 6.000 handslökkvi-
tæki með haloni í umferð
Notkun/8
HIN goðsagnakennda hljómsveit The
Beach Boys mun koma til Íslands og halda
tónleika í Laugardalshöllinni 21. nóv-
ember.
Sveitin hefur starfað í ýmsum myndum
síðustu árin og er nú leidd af söngv-
aranum og upprunalega liðsmanninum
Mike Love.
Að sögn Guðbjarts Finnbjörnssonar ósk-
aði Love sérstaklega eftir því að sveitin
kæmi til Íslands. Guðbjartur segir að á
tónleikunum sé stefnan að skapa ekta sól-
arstrandarstemningu þar sem sveitin
muni leika öll sín þekktustu lög eins og t.d.
„Good Vibrations“, „Kokomo“, „Fun Fun
Fun“, „Surfin’ USA“ og „I Get Aro-
und“./60