Morgunblaðið - 19.09.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.09.2004, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 19 skipti heldur sanngjörn viðskipti! Verla Bunnell var tölustafur í tölfræðinni. Nú er hún dottin út. Eftir að hafa úðað mynstri á pönnur í tíu ár, fékk hún bætur í eitt ár, 329 dollara á viku sem móðir ungra barna. Hún er byrjuð að selja hluta af eigunum. – Og svo lokum við gluggunum eða förum í aukapeysu í staðinn fyrir að hækka hitann. Maðurinn missti vinnuna rétt á undan henni. Nú er Woody kominn með vinnu sem bílstjóri í afleysingum, en launin eru helmingur þess sem hann fékk áður og verkefnin eru stopul. Parið á fjögur börn, yngst er ungbarnið Cheyanne. – Ég fékk barnaföt hjá fjölskyldu og vinum. Föt á hin kaupi ég á bílskúrs- sölum. Verla klippir út afsláttarmiða úr dagblöðum og auglýsingum. – Svo bíð ég þar til eitthvað er á tilboði. Kornfleks kostar til dæmis 2 dollara og 60 pens. Á tilboði get ég fengið tvo pakka á 4 dollara. Ef ég á líka kornfleks-afsláttarmiða sem lækkar verðið um 1 dollara, fæ ég tvo pakka á 3 dollara... Unga móðirin á fulla eldhússkúffu af afsláttarmiðum: „Sparið 1$ á tómatsósu“ eða „50 pens þegar þú kaupir Pepsi“. Verla verslar oftast í Wal-Mart, af því þar er ódýrast, og hugsar ekki um að matvörurisinn átti þátt í að taka vinnuna frá henni. – En ég fékk smá sting í hjartað þegar ég sá nýju Mirro-pönnurnar – „Framleitt í Mexíkó“. Í gufufylltu eldhúsi stendur Mike Cudahy yfir pottasetti frá Mirro. Edikkeimur gýs upp þegar hann opnar dyrnar. Á eldavélinni kraumar brúnleitur vökvi. – Ég kaupi agúrkur á tilboði. Sting þeim ofan í kalt vatn. Hakka lauk, dill, hvítlauk, chili, sýð edik, hendi hálfum bolla af salti út í – og eftir viku á ég pickles, segir hann og býður upp á sérréttinn sinn – sultað rósakál. Mike hafði unnið sem krana- maður hjá Mirro í 31 ár þegar hann fékk að vita að því væri lok- ið. – Ég vann þarna frá 12. júní 1972 til 27. júní 2003, segir hann og þurrkar fingurna á „Detroit Lions“ skyrtunni sinni. – Ég grét bara. Hélt að lífið væri búið. Bráðum fimmtugur og sá enga framtíð. Nú kalla ég þetta þriggjadagaþunglyndið mitt. Eftir þrjá daga stóð ég upp úr rúminu, sagði bless við „lalaland“ og skráði mig atvinnulausan. Mike var heppinn og komst inn á námskeið fyrir starfsfólk í heilsugeiranum. – Þar verða alltaf störf, jafnvel fyrir gamlingja eins og mig. Ég, sem aldrei hafði lesið bók spjaldanna á milli, þurfti að setjast niður og læra! Mike er sestur í sófann með konunni sinni Debbie. Stofan er ótrúlegt samansafn af glingri. Á hillu yfir sjónvarpinu liggur postulínsrádýr, sefstrá í vasa, nokkrar glerliljur, tvö lítil gler- verk, sofandi engill, gullengill, bómullarengill, bandaríski fán- inn, gæsarungar frá í vor, dvergur með skegg, þurrkuð grein, lítill köttur, kerti af öllum stærðum og gerðum, rósahnappar, ljósmyndir í smellurömmum, máluð karfa, gömul dós, blúndu- dúkur og klukka úr gervigulli. Í glugganum með gardínukappa fyrir hangir veifa með George Bush, pottaplöntur í gluggakist- unni og enn einn þjóðfáninn. – Við erum repúblíkanar og höfum alltaf verið það. Við skipt- um nú ekki um pólitíska sannfæringu bara af því að ég er orðinn atvinnulaus! Segir Mike og býður upp á chilisultað rósakál. Debbie vinnur líka í verksmiðju. – Ennþá, andvarpar hún. – Sem betur fer vorum við búin að borga húsið og bílinn. Við höld- um í við okkur í mat, kaupum á tilboði, erum búin að segja upp kapalsjónvarpinu og förum aldrei út að borða. Örsjaldan fer parið í hverfis- keilusalinn „Fantasy“. – Ég upplifi lífið öðruvísi, segir Mike kvöld eitt á milli keilukasta. Hann tekur sopa af Budweisern- um og þéttingsfast utan um kon- una. – Ég hef gert mér grein fyrir að þetta tekur allt enda. Verla fer í leðurjakkann. Hún á stefnumót við manninn sinn á hjólinu. Af og til yfirgefa þau allt, láta stóru börnin passa þau litlu. Hún er búin að laga kvöldmatinn. Makkarónur og ost og saft með sem keypt var á tilboði með af- sláttarmiða. Woody er safnari eins og Mike Cudahy. Hann safnar öllu sem tengist James Dean. Myndum. Glösum. Dúkkum. – Fæddur upp- reisnarmaður. Eins og ég. En hann lifði of hratt, segir Woody um „hetjuna“ í yfirfullum hill- unum. Jakkinn er með Harley-merkjum sem hefðu glatt Di Ann, verkalýðsfélagskonuna með rauðu neglurnar. En henni hefðu gramist pólitískar skoðanir parsins. Bush aftur. – Frelsi er mikilvægast! Live to ride, ride to live! smjattar Woody. Hann er á móti ríkisvaldi og á móti sköttum. – Þau verða ekki fátæk á einni nóttu, sagði Di Ann um þau sem eru nýorðin atvinnulaus í Manitowoc. – Fyrst fá þau svolitl- ar bætur, svo nota þau allan sparnaðinn, svo selja þau eigur, svo fá þau lánað, svo verða þau að selja meira, svo fá þau ekki lán, svo geta þau ekki borgað, svo þurfa þau að biðja um matarmiða, svo ölmusu, svo fer húsið. Renna upp. Sólgleraugun á. Hanskarnir. Hún tekur utan um mittið á manninum. Vélin drynur. Hjólið mjakast út innkeyrsl- una. Hunangsgulur makki sveiflast, hann brennur í sólinni sem er að setjast. Verla hverfur eins og eldspúandi dreki. Ekkert aflagar hárið á höfðinu. – Í Wisconsin þarf maður ekki að nota hjálm, útskýrði Verla áður en hún þaut af stað. – Wisconsin, sagði maðurinn, – er ríki frelsis. Enginn krefst þess að við lokum lífið úti þegar við keyrum. Ég elska hljóðið í vindinum í eyrunum! Í Wisconsin er maður frjáls. Alveg frjáls. Stendur einn. Í fyrra lenti enn ein milljón Bandaríkjamanna undir fátækt- armörkunum. „Ef Bush heldur áfram, verða engin verkalýðsfélög til eftir fjögur ár.“ (Di Ann) „Við erum repúbl- íkanar og höfum alltaf verið það. Við skiptum nú ekki um pólitíska sannfæringu bara af því að ég er orð- inn atvinnulaus!“ (Mike) Í NÆSTU VIKU verður Seierstad meðal baptista í Texas.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.