Morgunblaðið - 19.09.2004, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.09.2004, Blaðsíða 38
UMRÆÐAN 38 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ EINS og kunnugt er lét Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hörð orð falla um sameiginlega sjáv- arútvegsstefnu Evr- ópusambandsins á ráð- stefnu Íslandsbanka um fjárfestingar í sjáv- arútvegi sem fram fór á Akureyri á dögunum. Líkti hann sjáv- arútvegsstefnu sam- bandsins við ný- lendustefnu og sagði hana eiga við kreppu að stríða og byggjast á úreltum sjónarmiðum. Við slíkar aðstæður kæmi aðild Íslands að Evrópusambandinu einfaldlega ekki til greina að hans mati. Ítrekaði hann ennfremur fyrri yfirlýsingar sínar um að aðild væri útilokuð nema Ís- lendingar héldu fullum yfirráðum yf- ir Íslandsmiðum. Skiptar skoðanir hafa verið um það hvort túlka eigi orð Halldórs sem stefnubreytingu eða eitthvað annað. En hvernig sem á málið er litið er hins vegar ljóst að þær for- sendur, sem Halldór hefur ítrekað sagt að uppfylla þurfi svo aðild komi til greina að hans mati, eru svo ólíklegar til að ganga eftir að í raun er Halldór allt að því að útiloka aðild. Óraunhæf hugmynd Sjálfur sagði Halldór í viðtölum við fréttamenn að hann hefði ekki orðið var við neina viðleitni hjá Evrópusamband- inu til að koma til móts við hagsmuni Íslend- inga í sjávarútvegs- málum síðan hann reif- aði þær hugmyndir sínar í Berlín fyrir tveimur árum að hugs- anlega væri hægt að fá miðin við Ísland skil- greind sem sérstakt stjórnsýslusvæði, ef til aðildar að sambandinu kæmi, þar sem yfirráð- in væru að fullu í hönd- um Íslendinga. Þvert á móti hafa ýmsir ráðamenn innan Evrópusambandsins lýst því yfir að útilokað sé að slíkt næðist í gegn, þ.á m. Franz Fischler, sjávarútvegs- stjóri sambandsins, og Ben Brads- haw, sjávarútvegsráðherra Breta. En þessi tveggja ára gamla hug- mynd Halldórs er ennþá það hálmstrá sem íslenzkir Evrópusam- bandssinnar hanga á og reyna að telja almenningi á Íslandi trú um að geti orðið að veruleika þrátt fyrir að ekkert bendi til þess. Þegar rökin þrjóta grípa þeir einatt til þess ráðs að segja að það sé ekkert hægt að fullyrða neitt um þessi mál nema farið verði í aðildarviðræður við Evrópusambandið og kannað hvað sé i boði og hvað ekki. Gallinn er bara að slíkar tilraunaaðild- arviðræður eru ekki í boði af hálfu sambandsins. Það kom skýrt fram í máli Denis MacShane, Evrópu- málaráðherra Breta, í heimsókn hans til landsins í sumar. Sagði MacShane ennfremur að ef Íslend- ingar ákvæðu að sækja um aðild að Evrópusambandinu yrðu þeir að vera búnir að gera sér grein fyrir því hvað þeim stæði til boða og hvað ekki áður en til eiginlegra viðræðna kæmi. Höfðinu barið við steininn En íslenzkir Evrópusambands- sinnar láta ekki segjast. Þeir segja að þegar séu til staðar ákveðin sér- stök fiskveiðisvæði innan lögsögu Evrópusambandsins og því séu slík- ar hugmyndir ekkert nýtt. Slík svæði munu vissulega vera til en engin slík svæði lúta eingöngu yf- irráðum einhvers af aðildarríkjum sambandsins. Þau eru öll undir yf- irráðum Evrópusambandsins eins og lögsaga þess í heild. Það er það nýja í þessu og það er líka einmitt það sem er alls ekki í boði af hálfu sambandsins. Evrópusambandssinnarnir eru annars loksins farnir að viðurkenna að engar varanlegar undanþágur fá- ist frá sameiginlegri sjávarútvegs- stefnu Evrópusambandsins, og raunar líka að hún sé meingölluð. En þeir vilja þó ekki meina að hug- myndir Halldórs flokkist sem var- anleg undanþága þó ljóst sé að um yrði að ræða frávik í grundvall- aratriðum frá sjávarútvegsstefnu sambandsins (sem hugmyndin væri síðan væntanlega að yrði varanlegt fyrirkomulag). Þetta var m.a. stað- fest af Ben Bradshaw í sumar. „Ef sérstök undanþága yrði gerð fyrir Íslendinga, sem gæfi ykkur fullt vald yfir fiskimiðunum, væri mjög erfitt að neita öðrum aðildarríkjum Evrópusambandsins um hið sama,“ sagði Bradshaw. Fyrir vikið væri slíkt fyrirkomulag útilokað. Lét Bradshaw þess ennfremur getið að hann teldi að hagsmunum Íslend- inga væri ekki borgið innan Evrópu- sambandsins undir núverandi sjáv- arútvegsstefnu þess. Aðild er ekki á dagskrá Niðurstaðan er því einfaldlega sú, eins og Halldór og margir fleiri hafa komizt að raun um, að Evrópusam- bandið hefur engan áhuga á að koma til móts við hagsmuni Íslendinga í sjávarútvegsmálum í neinu sem máli skiptir. Evrópusambandssinnar geta haldið áfram að reyna að slá ryki í augu almennings og telja hon- um trú um að hægt sé að semja um alla skapaða hluti en það breytir ekki þeirri staðreynd að svo er alls ekki. Það hefur komið alveg skýrt fram í ummælum þeirra ráðamanna innan Evrópusambandsins sem heimsótt hafa Íslandi síðastliðið ár eða svo. Íslenzkir Evrópusambands- sinnar hafa þó átt í stökustu vand- ræðum með að bregðast við ummæl- um þessara manna enda um að ræða menn sem eru sjálfir harðir Evrópu- sambandssinnar og hafa því aug- ljóslega enga hagsmuni af því að segja að Íslendingar gætu ekki hald- ið yfirráðum sínum yfir Íslands- miðum, kæmi til aðildar, eða að aðild myndi ekki þjóna hagsmunum okkar í sjávarútvegsmálum ef það væri ekki satt og rétt. Aðild allt að því útilokuð Hjörtur J. Guðmundsson skrifar um Evrópumál ’…Evrópusambandiðhefur engan áhuga á að koma til móts við hags- muni Íslendinga í sjáv- arútvegsmálum í neinu sem máli skiptir. ‘ Hjörtur J. Guðmundsson Höfundur er stjórnarmaður í Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum. Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 BRÚARFLÖT Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is Mjög gott 207 fm einbýlishús á einni hæð. Nýlega er búið að endurnýja húsið að innan sem utan. Húsið skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, hol, stofu með útgangi út á suðurverönd, borðstofu, sjónvarpshol, eldhús, þvottahús, búr, baðherbergi, fjögur svefnherbergi og tvöfaldan bílskúr. Lítil stúdíóíbúð er í bílskúr. Síðasta sumar var húsið steypuviðgert og málað, skipt var um þakrennur, niðurföll og þakjárn. Garðurinn er sérstaklega glæsilegur, með miklum skjólveggjum og fallegum gróðri. Stanislaw hann- aði garðinn. Húsið stendur á rúmlega 1.000 fm lóð. Sjón er sögu ríkari. Verð 34,9 millj. Glæsileg 3ja herb. íbúð á 3ju hæð, 81,9 fm. Parket á gólfum. Innrétt- ingar úr kirsuberjaviði. Glæsilegt eldhús. Suð-vestursvalir. Falleg og góð íbúð. Sjón er sögu ríkari. Laus strax. Verð 14,9 millj. Opið hús í dag kl. 16.10-18.00 Stúfholt 3 - 105 Reykjavík Sími 595 9000 Myndir á www.holl.is. Jón Víkingur frá Hóli tekur á móti þér í dag, sími 892 1316. Verið velkomin! Til sölu svo til fullbúið 209 fm einbýli í jaðri byggðar í Grafarvogi, rétt ofan við golfvöllinn. Mjög stór sólpallur með heitum potti. Fjögur góð svefnher- bergi. Innbyggður bílskúr. Arinn í stofu. Eign sem vert er að skoða. Nánari uppl. á skrifstofu FM í síma 550 3000 og í þjónustusíma sölumanna 893 4191 eftir lokun skrifstofu. Sjá einnig fmeignir.is og mbl.is. 7910 BARÐASTAÐIR - GRAFARVOGI Áhugavert parhús á ágætum stað í vesturbæ Reykjavíkur. Húsið er um 210 fm að stærð, kjallari, tvær hæðir og ris. Í kjallara hefur verið komið fyrir sér- íbúð. Húsinu fylgir einnig 26 fm bílskúr. Nánari upplýsingar á skrifstofu FM, sími 550 3000 og í þjónustusíma sölumanna 893 4191 eftir lokun skrif- stofu. Sjá einnig fmeignir.is og mbl.is. 6603 VESTURBÆR - PARHÚS Vegna mikillar sölu að undanförnu bráðvantar allar tegundir eigna á söluskrá. VANTAR VANTAR FRAKKASTÍGUR - 101 REYKJAVÍK Erum með ágæta 73,2 fm 3ja-4ra herbergja íbúð á góðum stað nálægt Iðnskólanum. Sérinn- gangur. Miklir möguleikar á að gera mjög skemmti- lega og huggulega íbúð á besta stað í miðbæn- um. 2 stofur og 2 svefn- herb., annað lítið. Nýleg eldhúsinnrétting. Þvottahús í kjallara. Sameiginlegur garður og bílastæði. Stutt í alla þjónustu. Lyklar á skrifstofu. VERÐ 10,9 millj. Sími 594 5000 - Fax 594 5001 Lynghálsi 4//110 Reykjavík//Lögg. fasteignasali Halla Unnur Helgadóttir Miklabraut 60 - 2. hæð Opið hús sunnudag Valhöll, sími 588 4477 Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Vorum að fá í sölu fallega tals- vert endurn. 4ra herb. 113 fm íb. á 2. h. ásamt aukaherbergi í kjallara. Húsið verður viðgert að utan Á KOSTNAÐ SELJANDA. Nýl. raflagnir, nýl. endurn. þak, nýl. gólfefni, nýl. endurn. skolp. Mjög góð endurn. sameign. Mjög rúmgóð íbúð m. stórum herb. og í alla staði mjög vel skipulögð. Verið er að setja 3falt gler í glugga sem snúa að Miklubraut. Mjög gott verð 14,5 m. Opið hús í dag, sunnudag, milli kl. 14 og 16. Sólveig tekur á móti áhugasömum. www.hofdi.is Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteigna- og skipasali. Suðurlandsbraut 20 Sími 533 6050 Bæjarhrauni 22 Sími 565 8000 Til sölu verslunar og skrifstofuhúsnæði Ofanleiti 14 Til sölu 79 fm. verslunar og skrifstofuhús- næði ( Bitinn). Staðsetningin er í vinsælu og eftirsóttu fjölbýlishúsahverfi og stendur við lóð á móti Verslunarskólanum og skammt frá Kringlunni. Húsnæðið er gott einlyft hús á einni hæð og í mjög góðu ástandi, að- koma mjög góð með malbikuðum bílastæð- um. Flísalögð gólf. Snyrting. Milliloft sem gengið er upp á bakatil er áætlað c.a. 15-20 fm. er ekki skráð inn í fm.-tölu, er notað sem geymslurými. Við bílastæði er stórt auglýsingaskilti og geymslurými í stöplinum. Margvíslegir notkunnarmöguleikar. Lækkað verð, 12 mill. (3151) Opið hús í dag á milli kl 14 og 17 Klapparhlíð 22 í Mos. Í dag býðst þér og þínum að skoða glæsi- lega, fullbúna og vandaða, 2ja herb. íbúð á annarri hæð með sérinngangi. Nýlegt og eftirsótt fjölbýli. Húsið er lítið fjölbýli á tveimur hæðum, steinhús klætt með málmi og fallegu timburverki, sérinngangur í hverja íbúð. Byggingarár 2001. Í íbúð eru allar innréttingar, fataskápar og hurðar úr mahoný og gólfefni eru eikarpark- et og flísar. Þvottaherbergi /geymsla í íbúð. Ofnakerfi er rör í rör kerfi. Staðsetning er góð. Göngufæri í golf og stutt í verslun og þjónustu. Verð 11,3 mill. (4054) Lyklar á skrifstofu Höfða, Suðurlandsbraut 20. Sími 533 600 Jökull og Vala taka vel á móti ykkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.