Morgunblaðið - 19.09.2004, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.09.2004, Blaðsíða 34
UMRÆÐAN 34 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ HVAÐ kemur okkur við og hvað ekki? Í síðasta þætti Hildar Helgu Sigurð- ardóttur „Í vikulokin“ hlustaði ég á konu hella úr skálum reiði sinnar vegna skrifa Morg- unblaðsins um kostnað við bólusetningar gegn heilahimnubólgu. Kon- an taldi það sárustu móðgun að blaðið skyldi leyfa sér að halda því að lesendum að kostnaður við þessa „sjálfsögðu“ þjónustu væri 200 milljónir. Get- ur verið að konan sé svo vanþroskuð að hún viti ekki að öll þjónusta kostar peninga, jafnvel þjónusta við börnin okkar. Peninga sem einhver þarf að reiða fram og sem ekki verða þá sett- ir í annað. Ég er þakklát Morg- unblaðinu fyrir að láta mig vita í hvað peningarnir fara. Ég er nefnilega einn af skattborgurum þessa lands og hef ásamt samsveit- ungum, mátt sjá á eftir milljörðum í LínuNet lönguvitleysuna án þess að fá nokkuð í staðinn. Það hefði mátt bólu- setja nokkur börn fyrir þá peninga og þótt ég geti glaðst yfir því með konunni að börn á Ís- landi fái notið þessarar meðferðar, geri ég mér líka grein fyrir því að það eru forréttindi að búa í landi þar sem slík þjónusta er veitt. Það er nefnilega misskilningur hjá vesalings konunni að það sé eitthvað „sjálfsagt“ í lífinu. Heimtufrekja konunnar er fyrir ýmsar sakir athygli verð. Hvers vegna þessi heift út af jafnlitlu máli? Ég hefði skilið það ef fréttin hefði fjallað um að heilbrigðisráðherra hefði neitað að veita þjónustuna og faraldur væri í uppsiglingu. Getur verið að öll þessi hysteríska frekja með kröfur á hið opinbera sé birting- armynd bældrar samvisku vegna vanefnda foreldra við börn sín. Mín kenning er sú að þann dag sem al- menn sátt varð um að öll börn ættu „rétt“ á dagheimilisplássi, hafi þeim endanlega verið úthýst. Það voru ekki börn sem kröfðust þessa réttar, en það þarf ekki að skoða fréttablöðin lengi til að sjá að það eru börnin sem eru hin raunverulegu fórnarlömb þessarar þjóðar. Sama dag og þessi þáttur fór út á öldur ljósvakans fjallaði Morgunblaðið um tvær fréttir tengdar börnum. Önnur var vegna könnunar sem sýndi að foreldrar eru ákaflega ánægðir með leikskólavist barna sinna. Skal nokkurn undra. Hin var á baksíðu og greindi frá auk- inni tíðni sjálfsvíga hjá börnum undir 15 ára aldri. Þetta er skelfileg frétt, en aðeins ein af mörgum sem birst hefur að undanförnu og sýna vanlíðan og einstæðingsskap barna. Kennarar kvarta undan óróleika og kvíða skóla- barna. Umboðsmaður barna hvetur hið opinbera til rannsókna á streitu barna. Börnum með atferlisröskun fjölgar. Árásarhneigð þeirra eykst og offita barna er að verða að heilbrigð- isvandamáli. Þetta er fyrir utan allar fréttirnar af fíkniefnaneyslu barna og þeim glæpum sem henni tengjast. Það er ekki vegna skorts á ytri að- búnaði sem börnunum okkar líður ill, af honum hafa þau meira en nóg. En hamingja barnanna verður ekki keypt fyrir fé. Fjölmargar rann- sóknir sýna að jafnvel við bestu að- stæður kemur ekkert í staðin fyrir umhyggju sem börn verða aðnjótandi af sínum nánustu. Börn að þriggja ára aldri þurfa athygli sem er ein- staklingsbundin og beinist aðeins að þeim. Umönnun ókunnugra, þótt fyrsta flokks sé, getur ekki komið í stað ástar. Þetta er grunnur sem framtíð barna byggist á. Haft hefur verið eftir fyrrverandi yfirlækni á barnageðdeild að vandamál barna megi rekja til skorts á sam- verustundum fjölskyldunnar. Þessi ummæli eru ekki úr lausu lofti gripin og efist einhver um að börn séu af- skipt, þá má minna á ráðstefnu sem haldin var síðastliðinn vetur undir yf- irskriftinni Dagblöð í skólum. Enn og aftur er ábyrgðinni skotið út í geim- inn. Kvöð er sett á kennara, hið op- inbera og dagblöð að upplýsa börn og veita þeim aðstoð vegna áfalla sem þau verða fyrir vegna fréttaflutnings. Einn fyrirlesaranna taldi „nauðsyn- legt að meira sé gert af fjölmiðlaum- fjöllun í skólum og að dagblöðin sinni börnum frekar, til dæmis með dag- legri fréttasíðu fyrir börn“ (Mbl. des. 2003). Þessi frétt sýnir ófyrirleitna uppgjöf gagnvart viðfangsefninu. Það virðist ekki hvarfla að neinum að gera kröfur til að foreldrar sinni hlutverki sínu og tali við börnin. Sálarlíf for- eldranna þarf að verja hvað sem á dynur, þó svo að sálarháski barnanna þeirra sé næstum daglegt umfjöll- unarefni í öllum fréttamiðlum. Nú þegar afleiðingar dagvist- artrúarsetningarinnar eru að verða hverjum manni ljósar væri ekki úr vegi að reiða konan í útvarpsþætt- inum og allir sem bera sömu tilfinn- ingar í brjósti taki til skoðunar hvers vegna reiði þeirra beinist öll út á við. Liggur engin sök hjá ykkur? Þessu þarf að svara, því það eru ekki líkur á að vísindin finni í bráð bóluefni sem ver börn gegn foreldrum sínum. Réttur barna til heilbrigðis; hver ber ábyrgð? Ragnhildur Kolka skrifar um heimtufrekju ’Heimtufrekja kon-unnar er fyrir ýmsar sakir athygli verð. Hvers vegna þessi heift út af jafnlitlu máli? ‘ Ragnhildur Kolka Höfundur er meinatæknir. OPIÐ HÚS KL. 15-17 (Í DAG 19. SEPT.) EIÐISTORG 15 - 170 SELTJARNARNES Íbúð merkt 405 á bjöllu (Ólafur og Auður) - Gengið inn á Vesturhlið hússins Góð þakíbúð (penthouse) á tveimur hæðum í lyftuhúsi samtals 151,6 fm. Þetta er björt og rúmgóð íbúð á 4. og 5. hæð með fjórum svefnherbergjum. Komið er inn í for- stofu með flísum á gólfi og fataskáp. Gestasnyrting er með flísum á gólfi og uppá veggi. Eldhúsið er með flísum á gólfi og góðri innréttingu. Stofan og borðstofan eru með flísum á gólfi. Út frá stofu er sólstofa með upphituðum flísum á gólfi. Úr sólstofu er gengið út á suðursvalir, sem einnig eru flísalagðar. Stiginn upp á efri hæðina er með teppi og hol uppi er með teppi á gólfi. Skrifstofuherbergi með dúkflísum á gólfi. Hjónaherbergi er með dúkflísum á gólfi og fataskáp á heilum vegg, útgengt á norður- svalir úr hjónaherbergi. Frábært útsýni til norðurs. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum og stórum speglum. Baðkar, sturtuklefi og þakgluggi. Stórt svefnherbergi með dúk á gólfi og fataskáp. Mjög stórt svefnherbergi (stærra en hjónaherbergið) með teppi á gólfi og aukafermetrum sem ekki eru inní hjá F.M.R. sama er að segja um geymsluloft út frá holi uppi sem er ekki inní uppgefnum fermetrum. Góð geymsla er í kjallara og snyrtilegt þvottahús með góðum tækjum á hæðinni. Lyftan er rúmgóð, með fölsku baki sem hægt er að opna og setja í flutningaham. Innangengt er í versl- unarmiðstöðina á Eiðistorgi úr stigaganginum. Sölumenn Kletts fasteignasölu verða á staðnum og taka á móti gestum OPIÐ HÚS FRÁ KL. 15-17 Í DAG, 19. SEPT. HVERFISGATA 37 - 220 HAFNARFIRÐI Efri sérhæð. Björt og rúmgóð 86 fm íbúð í rótgrónu og skemmtilegu hverfi í Hafnarfirði. Íbúðin hefur verið endurnýjuð að hluta að utan á síðustu árum ásamt því að að innan var íbúðin endurnýjuð fyrir 7-8 árum. Skipt var um rafmagn, hitalagnir, skólplagnir, glugga, gler, innréttingar og gólfefni. Íbúðin er sögð 86 fm, þar af er risloftsherbergi sagt 8,2 fm en í raun nýtist risið mun betur, m.a. sem 20 fm geymslupláss. Lýsing íbúðar: Komið er inn í flísalagða forstofu og gengið upp stiga sem liggur upp til íbúðar. Þar er komið inn í hol og í þessu rými er að finna flísalagt baðherbergi með sturtu og eitt herbergi með parketi. Eldhúsið er opið og rúmgott með góðri hvítri innréttingu ásamt tengi fyrir uppþvottavél, úr eldhúsi er útgengi út á svalir, gólfefni á eldhúsi er lökkuð steypa. Úr eldhúsi er gengið inn í bjarta og góða borðstofu með suðurgluggum og þaðan er gengið inn í stofuna. Góð lofthæð er í íbúðinni og fallega gengið frá loftlistum meðfram henni. Úr stofu er aðgengi að hjónaherbergi sem er með rúmgóðum skáp. Á stofu, borðstofu og hjónaherbergi er parket á gólfi. Íbúðin er öll mjög björt og opin, góðir gluggar eru á herbergjum og gott skipulag innan íbúðar. Hannes og Edda taka vel á móti gestum. Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17 Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 Ægir Breiðfjörð löggiltur fasteignasali Íbúðin er 80 fm á efstu hæð í þessu vel staðsetta fjölbýlishúsi og snýr hún að höfn- inni og er með einstöku útsýni yfir höfnina og út á Flóann. Íbúðin er sem ný - mjög vel skipulögð og rúmgóð. Tvö svefnherbergi, góð stofa, eldhús með borðkrók, þvotta- hús í íbúðinni og glæsilegt baðherbergi o.fl. Verð kr. 14,5 millj. SUÐURBRAUT 2 - HAFNARFIRÐI OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14 TIL 16 GLÆSIÍBÚÐ MEÐ ÚTSÝNI YFIR HÖFNINA Til sölu hjá Eignamiðluninni og Fasteignamarkaðnum eitt allra glæsilegasta einbýlishúsið í Reykjavík. Um er að ræða yfir 400 fm hús á 2 hæðum auk rishæðar, kjallara og bíl- skúrs. Húsið er staðsett á einni af stærstu einbýlishúsalóðum borgarinnar við Fjöln- isveg í Þingholtunum. Í húsinu eru 3 stofur, stórt eldhús, stór borðstofa, mjög stórt fjölskyldurými, fullkomin Spa-aðstaða og allt að 5 svefnherbergi. Í húsinu er full- komið öryggis- og brunavarnarkerfi og allur frágangur og efnisval í besta gæða- flokki. Glæsilegt útsýni og stór skjólgóður garður. Búið er að endurnýja húsið frá grunni á einstaklega vandaðan og glæsilegan máta. Hér er um að ræða fágæta eign, enda eru einbýlishús af þessari stærð og með slíka staðsetningu afar fá í Reykjavík. Húsið er í senn staðsett í fáfarinni og frið- sælli götu en jafnframt aðeins í 5 mínútna göngufjarlægð frá iðandi mannlífi miðborgarinnar. Allar nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson á skrifstofu Eignamiðlunarinnar í síma 588 9090 og Jón Guðmundsson á skrifstofu Fasteignamarkaðarins í síma 570 4500. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. fastmark@fastmark.is www.fastmark.is Til sölu mjög fallegt, vandað og vel staðsett 50,6 fm heilsárshús ásamt 15 fm svefnlofti. 80 fm verönd er í kringum húsið, hitaveita, rafmagn, kamína, sturta, o.fl. Bústaðurinn stendur á u.þ.b. 1 hektara kjarrivöxnu eignar- landi. Mjög fallegt allt í kring og gott útsýni. Altt fyrsta flokks. Leyfi til að byggja allt að 20 fm gestahús á lóðinni. Húsið er í Svarfhóls- skógi (Vatnaskógi) skammt frá Eyrarvatni og í aðeins 58 km fjarlægð (45 mín.) frá Reykjavík. Húsið er laust strax. SUMARHÚS (HEILSÁRSHÚS) - VATNASKÓGI Nánari upplýsingar gefur Karl í síma 896 2822. karl@fasteignathing.is Hverfisgata - Glæsilegt Álftamýri - Endaraðhús Fallegt 280 fm endaraðhús á pöllum við Álftamýri í Reykjavík. Eignin skipt- ist m.a. í rúmgott eldh., sjónvarpshol, stofu, borðstofu, fjölskyldurými, bað- herbergi og fjögur herbergi. Arinn. Gott skipulag. Garðurinn er í mikilli rækt og er hann mjög fallegur. Gryfja undir bílskúr. Frábær staðsetning. V. 33 m. 4472 Um 150 fm hæð sem skiptist m.a. í stórar stofur, 2 herbergi, stórt eldhús, baðherb o.fl. Bílskúr fylgir en hann er 43,8 fm. Eignin var öll endurnýjuð fyr- ir nokkrum árum. Suðursvalir. Ákv. sala. V. 23 m. 4457
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.