Morgunblaðið - 19.09.2004, Page 21
Úrslitin í ítalska boltanum
beint í símann þinn
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 21
„Fyrst eftir að vitinn var reistur
var olíulampi í honum. Það var heil-
mikil passasemi í kringum lamp-
ann. Mátti ekki vera of lítið ljós og
heldur ekki of mikið, því þá fór log-
inn að ósa og glerið sortnaði,“ segir
Óskar. Á árum síðari heimsstyrj-
aldarinnar voru fyrstu tilraunir
gerðar til að rafvæða vitann. Sett
var upp vindorkustöð sem hlóð raf-
geyma. „Það var hellingur af raf-
geymum og ég hafði gaman af að
horfa á þegar fór að sjóða á geym-
unum,“ segir Óskar. „Vindmyllan
gafst illa, hún þoldi ekki veðrin.
Það var alltaf bras og bilerí.“
Næsta tækniframför fólst í
bensínknúinni rafstöð sem hlóð
geymana. Vitavörðurinn þurfti enn
sem fyrr að kveikja á vitanum þeg-
ar rökkvaði og slökkva eftir birt-
ingu. Nú sér sjálfvirkur ljósnemi
um það. Díselknúin rafstöð kom ár-
ið 1956 og segir Óskar að hún hafi
verið áreiðanlegri en bensínmót-
orinn og mikil framför. Árið eftir
var bætt um betur þegar komu
tvær Deutz-ljósavélar. „Þær voru
mjög gangvissar og hægt að skipta
á milli vélanna eftir þörfum. Þetta
var þá orðið nokkuð gott,“ segir
Óskar.
Veiturafmagn náði ekki á Stór-
höfða fyrr en 1979. „Það tók á ann-
að ár að koma strengnum seinasta
kílómetrann,“ segir Óskar og þótti
honum það heldur mikill hæga-
gangur. Löngu áður en rafmagnið
náði upp í Stórhöfða var búið að
leggja fjarskiptastreng yfir Atl-
antshafið, sem kemur á land í
Höfðavík, rétt neðan við Stórhöfða.
Óskar segir það hafa verið mikla
framför að fá veiturafmagnið. „Þá
þurfti ekkert lengur að hugsa um
ljósavélarnar. Og kyrrðin sem ríkti
þegar maður losnaði við hávaðann!
Þess betra sem veðrið var, því hærri
var dynurinn í ljósavélunum. Þótt vél-
ar séu gangvissar, þá geta þær bilað.
Mér þótti óþægilegt að vakna við að
ljósavélin var hætt að ganga. Allt orð-
ið rafmagnslaust! Manni brá við það.“
Óskar segir framtíð vitavarðar á
Stórhöfða mjög óljósa. Þróunin hefur
verið sú að leggja af búsetu í vitum og
veðurathuganir eru víða orðnar sjálf-
virkar. Það gefur þó ákveðnar vonir
um að áfram verði þörf fyrir starfsfólk
á Stórhöfða að þar hefur verið komið
fyrir ýmsum mælitækjum sem þarfn-
ast eftirlits. Þar á meðal eru síur sem
notaðar eru til rannsókna á mengun í
andrúmslofti. Þá er safnað andrúms-
lofti á geyma sem sendir eru til
Bandaríkjanna til rannsókna. Eins er
safnað regnvatni sem sent er til rann-
sókna í Noregi. „Maður veit ekki neitt
um framtíðina, en í bili styrkir þetta
staðinn. Það sem vísindamenn sjá við
Stórhöfða er hvað hann er mikið fyrir
opnu hafi,“ segir Óskar.
Heimsmetshafi í merkingum
Óskar hóf að merkja fugla árið 1953
og hefur merkt að meðaltali 1.594
fugla á hverju ári síðan. Óskar heldur
nákvæmt bókhald yfir merkingarnar,
fjölda fugla, tegundir og númer
merkja. Hinn 31. desember síðastlið-
inn stóð talningin í 81.281 fugli og í
byrjun júní hafði Óskar merkt um 400
fugla frá áramótum. Miðað við stöð-
una í árslok 2003 var langmest af
lunda eða 53.386 fuglar, því næst
komu 19.157 fýlar. Alls hefur Óskar
merkt fugla af 40 tegundum, raunar
aðeins einn einstakling af nokkrum
eins og turtildúfu, múrsvölungi, grá-
hegra, glóbrystingi og branduglu.
Gjarnan hefur verið komið með fá-
gæta fugla til Óskars til merkingar,
stundum af skipum þar sem fuglarnir
hafa leitað skjóls og hvíldar.
„Það er langsniðugast að veiða og
sleppa eins og ég geri,“ segir Óskar.
„Ég er svolítið á undan öðrum hvað
þetta varðar í fuglaveiðinni, þótt þeir
hafi stundað þetta í laxveiðinni.“
Óskar hefur verið ötull og áhuga-
samur við þessa óvenjulegu tóm-
stundaiðju. „Ég var einu sinni talinn
heimsins mesti fuglamerkingamaður,
miðað við fjölda fugla,“ segir Óskar
hógvær. „Þá voru fuglarnir 67 þús-
und talsins, en nú eru þeir orðnir
tæplega 82 þúsund.“
Langförulir lundar
Óskar hefur venjulega byrjað
lundamerkingarnar í júnímánuði og
sótt lunda í holur. „Það hefur stöku
sinni verið góð veiði í háf í júní. Þá
hefur maður frið meðan veiðigarp-
arnir eru ekki mættir. Þeir koma
stundvíslega 1. júlí. Þá er eldri geld-
fuglinn kominn, en yngri geldfuglinn
kemur um miðjan júlí.“
Óskar segir hægt að lesa aldur af
nefi lunda með nokkurri nákvæmni
þar til fuglinn nær fimm ára aldri og
verður kynþroska. Eftir það sé erf-
iðara að aldursgreina eftir nefinu.
Merkin eru þó óyggjandi heimild um
aldur, sérstaklega ef fuglinn hefur
verið merktur sem ungi. Því er hægt
að greina nákvæmlega hvernig t.d.
nef lundans þroskast með aldrinum
og eins hægt að ákvarða varpaldur
heimur
Glæsileg hönnun, vandaður frágangur og frábær staðsetning.
Öllum íbúðum fylgir merkt stæði í bílageymslu og lyftur ganga
milli allra hæða. Íbúðirnar eru afhentar fullinnréttaðar með
Brúnás - innréttingum og án gólfefna. Nokkrar íbúðir eru enn
fáanlegar á þessum frábæra stað. Verð frá 20,4 millj.
Teikningar og nánari upplýsingar á www.eykt.is • Arkitektar: T.ark, Brautarholti 6
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
0
6
0
1
Umboðssala og nánari upplýsingar: Kjöreign Sími 533 4040
SKÓGARSEL – ALASKAREITUR
TIL SÖLU ÍBÚÐIR Í FJÖLBÝLI 105m2 – 145m2
Íbúð 307 – 3ja herb – 137,5m2
Björt og falleg íbúð með sérinngangi af
svölum. Mjög stórar svalir, rúmgóð herbergi
og opið eldhús. Þvottahús inn af baði.
Íbúð 201 – 3ja herb – 142m2
Gríðarlega stór stofa með útgang á suður-
svalir, stórt og fallegt eldhús, sérinngangur
af svölum. Þvottahús inn af baði.
Góð hljóðeinangrun
Hiti í öllu bílaplaninu
Vandaðar Brúnás – innréttingar
Stæði í bílageymslu með öllum íbúðum
Góður lóðarfrágangur