Morgunblaðið - 19.09.2004, Síða 25
fingrum fram. Ég kallaði bara tón-
tegund og öskra eitthvað á borð við
,,Get ready for love“ og svo byrj-
uðum við að hamast á hljóðfær-
unum. Og eftir fimm mínútur af ka-
otísku rugli virtist yfirleitt
einhverskonar lag skríða undan lát-
unum. Við tókum upp efni sem
myndi nægja á tíu geisladiska, sumt
af því var hreinasti hryllingur og
sumt var virkilega gott. Þarna voru
hlutir sem voru eins og tært þunga-
rokk. Korterslöng lög sem hljómuðu
eins og trommuleikarinn ætti að
vera með víkingahjálm, ég vona að
það dót sleppi ekki út á veraldarvef-
inn.
Eftir þessa sessjón gat ég síðan
farið með góðu lögin á skrifstofuna
til að semja texta við þau. Það er
nefnilega erfitt að semja hávær
rokklög á píanó inni á skrifstofu, það
þarf mikið sjálfsöryggi til þess, því
þau hljóma svo veikburða við þær
aðstæður. Þannig er auðveldara að
humma fram hægar ballöður.“
Nick lætur sem borðið sem við
sitjum við sé flygill og gefur mér
tóndæmi um það hvað „Get ready
for love“ hljómar aumingjalega þeg-
ar einn maður raular það fyrir
munni sér. Hann hristir hausinn og
tekur svo nokkur hæg ballöðustef
sem henta sólóraularanum mun bet-
ur, raulið deyr út og við kinkum báð-
ir kolli íhugulir í sinni.
Nógu gott fyrir Gainsbourg
Nú var platan tekin upp í París,
veitti borgin þér listrænan inn-
blástur?
„Já, það má segja að borgin hafi
haft töluverð áhrif, til dæmis hvern-
ig við unnum plötuna. Við bókuðum
tvær vikur í upptökur, það er yf-
irdrifið nægur tími fyrir okkur til að
taka upp eina plötu, en til að taka
upp tvær var tíminn naumur og við
unnum yfirleitt fram á kvöld. Það er
sama hvenær ég fer að sofa, ég
vakna alltaf fyrir allar aldir og á
hverjum morgni dreif ég mig út í
Tuleries-garðinn sem var skammt
frá hótelinu mínu. Þar átti ég yfir-
leitt þrjár stundir útaf fyrir mig þar
sem ég gat farið yfir stöðuna og
verkefni dagsins. Þetta virkaði vel á
mig. Ef maður tekur upp í hljóðveri í
London þá vaknar maður bara í and-
skotans London... Ég er ekkert
voðalega hrifinn af London, en
þarna vorum við í París í vorblóm-
anum. Við vorum í Ferber-
hljóðverinu sem er gamalt og gróið.
Serge Gainsbourg tók upp þar og ef
það var nógu gott fyrir hann þá er
það er nógu gott fyrir mig. Útbún-
aðurinn er gamall og stemmningin
er í gamla djass stílnum og það
hjálpaði sándinu, því margt af því
sem við gerum er að miklu leyti spil-
að af fingrum fram á svipaðan hátt
og djass. Við gerðum kannski þrjár
upptökur af sama laginu og þær
reyndust allar vera gjörólíkar. Við
byrjuðum að nota þessa aðferð fyrir
síðustu plötu, Nocturama. Við förum
í hljóðverið án þess að gjörþekkja
lögin og bandið fær frelsi til að prófa
sig áfram. Þannig fær hljómsveitin
stærra hlutverk í lagasmíðinni.
Þetta er góð aðferð, ég passaði líka
upp á að söngröddin yrði ekki yf-
irgnæfandi á nýju plötunni, heldur
hvíli betur í tónlistinni. Röddin er
svo yfirgnæfandi á No More Shall
We Part, er eins og veggur og
Hinn djúpt þenkjandi og rokkaði síðpönkari
Nick Cave er að senda frá sér nýjan geisladisk,
Abattoir Blues, sem er tvöfaldur og svolítið
sögulegur. Af því tilefni fór Dagur Gunnarsson
til Brighton og náði tali af kappanum.
kara
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 25
! "#
$ % &&&% %
!" # $"
%&
'(
'(
)( *!+ ' &
, - & ( (
( ( )
(
'(
'
. .
/
%01
'% (
)*
+
,-
2( . ( ( ) 3
.*
+
/
( . ( (
/ / 0
% 1
2
3
3
+
/
/
( 4% 4
.*
5*6 +
6 67 ' ( . (
( .*
* +
*
706
8 2%/ ( !*
/ 3 +
9(7' ) . ( (
.*
8/ +
7'
./
9 2%
%
,- / 2:
/9
/
6/
,-
9
!9 "#
;0*
9 $ % Hádegisverðarfundur ÍMARK um mikilvægi innri
markaðssetningar verður haldinn miðvikudaginn
22. september kl. 12.00–13.30 á Nordica hotel.
Framsögumenn:
Kristján Schram,
markaðsráðgjafi hjá Íslensku auglýsingastofunni
„Að sá fræum innri markaðssetningar“.
Herdís Pála Pálsdóttir,
sérfræðingur hjá starfsmannaþjónustu Íslandsbanka
„Samstarf markaðs- og fræðsludeilda
varðandi innri markaðssetningu“.
Jensína K. Böðvarsdóttir,
fyrrverandi framkvæmdastjóri mannauðssviðs IMG
„Frá svartsýni til sigurs – hvernig innri
markaðssetning skilar árangri“.
Fundarstjóri er Helga Friðriksdóttir,
framkvæmdastjóri smásölusviðs hjá Olís.
Þátttökugjald er 3.000 kr. fyrir félagsmenn ÍMARK, 4.000 kr. fyrir
aðra. Innifalið er léttur hádegisverður og kaffi. Nánari upplýsingar
og skráning er á www.imark.is og einnig má skrá þátttöku með
tölvupósti á imark@imark.is.
Mikilvægi innri
markaðssetningar!
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
Kýpur
- Jólaferðir
17. og 22. desember
frá kr. 85.233
Kýpur, eyjan fyrir botni Miðjarðarhafsins, þar sem er að finna minjar frá árdögum
evrópskrar hámenningar. Sólríkar strendur ylja fölum frónbúum og furuvaxin fjöllin eru
ævintýri líkust. Afslappað andrúmsloft, góðir veitingastaðir, spennandi skemmtistaðir,
glæsileg hótel, góðar gönguleiðir, íþróttir í úrvali jafnt á sjó sem landi. Kýpverjar eru
heiðarlegt og vingjarnlegt fólk sem dáir börn og fjölskyldan er í fyrirrúmi. Hér geta allir
aldurshópar sameinast í fullkomnu fríi og fyrir þá sem þess óska eru siglingar til
Egyptalands rúsínan í pylsuendanum.
17 des. - 3. jan. 17 dagar
22. des - 3. jan. 12 dagar
Verð kr. 85.233 á mann
Miðað við 2 fullorðna og 2 börn í 12 nætur í
íbúð m/1 svefnh. á Atlantica Balmyra Beach.
Innifalið: flug, flugvallarskattar, gisting og
íslensk fararstjórn.
Verð kr. 89.990 á mann
Miðað við 2 í stúdíó í 12 nætur
á Estella Hotel Apartments. Innifalið: flug,
flugvallarskattar, gisting og íslensk
fararstjórn.
Fréttir á SMS