Morgunblaðið - 19.09.2004, Side 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 35
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Vegna skipulagsbreytinga eigum
við eftirfarandi til ráðstöfunar í
þessu glæsilega húsi.
2. hæð , samtals 336 fm. skrifstofur
(Mögulegt að skipta upp)
2. hæð , samtals 172 fm. skrifstofur
3. hæð , samtals 312 fm. skrifstofur
Skrifstofur í toppstandi, gott lyftuhús, glæsilegt
útsýni yfir Laugardalinn. Húsnæðið uppfyllir allar
kröfur til nútíma skrifstofureksturs. Eignin er í eigu
Landsafls, sem er öflugt sérhæft fasteignafélag,
Sjá nánar á heimasíðu www.landsafl.is
Sanngjörn og hagstæð leiga fyrir rétta aðila.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242.
Suðurlandsbraut - Til leigu
MIÐHÚS - VANDAÐ EIN-
BÝLI Vandað og fallegt 210 fm tvílyft ein-
býlishús á rólegum stað í botnlanga í Húsa-
hverfinu í Grafarvogi með bílskúr. Eignin
skiptist m.a. í stofu, borðstofu, eldhús,
snyrtingu, þvottahús, búr, sjónvarpshol,
baðherbergi og fjögur herbergi. Vandaðar
innréttingar og gólfefni. Fallegur gróinn garð-
ur með timburverönd. V. 34 m. 4474
BLÖNDUHLÍÐ - M. AUKA-
ÍBÚÐ Fallegt og björt fimm herb. 140 fm
neðri sérhæð ásamt 38 fm bílskúr sem er
nýttur sem séríbúð. Hæðin skiptist í hol, eld-
hús, baðherbergi, þrjú stór herbergi, stofu
og borðstofu. Húsið hefur mikið verið stand-
sett m.a. nýtt þak, skolplagnir, steypuviðgert
o.fl. Mjög athyglisverð eign. V. 23,9 m. 9375
MÁVAHLÍÐ - RÚMGÓÐ Vorum
að fá í sölu mjög fallega 112 fm efri hæð í 4-
býlishúsi við Mávahlíð. Íbúðin skiptist m.a. í
tvær samliggjandi stofur og tvö herbergi.
Svalir til suðurs. Falleg lóð. Íbúðinni fylgir
sérbílastæði. V. 17,9 m. 4470
SKELJAGRANDI - LAUS 4ra
herb. falleg og óvenju björt 100 fm íbúð á 2.
hæð m. sérinngangi af svölum og stæði í
bílageymslu. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, 3
herbergi, eldhús, bað og stóra stofu m. suð-
ursvölum. V. 14,9 m. 3338
KLAPPARSTÍGUR - GLÆSI-
LEGT ÚTSÝNI Vorum að fá í sölu
sérstaklega glæsilega 117 fm íbúð á 8. hæð
í lyfthúsi. Íbúðin skiptist m.a. í tvær saml.
glæsilegar stofur og tvö herbergi. Flísalagðar
suðursvalir. Íbúðinni fylgir merkt stæði í bíla-
geymslu. Einstakt útsýni. V. 24,5 m. 4297
SKÚLAGATA - ELDRI
BORGARAR Falleg 3ja herbergja íbúð
á 2. hæð í húsi fyrir eldri borgara við Skúla-
götuna. Eignin skiptist m.a. í hol, tvö her-
bergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Salur f.
eldri borgara í sameign. Falleg íbúð. V. 18,9
m. 4476
BOÐAGRANDI 7 Glæsileg 3ja her-
bergja íbúð á 4. hæð með suð-austursvöl-
um. Íbúðin skiptist m.a. í stofu, eldhús, tvö
herbergi og baðherbergi. Ný gólfefni. Falleg
og stílhrein íbúð. V. 13,7 m. 4415
GAUTLAND Falleg og björt 48,0 fm
2ja herb. íbúð á vinsælum stað í Fossvogin-
um sem snýr öll í suðurátt. Eignin skiptist
m.a. í forstofu, baðherbergi, herbergi, eld-
hús og stofu. Sérgeymsla á jarðhæð. Ný-
standsett baðherbergi. Húsið er allt nýtekið í
gegn að utan. Þak er nýtt. V. 10,5 m. 4477
ÁLFTAMÝRI - ÚTSÝNI Vorum
að fá í sölu mjög fallega og mikið standsetta
64 fm íbúð á 4. hæð í fjölbýlishúsi. Svalir til
suðurs. Mjög fallegt útsýni. Verið er að gera
við og mála húsið og greiðir seljandi kostnað
vegna þess. V. 11,1 m. 4467
MARKLAND 2ja herb. 55 fm björt
íbúð á jarðhæð m. sérgarði. Íbúðin hefur
mikið verið endurnýjuð s.s. skápar, gólfefni
(parket og flísar), baðherb. o.fl. Ný timbur-
verönd til suðurs. Laus strax. V. 10,9 m.
4475
BOGAHLÍÐ Mjög vel skipulögð 2ja
herbergja íbúð á jarðhæð á þessum frábæra
stað. Íbúðin skiptist í herbergi, stofu, eldhús
og bað. Íbúðin er ekkert niðurgrafin og húsið
er í góðu ásigkomulagi. Góð geymsla. V.
10,5 m. 4312
Glæsileg og mikið uppgerð 3ja-4ra herbergja
80 fm íbúð á 2. hæð í tvíbýlishúsi á góðum
stað í 101. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi,
baðherbergi, stofu sem er samliggjandi borð-
stofu sem er jafnframt eldhús. Í kjallara er
sérgeymsla og sameignarþvottahús. Eignin
er mikið endurnýjuð m.a. ný sérsmíðuð eld-
húsinnrétting, nýtt baðherbergi, ný gólfefni,
ný tæki í eldhúsi, nýtt rafmagn og húsið nýmálað ásamt því að útbúin hafa verið bílastæði
á baklóð og hellulögð verönd. V. 17,5 m. 4455
EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG,
FRÁ KL. 13-15 - Anna Dís tekur á móti fólki
OPIÐ HÚS - EGILSGATA 14 - 2. H.
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð löggiltur fasteignasali
Mjög rúmgóð og vel skipulögð hæð og
ris, um 163 fm. Auk þess bílskúr um 41
fm. Í íbúðinni eru 4 svefnherbergi og 3
stofur, glæsilegt eldhús o.fl. Hægt er að
fjölga svefnherbergjum. Tvennar svalir,
hornlóð með góðum garði. Mjög áhuga-
verð eign. V. 24,9 m. 6340
HJALLAVEGUR
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Uppl. veitir
Magnús Gunnarsson,
s. 588 4477 eða 822 8242.
Er með kaupanda að 500-700 fm húsnæði undir
samkomu- og veislusal með góðri lofthæð í lyftuhúsi.
Verður að rúma um 200 manns í sæti og geta skipst í minni einingar.
Húsnæðið þarf að vera vel staðsett með nægum bílastæðum.
Æskileg staðsetning væri Reykjavík, Kópavogur eða Garðabær.
Samkomu- og veislusalur óskast
ÞAÐ ER vel til fundið hjá sveit-
arfélögunum að taka
virkan þátt í árlegri
samgönguviku Evr-
ópu. Greiðar, heilsu-
samlegar og öruggar
samgöngur eru jákvæð
kennimerki borga.
Umferðartafir, loft-
mengun, yfirþyrmandi
bílamassi og umferð-
arhávaði einkenna
borgir í vanda. Allir
virðast nokkuð sam-
mála um mikilvægi
góðra samgangna en
skiptar skoðanir virð-
ast vera um hvernig þeim verði best
náð. Nokkrir sveitarstjórnarmenn á
höfuðborgarsvæðinu hafa nýlega
mælt gegn viðbótarkostnaði upp á
tæplega 200 m.kr. á ári sem ætlað er
að bæta strætósamgöngur á höf-
uðborgarsvæðinu, en árlegur heild-
arkostnaður við þær er um 2 millj-
arðar króna á ári. Sú fjárhæð virðist
ekki há í samanburði við þá 65 millj-
arða króna sem ráðgert er að ráð-
stafa til að byggja upp stofn-
brautakerfi höfuðborgarinnar á
næstu tuttugu árum og lýst er í ný-
legu svæðisskipulagi höfuðborg-
arsvæðisins. Þetta er ekki heldur há
fjárhæð miðað við þá liðlega 30 millj-
arða króna sem íbúar höfuðborg-
arsvæðisins taka árlega úr sínum
vösum til reksturs einkabílsins.
Í svæðisskipulagi höfuðborg-
arsvæðisins til ársins 2024 er áætlað
að íbúum svæðisins fjölgi um tæp-
lega 30% á tímabilinu og að heildar
ökutími íbúanna vaxi um 54%. Árið
2024 er áætlað að íbúar á höfuðborg-
arsvæðinu eyði að jafnaði 45 mín-
útum undir stýri á dag, í samanburði
við 38 mínútur árið 2002, til að koma
sér í vinnuna, út í búð, í ræktina, í
skólana o.s.frv. Áætlað er að hver
ferð verði að meðatali 5,8 km löng og
taki um 9,3 mínútur. Meðalhraði
verður því um 37 km á klst. sem er
eilítið hærra en árið 2002. Það má
því segja að 65 milljarða króna fjár-
festing geri höfuðborgarbúum kleift
að viðhalda núverandi samgöngu-
hraða, en vegna stækkunar borg-
arinnar þurfa borgararnir að jafnaði
að aka talsvert lengra en nú er. Al-
menningssamgöngur á höfuðborg-
arsvæðinu svara til um 4% af sam-
göngueftirspurninni. Í evrópskum
borgum af áþekkri stærð er þetta
hlutfall á bilinu 20 til 40% svo nokk-
urt sóknarfæri ætti að vera fyrir
hendi hjá okkur. Almennt er við-
tekið að góðar almennings-
samgöngur dragi til sín við-
skiptavini, minnki umferðarþunga
og mengun andrúmsloftsins og geti
sparað samfélaginu verulegt fé.
Nota má fjölmargar leiðir til að
sýna fram á fjárhagslega hag-
kvæmni almenningssamgangna. Ein
leið er að meta hag þeirra sem þrátt
fyrir allt kjósa að nota einkabílinn en
ekki strætó. Gefum okkur að stjórn-
völd vildu styrkja almennings-
samgöngur þannig að það mætti
verða til þess að auka
meðal ferðahraða í
borginni um 5–6%.
Þetta fæli í sér að dag-
legum stundum sem
ökumenn eyddu undir
stýri myndi fækka um
10 þúsund. Þetta undir-
strikar að jafnt þeir
sem nota einkabílinn
og þeir sem nota
strætó geta haft mik-
inn hag af bættum al-
menningssamgöngum.
Það má meta fram-
angreindan tímasparn-
að til fjár. Varlega má meta hverja
klukkustund undir stýri á 800 kr.
Kjararannsóknanefnd metur meðal
tímalaun tvöfalt hærri svo þetta er
afar varfærnislegt. Heildarsparn-
aður á dag næmi að gefnum þessum
forsendum liðlega 8 milljónum
króna. Tökum helminginn af þeirri
fjárhæð og veitum til almennings-
samgangna. Útkoman yrði viðbót-
arframlag sem næmi um einum og
hálfum milljarði króna á ári. Hækka
mætti metinn ávinning umtalsvert
með því að leggja fjárhagslegt mat á
að minna af heilsuspillandi efnum og
gróðurhúsalofttegundum færu út í
andrúmsloftið og telja þann sparnað
sem nýir viðskiptavinir Strætó
myndu uppskera. Staðreyndin er að
fjölmargt fer í plús ef okkur farnast
að gera almenningssamgöngur að
skilvirkari og eftirsóttari valkosti:
farþegarnir í strætó komast í plús
vegna betri þjónustu, þeir sem kjósa
einkabílinn komast í plús þar sem
minni umferð sparar þeim ferða-
tíma, umhverfið vegna minni loft-
mengunar og hávaða og heilsan
vegna færri rykagna í andrúmsloft-
inu. Sveitarstjórnarmenn á höf-
uðborgarsvæðinu hafa því ríka
ástæðu til að fagna trúverðugri
áætlun um skilvirkari almennings-
samgöngur og geta með góðri sam-
visku veitt þeim brautargengi með
almannafé.
Betri strætó – meiri hagsæld
Tryggvi Felixson fjallar
um samgönguviku Evrópu ’Það má meta framangreindan tíma-
sparnað til fjár.
Varlega má meta
hverja klukkustund
undir stýri á 800 kr. ‘
Tryggvi Felixson
Tryggvi Felixson er hagfræðingur
og starfar sem framkvæmdastjóri
Landverndar og á vettvangi
sveitarstjórnarmála.