Morgunblaðið - 19.09.2004, Qupperneq 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 43
Elsku vinur.
Mig langar í fáeinum
orðum að þakka þér
fyrir allt sem þú hefur
gert fyrir mig í gegnum
árin. Ég þakka þér fyr-
ir traustan vinskap og
ómetanlegan stuðning. Dugnaður-
þinn og ósérhlífni í þágu FH mun
vara að eilífu. Þú varst ávallt tilbúin
þegar FH þurfti á kröftum þínum að
halda. Þú varst alltaf trúr og traust-
ur og sannur í þínum orðum. Þú
varst burðarstólpi í þínu starfi og
áttir engan þér líkan. Vandamálin
voru til þess að leysa þau, varstu
ÞÓRIR JÓNSSON
✝ Þórir Jónssonfæddist í Hafnar-
firði 25. mars 1952.
Hann lést af slysförum
að morgni 19. maí síð-
astliðins og var útför
hans gerð frá Víði-
staðakirkju í Hafnar-
firði 27. maí.
vanur að segja og þú
lést verkin tala. Þitt
hjarta var á réttum
stað og barstu ætíð hag
annarra fyrir brjósti,
enda varstu mikill mað-
ur.
Nú þegar ég skrifa
þessi orð get ég ekki
tára bundist, kaldur
raunveruleikinn hefur
numið þig á brott úr
blóma lífsins frá fjöl-
skyldu þinni, ástvinum
og börnum, óréttlæti
heimsins hefur engin
takmörk og eftir sitjum
við með söknuð í hjarta. Ef þú bara
vissir hversu marga þú hefur snert á
þinni lífsleið og hversu góða hluti þú
hefur gert í þágu annarra, þitt skarð
mun aldrei verða fyllt og mun minn-
ingin um þig standa um ókomna tíð í
hjarta okkar sem höfum verið það
lánsöm að kynnast þér á okkar lífs-
leið.
Það eru ekki nema tvær vikur síð-
an ég talaði við þig síðast, ég var í
Svíþjóð og þú varst að klára vinnu-
daginn, og á leið uppí Kaplakrika að
leggja lokahönd á undirbúning
karlakvöldsins sem átti að vera um
kvöldið, þú vildir vita hvernig mér
leið og hvort allt væri ekki í góðu
lagi, ég kvað svo vera og áttum við
gott tal. Eins og alltaf endaðir þú þitt
samtal á því að spyrja mig hvenær
ég ætlaði svo að koma heim og spila
fyrir FH-ingana, mér leið alltaf vel
eftir að hafa talað við þig. Ég vil líka
þakka þér fyrir orðin sem þú gafst
mér sem vegarnesti við útskrift mína
og trúlofun okkar Völu um árið, þeim
mun ég aldrei gleyma, ég mun
geyma þau um aldur og ævi. Elsku
Erla Björg, Auður Dögg, Björk og
Hjörtur mínar dýpstu samúðar-
kveðjur til ykkar, megi guð og gæfan
blessa ykkur á þessum erfiða tíma og
í gegnum allt lífið. Pabbi ykkar var
mikill maður sem mun lifa í hjarta
okkar að eilífu. Blessuð sé minning
þín elsku Þórir.
Þinn vinur,
Auðun Helgason.
Þær héldu alltaf
hópinn nokkrar sam-
starfskonur og vinkon-
ur af skrifstofu
KRON, sem hittust
alltaf reglulega yfir
kaffi og spjalli hver hjá annarri til
skiptis, Jóhanna, móðir mín, og Sig-
SIGRÚN SKARP-
HÉÐINSDÓTTIR
✝ Sigrún Skarp-héðinsdóttir
fæddist í Reykjavík
23. júlí 1914. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Skógarbæ
28. ágúst síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Fríkirkj-
unni 7. september.
rún þar á meðal.
Þannig kynntist ég
Sigrúnu. Hún var
ákaflega skemmtileg
viðkynningar og í við-
ræðu, og ævinlega hlý-
leg, hvenær sem ég
hitti hana. Við leiðar-
lok er ég þess vegna
full af þakklæti fyrir
góð kynni og bið henni
allrar Guðs blessunar,
þar sem hún er nú.
Aðstandendum hennar
votta ég mína dýpstu
samúð.
Blessuð sé minning
Sigrúnar Skarphéðinsdóttur.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir.
Bróðir minn, mágur okkar og frændi,
HAUKUR JÓNSSON,
Rauðalæk 61,
Reykjavík,
andaðist á Líknardeild Landspítalans í Kópa-
vogi mánudaginn 13. september.
Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn
20. september kl. 13.30.
Erla Jónsdóttir, Stefán Aðalsteinsson,
Bjarni Guðmundsson, Manassa Quarni,
Hallur Guðmundsson, Jóna Helgadóttir,
Snorri Guðmundsson, Bryndís Kristinsdóttir,
Inga Lísa Middleton, Michael Rose,
Þórarinn Gíslason
og frændsystkini.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÁRNI GUÐMUNDSSON
stýrimaður,
áður Fellsmúla 2,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánu-
daginn 20. september kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir,
en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Slysavarnafélagið
Landsbjörgu.
Sigurrós Ólafsdóttir,
Ragnar Árnason, Anna Agnarsdóttir,
Atli Árnason, Kristjana Bergsdóttir,
Gylfi Árnason, Sigrún Ólafsdóttir,
Ólafur Helgi Árnason, Bridget Carla Haefele
og barnabörn.
Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og
frændi,
BJARKI HAFÞÓR VILHJÁLMSSON,
Íshússtíg 5,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðju-
daginn 21. september kl. 14.00.
Vilhjálmur H. Snorrason, Anna Björg Þorbergsdóttir,
Gígja Rafnsdóttir, Jón Olgeir Ingvarsson,
Ágúst Vilhjálmsson, Gyða Björk Jóhannsdóttir,
Hafrún Anna Sigurbjörnsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
KNÚTUR HÁKONARSON,
Hraunbæ 170,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 21. september kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Ein-
stök börn og Karitas.
Sigrún Björk Einarsdóttir,
Einar Björgvin Knútsson, Hjördís I. Jóhannesdóttir,
Elsa Björk Knútsdóttir, Bjarni Hrafn Ívarsson,
Bryndís Guðrún Knútsdóttir, Júlíus Örn Ásbjörnsson,
Elínborg Erla Knútsdóttir, Eymar Kruger
og afabörn.
Ástkær móðir okkar,
INGRID EYDAL,
lést í Vimmerby í Svíþjóð fimmtudaginn 9. september.
Útförin fer fram ytra mánudaginn 27. september.
Ingunn Eydal,
Sigrún Carlwig,
Áslaug Björkenhed,
Anders Eydal
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
Mig langar í nokkr-
um fátæklegum orðum
að minnast Pálínu vin-
konu minnar frá Sauð-
húsum.
Þó langt sé síðan ég
hitti hana og fjölskylduna síðast, eru
þær stundir sem ég átti á Sauðhúsum
ljóslifandi, og ég upplifi þær sem mín-
ar bestu minningar. Ég fékk oft að
vera á Sauðhúsum, hjá Herdísi vin-
konu minni, frá því að ég flutti vestur
og kynntist henni, og ekki var amast
við að ég fengi að vera heimagangur,
löngu eftir að ég flutti suður. Pálína
og Egill voru yndislegt fólk, og Pálína
hafði sérstakan skilning á börnum og
unglingum. Hún lét alveg í sér heyra,
þegar það var verðskuldað, en oftar
en ekki sá maður hana snúa sér und-
an og kíma í barminn, eftir að hafa
lesið okkur pistilinn á sinni syngjandi
færeysk blönduðu íslensku. Ég held
oft að hún hafi haft í laumi gaman af
mörgum prakkarastrikum og uppá-
tækjum ungmennanna á heimilinu.
Við Herdís vorum hestasjúkar, og
Pálína hafði einstakan skilning á því,
þó þetta væri ekki hennar hugðarefni.
Í upphafi reyndum við á þolinmæðina
á miðaldra meri, sem ég næ ekki að
muna hvað hét, það var innan girð-
ingar, en seinna fengum við að þeysa
langa túra á Rauðku og Gránu. Þá
hleypti Pálína okkur oft út frá
ókláruðum verkum, til að njóta góða
veðursins í útreiðar. Herdís fékk svo
gljáfægða folann Blakk, sem var fyrir
ANNA PÁLÍNA
JÓNSDÓTTIR
✝ Anna PálínaJónsdóttir fædd-
ist í Klakksvík í Fær-
eyjum 14. október
1929. Hún lést á Sel-
fossi 15. ágúst síðast-
liðinn og var útför
hennar gerð frá
Vídalínskirkju í
Garðabæ 24. ágúst.
mér eins og villihestur-
inn úr bókinni frægu, og
ég man hvað það var
mikil hamingja, og hvað
Pálína og Egill treystu
henni vel fyrir klárnum,
enda stóð hún vel undir
því trausti. Við vinkon-
urnar brölluðum ýmis-
legt, og ekki alltaf það
sem þóknanlegt er, Pál-
ína hafði sitt lag á að
bregðast við því. Ein-
hvern tímann vorum við
farnar að stelast til að
reykja, og til að hafa
gott næði, buðumst við
til að vaka yfir fénu í sauðburði. Þegar
við erum að tölta út í fjárhús um
kvöldið, opnaðist skyndilega gluggi á
efri hæðinni, og Pálína kallaði á eftir
okkur: „Stelpur, það má alls ekki
reykja í heyinu“... Ég man að hjartað
sökk, og sektarkenndin síaðist inn, og
að morgni beið ég skammanna, en
Pálína blessunin minntist aldrei á
þessa vitneskju sína meir. Að vera
gestur á Sauðhúsum var frábær
reynsla, mikið hlegið og spaugað, oft
margt um manninn, og alltaf nóg af
veislufæði handa öllum. Þar var ekk-
ert skorið við nögl, og mér fannst allt-
af markmiðið vera að öllum, smáum
sem stórum, fólki og skepnum, liði
sem best. Elsku Pálína, takk fyrir það
veganesti sem þú gafst mér, og ég
vildi að tækifærin hefðu orðið fleiri til
að rækta það samband, því ég er rík-
ari að hafa þekkt þig, það er klárt.
Kæri Egill, Herdís, elsku æskuvin-
kona, Jón, Benni og aðrir aðstand-
endur, ykkur öllum votta ég einlæga
samúð og bið Guð að blessa ykkur.
Steinunn H. Snæland.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Minningar-
greinar