Morgunblaðið - 19.09.2004, Síða 46
AUÐLESIÐ EFNI
46 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Rannsóknarsjóður
Öldrunarráðs Íslands
auglýsir eftir umsóknum um styrk
Úr 5. gr. skipulagsskrár Rannsóknarsjóðsins:
,,Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir í öldrunarmálum á Íslandi
svo og þau verkefni sem stjórn sjóðsins ákveður.”
Umsóknarfrestur er til 5. október 2004 og skulu umsóknir sendar
Öldrunarráði Íslands, Sætúni 1, 105 Reykjavík.
Frekari upplýsingar veita Þórunn Sveinbjörnsdóttir í síma 510-7500
og Guðrún E. Jónsdóttir í síma 560-4448.
Stjórn Öldrunarráðs Íslands
www.ellismellur.is
DAVÍÐ ODDSSON lét af
embætti forsætis-ráðherra
15. september og Halldór
Ásgrímsson tók við. Davíð
hefur verið forsætis-ráðherra
frá árinu 1991 eða í rúm 13
ár. Við þessa breytingu tók
Davíð við starfi
utanríkis-ráðherra af
Halldóri. Þá tók Sigríður
Anna Þórðardóttir við starfi
umhverfis-ráðherra af Siv
Friðleifsdóttur.
Davíð sagði er hann
afhenti Halldóri lyklavöld í
Stjórnar-ráðinu að það væri
„einstakt fyrir hvern mann
að fá að gegna þessari
stöðu. Og ég vona að gæfa
og blessun fylgi þínu starfi
hér og að þú eigir eftir að
eiga jafngóða daga og
ánægjulega eins og ég hef
átt hér“.
Spurður um hvort þessi
tímamót væru hámarkið á
stjórnmála-ferli hans sagði
Halldór: „Þetta er æðsta
embætti á vettvangi
ríkisstjórnar og að mínu mati
mikilvægasta embætti
þjóðarinnar. Hver sem fer í
það starf hlýtur að standa á
hátindi síns pólitíska ferils.“
Halldór er 57 ára gamall.
Hann er 15.
forsætis-ráðherra
lýðveldisins og 20.
forsætis-ráðherrann frá því
að embættið var stofnað við
fullveldi Íslands 1918. Áður
höfðu fimm menn gegnt
embætti ráðherra Íslands
með aðsetur hérlendis.
Morgunblaðið/Sverrir
Halldór Ásgrímsson tók við embætti forsætis-ráðherra af
Davíð Oddssyni. Davíð verður utanríkis-ráðherra.
Halldór Ásgrímsson tekur
við starfi forsætis-ráðherra
MIKIÐ tjón varð þegar þak af
um 300 fermetra álmu við
Hótel Skaftafell í Freysnesi
sviptist af í miklu óveðri sem
gekk yfir landið. Vind-hraðinn
fór um og yfir 50 metra á
sekúndu í mestu hviðunum.
Hluti þaksins feyktist síðan
áfram og út á þjóðveginn,
braut flagg-stangir og
skemmdi spenni-stöð tugi
metra í burtu. Austasta
hótel-álman færðist til í heilu
lagi af grunninum um hátt í
einn og hálfan metra og
hefði hugsanlega farið
lengra ef grasbakki hefði
ekki stöðvað för hennar.
Sperrur úr þakinu sem fauk
stungust á kaf í aðra hluta
hótelsins. Klæðning og
rúður skemmdust víða og
ljóst að tjónið hleypur á
milljónum ef ekki tugum
milljóna króna.
Hátt í 40 ferðamenn,
flestir útlendingar, gistu á
hótelinu en engan þeirra
sakaði.
Anna María
Ragnarsdóttir, eigandi
hótelsins, segir það hafa
verið áfall að sjá alla
eyðilegginguna. „Áfallið er
samt alls ekki eins mikið og
ef einhver hefði slasast.
Maður skynjar það núna að
við eigum óskaplega góða
að hér í kringum okkur. Það
er alveg ómetanlegt.“
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Eigendur hótelsins, Jón Benediktsson og Anna María Ragnarsdóttir, skoða skemmdirnar.
Milljóna-tjón
í Freysnesi
YFIRMAÐUR
Sameinuðu
þjóðanna (SÞ) segir
að árásin á Írak hafi
verið ólögleg. Kofi
Annan er
framkvæmda-stjóri
Sameinuðu
þjóðanna. Hann
sagði á miðvikudag
að Bandaríkjamenn
og Bretar hefðu
brotið lög þegar þeir
réðust inn í Írak. SÞ
hefðu þurft að samþykkja
innrásina.
Orð Annans vöktu mikla
athygli. Hann hefur aldrei áður
talað svona um árásina á Írak.
Vitað var að hann var á móti
innrásinni. Hins vegar gerist
það ekki oft að yfirmaður SÞ
tali svo skýrt um
mál sem deilt er
um í heiminum.
Bandaríkjamenn
brugðust illa. Þeir
sögðu innrásina
hafa verið löglega.
Hið sama sögðu
margar þjóðir sem
styðja Bandaríkin.
Annan sagði líka
að ástandið í Írak
væri mjög slæmt.
Þess vegna væri varla hægt
að halda kosningar í Írak. Þær
eiga að fara fram í janúar.
Sprengingar og manndráp eru
daglegt brauð í Írak. Talið er
að um þrettán þúsund Írakar
hafi dáið í stríðinu þar.
Bandaríkjamenn hafa misst
meira en þúsund hermenn.
Kofi Annan
Annan segir innrás-
ina í Írak ólöglega
ÍSLENSKI skemmti-þátturinn
70 mínútur hættir í desember.
Þátturinn er á PoppTíví.
Síðasti þátturinn verður
sýndur 20. desember og er
það eitt þúsundasti þátturinn
sem sýndur er. Stjórnendur
þáttarins, þeir Auddi, Sveppi
og Pétur, ætla þá að snúa sér
að öðrum hlutum saman.
70 mínútur hófu göngu sína
í október árið 2000. En fyrstu
stjórnendur þáttarins voru
þeir Idol-bræður Simmi og Jói.
Fljótlega komu þeir til
sögunnar á kantinum
gárungarnir Sveppi og Auddi
og fyrr en varði voru þeir búnir
að taka yfir þáttinn. Með þá
við stjórn-völinn náði þátturinn
sínum mestu vinsældum og
ekki dvínuðu vinsældirnar er
Sjónvarps-þátturinn
70 mínútur hættir
Þeir Sveppi, Pétur, Hugi og
Auddi kveðja í desember.
Netfang: auefni@mbl.is
þeir fengu til liðs við sig Pétur
„Ding Dong“.
Ýmsir hafa síðan komið
meira eða minna við sögu
þáttarins sem verður trúlega
hvað helst minnst fyrir
ógeðs-drykkinn alræmda,
áskoranirnar æsilegu,
tilraunirnar tæpu og földu
myndavélina.