Morgunblaðið - 19.09.2004, Síða 51
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 51
Þekkir þú
fólkið?
FÓLKIÐ á þessum
myndum er líklega
ættað úr Dalasýslu
eða Snæfellsnesi,
e.t.v. er það af
Ormsætt. Þeir sem
kunna að þekkja fólkið eru beðnir
um að hafa samband við Björgu
Gunnarsdóttur í síma 557 4302.
Mislukkuð tölvukaup
Í SUMAR festi ég kaup á lang-
þráðri tölvu. Þar sem ég vil ekki
vera niðurnegld við skrifborð í
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
skriftum, þá ákvað ég að kaupa
fartölvu, sem hægt er að „ferðast“
með.
Mér var tjáð við kaupin að raf-
hlaðan entist í 2½ til 4 tíma, en
síðar kom á daginn að endingin var
ekki nema 57 mínútur. Ýmislegt
annað var ekki í lagi og vantaði t.d.
í hana netkort. Var því tölvan ansi
mikið í viðgerð fyrstu vikurnar.
Þegar upp komst að lokum að
logið hafði verið til um endingu
rafhlöðu (eftir að ég var búin að
fara með hana ítrekað í viðgerð því
hún drap alltaf á sér) vildi ég bara
fá tölvuna endurgreidda og snúa
mér annað með viðskiptin. Mér var
tjáð að ég þyrfti að koma með um-
búðirnar utan af tölvunni til að fá
vörunni skilað, skipt eða endur-
greidda. Hvað ef ég geymdi allar
umbúðir utan af því sem ég hef
keypt um ævina? Voru líka liðnir
tveir mánuðir frá kaupunum.
Nú sit ég uppi tölvulaus og í
pattstöðu. Hefur neytandi og við-
skiptavinur ekkert að segja lengur
í okkar nútímasamfélagi? Versl-
unin Boðeind í Mörkinni 6 segir:
Nei.
Linda Þorláksdóttir.
HM í einmenningi.
Norður
♠Á764
♥D7 N/AV
♦10965
♣KD8
Vestur Austur
♠G92 ♠D853
♥ÁK964 ♥1085
♦32 ♦KDG8
♣965 ♣43
Suður
♠K10
♥G32
♦Á74
♣ÁG1072
Þrjú grönd er gullfallegur samn-
ingur í NS, en það vafðist fyrir kepp-
endum í Verona að komast á þann
áfangastað eftir hjartameldingar AV.
Sem er skiljanlegt, því fyrirstaðan í lit
mótherjanna er sameiginleg – Gxx á
móti Dx.
Vestur Norður Austur Suður
Bocchi Ferraro Gromov Quantin
-- Pass Pass 1 lauf
1 hjarta Dobl * 2 hjörtu 3 lauf
Pass 3 hjörtu * Pass 4 lauf
Pass Pass Pass
Frakkinn Jean-Christophe Quantin
er frægur tvímenningshaukur, en
hann gat ekki fengið sig til að melda
þrjú grönd á gosann þriðja. Hann
hafði rangt fyrir sér í þetta sinn, en
auðvitað gat hann ekki búist við
hjartadrottningunni hjá makker. Hins
vegar er alls óvíst að fjögur lauf sé
gott spil og á þeirri forsendu kemur
vel til greina að freista frekar gæf-
unnar í þremur gröndum, því þar er
þó alltént feitt á stykkinu.
Fjögur lauf virðast reyndar dæmd
til að tapast. Vörnin á strax tvo slagi
á hjarta og aðra tvo á tígul í fyllingu
tímans. En Quantin tókst að rugla
austur í ríminu í endastöðunni. Rúss-
inn Andrei Gromov beit það í sig að
hann yrði að hanga á öllum spöðunum
og henti tveimur tíglum. Quantin fékk
þannig óvæntan slag á tígulhund í
lokin.
E.s. Það má velta fyrir sér hvort til
sé rökrétt leið í þrjú grönd. Ef suður
passar yfir tveimur hjörtum gæti
norður sagt tvö grönd á drottninguna
aðra, enda má gefa þar fimm slagi,
auk þess sem sögnum þarf ekki að
vera lokið – suður gæti breytt í þrjú
lauf eða kannað hjartastöðuna betur
með þremur hjörtum. Í þessu tilfelli
myndi suður líklega hækka í þrjú
grönd án frekari rannsókna. En það
verður að gæta sanngirni. Opnun suð-
urs er í þriðju hendi og utan hættu í
þokkabót. Í slíkri stöðu er oft vakið
létt og því hefur Quantin talið nauð-
synlegt að segja strax aftur til að
sýna ekta opnun.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5
Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Rf3
c5 8. Bb5+ Rc6 9. 0–0 cxd4 10. cxd4
0–0 11. Be3 Bg4 12. Bxc6 bxc6 13.
Hc1 Da5 14. De2 Hfd8 15. Hc5 Da3
16. Hd1 e5 17. d5 cxd5 18. exd5 e4
19. Dc4 He8 20. Bc1 Bb2 21. Bxb2
Dxb2 22. d6 Df6 23. Hc6 Bxf3 24.
gxf3 Dxf3 25. Dd5
Staðan kom upp á sterku skák-
móti sem lauk fyrir skömmu á Ind-
landi. Emil Sutovsky (2.676) hafði
svart gegn Krishnan Sasikirian
(2.666). 25. … He5! 26. Dxe5 Dxd1+
27. Kg2 Df3+ 28. Kg1 e3! og hvítur
gafst upp enda fátt til varnar. Úr-
slitaeinvígi atskákmóts Íslands hefst
kl. 15.00 í dag og fer fram í sjón-
varpssal RÚV. Skákáhugamenn geta
því fylgst með spennandi skákum í
stað fótbolta þetta laugardags-
síðdegi.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Heil & Sæl
Sjúkraþjálfunin Heil & Sæl ehf.
Hraunbæ 102 c, 110 Reykjavík.
Ingigerður Guðmundsdóttir og Margrét H. Indriðadóttir
löggiltir sjúkraþjálfarar eru komnar aftur til starfa eftir leyfi.
Tímapantanir í síma 567 7455.
Jens Ingólfsson, rekstrarhagfræðingur,
Róbert Trausti Árnason, rekstrarfræðingur.
Salómon Jónsson,
löggiltur fasteignasali.
Fyrirtæki til sölu
Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma
Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því
ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og
kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur.
Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er
hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is eða robert@husid.is .
Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en
við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:
Þekkt verslun með föndurvörur. Ársvelta 60 m. kr.
Þekkt sérverslun með 200 m. kr. ársveltu. Eigin innflutningur. Góður
hagnaður um árabil.
Reyndur rekstrarmaður óskar eftir fjárfesti/meðeiganda til að kaupa
með sér gott fyrirtæki.
Rótgróin sérverslun/heildverslun með fallegar vörur. Ársvelta 40 m. kr.
Góð EBIDTA og miklir möguleikar.
Brautarstöðin, Ármúla. Rótgróinn veitingastaður, söluturn og ísbúð. Árs-
velta 36 m. kr. Góður rekstur.
Tveir söluturnar í 101 Reykjavík. Hentugur rekstur fyrir hjón eða fjöl-
skyldu.
Gamalt fjölskyldufyrirtæki í innflutningi og smásölu. 320 m. kr. ársvelta.
Þekkt snyrtistofa við Laugaveg.
Húsgagnaverslun í góðum rekstri.
Skemmtileg gjafavöruverslun í Kringlunni.
Rótgróin brauðstofa í eigin húsnæði. Vel tækjum búin - gott veislueld-
hús. Mikil föst viðskipti.
Bílasprautun og réttingaverkstæði. Vel tækjum búið. 3-4 starfsmenn.
Stór og þekktur bar í eigin húsnæði. Mikil velta, spilakassar og pool.
Glæsileg ísbúð, videó og grill á einstaklega góðum stað í austurbænum.
Mikil veitingasala og góð framlegð.
Vörubílaverkstæði með mikil föst viðskipti. 4-5 starfsmenn. Vel tækjum
búið, í eigin húsnæði á góðum stað.
Big Ben Sportbar. Flottur pub í Seljahverfi með nýjum innréttingum og
tækjum, m.a. þrjú breiðtjöld. Velta 2-3 m. kr. á mánuði.
Íþróttavöruverslun með þekkt merki og góð viðskiptasambönd. Sami
eigandi í 20 ár. Hagstætt verð.
Lítið innflutnings- og þjónustufyrirtæki með öryggisvörur. Tilvalið til
sameiningar.
Rótgróinn skyndibitastaður - söluturn í atvinnuhverfi. Arðbær rekstur fyr-
ir duglegt fólk. Verð 12 m. kr.
Lítill söluturn í Háaleitishverfi. Gott tækifæri fyrir duglegt fólk sem vill
komast í eigin rekstur.
Smáskór. Rótgróin sérverslun með fallega barnaskó. Eigin innflutningur
að stórum hluta. Hentugt fyrirtæki fyrir 2 smekklegar konur eða sem
viðbót við annan rekstur.
Deild úr heildverslun með 8 m. kr. framlegð á ári. Örugg viðskipti og lítill
lager.
Ein þekktasta barnafataverslun landsins. Ársvelta 85 m. kr.
Falleg lítil blómabúð í miðbænum.
Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu
fyrirtækjadeildar: www.husid.is .
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen),
sími 533 4300, GSM 820 8658 (Jens) og 663 8478 (Róbert).
Opnunartími
mán.-fös. kl. 11-18 & lau. kl. 11-14
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939
Láttu verðið koma
þér á óvart
Mikið úrval
af kápum, jökkum
og nýjum
haust-
vörum
Réttur til bóta fyrir líkamstjón
Lögfræðilegt mat ehf. er fyrirtæki sem sérhæfir sig í gerð örorkumats vegna
líkamstjóns. Ef þig vantar upplýsingar um bætur fyrir líkamstjón s.s. vegna
umferðarslyss eða vinnuslyss getur þú haft samband í síma 511-3600. Sjá
einnig heimasíðuna www.logmat.is m.a. upplýsingarit tjónaþola vegna
líkamstjóns.
Lögfræðilegt mat ehf.
Björn Daníelsson, lögfr.
Athuga nýtt heimilisfang:
Skúlagata 17, 101 Reykjavík.
Listhús Reykjavíkur
Höfum verið beðin að útvega verk eftir
Louisu Matthíasdóttur og
Kristján Davíðsson.
Listhúsreykjavikur.is,
Lækjargötu 2a,
101 Reykjavík,
sími 517 3606, sími 517 3606.