Morgunblaðið - 19.09.2004, Side 54
MENNING
54 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Frumsýning fös. 8. okt. kl. 20
Sun. 10. okt. kl. 20 • fös. 15. okt. kl. 20 • sun. 17. okt. kl. 20
ATH. Allar sýningar hefjast kl. 20
Miðasala á Netinu: www.opera.is
Símasala kl. 10-18 virka daga: 511 4200
Rakarinn morðóði
Óperutryllir eftir Stephen Sondheim
Saumastofan
eftir Kjartan Ragnarsson
í Félagsheimili Seltjarnarness
Leikstjóri: Bjarni Ingvarsson
10. sýning - sun. 19.09 kl. 15.00
Miðapantanir í síma 696 1314
Síðasta sýning.
Fös . 24 .09 20 .00 AKUREYRI
Fös . 1 .10 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 2 .10 20 .00 LAUS SÆTI
Fös . 8 .10 20 .00 LAUS SÆTI
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
„Fu l lkomin kvö ldskemmtun .
Ó lýsan leg s temning f rá upphaf i t i l enda .
Hár ið er mál ið ! “
- G ís l i Mar te inn Ba ldursson s jónvarpsmaður -
CHICAGO Á LAUGARDAGINN!
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00
Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA?
e. E. Albee
Aðalæfing lau 25/9 kl 13 - Kr 1.000
Frumsýning su 26/9 kl 20 - UPPSELT
Fi 30/9 kl 20
Fö 1/10 kl 20
PARIS AT NIGHT e. Jacques Prévert
í samstarfi við Á SENUNNI
Fi 23/9 kl 20
Fö 24/9 kl 20,
Síðustu sýningar
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Í dag kl 14, Su 26/9 kl 14
Su 3/10 kl 14, Su 10/10 kl 14
CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse
Tvenn Grímuverðlaun
Lau 25/9 kl 20, Lau 2/10 kl 20, Lau 9/10 kl 20
Aðeins örfáar sýningar í haust
KYNNINGARVEISLA - OPIÐ HÚS
Við kynnum leikárið: Stutt atriði, dans,
söngur, gleði og grín
Allir velunnarar velkomnir!
Í kvöld kl 20 - Aðgangur ókeypis
ÁSKRIFTARKORTIN GILDA Á SEX SÝNINGAR:
ÞRJÁR Á STÓRA SVIÐI OG ÞRJÁR AÐ EIGIN VALI - AÐEINS KR. 10.700 (Þú sparar 5.500)
TÍU MIÐA AFSLÁTTARKORT - FRJÁLS NOTKUN - AÐEINS SELT Í SEPTEMBER -
AÐEINS KR. 18.300 (Þú sparar 8.700)
VERTU MEÐ Í VETUR
Seljavegur 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is
Hræðilega fyndið, rokkað og flugbeitt:
ELDAÐ MEÐ ELVIS
eftir Lee Hall
• Föstudag 1/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
• Laugardag 2/10 kl. 20
Sýningin hlaut tilnefningu sem vinsælasta
leiksýningin á Grímunni 2004. Aðeins nokkrar
aukasýningar í haust. Tryggið ykkur miða!
552 3000
☎
552 3000
☎
eftir Gunnar Helgason
• Sunnudag 19/9 kl. 14 LAUS SÆTI
• Sunnudag 26/9 kl. 14 ÖRFÁ SÆTI LAUS
• Sunnudag 3/10 kl. 14
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008
JÓNSI
SVEPPI
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
Söngleikurinn FAME þakkar fyrir sig
og kveður Smáralindina
Sun. 19. sept. kl. 19.30
Fim. 23. sept. kl. 19.30 LOKASÝNING
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
SVIK e. Harold Pinter
frumsýn. fös. 1/10 kl. 20 UPPSELT
2. sýn. sun. 3/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
3. sýn. fim. 7/10 kl. 20 UPPSELT
4. sýn. fös. 8/10 kl. 20 UPPSELT
HÁRIÐ - sýnt í Íþróttahöllinni
fös 24/9 kl. 20 - sala í fullum gangi
4 sýningar
á aðeins 6.500 kr.
Áskriftarkort!
SUN. 19. SEPT. KL. 16 OG 20.30
REYKJAVÍK 5 og 4 manna hljómsveit
Útsetningar Manhattan Transfer,
New York Voices o.fl.
Tónleikarnir verða hljóðritaðir.
MIÐVIKUD. 22. SEPT. KL. 20.00
HARPA OG SELLÓ
Elísabet Waage og Gunnar Kvaran leika
verk af nýjum geisladiski.
Útgáfutónleikar á vegum SONET.
FIMMTUD. 23. SEPT. KL. 20.30
BETRA EN BEST
Hljómsveitin Mannakorn leikur nýjar
perlur í bland við eldra efni, von er á
óvæntum gestum.
Útgáfutónleikar á vegum SONET
TÓNLEIKASKRÁIN KOMIN!
Kynntu þér málið á
www.salurinn.is.
Hollywood Rhapsody – kvikmyndatónlist
HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 23. SEPTEMBER KL. 19.30
FÖSTUDAGINN 24. SEPTEMBER KL. 19.30
Græn áskriftaröð #1
Hljómsveitarstjóri ::: John Wilson
Einsöngvari ::: Gary Williams
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
Það besta af
hvíta tjaldinu
Sinfóníuhljómsveitin býður nú upp á spennandi efnisskrá: Hollywood
Rhapsody með breska söngvaranum Gary Willams, sem líkt hefur
verið við ekki ómerkari menn en Nat King Cole og Frank Sinatra.
Flutt verður m.a. tónlist úr Gone With The Wind, Star Wars,
Uppreisninni á Bounty, Singing in the rain, More than you know og
They can't take that away from me, svo fátt eitt sé talið. Komdu í
magnað ferðalag um hvíta tjaldið!
GUNNAR Guðbjörnsson tenór hélt
tónleika ásamt Önnu Guðnýju Guð-
mundsdóttur píanóleikara í Ými á
miðvikudagskvöldið. Á efnisskránni
voru lög og aríur úr ýmsum áttum,
fyrst Þú eina hjartans yndið mitt eftir
Sigvalda Kaldalóns. Gunnar söng það
svo af svo mikilli hlýju og einlægni að
það var eins og maður væri að heyra
lagið í fyrsta sinn. Sömu sögu er að
segja um Kvöldsöng Markúsar Krist-
jánssonar og Vorgyðju Árna Thor-
steinssonar, en því miður lá leiðin nið-
ur á við eftir það. Lágvær söngurinn í
Sofnar lóa eftir Sigfús Einarsson var
heldur loðinn til að skila tilætluðum
áhrifum og Sáuð þið hana systur
mína eftir Pál Ísólfsson var ein-
kennilega hranalegt. Skogen sover
eftir Hugo Alfvén var að vísu bæði
hástemmt og fagurt, og tvö sænsk
þjóðlög voru sömuleiðis ágætlega
sungin, en flest eftir hlé var engan
veginn fullnægjandi. Gunnar náði
ekki almennilega hæðinni í all-
nokkrum atriðum; efstu tónarnir
voru mattir og kraftlausir og kom það
verulega niður á söngnum. Ýmislegt í
túlkuninni orkaði líka tvímælis; Mus-
ica proibita hefði vel mátt vera þýðari
og afslappaðri og hvar voru hápunkt-
arnir í Kuda, kuda, vy udalilis eftir
Tcahikovsky? Auðheyrt var að Gunn-
ar var ekki í sínu besta formi.
Öðru máli gegnir um Önnu Guð-
nýju, sem var með allt sitt á hreinu.
Píanóleikurinn var tær og yfirveg-
aður, kraftmikill þegar við átti og oft
glæsilegur. Á söngtónleikum er það
þó ekki nóg; vonandi gengur Gunnari
betur næst.
TÓNLIST
Ýmir
Gunnar Guðbjörnsson tenór og Anna
Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari
fluttu tónlist eftir ýmis tónskáld.
Miðvikudagur 15. september.
SÖNGTÓNLEIKAR
Jónas Sen
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
SAMNINGAR hljóðfæraleikara hjá
fjórum af fimm virtustu sinfón-
íuhljómsveitum Bandaríkjanna eru
lausir um þessar mundir og eru við-
ræður um endurnýjun þeirra í
nokkru uppnámi. Hljómsveitirnar
sem um ræðir eru New York Phil-
harmonic, Cleveland Orchestra,
Philadelphia Orchestra og Chicago
Symphony, en auk þeirra er Boston
Symphony í þessum hópi, sem kall-
aður er Big Five. Frá þessu var
greint í The New York Times í vik-
unni.
Sinfóníuhljómsveitin í Boston hef-
ur haft lágmarkslaun síðan árið 2002
sem meðlimir hinna hljómsveitanna
líta til og vilja tryggja í nýjum samn-
ingum. Launin hljóða upp á 108.000
dollara á ári, sem gerir um 650.000
íslenskar krónur á mánuði.
„Við hefjum nám við þriggja ára
aldur, og vinnum að starfsgrein okk-
ar í 25 ár áður en við fáum tækifæri
til að vinna við hana. Við höfum eytt
heilli kynslóð af tíma áður en við get-
um náð því sem til þarf til að fá
vinnu. Við fórum ekki út í þetta
vegna peninganna, en erum samt
sem áður ekki að fara að gera þetta
fyrir ekki neitt,“ sagði Donald Mill-
ar, stjórnarmaður í stjórn hljóm-
sveitarmeðlima og slagverksleikari í
Cleveland-hljómsveitinni. Þó er talið
að lágmarkslaun hljóðfæraleikara
við sinfóníuhljómsveitir í Bandaríkj-
unum fari aldrei undir 100.000 doll-
ara á ári, og sumir hljóðfæraleik-
aranna, til dæmis konsertmeistarar
og leiðarar, geti jafnvel þrefaldað þá
tölu.
Laun hljóðfæraleikara eru um
helmingur af útgjöldum sinfón-
íuhljómsveita í Bandaríkjunum.
Framlög til þeirra hafa minnkað
vegna ýmissa tilfallandi aðstæðna á
undanförnum árum, til dæmis falls á
hlutabréfamörkuðum. Einnig hafa
hryðjuverkaárásirnar hinn 11. sept-
ember 2001 dregið mjög úr aðsókn á
sinfóníutónleika og aðra fjölmenna
viðburði í Bandaríkjunum.
Tónlist | Samningar um kjör hljóðfæra-
leikara til umræðu í Bandaríkjunum
Boston-sinfónían
leiðandi í launum