Morgunblaðið - 28.09.2004, Side 1

Morgunblaðið - 28.09.2004, Side 1
STOFNAÐ 1913 264. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Edda og álfanafnið Elsti þátttakandinn á vestnorrænu handverkssýningunni Daglegt líf Elíza og Skandinavia Leika á minningartónleikum um Fróða Finnsson Menning Íþróttir í dag Magnús Gylfason hættur með ÍBV og á leið til KR  Patrekur að hætta vegna meiðsla?  Rooney mætir til leiks Bjóða farþega- flug út í geiminn London. AP. BRESKA stórfyrirtækið Virgin hefur samið við bandarískt fyrir- tæki um að skipuleggja nokkurra klukkustunda áætlunarferðir út í geim. Gert er ráð fyrir að farmið- inn muni kosta frá um 115 þúsund pundum, jafnvirði um 15 milljóna króna, og muni farþegar verða í þyngdarleysi í um þrjár mínútur. Pláss verður fyrir fimm manns í flauginni, stórir gluggar verða á henni til að tryggja gott útsýni en farið verður í um 100 km hæð eða rétt út fyrir gufuhvolfið. Aðaleigandi Virgin, Sir Richard Branson, kynnti hugmyndirnar á fundi sem hann hélt í Konunglega flugmálafélaginu í London í gær. Gert er ráð fyrir að ferðirnar hefj- ist 2007 og sagði Branson að allt að 3.000 manns gætu farið út í geim á fimm ára tímabili á vegum Virgin. Farþegar verða að fara í viku þjálf- un fyrir flugið, að sögn fréttavefjar BBC. Samningurinn er á milli Virgin Airlines og bandaríska fyrirtækis- ins Mojave Aerospace Ventures en það fyrirtæki stóð að geimfarinu SpaceShipOne, sem í júní varð fyrsta geimfarið á vegum einka- aðila til að fara út í geiminn. Reuters Sir Richard Branson kynnir áætl- unina á blaðamannafundi í gær. GRUNNSKÓLAKENNARAR hafa óskað eftir fundi með sveitar- stjórum nokkurra stærstu sveitar- félaga landsins á morgun til að ræða stöðuna og skýra sjónarmið aðila en svo virðist sem sveitar- félögin muni ekki þekkjast boð kennara. Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri Garðabæjar, segist hafa séð það á samskiptum sveit- arstjóra við fundarboðendur að skilaboð flestra hafi verið á þá lund að umboðið sé hjá launanefnd sveit- arfélaganna og meðan hún eigi í þessum viðræðum ætli menn sér ekki að trufla það samningaferli. Meginatriði í kjaradeilunni er að kennarar og sveitarfélögin eru ekki sammála um hvað nýr kjarasamn- ingur má kosta. Kennarar hafa sett fram kröfu um 35% hækkun fram til ársloka 2007 en launanefnd sveitarfélaga hefur boðið 16,3% hækkun. Kennarar telja það ekki nóg. Þá hefur launanefndin boðið samning til ársloka 2008 sem fæli í sér 18,6% hækkun. Ljóst er því að þarna er verið að takast á um nokkra milljarða króna. Fimm undanþágubeiðnir hið minnsta verða teknar fyrir á fundi undanþágunefndar í dag. Skóla- stjórar tveggja skóla, Öskjuhlíðar- skóla og Safamýrarskóla, endur- nýjuðu fyrri undanþágubeiðnir auk þess sem þrjár nýjar beiðnir höfðu borist síðla dags í gær. Skólastjóri Öskjuhlíðarskóla kveðst vera bjart- sýnn á að undanþága fyrir skólann verði veitt en 100 fjölfötluð og þroskaheft börn og unglingar stunda þar nám. Morgunblaðið/Kristinn Verslunarmiðstöðvar eru vinsæll áfangastaður grunnskólanemenda. Jón Arnar Jónsson og Andri og Brynjar Jónassynir gæddu sér á snúðum. Ósammála um hvað nýr kjarasamningur má kosta  Mikið ber/10 RICHARD Armitage, aðstoðarutanríkisráð- herra Bandaríkjanna, segir að halda eigi kosn- ingar í öllum héruðum Íraks í janúar og gefa öll- um, sem vilja kjósa, tæki- færi til þess. Þetta kom fram í máli Armitage á fundi með evrópskum blaðamönnum í Wash- ington í gær. Undanfarna daga hefur borið á vangaveltum í Bandaríkjunum um að ekki verði kosið í sumum héruðum, þar sem ófrið- ur er mestur, og hefur lögmæti slíkra kosn- inga verið dregið í efa. „Ég er þeirrar skoðunar að kosningarnar eigi að fara fram í öllu Írak. Við myndum ekki láta okkur detta í hug að halda kosn- ingar [í Bandaríkjunum] án Kaliforníu,“ sagði Armitage í svari við spurningu Morg- unblaðsins. „Það á að gefa sérhverjum írösk- um borgara, sem vill kjósa, tækifæri til að gera það. Allawi forsætisráðherra [Íraks] og sannarlega Bandaríkin líka stefna mjög ein- arðlega að því.“ Munu reyna að hafa áhrif á forsetakosningarnar Armitage sagði hins vegar að menn þyrftu ekki að fara í grafgötur um að ofbeldi myndi færast í aukana í Írak, bæði í tengslum við kosningarnar þar og forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í byrjun nóvember. „Við er- um vissir um að uppreisnarmennirnir vilja reyna að hafa áhrif á okkar kosningar, eins og þeir töldu sig hafa gert í spænsku kosn- ingunum, og þeir vilja alveg áreiðanlega ekki að neinar kosningar verði haldnar í Írak.“ Armitage sagði að Atlantshafsbandalagið (NATO) hefði tekið að sér mikilvægt hlut- verk í Írak með því að samþykkja að skipu- leggja þjálfun fyrir foringja í íraska hernum. Það hefði jafnframt verið mjög jákvætt að samkomulag náðist innan NATO um að Dav- id Petraeus, yfirmaður bandaríska herliðs- ins í landinu, yrði jafnframt yfirmaður NATO-liðsins. „Ég yrði mjög ánægður ef NATO vildi taka að sér fleiri verkefni í Írak, en við höfum þó ekkert til að leggja fyrir vini okkar í Brussel í þeim efnum sem stendur,“ sagði Armitage. Washington. Morgunblaðið. Richard Armitage Kosið verður í Írak öllu FRÁ því er sagt í sögubókum að flugkappinn Charles Lindbergh hafi komið til Íslands í ágúst 1933 til að kanna veðurfar og hugsanlega lendingarstaði á flugleiðinni yfir Atlantshafið fyrir flugfélagið Pan American. Í nýrri skáldsögu leyfir rithöf- undurinn Philip Roth sér hins vegar að ímynda sér að Lind- bergh hafi komið aftur hingað til lands 1941, þá sem nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, í því skyni að undirrita griðasátt- mála við sjálfan Adolf Hitler. Ný saga Roths heitir The Plot Against America og kemur út í október. Þar veltir Roth fyrir sér: hvað ef Charles Lindbergh, sem flaug fyrstur manna einn yfir Atlantshafið, hefði boðið sig fram gegn Franklin D. Roose- velt í forsetakosningunum 1940 og haft sigur? Roth segir í New York Times ekki fjarstæðukennt að ímynda sér að flugkappinn vinsæli hefði getað sigrað Roosevelt en rifjar jafnframt upp að Lindbergh hafi verið gyðingahatari og talsmaður þess að Bandaríkin yrðu hlutlaus í styrjöldinni sem þá var hafin í Evrópu. Gefur Roth sér í bókinni að það hafi orðið eitt fyrsta embættisverk Lindberghs að halda til Íslands og undirrita í Reykjavík griða- sáttmála við Hitler. Roth, sem er 71 árs gamall, er álitinn einn merkasti rithöfund- ur samtímans, nýrrar bókar frá honum jafnan beðið með eftir- væntingu og hafa efnistök hans í The Plot Against America þegar vakið mikið umtal vestra.  Gerir Ísland/35 Adolf Hitler á Íslandi 1941? Philip Roth Adolf Hitler Úthverfin hættuleg Los Angeles. AP. HEILSA þeirra sem búa í víðáttumiklum einbýlishúsahverfum stórra milljónaborga er verri en hjá þeim sem búa í minni borg- um með hlutfallslega marga íbúa á hvern ferkílómetra. Þetta eru niðurstöður könn- unar sem Rand-stofnunin bandaríska lét gera í 38 borgum vestanhafs. Tíðni ýmissa krónískra sjúkdóma á borð við háþrýsting og gigt reyndist hærri þar sem einbýlishúsahverfin eru ráðandi. Einn- ig er meðalþyngd meiri. Talið er að helsta ástæðan fyrir þessum mun sé ef til vill að fólk í einbýlishúsahverfunum gangi minna, það noti bíla mun meira en hinir enda oft langt í verslanir og aðra þjónustu. Hreyf- ingarleysi geti verið orsök þess að fullorð- inn íbúi í Atlanta er að jafnaði við svipaða heilsu og Seattle-búi sem er fjórum árum eldri en byggðin er mun þéttari í Seattle en Atlanta. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.