Morgunblaðið - 28.09.2004, Síða 11

Morgunblaðið - 28.09.2004, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 11 KENNARAVERKFALLIÐ Barnagæsla í verkfalli ágætlega nýtt BARNAGÆSLA sem fyrirtæki eða foreldrasamtök innan fyrirtækja í Reykjavík standa fyrir í verkfalli er ágætlega nýtt samkvæmt upplýs- ingum frá starfsmannastjórnum nokkurra fyrirtækja sem Morgun- blaðið hafði samband við. Foreldrafélag Íslandsbanka og Sjóvár-Almennra stendur að heilsu- skóla í Þróttaraheimilinu. Upp- haflega voru skráð 120 börn en reyndin hefur verið að 80–90 börn hafa sótt gæsluna á dag. Í gær voru um 70 börn í gæslu í Þróttaraheim- ilinu sem er fækkun frá síðustu viku. Um 20–30 börn starfsmanna Landsbankans verja deginum í KR- heimilinu. Sá fjöldi er aðeins undir því sem gert var ráð fyrir, en eftir forkönnun var talið að 40 börn myndu nýta sér gæsluna. Starfsmenn KB banka geta sent börn sín í daggæslu í Valsheimilinu og hafa 85–90 börn verið þar á dag, svipað og gert var ráð fyrir. Um 20–30 börn starfsmanna Öss- urar fá gæslu í húsakynnum fyr- irtækisins í verkfallinu sem er svip- að og gert var ráð fyrir í upphafi. AÐ MINNSTA kosti fimm und- anþágubeiðnir frá kennaraverkfalli verða teknar fyrir á fundi und- anþágunefndar vegna kjaradeilu grunnskólakennara kl. 13 í dag. Skólastjórar tveggja skóla, Öskju- hlíðarskóla og Safamýrarskóla, endurnýjuðu fyrri undanþágu- beiðnir auk þess sem þrjár nýjar beiðnir höfðu borist seinnipartinn í gær, allar frá sérdeildum við grunnskóla. Fjallað um tug undan- þágubeiðna í dag Að sögn Sigurðar Óla Kolbeins- sonar, lögfræðings Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, og annars nefndarmanna, voru fimm af þeim þrettán beiðnum sem bárust fyrir helgi sendar til baka vegna þess að þær voru taldar ófullnægjandi. Þegar Morgunblaðið ræddi við Sigurð Óla í gær sagði hann enga af þeim fimm hafa verið endurnýj- aða en að alltaf gætu bæst við beiðnir. Ekki væri því ólíklegt að tíu eða fleiri beiðnir yrðu teknar fyrir á fundinum í dag. Allar und- anþágubeiðnirnar eru vegna kennslu barna sem eiga við ein- hvers konar fötlun að stríða. Á síðasta skólaári voru 320 grunnskólanemar við nám í sér- deildum eða sérskólum. Í þessum hópi barna og unglinga eru ein- hverfir, fjölfatlaðir, þroskaheftir, blindir og heyrnarlausir einstak- lingar auk þeirra sem eiga við geð- ræn vandamál eða hegðunarvanda- mál að stríða. Innan við 1% grunnskólanema í sérskólum og sérdeildum Alls voru grunnskólanemar á landinu öllu 43.426 á síðasta skóla- ári skv. upplýsingum frá Hagstof- unni, en nákvæmar tölur um fjölda grunnskólanema eru teknar saman 15. október ár hvert og því eru þær ekki til fyrir yfirstandandi skólaár. Miðað við þessar tölur eru nemendur í sérskólum eða sér- deildum, sem allir eru fatlaðir á einhvern hátt eða eiga við alvarleg atferlisvandamál að stríða, minna en 1% (0,74%) grunnskólanema í landinu. Ekki eru talin með fötluð börn sem eru í almennum bekkj- ardeildum í skólum. Engar und- anþágur hafa verið veittar til að hægt sé að kenna þessum nem- endum í verkfalli. Forysta kennara hefur átalið sveitarfélög fyrir að hafa ekki sett neina kennara á undanþágulista en slíkt er t.d. gert í heilbrigðisstéttum þannig að tryggt sé að hægt sé að halda úti nauðsynlegri starfsemi komi til verkfalla. Bjartsýnn á að fá undanþágu Einar Hólm Ólafsson, skóla- stjóri Öskjuhlíðarskóla, kvaðst í samtali við Morgunblaðið í gær vera bjartsýnn á að undanþága fyrir kennslu við skólann yrði veitt á fundi nefndarinnar í dag. Öskju- hlíðarskóli er stærsti sérskólinn á grunnskólastigi en 100 fjölfötluð og þroskaheft börn og unglingar stunda þar nám. Undanþágubeiðni frá kennara- verkfalli fyrir Safamýrarskóla hef- ur einnig verið endurnýjuð en í skólanum eru 19 nemendur, allt fjölfatlaðir eða þroskaheftir ein- staklingar. Brúarskóli er þriðji sérskólinn í Reykjavík en hann sækir 21 nemandi með geðræn vandamál eða hegðunarvandamál. Í þessum þremur skólum eru 140 nemendur. Á síðasta skólaári voru 18 sérdeildir starfræktar við grunnskóla hér á landi. Undanþágubeiðnir teknar fyrir á ný í dag Þrjár nýjar beiðnir og tvær endurnýjaðar Á MEÐAN skólastofur standa auð- ar vegna kennaraverkfalls fjölgar í helstu verslunarmiðstöðvum höf- uðborgarsvæðisins. Þangað fara for- eldrar, barnapíur, afar og ömmur með börnin og unglingar stytta sér þar stundir. „Þetta setur bara skemmtilegan svip á Kringluna. Það er meira líf hérna á virkum dögum,“ segir Örn Kjartansson, framkvæmdastjóri Kringlunnar. Eftir að verkfallið skall á hafi fleiri börn komið í Kringluna en áður. Hann segir skólabörnin gera ýmislegt sér til dægrarstyttingar, borða á mat- sölustöðum, fara í bíó eða kíkja í búðir. „Allt skilar þetta sér í auknum viðskiptum,“ segir hann. Pálmi Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Smáralindar, hefur einnig tekið eftir auknum gesta- straumi og segir að það sé ljóst að á virkum dögum í síðustu viku hafi fleiri kennarar og grunnskólanem- endur komið í húsið en á sama tíma í fyrra. Þetta komi skýrt fram í við- tölum við verslunar- og kaffi- húsaeigendur. Páll Pálsson, framkvæmdastjóri verslunarmiðstöðvarinnar Fjarð- arins, segir að um tugur unglinga sæki í að halda þar til eftir skóla. Í verkfallinu hafi hópurinn e.t.v. tvö- faldast. Morgunblaðið/Kristinn Philip Grétarsson, Arnór Bragi Elvarsson, Ólafur Ingi Kristjánsson, Jón Bjarni Einarsson, Berglind Rós Ágústs- dóttir og Sólrún Sturludóttir spókuðu sig í Kringlunni og var ekki annað að sjá en að þau skemmtu sér. „Allt skilar þetta sér í auknum viðskiptum“ Morgunblaðið/Kristinn Systurnar Ásta og Guðlaug Ólafsdætur og Eygló og Erla Káradætur litu inn í Smáralindina í gær en Álftamýrarskóli er þeim lokaður í verkfallinu. Áfram kennt við Landakot KENNSLA í Landakotsskóla í Reykjavík er í fullum gangi en þeir kennarar skólans, sem eru félagar í Kennarasambandi Íslands, höfnuðu því að fara í verkfall í atkvæða- greiðslu sem fram fór í síðustu viku. „Sextán kennarar voru á kjörskrá,“ útskýrir Margrét Á. Halldórsdóttir, trúnaðarmaður kennara við skólann. „Af þeim sögðu fimmtán nei við samúðarverkfalli. Einn seðill var auður.“ Alls starfar á þriðja tug kennara við skólann. Landakotsskóli er einkaskóli og eru kennarar skól- ans með sérsamning við rekstr- araðila skólans. „Einkaskólar hafa átt í miklum fjárhagserfiðleikum. Ef við hefðum kosið verkfall er allt eins víst að skólinn hefði ekki getað stað- ið undir sér því þá hefðu foreldrar ekki greitt skólagjöldin,“ segir Mar- grét innt eftir ástæðu þess að kenn- ararnir höfnuðu verkfallinu. Hún segir niðurstöðuna sýna stuðning kennaranna við skóla sinn. Þrátt fyr- ir það hafi þeir samúð með öðrum grunnskólakennurum. STJÓRN KÍ segir kjaradeiluna við launanefnd sveitarfélaga vera í hörð- um hnút en samningaviðræður hafa staðið yfir með hléum í um hálft ár. Stjórnin telur orsakir þessa meðal annars vera gróft vanmat stjórn- valda, bæði sveitarstjórnarstigsins og ríkisvaldsins, á þörf fyrir umbæt- ur á launum og öðrum starfskjörum félagsmanna KÍ í grunnskólum. „Stjórnin hvetur forsvarsmenn sveitarfélaga og ríkisvaldsins til að hætta að benda hverjir á aðra en setjast heldur á rökstóla um hvernig fjármagna megi nauðsynlegar kjara- bætur til að binda enda á kjaradeil- una sem lamar starfsemi grunnskóla landsins,“ segir í ályktun stjórnar KÍ. Hafa teygt sig lengra en í öðrum samningum Vihjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður Sambands íslenskra sveitar- félaga, segir það ekki hafa tíðkast að blanda saman málum á borð við tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga eða fjárhagslega stöðu einstakra sveitarfélaga þegar verið sé að semja við einstakar stéttir. Þótt ein- staka sveitarstjórnarmenn og ein- staka þingmenn hafi verið að skiptast á skoðunum um þessi mál og setja fram sín viðhorf í fjölmiðlum hafi forsvarsmenn sveitarfélaga eða ríkisins almennt ekki gert það. Vilhjálmur segir að sveitarfélögin hafi í sínu tilboði til kennara teygt sig nokkru lengra en í samningum sem þegar hafa verið gerðir. „Auð- vitað hljóta sveitarfélögin eins og aðrir semjendur, hvort sem það er ríkið eða hinn frjálsi markaður, að setja sér ákveðin viðmið í þeim efn- um. Þannig að deilan er alvarleg að því leyti til að það er mikið bil á milli og hefur reyndar verið frá upphafi viðræðna. En það er launanefnd sveitarfélaga sem fer með fullt og óskorað umboð allra sveitarfélaga í landinu. Hún er kosin af landsþingi Sambandsins. Það er ekki stjórn þess sem fer með þetta umboð þann- ig að málið er alfarið í höndum launa- nefndar sem hefur á undanförnum dögum verið að halda fundi vítt og breitt um landið með sveitarstjórn- um,“ segir Vilhjálmur. Umboðið hjá launa- nefnd

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.