Morgunblaðið - 28.09.2004, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 13
ÚR VERINU
SÍLDARSKIPIN hafa síðustu vik-
ur stundað veiðar á Halamiðum,
djúpt norðvestur af Straumnesi, og
fengið þokkalegan afla. Áta í síld-
inni hefur þó gert vinnslunni erfitt
fyrir, einkum þeim skipum sem
eiga langt að sækja. Lítið hefur
sést til kolmunnans að undanförnu,
þrátt fyrir umtalsverða leit.
Jóna Eðvalds SF var í gær að
leita að síld í Héraðsflóa en ekki
fundið í veiðanlegu magni, að sögn
Ægis Birgissonar skipstjóra. Hann
sagði að bræla hefði þó torveldað
leitina um helgina. Jóna Eðvalds
hefur að undanförnu verið að síld-
veiðum á Halamiðum og gengið
þokkalega, að sögn skipstjórans.
„En það er langt að fara, því við
viljum landa aflanum í heimahöfn á
Hornafirði. Við höfum fengið stóra
og góða síld þarna fyrir vestan, en
það er talsverð áta í henni og þess
vegna má ekkert út af bregða í
langri siglingu ef það á að vinna
síldina til manneldis. Þess vegna
viljum við leita af okkur allan grun
á nærliggjandi miðum. Það er ekki
öll nótt úti enn, í fyrra veiddist
nánast engin síld hér fyrir austan
fyrr en í október. Hún hefur haust-
að seint og vonandi fer síldin að
skila sér bráðlega,“ sagði Ægir.
Bjarni Ólafsson AK var eina
síldarskipið sem var að veiðum á
Halamiðum um helgina og fékk um
100 tonn. Einnig hefur orðið vart
við síld í Jökuldjúpi, suður úr Snæ-
fellsnesi, en Víkingur AK fékk þar
slatta fyrir helgi.
Lítið sést til kolmunnans
Hoffell SU kom til Fáskrúðs-
fjarðar á föstudag eftir um tveggja
vikna leit að kolmunna. Skipið fór
fyrst með eftirlitsmann Hafrann-
sóknastofnunar og leitaði þá með
öllum landgrunnskantinum út af
Suðurlandi og vestur fyrir Vest-
mannaeyjar. Þá hélt skipið í fær-
eysku lögsöguna norður fyrir Fær-
eyjar og til suðurs austur af
Færeyjum. Fleiri íslensk skip hafa
leitað undanfarið á þessum slóðum
og einnig hafa þau leitað suður og
suðvestur af Færeyjum, en ekki
orðið vör við kolmunna í veiðanlegu
magni.
Á heimleiðinni var farið yfir
veiðisvæðið suðaustur af Austfjörð-
um og var ástandið þar óbreytt.
Hoffell SU verður nú gert klárt til
síldveiða, að því greint er frá á
heimasíðu Loðnuvinnslunnar.
Síldarleit fyrir austan
Morgunblaðið/Sigurgeir
SAMKVÆMT nýjum rannsóknum í
vesturhluta Noregs hefur lítið magn
af áldufti drepið sníkjudýr sem lagt
hafa margar laxveiðiár í Noregi og
Rússlandi í eyði á síðustu árum. Hef-
ur álið ekki skaðað laxinn og annað
dýralíf í ánum en í stærri skömmtum
getur duftið, eða sallinn, skaðað
tálkn fiskanna, að því er segir í frétt
Reuters um rannsóknina.
Í fréttinni segir að álduftið hafi á
þremur stöðum verið sett í laxveiðiá í
Batnsfjord í V-Noregi. Var skammt-
urinn mjög lítill, eða 200 míkró-
grömm á lítra. Ekki kemur fram
hversu lengi álið var látið vera í ánni
en haft er eftir norskum vísinda-
manni að af síðustu 90 löxum sem
voru skoðaðir hafði enginn þeirra
haft sníkjudýr. Fyrir ári hafi allir
laxar í ánni verið sýktir. Segir hann
ál aldrei hafa verið prófað með þess-
um hætti í heiminum, sér vitanlega,
en önnur efni gegn vágestinum hafa
drepið allt lífríki í ánum.
Étur sig í gegnum roðið
Sníkjudýrið, sem lifir aðeins í
ferskvatni, festir sig við laxinn með
litlum klóm og étur sig í gegnum roð-
ið með þeim algengu afleiðingum að
laxinn drepst. Hefur laxinn nær
horfið í þeim 40 ám í Noregi sem
sníkjudýrið hefur látið á sér kræla.
Óvænt niðurstaða rannsóknar í Noregi
Álduft bjargar
sýktum löxum í Noregi
GERA má ráð fyrir verulegum
breytingum á útbreiðslu fisktegunda
og göngum þeirra á komandi árum
samfara mikilli hlýnun sjávarins.
Þorskurinn gæti gengið enn norðar
og makríll gæti slegizt í för með síld
og loðnu allt norður í Barentshaf.
Norska blaðið Fiskeribladet
fjallar um þessar breytingar. Þar
segir að þegar hlýni í Barentshafinu
færi þær fisktegundir sem þar eru
nú sig austar og norðar, hitakærari
tegundir eins og makríll komi í stað-
inn, enda aukist áta og ætisframboð
við hlýnunina. Þetta geti meðal ann-
ars leitt til aukinnar þorskgengdar í
Smugunni með tilheyrandi veiðum
skipa undir hentifána. Þetta geti
einnig leitt til breytts göngumynst-
urs norsk-íslenzku síldarinnar og
ætisgöngur hennar inn í íslenzka
lögsögu aukist og jafnvel að hún fari
að hafa vetursetu við Ísland á ný.
Hlýindin muni einnig hafa áhrif á
sjávarspendýr, einkum seli, sem
kæpa á ísnum. En verði mun minna
um hafís opni það hvölunum leið
lengra norður eftir og hlýindin auka
einnig fæðuframboð fyrir þá.
Hlýnunin greiðir líka leið kaup-
skipa hina svokölluðu norðurleið til
Austurlanda fjær og auknum sigl-
ingum skipa um Barentshafið getur
fylgt nokkur mengunarhætta. Það er
þó talið að þessar breytingar gangi
yfir á anzi mörgum árum, svo mikilla
breytinga sé vart að vænta fyrir
2020.
Breytir hlýnunin
fiskgöngum?
ORRI Vigfússon,
formaður Vernd-
arsjóðs villtra
laxastofna
(NASF), segist
hafa heyrt af
þessum rann-
sóknum í Noregi
en ekki kynnt
sér þær náið.
Vissulega sé um
óvenjulega aðferð að ræða og ótrú-
legt ef satt reynist að álið skaði
ekki laxinn.
Orri segir sníkjudýr sem þetta,
af gerðinni gyrodactylus salaris,
ekki hafa borist í laxveiðiár á Ís-
landi. Atlantshafslaxinn þoli hins
vegar ekki þetta sníkjudýr og
NASF hafi haft þungar áhyggjur
af því að dýrið berist til Íslands og
lengra vestur yfir Atlantshaf. Mikl-
ar varúðarráðstafanir hafi verið
gerðar hér á landi, m.a. við sótt-
hreinsun á innfluttum veiðibúnaði,
og segist Orri ennfremur hafa var-
að Siglingastofnun og fleiri aðila
við að sníkjudýr eða önnur mein-
dýr geti leynst í kjölfestuvatni
skipa sem hingað komi frá Norð-
urlöndum.
Ótrúlegt ef
satt reynist
Orri Vigfússon
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
– kraftur til flín!
VI‹
GERUM
GOTT
BETRA
KB ÍBÚ‹ALÁN
LÆKKUM Í 4,2%
FASTA VEXTI
AFTURVIRKIR
Fjárfestingafélagið
Vörður
Boðað er til kjörfundar í Fjárfestingarfélaginu Verði,
fimmtudaginn 30. september nk.
á Hótel KEA á Akureyri, kl. 18.00.
Dagskrá kjörfundar er kosning til fulltrúaráðs og önnur mál.
Allir sameigendur hvattir til að mæta.
Stjórnin.
- fyrir íslenska verslun
Haustfundur
Útflutningsráðs FÍS
Horfur með gengi krónunnar
Útflutningsráð FÍS boðar til hádegisverðarfundar
fimmtudaginn 30. september kl. 12.00 í Skálanum,
Hótel Sögu.
Framsögumaður á fundinum verður Edda Rós Karlsdóttir,
forstöðumaður greiningardeildar Landsbanka Íslands.
Að loknu framsöguerindi verða fyrirspurnir og umræður.
Þátttökugjald með hádegisverði er kr. 2.500.
Fundurinn er öllum opinn.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfang: lindabara@fis.is
eða í síma 588 8910.