Morgunblaðið - 28.09.2004, Page 18

Morgunblaðið - 28.09.2004, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR LANDIÐ AUSTURLAND Skagafjörður | „Það má alltaf búast við ein- hverju þegar svona margt fólk kemur saman en þetta leysist bara upp í söng og gleði eins og venjulega,“ sagði Steinþór Tryggvason, bóndi í Kýrholti í Viðvíkursveit, réttastjóri í Laufskálarétt í Hjaltadal. Smölun á stóðinu og réttastörf gengu sömuleiðis afar vel, að hans sögn. Til Laufskálaréttar er rekið stóð bænda úr Viðvíkursveit og Hjaltadal sem gengið hefur sumarlangt á Kolbeinsdalsafrétti. Bændur smala afréttinn á föstudeginum í svokallað Skriðulandshólf þar sem stóðið er yfir nótt- ina. Á laugardeginum fór síðan mikið lið ríð- andi til að reka stóðið til réttar. Steinþór áætlar að um 300 manns hafi tekið þátt í rekstrinum en hrossin eru um 750 og eru fol- öldin þá talin með. Hafa því verið yfir þúsund hross í rekstrinum mikla úr Kolbeinsdal yfir í Hjaltadal. Laufskálarétt er mikil hátíð hestamanna og hrossaræktenda í Skagafirði enda kemur ávallt mikill fjöldi gesta í stóðréttina. Fyrir tveimur árum voru gestirnir taldir og þá komu tæplega 3.000 manns þar saman. Stein- þór taldi að svipaður fjöldi hefði nú verið samankominn í Laufskálarétt en sumir fasta- gestanna töldu að gestirnir hefðu aldrei verið fleiri. Í hópnum eru margir sem koma í Lauf- skálarétt á hverju hausti til að gleðjast og skemmta sér með Skagfirðingum og svo bæt- ast ný andlit við. Þá fjölgar alltaf erlendum ferðamönnum sem koma gagngert til lands- ins til að taka þátt í ævintýrinu. Sumir ríða af bæjunum um morguninn, taka þátt í rekstr- inum af Kolbeinsdal og réttastörfunum og reka síðan stóðið heim með heimilisfólkinu síðdegis. Laufskálarétt er nokkurs konar útstilling- argluggi skagfirskra hrossaræktenda. Menn heimsækja þá í dilkana og skoða og margir bændur, sem ekki eiga hross á afréttinum, eru einnig með sýningar heima á bæjunum. Steinþór telur að alltaf seljist töluvert af hrossunum um þessa helgi og þar myndist einnig tengsl sem leiði til viðskipta síðar í haust, þegar menn hafi hugsað sig um. Mikið er sungið í Laufskálarétt. Það byrjar um leið og réttastörfin hefjast og menn koma saman í litlum hópum til að taka lagið. Söng- hóparnir stækka síðan þegar líður á daginn og menn eru búnir að smyrja raddböndin að- eins meira. Í haust eru fimmtíu ár liðin frá vígslu Lauf- skálaréttar. Af því tilefni var haldin skemmt- un í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki á föstudagskvöldið og þar var einnig haldinn dansleikur á laugardagskvöldið. Góð mæting var á þessar skemmtanir, eins og í réttina. Leysist upp í söng og gleði Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Aldrei fjölmennari Sumir fastagestanna í Laufskálarétt töldu að aldrei hefðu fleiri verið þar saman komnir. Samkoman leystist að lokum upp í söng og gleði að hætti Skagfirðinga. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Markið mitt Steinunn Anna Halldórsdóttir staðfestir að markið sé sitt og piltarnir fara með trippið í Brimnesdilkinn. Hrausta menn þarf til að ná tökum á villtum trippum í réttinni. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fastagestur Stefán Steingrímsson frá Stór- holti í Fljótum er að vanda mættur með prik- ið í stóðréttina á Laufskálaholti. Að sunnan Gísli Sveinsson úr Hveragerði, Theódór Vilmundarson í Efsta-Dal og Herdís Hjaltadóttir úr Mosfellsbæ spjalla saman. Tríó Bræðurnir frá Varmalæk, Björn og Gísli Sveinssynir, heilsuðu Herði Stefánssyni frá Gilhaga. Þá var sungið hátt og snjallt. Egilsstaðir | Auður Vala Gunnars- dóttir og Þórveig Hákonardóttir opn- uðu á dögunum fyrirtækið Heilsu- ræktina á Egilsstöðum, sem eins og nafnið gefur til kynna býður upp á heilsurækt fyrir fólk á öllum aldri. Heilsuræktin er í nýendurbættum íþróttasal í kjallara Íþróttamiðstöðv- arinnar á Egilsstöðum og leigja þær Auður Vala og Þórveig salinn undir starfsemina. „Við bjóðum upp á margskonar leikfimi í hóptímum, hjólatíma, jóga og pílates, rólega leikfimi sem byggist á teygjum og æfingum, palla, spinn- ing og þrekhringi,“ sagði Auður Vala í samtali við Morgunblaðið. Hún er jafnframt yfirþjálfari Fimleikafélags Hattar. „Með tilkomu salarins eru tímamót í hóptímaheilsurækt hér. Íþróttahúsið er svo yfirbókað að á síð- asta ári gátum við aðeins fengið morguntíma í salnum, kl. hálfsjö á morgnana, sem hentar alls ekki öll- um. Nú gjörbreytist þetta og við get- um boðið upp á dag- og kvöldtíma að auki.“ Þórveig er með svokölluð Les Mills-réttindi og er nú í einkaþjálf- aranámi sem hún hyggst nýta í Heilsuræktinni strax í desember. Auður Vala er íþróttakennari og hef- ur sérhæft sig innan heilsuræktar- geirans, auk þess að vinna mikið með sjúkraþjálfurum. „Við höfum ýmsar hugmyndir og skellum ekki öllu fram í einu.“ Við er- um til dæmis að fara að bjóða upp á nýtt námskeið tengt hreyfigreiningu. Ég hef mikinn áhuga á að vera með rannsóknir tengdar því og heilsu- ræktinni í framtíðinni.“ Um helgina var nýr þrekþjálfunar- salur vígður í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum. Byggt var yfir áhorf- endastúku við sundlaug og breytt í íþróttasal. Við það batnar aðstaða í íþróttahúsinu til muna og gerir þeim Heilsubótarkonum kleift að taka sal- inn í kjallaranum, sem áður hýsti þrekþjálfun, á leigu fyrir sína starf- semi. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Nú skal tekið á því Auður Vala Gunnarsdóttir og Þórveig Há- konardóttir hafa opnað heilsurækt- arstöð á Egilsstöðum. Liðsauki í heilsu- ræktinaJökulsárhlíð | Guðmundur Björg-vinsson frá Ketilstöðum í Hlíð komfærandi hendi í Grunnskólann í Brúarási, þegar hann færði skól- anum 130 kílóa aflraunastein. Á honum reyndi Guðmundur afl sitt, sem var þó nokkurt þegar hann var ungur maður úti í Hlíð. Guðmundur segir að árið 1943 hafi komið hlaup í Fögruhlíðará, sem var svo sem ekkert óvenjulegt, en þegar hlaupið sjatnaði hafi þessi steinn komið í ljós í árbakkanum. Guðmundur, sem var í Sleð- brjótsseli á þessum árum, segist hafa veitt steininum athygli í nokkra daga, velt honum við og skoðað hann. „Þar kom að ég fór með hestakerru út eftir og hnoðaði steininum upp í kerruna og fór með hann heim í Sleðbrjótssel,“ segir Guðmundur. „Hugmynd mín var að festa járnhring í hann og gera að hestasteini. Það varð nú aldrei, en steinninn var þarna á hlaðinu og menn fóru að taka á honum.“ Sjálf- ur segist Guðmundur hafa tekið steininn upp nokkrum sinnum. Nemendur reyni afl sitt Guðmundur segir að lengst af hafi steinninn verið á heima- hlaðinu, en síðan verið færður nið- ur á hólinn fram og niður af bæn- um. „Mér fannst vel til fundið þegar því var hreyft fyrir tveimur árum, að gefa Brúarásskóla steininn til að leyfa skólapiltum og -stúlkum og öðrum að reyna sig á honum.“ Steinninn var áletraður hjá Álfa- steini á Borgarfirði en á honum stendur „Aflraunasteinn, 130 kg, Guðm. Björgvinsson kom með þennan stein í Sleðbrjótssel 1943, gaf Brúarásskóla 2004“. Guðmundur afhenti þeim Jónasi Þór Jóhannssyni, sveitarstjóra Norður-Héraðs, og Magnúsi Sæ- mundssyni, skólastjóra Brúarás- skóla, steininn til varðveislu og notkunar. Bóndi í Hlíðinni færir Brúarásskóla aflraunastein Gjöfin vó þungt Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Sestur í helgan stein Guðmundur Björgvinsson er nokkuð við aldur og hefur látið af aflraunum. Hann gaf Brúarásskóla því aflraunasteininn sinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.