Morgunblaðið - 28.09.2004, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 28.09.2004, Qupperneq 20
Ritstjórn Morgunblaðsins svarar fyrir sig á sinn hátt Í STAKSTEINUM Morgun- blaðsins í gær, sunnudag, birtir rit- stjórn andsvör við gagnrýni sem ég setti fram í stuttri grein í blaðinu sl. laugardag. Tilefnið var að í leiðara blaðs- ins sl. föstudag, sem bar fyrirsögnina ,,Að vera samkvæmur sjálfum sér“, er Hæstiréttur gagn- rýndur fyrir að hafa aðra afstöðu til ald- urs umsækjenda um stöðu dómara nú en árið 1990. Í leið- aranum segir að eng- in grein sé gerð fyrir þeirri stefnubreytingu varðandi aldur umsækjenda. Síðan segir að erfitt sé að sjá hvaða breyting hafi orðið á viðhorfi til aldurs á þeim fjórtán árum sem liðin eru. Í loka- orðum leiðarans segir að það sé ekki gott fyrir dómara í Hæstarétti að meirihluti þeirra skuli staðinn að því að vera ekki samkvæmur sjálfum sér eins og dæmin í leið- aranum sýni. Ekki fer á milli mála að í kröfu Morgunblaðsins um að dómararnir skuli vera samkvæmir sjálfum sér að því er aldur umsækjenda varðar felst sú afstaða að dómararnir hefðu átt að halda sér við for- dæmið frá 1990 og hafna nú umsækjanda sem er árinu eldri en sá sem hafnað var 1990. Aðeins með því gæti Hæstiréttur talist sam- kvæmur sjálfum sér. Ég útskýrði í stuttri blaðagrein hverjar breytingar hefðu orðið á lögum og mannréttinda- viðhorfum hér frá 1990 til 2004. Í Staksteinum í gær segir ritstjórn Morgunblaðsins, að fjarri sé að blaðið telji að reglan frá 1990 eigi að standa. Hið gagnstæða komi fram í leiðaranum. Þessi eftirá túlkun blaðsins á eigin orðum fær ekki staðist, enda væri krafa um breytt viðhorf ekki krafa um sam- kvæmni, heldur ósamkvæmni í skilningi blaðsins. Það er ánægju- legt að blaðið skuli nú draga orð sín til baka og segjast hafa meint annað en sagt var. Þeir sem efast ættu að lesa leiðarann sl. föstudag til að sannfærast um sannindi orða minna. Ummæli Morgunblaðsins verður þó að meta í því ljósi, að sem flokksmálgagn er blaðinu ekki kleift að haga sér eins og sjálf- stæður fjölmiðill, heldur verður það að gæta hagsmuna flokksfor- ystunnar, enda augljóst að hverju er stefnt með neikvæðum ummæl- um um Hæstarétt. Ég geri mér grein fyrir því að ritstjórn blaðsins á alltaf síðasta orðið þegar ágreiningur verður við lesendur og þess vegna hefur það ekki mikið uppá sig að andmæla ósæmilegum ósannindum þess, enda hef ég ekki tíðkað það. Und- antekning á þeirri reglu geri ég þó nú vegna þess hvað blaðið hefur verið óvenju heiftúðugt í garð þeirra sem andmæla því, sbr. t.d. ummæli um Jakob Möller, lög- mann, í Staksteinum sl. laugardag. Ragnar Aðalsteinsson fjallar um skrif Morgunblaðsins Ragnar Aðalsteinsson ’… í því ljósi, að semflokksmálgagn er blaðinu ekki kleift að haga sér eins og sjálf- stæður fjölmiðill.‘ Höfundur er lögmaður. 20 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN fg wilson Sími 594 6000 Rafstöðvar Veitum ráðgjöf og þjónustu fyrir allar stærðir og gerðir rafstöðva FGWILSONmase LÖGMENN eru nú hvattir til þess að undirrita stuðningsyfirlýsingu við einn umsækjanda um embætti dómara við Hæstarétt Íslands, Jón Steinar Gunn- laugsson. Í yfirlýsingunni er bent á, að það er löngu tímabært að lögmaður verði skip- aður dómari við Hæstarétt. Þar er einnig með réttu nefnd sú stað- reynd að Jón Steinar Gunnlaugsson er í fremstu röð íslenskra lögfræðinga, frábær málflutningsmaður og á að baki langan og merkan lögmannsferil. Allt er þetta satt og rétt en breytir ekki þeirri skoðun undirrit- aðs, að lögmenn eiga ekki að hafa afskipti af skipan dómara með þessum hætti. Það hafa lögmenn heldur ekki gert fyrr en nú, þó oft hafi vantað lögmenn í Hæstarétt og um dómaraembætti þar hafi sótt reyndir og hæfir lög- menn. Nöfn þeirra Sveins Snorrasonar, Guðmundar Ingva Sigurðssonar, Jóhanns H. Níelssonar, Atla Gísla- sonar, Jakobs R. Möller og Ragn- ars H. Hall má nefna sem dæmi. Það er auðvelt að sjá hvers vegna þessi aðferð til að hafa áhrif á veit- ingu dómaraembættis hefur ekki verið notuð fyrr. Opinber stuðnings- yfirlýsing lögmanna af þessu tagi við dómara skapar nefnilega óvissu og vekur áleitn- ar spurningar um hæfi dómarans. Er dómarinn van- hæfur til að dæma í málum sem einhver stuðningsmanna hans flytur? Er hann jafnvel van- hæfur til að dæma í málum þeirra lög- manna sem ekki lýstu yfir stuðningi við um- sókn hans? Þessum áleitnu spurningum er ekki auðvelt að svara og þeim á ekki að þurfa að svara. Undir- skriftasöfnun af þessu tagi á almennt ekki að eiga sér stað, hver sem í hlut á. Hér með er þess farið á leit við þá sem að söfnuninni standa, að henni verði hætt. Dómaradans Vilhjálmur H. Vilhjálmsson fjallar um veitingu hæstarétt- ardómaraembættisins Vilhjálmur H. Vilhjálmsson ’Opinberstuðningsyfir- lýsing lögmanna af þessu tagi við dómara skapar nefnilega óvissu og vekur áleitn- ar spurningar um hæfi dóm- arans.‘ Höfundur er hæstaréttarlögmaður. NÚ HAFA komið fram sjón- armið um að óeðlilegt sé, sem margir hafa gert, að grípa til varna fyrir Jón Steinar Gunn- laugsson, þegar á hann er ráðist. T.d. komu þau fram hjá Ágústi Ólafi Ágústssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, í Silfri Egils. Sagði hann að greinaskrifin væru eins og Jón Steinar væri í fram- boði og menn væru að rita prófkjörsgreinar! Ráðist hefur verið á Jón Stein- ar opinberlega. Svo hefur Hæsti- réttur skrifað um hann hlut- dræga umsögn. Og þá má ekki verjast að mati þingmannsins! Þá þykir honum óeðlilegt að fólki misbjóði og grípi til varna! Ég ætla að vona að Ágúst þurfi aldr- ei á vörnum að halda á opinber- um vettvangi. Það gæti litið út eins og hann væri í framboði. Saga málsins er einföld. Ráðist var á Jón Steinar, hann varinn og árásarmennirnir tapa rökræð- unum. Þá reyna andstæðingar hans að halda því fram að varn- irnar séu á einhvern hátt óeðli- legar. Hjalti Baldursson Óeðlilegt að verja Jón Steinar? Höfundur er framkvæmdastjóri. LAUGARDAGINN 18. sept- ember birtist grein í Morgun- blaðinu eftir Njörð P. Njarðvík, sem hann nefnir Umboð að ofan? Þar leggur hann út af orðum sem voru eftir mér höfð í Fréttablaðinu frá 9. þm er ég var inntur eftir skoðun minni á áskorun til Þjóð- kirkjunnar frá nefnd forsætisráðherra um málefni samkyn- hneigðra, að unnið yrði að kirkjulegri vígslu þeirra. Þar kom fram að ég teldi kirkjuna ekki geta orðið við því, þar sem hana skorti um- boð að ofan. Átti ég þar við Guðs orð, ekki veraldlega vald- hafa. Njörður segir að væntanlega sé ég að vísa til orða 3. Móse- bókar þar sem rætt er um kynmök karl- manna. Hvorki þessir textar né aðrir textar Biblíunnar sem fjalla um kynmök voru í huga mér þegar ég svaraði Fréttablaðinu, enda fjallaði fréttin ekki um kynmök heldur kirkjulega vígslu. Njörður finnur honum sem hann kallar „grimman guð Gamla testa- mentisins“ flest til foráttu og segir að það sé eins og að „koma út úr myrkri fordóma og mannhaturs að lesa Gamla testamentið og að hefja síðan lestur á boðskap Krists.“ Vissulega kveður þar við nýjan tón en gleymum ekki orðum Krists: Ætlið ekki, að ég sé kominn til að afnema lögmálið eða spámenn- ina. Ég kom ekki til að afnema, heldur uppfylla. Sannlega segi ég yður: Þar til himinn og jörð líða undir lok, mun ekki einn smástafur eða stafkrókur falla úr lögmálinu, uns allt er komið fram. Matt. 5. Með lögmálinu á Kristur við Gamla testamentið! Guð Gamla testamentisins er ekki „grimmur guð“ í augum Jesú, heldur skapari okkar og lífgjafi. Þennan Guð kenndi Kristur okkur að ávarpa sem föður. Ég minni á að kirkjan játar trú á þríeinan Guð, föður, son og heil- agan anda. Það er rétt hjá Nirði þar sem hann segir að Biblían sé mörg rit skrifuð á löngum tíma, kámug af fingraförum kynslóðanna. Engu að síður er það svo að þessi rit hefur trúarsamfélagið, fyrst gyð- ingdómur Gt. og síðar kirkja Krists haft sem leiðbeiningu og úr- skurðarvald um kenningu sína og rétta breytni og viðurkennt guð- legan innblástur þeirra. Kirkjan verður að sjálfsögðu að skoða sjálfa sig í ljósi samtíðar sinnar hverju sinni og afstöðu sína gagn- vart öllum málum sem upp koma, en er engu að síður bundin Guðs orði, annars væri hún ekki kirkja. Guð er uppspretta blessunar- innar. Blessun hans birtist best í því að Guð gerðist maður í Jesú Kristi. Þannig sættir hann mann- kynið við sig, aðhefst sjálfur til að sigra óréttlætið færir okkur sitt réttlæti og blessun. Þegar við dauðlegir, syndugir menn miðlum blessun Guðs þá verður sú blessun að vera í takt við fyrirheit Guðs og sáttmála hans sem birt- ist í Kristi. Víkur þá sögunni að kröfunni um að kirkjan og hennar yfirvöld leggi að jöfnu staðfesta samvist og hjónaband karls og konu. Eina form hjúskapar sem Biblían ræðir um og telur lúta lögmálum skaparans er kona og karl. Við rekum okkur á þetta þegar í sköp- unarfrásögunni. Og Guð […] skapaði þau karl og konu […] og blessaði þau. 1. Mósebók 1.27-28 Í 2. kafla sömu bókar segir: Þess vegna yfirgefur maður föð- ur sinn og móður sína og býr við eiginkonu sína, svo að þau verði eitt hold. 1. Mósebók 2:24 Til þessara orða vitnaði Jesús sjálfur (Matt 19) Þau orð eru grundvallandi fyrir sýn Biblíunnar á hjúskaparform að skikkan skaparans. Það er þetta félag manns og konu sem er bless- að. Sjötta boðorðið, Þú skalt ekki drýgja hór (2. Mós. 20.14) undir- strikar að mikilvægt er að hjú- skapurinn sé undir reglu. Þar sem rætt er um samkyn- hneigð í Biblíunni þá er það aldrei tengt við hjúskap. Margir hafa orðið til að benda á að umræða Biblíunnar um sam- kynhneigð eigi ekkert skylt við al- vöru kærleikssamband samkyn- hneigðra para eins og við þekkjum í nútímanum. Það er rétt, en kær- leikurinn þeirra á milli, eins sann- ar tilfinningar og bærast í brjóst- um einstaklinganna í garð hvor annars, breytir engu um það hvort kirkjan geti vígt samkynhneigð pör sem hjón. Það er mín skoðun að þótt al- menningur heimtaði það og þó stjórnvöld tækju það sér fyrir hendur að skipa Þjóðkirkjunni og öðrum kristnum kirkjudeildum að vígja samkynhneigð pör þá gætu þær ekki orðið við því. Sem biblíulegan rökstuðning við hjónavígslu samkynhneigðra hef ég hingað til aðeins heyrt tíndar til almennar meginreglur Krists, svipað og Njörður gerir t.d. um að dæma ekki og að elska náungann eins og okkur sjálf. Á engum þess- ara meginreglna sé ég brotið þó kirkjan neiti að líta staðfesta sam- vist og hjónaband karls og konu sömu augum gagnvart vígslu. Njörður hefur rétt fyrir sér þeg- ar hann segir að kirkjunnar menn hafi ekki umboð að ofan til að úti- loka samkynhneigða frá fullri þátt- töku og reisn í kristnum söfnuðum. Því hef ég heldur aldrei haldið fram og þekki engan sem það ger- ir. Að lokum vil ég gefa Nirði ritn- ingarstað, sem hann ætti að þekkja, úr Prédikaranum: Vertu ekki of munnhvatur, og hjarta þitt hraði sér ekki að mæla orð frammi fyrir Guði, því að Guð er á himnum, en þú á jörðu, ver því eigi margorður. Préd. 5:2 Já, kirkjuna skort- ir umboð að ofan Sr. Guðmundur Karl Brynjars- son svarar Nirði P. Njarðvík ’Þar sem rætter um samkyn- hneigð í Bibl- íunni þá er það aldrei tengt við hjúskap.‘ Guðmundur Karl Brynjarsson Höfundur er sóknarprestur í Linda- sókn í Kópavogi. Eftirfarandi greinar eru á mbl.is: Jón Steinsson: „Það er engin tilviljun að hlutabréfamarkaður- inn í Bandaríkjunum er öflugri en hlutabréfamarkaðir annarra landa.“ Regína Ásvaldsdóttir: „Eitt af markmiðum með stofnun þjón- ustumiðstöðva er bætt aðgengi í þjónustu borgaranna.“ Jónas Gunnar Einarsson: „Áhrifalaus og mikill meirihluti jarðarbúa, svokallaður almenn- ingur þjóðanna, unir jafnan mis- jafnlega þolinmóður við sitt.“ Jakob Björnsson: „Mörg rök hníga að því að raforka úr vatns- orku til álframleiðslu verði í framtíðinni fyrst og fremst unn- in í tiltölulega fámennum, en vatnsorkuauðugum, löndum...“ Tryggvi Felixson: „Mikil ábyrgð hvílir því á þeim sem taka ákvörðun um að spilla þess- um mikilvægu verðmætum fyrir meinta hagsæld vegna frekari álbræðslu.“ Stefán Örn Stefánsson: „Ég hvet alla Seltirninga til kynna sér ítarlega fyrirliggjandi skipu- lagstillögu bæjaryfirvalda ...“ Gunnar Finnsson: „Hins vegar er ljóst að núverandi kerfi hefur runnið sitt skeið og grundvall- arbreytinga er þörf...“ Eyjólfur Sæmundsson og Hanna Kristín Stefánsdóttir: „Öryggismál í landbúnaði falla undir vinnuverndarlög og þar með verksvið Vinnueftirlitsins.“ Jakob Björnsson: „Með þvílík- um vinnubrögðum er auðvitað lítil von um sættir.“ Guðmundur Hafsteinsson: „Því eru gráður LHÍ að inntaki engu fremur háskólagráður en þær sem TR útskrifaði nemend- ur með, nema síður sé.“ María Th. Jónsdóttir: „Á land- inu okkar eru starfandi mjög góðar hjúkrunardeildir fyrir heilabilaða en þær eru bara allt of fáar og fjölgar hægt.“ Á mbl.is Aðsendar greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.