Morgunblaðið - 28.09.2004, Síða 21

Morgunblaðið - 28.09.2004, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 21 UMRÆÐAN BESTI EVRÓPSKI LEIKSTJÓRINN BESTI EVRÓPSKI LEIKARINN BESTA EVRÓPSKA LEIKKONAN Evrópska kvikmynda- akademían og mbl.is bjóða þér að taka þátt í kosningu um besta leikstjórann, besta leikarann og bestu leikkonuna í evrópskum kvikmyndum síðasta árs. Kjóstu með því að merkja í hringinn við nafn þess sem þú vilt kjósa í hverjum flokki, fylltu út formið og sendu á heimilisfangið hér að neðan. Þannig átt þú möguleika á að komast á verðlauna- athöfn Evrópsku kvikmynda- verðlaunanna 2004 sem haldin verður 11. desember í Barcelona. Á mbl.is getur þú líka kosið með því að smella á hnappinn „Evrópsku kvikmyndaverðlaunin 2004“ á forsíðu mbl.is SKILAFRESTUR Á INNSENDINGUM OG ÞÁTTTÖKUFRESTUR Í NETKOSNINGU ER 31. OKT. 2004. Klippið auglýsinguna út og sendið á eftirfarandi heimilisfang: NAFN HEIMILISFANG PÓSTFANG HEIMASÍMI/GSM NETFANG LAND Taktu þátt í vali fólksins! THE PEOPLE´S CHOICE AWARDS 2004, ERNST & YOUNG, AB BOX 7850, 103 99 STOCKHOLM, SWEDEN CONTEST IS SUBJECT TO RULES AND REGULATIONS AVAILABLE ON REQUEST FROM ERNST & YOUNG VIÐSKIPTABLAÐ Morgun- blaðsins birti nýlega viðtal við Mich- ael Treschow, formann sænsku sam- taka atvinnulífsins. Í kjölfarið hefur leiðarahöfundur blaðsins vitnað til orða Treschows um skaðsemi hringamyndunar í sænsku við- skiptalífi og hefur blaðið hvatt Sam- tök atvinnulífsins til þess að gera umrædd sjónarmið Treschows að sínum og til að taka höndum saman við stjórnvöld til að auka traust al- mennings og trú á því að í íslensku atvinnulífi sé lífleg samkeppni og hart tekið á hringamyndun og einok- unartilburðum. Tillögur SA Undanfarin ár hafa SA lagt mikla vinnu í skýrslugerð og vandaðar til- lögur um hvernig bæta megi sam- keppnislögin og gera þau skilvirkari, auk stuðnings við aðra útgáfu og ráðstefnuhald á þessu sviði. Rauður þráður í öllum málflutningi SA er að tilgangur samkeppniseftirlits sé að vinna gegn misnotkun á markaðs- ráðandi stöðu, verðsamráði og öðru ólögmætu atferli, en ekki að stýra uppbyggingu atvinnulífsins og hamla gegn hagræðingu. SA hafa einnig gert athugasemdir við stjórn- sýsluþátt samkeppnislaganna og við framkvæmd rannsóknaraðgerða Samkeppnisstofnunar. Ánægjulegt er að sjá að sumar þessara tillagna er nú að finna í tillögum nefndar við- skiptaráðherra um íslenskt við- skiptaumhverfi, eins og tillöguna um skilvirkara skipulag samkeppnis- mála. Almennt hafa SA sagt margar tillögur nefndarinnar til bóta, enda hefur viðskiptaráðherra sagt í ræðu að viðbrögð SA við skýrslunni hefðu verið jákvæð en varfærin. Að efla traust til atvinnulífsins Í öðrum hluta fyrrnefnds viðtals Morgunblaðsins við Treschow, þar sem rætt er um reglusmíð um stjórnarhætti fyrirtækja og ákvarð- anatöku um laun æðstu stjórnenda, segist Treschow vona að aðallega verði um það að ræða að viðskipta- lífið sjái sjálft um að setja sér reglur fremur en að hlutirnir verði settir í lög. Hér á landi hafa SA, ásamt með Verslunarráði Íslands og Kauphöll Íslands, kynnt leiðbeiningar um starfshætti fyrirtækja, m.a. með það að markmiði að tryggja traust á fyr- irtækjum og atvinnurekstri al- mennt. Í viðtalinu við Treschow er jafnframt fjallað um svokallaða „traustsráðstefnu“ sænsku samtaka atvinnulífsins fyrr á þessu ári. Er- lendur gestur aðalfundar SA í maí síðastliðnum var einmitt Göran Trogen, framkvæmdastjóri hjá sænsku samtökum atvinnulífsins, sem hafði veg og vanda af umræddri ráðstefnu. SA buðu Trogen hingað til þess að fræðast um viðamikið starf sænsku samtakanna við að efla traust almennings á atvinnulífinu, í því skyni að hægt væri að draga lær- dóm af því hér. Í samtölum Tresch- ows við forystumenn SA hefur hann lagt áherslu á að viðskiptalífið sýni frumkvæði í þessum efnum, til að koma í veg fyrir óþarfa lagasetn- ingu. Enda séu reglur viðskiptalífs- ins líklegri til að geta tekið sveigj- anlegt tillit til mismunandi aðstæðna í stórum og smáum fyrirtækjum, skráðum fyrirtækjum og fjölskyldurekstri. Ýmis atriði sem snúa að stjórnarháttum fyr- irtækja eiga heima í lögum. Það verður þó að segjast eins og er að SA telja fram komnar tillögur um lögfestingu stjórn- arhátta ganga full- langt um sum atriði og ekki síður að þær nái til of smárra fyr- irtækja, sem rekin eru sem einkahlutafélög. Áherslur í Svíþjóð Auðvelt er að nálgast áherslur sænsku samtaka atvinnulífsins í samkeppnismálunum á vef samtak- anna, www.svenskt- naringsliv.se, en þar er m.a. að finna bækling- inn Karteller, konk- urrenslag, EU-regler. Þar er sænska hugtakið „kartell“, sem hér á landi virðist í blaða- umræðu hafa verið þýtt sem „hringamyndun“, skilgreint sem ólög- mætt samkomulag um verð, tilboðsgerð og markaðsskiptingu. Í inngangi er bent á að samkeppni þrífist best á markaði með eins fáum tilbúnum hindrunum og mögulegt er. Sænsku samtök at- vinnulífsins telji því mikilvægt að standa vörð gegn ónauðsynlegum reglum. Ekki megi heldur leyfa fyr- irtækjunum að hindra samkeppni. Samkeppnisreglurnar eigi að vera skarpar og eftirlitið skilvirkt, en ekki að stýra því í smáatriðum hvað fyrirtækin aðhafast. Ólögmætt sam- ráð og uppskipting markaðar, „karteller“, sé óverjandi. Þar eigi að spyrna fast við fótum. Samtökin styðji því viðleitni til þess. Samhliða benda sænsku samtök atvinnulífsins á að ekki sé bannað að fyrirtæki séu markaðsráðandi. Það sem er bannað sé að misnota þá aðstöðu. Sam- keppnishæf og vaxandi fyrirtæki hafi afgerandi þýðingu fyrir efna- hagslífið, störfin og velferðina. Í þessu sambandi vekur athygli að við breytingar á sænsku samkeppnis- lögunum á liðnu vori vegna innleið- ingar nýju Evrópureglnanna var því hafnað að heimila uppskiptingu fyr- irtækja eins og nefndin um íslenskt viðskiptaumhverfi leggur til að gert verði hér á landi. Að lokum skal það fullyrt að áherslur SA í umfjöllun sinni um samkeppnismál og stjórnarhætti fyrirtækja hafa í öllum megin- dráttum verið þær nákvæmlega sömu og systursamtaka SA í Sví- þjóð. Það er sömuleiðis að sjálfsögðu markmið SA að vinna með stjórn- völdum að jákvæðri þróun mála á þessu sviði, þótt meiningar geti á stundum verið mismunandi um hvaða leiðir eru heppilegastar. Með því hugarfari taka SA þátt í skoð- anaskiptum um útfærslu þeirra til- lagna sem nú liggja fyrir. Ábyrgt atvinnulíf Ari Edwald fjallar um skrif Morgunblaðsins ’… áherslur SA … hafaí öllum megindráttum verið þær nákvæmlega sömu og systursamtaka SA í Svíþjóð.‘ Ari Edwald Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.