Morgunblaðið - 28.09.2004, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 21
UMRÆÐAN
BESTI EVRÓPSKI LEIKSTJÓRINN
BESTI EVRÓPSKI LEIKARINN
BESTA EVRÓPSKA LEIKKONAN
Evrópska
kvikmynda-
akademían og
mbl.is
bjóða þér að taka þátt í
kosningu um besta
leikstjórann, besta leikarann
og bestu leikkonuna í
evrópskum kvikmyndum
síðasta árs.
Kjóstu
með því að merkja í hringinn
við nafn þess sem þú vilt
kjósa í hverjum flokki,
fylltu út formið og sendu á
heimilisfangið hér að neðan.
Þannig átt þú möguleika
á að komast á verðlauna-
athöfn Evrópsku kvikmynda-
verðlaunanna 2004 sem
haldin verður 11. desember í
Barcelona.
Á mbl.is
getur þú líka kosið
með því að smella
á hnappinn „Evrópsku
kvikmyndaverðlaunin 2004“
á forsíðu mbl.is
SKILAFRESTUR Á INNSENDINGUM OG ÞÁTTTÖKUFRESTUR Í NETKOSNINGU ER 31. OKT. 2004. Klippið auglýsinguna út og sendið á eftirfarandi heimilisfang:
NAFN
HEIMILISFANG
PÓSTFANG
HEIMASÍMI/GSM
NETFANG
LAND
Taktu þátt
í vali fólksins!
THE PEOPLE´S CHOICE AWARDS 2004, ERNST & YOUNG, AB BOX 7850, 103 99 STOCKHOLM, SWEDEN
CONTEST IS SUBJECT TO RULES AND REGULATIONS AVAILABLE ON REQUEST FROM ERNST & YOUNG
VIÐSKIPTABLAÐ Morgun-
blaðsins birti nýlega viðtal við Mich-
ael Treschow, formann sænsku sam-
taka atvinnulífsins. Í kjölfarið hefur
leiðarahöfundur blaðsins vitnað til
orða Treschows um skaðsemi
hringamyndunar í sænsku við-
skiptalífi og hefur blaðið hvatt Sam-
tök atvinnulífsins til þess að gera
umrædd sjónarmið Treschows að
sínum og til að taka höndum saman
við stjórnvöld til að auka traust al-
mennings og trú á því að í íslensku
atvinnulífi sé lífleg samkeppni og
hart tekið á hringamyndun og einok-
unartilburðum.
Tillögur SA
Undanfarin ár hafa SA lagt mikla
vinnu í skýrslugerð og vandaðar til-
lögur um hvernig bæta megi sam-
keppnislögin og gera þau skilvirkari,
auk stuðnings við aðra útgáfu og
ráðstefnuhald á þessu sviði. Rauður
þráður í öllum málflutningi SA er að
tilgangur samkeppniseftirlits sé að
vinna gegn misnotkun á markaðs-
ráðandi stöðu, verðsamráði og öðru
ólögmætu atferli, en ekki að stýra
uppbyggingu atvinnulífsins og
hamla gegn hagræðingu. SA hafa
einnig gert athugasemdir við stjórn-
sýsluþátt samkeppnislaganna og við
framkvæmd rannsóknaraðgerða
Samkeppnisstofnunar. Ánægjulegt
er að sjá að sumar þessara tillagna
er nú að finna í tillögum nefndar við-
skiptaráðherra um íslenskt við-
skiptaumhverfi, eins og tillöguna um
skilvirkara skipulag samkeppnis-
mála. Almennt hafa SA sagt margar
tillögur nefndarinnar til bóta, enda
hefur viðskiptaráðherra sagt í ræðu
að viðbrögð SA við skýrslunni hefðu
verið jákvæð en varfærin.
Að efla traust til atvinnulífsins
Í öðrum hluta fyrrnefnds viðtals
Morgunblaðsins við Treschow, þar
sem rætt er um reglusmíð um
stjórnarhætti fyrirtækja og ákvarð-
anatöku um laun æðstu stjórnenda,
segist Treschow vona að aðallega
verði um það að ræða að viðskipta-
lífið sjái sjálft um að setja sér reglur
fremur en að hlutirnir verði settir í
lög. Hér á landi hafa SA, ásamt með
Verslunarráði Íslands og Kauphöll
Íslands, kynnt leiðbeiningar um
starfshætti fyrirtækja, m.a. með það
að markmiði að tryggja traust á fyr-
irtækjum og atvinnurekstri al-
mennt. Í viðtalinu við Treschow er
jafnframt fjallað um svokallaða
„traustsráðstefnu“ sænsku samtaka
atvinnulífsins fyrr á þessu ári. Er-
lendur gestur aðalfundar SA í maí
síðastliðnum var einmitt Göran
Trogen, framkvæmdastjóri hjá
sænsku samtökum atvinnulífsins,
sem hafði veg og vanda af umræddri
ráðstefnu. SA buðu Trogen hingað
til þess að fræðast um viðamikið
starf sænsku samtakanna við að efla
traust almennings á atvinnulífinu, í
því skyni að hægt væri að draga lær-
dóm af því hér. Í samtölum Tresch-
ows við forystumenn SA hefur hann
lagt áherslu á að viðskiptalífið sýni
frumkvæði í þessum efnum, til að
koma í veg fyrir óþarfa lagasetn-
ingu. Enda séu reglur viðskiptalífs-
ins líklegri til að geta tekið sveigj-
anlegt tillit til mismunandi aðstæðna
í stórum og smáum fyrirtækjum,
skráðum fyrirtækjum
og fjölskyldurekstri.
Ýmis atriði sem snúa
að stjórnarháttum fyr-
irtækja eiga heima í
lögum. Það verður þó
að segjast eins og er
að SA telja fram
komnar tillögur um
lögfestingu stjórn-
arhátta ganga full-
langt um sum atriði og
ekki síður að þær nái
til of smárra fyr-
irtækja, sem rekin eru
sem einkahlutafélög.
Áherslur í Svíþjóð
Auðvelt er að nálgast áherslur
sænsku samtaka atvinnulífsins í
samkeppnismálunum á vef samtak-
anna, www.svenskt-
naringsliv.se, en þar er
m.a. að finna bækling-
inn Karteller, konk-
urrenslag, EU-regler.
Þar er sænska hugtakið
„kartell“, sem hér á
landi virðist í blaða-
umræðu hafa verið þýtt
sem „hringamyndun“,
skilgreint sem ólög-
mætt samkomulag um
verð, tilboðsgerð og
markaðsskiptingu. Í
inngangi er bent á að
samkeppni þrífist best á markaði
með eins fáum tilbúnum hindrunum
og mögulegt er. Sænsku samtök at-
vinnulífsins telji því mikilvægt að
standa vörð gegn ónauðsynlegum
reglum. Ekki megi heldur leyfa fyr-
irtækjunum að hindra samkeppni.
Samkeppnisreglurnar eigi að vera
skarpar og eftirlitið skilvirkt, en
ekki að stýra því í smáatriðum hvað
fyrirtækin aðhafast. Ólögmætt sam-
ráð og uppskipting markaðar,
„karteller“, sé óverjandi. Þar eigi að
spyrna fast við fótum. Samtökin
styðji því viðleitni til þess. Samhliða
benda sænsku samtök atvinnulífsins
á að ekki sé bannað að fyrirtæki séu
markaðsráðandi. Það sem er bannað
sé að misnota þá aðstöðu. Sam-
keppnishæf og vaxandi fyrirtæki
hafi afgerandi þýðingu fyrir efna-
hagslífið, störfin og velferðina. Í
þessu sambandi vekur athygli að við
breytingar á sænsku samkeppnis-
lögunum á liðnu vori vegna innleið-
ingar nýju Evrópureglnanna var því
hafnað að heimila uppskiptingu fyr-
irtækja eins og nefndin um íslenskt
viðskiptaumhverfi leggur til að gert
verði hér á landi.
Að lokum skal það fullyrt að
áherslur SA í umfjöllun sinni um
samkeppnismál og stjórnarhætti
fyrirtækja hafa í öllum megin-
dráttum verið þær nákvæmlega
sömu og systursamtaka SA í Sví-
þjóð. Það er sömuleiðis að sjálfsögðu
markmið SA að vinna með stjórn-
völdum að jákvæðri þróun mála á
þessu sviði, þótt meiningar geti á
stundum verið mismunandi um
hvaða leiðir eru heppilegastar. Með
því hugarfari taka SA þátt í skoð-
anaskiptum um útfærslu þeirra til-
lagna sem nú liggja fyrir.
Ábyrgt atvinnulíf
Ari Edwald fjallar um skrif
Morgunblaðsins
’… áherslur SA … hafaí öllum megindráttum
verið þær nákvæmlega
sömu og systursamtaka
SA í Svíþjóð.‘
Ari Edwald
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins.