Morgunblaðið - 28.09.2004, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ingibjörg ThorsGíslason fæddist
í Reykjavík 15. febr-
úar 1924. Hún lést á
Winchester Hospital
í Boston, Massachus-
etts 20. ágúst síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Ólafur
Thors, alþingismað-
ur og forsætisráð-
herra, f. 19. jan.
1892, d. 31 des. 1964,
og Ingibjörg Indr-
iðadóttir Thors, f. 21
ág. 1894, d. 5. ág
1988.
Börn Ingibjargar og Ólafs, auk
Ingibjargar, voru Thor Jensen, f.
17. sept. 1916, d. 10. febr. 1921,
Marta, f. 28. mars 1918, d. 20. des.
1998, Thor, f. 31. mars 1922, d. 9.
des. 1992, og Margrét Þorbjörg, f.
16. janúar 1929, d. 5. mars 2003.
Ingibjörg giftist 11. nóv. 1944
Þorsteini Gíslasyni, f. 29. mars
1924. Foreldrar hans voru Gísli
Jónsson, alþm., f. 17. ág. 1889, d. 7.
24 og flutti fimm ára að aldri með
foreldrum sínum í Garðastræti 41.
Hún stundaði nám við Kvennaskól-
ann og síðar Húsmæðraskólann í
Reykjavík þar til þau Þorsteinn
giftu sig og fluttu til Boston. Þar
dvöldu þau í fimm ár meðan hann
nam verkfræði við MIT- og Har-
vard-háskóla. Þau bjuggu á Íslandi
næstu árin en fluttu aftur vestur
um haf 1955, fyrst til Boston en
síðan til St. Louis 1957. Árið 1962
tók Þorsteinn við starfi forstjóra
Coldwater Seafood Corporation
og flutti fjölskyldan þá til Dobbs
Ferry, New York. Ingibjörg var
heimavinnandi en hóf störf hjá
Coldwater 1968, þegar synirnir
voru komnir á legg. Eftir skilnað
þeirra Þorsteins 1975 flutti Ingi-
björg til Lexington, í útjaðri Bost-
on. Hún tók þá við starfi fram-
kvæmdastjóra innkaupa á
sjávarafurðum hjá Coldwater í
Everett, Massachusetts. Eins
sinnti hún ýmsum verkefnum
varðandi affermingu skipa í
Everett og var ávallt reiðubúin að
veita íslenskum farmönnum að-
stoð sína. Ingibjörg lét af störfum
hjá Coldwater árið 2000.
Útför Ingibjargar fer fram frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
okt. 1970, og Hlín Þor-
steinsdóttir, f. 5. des.
1899, d. 9. nóv. 1964.
Börn Gísla og Hlínar
eru auk Þorsteins
Guðrún, f. 17 jún.
1922, og Haraldur, f.
28 sept. 1928, d. 28.
jan. 1983.
Ingibjörg og Þor-
steinn eignuðust syn-
ina Þorstein, f. 27. júlí
1947, og Ólaf, f. 29.
feb. 1952.
Þorsteinn er kvænt-
ur Ragnheiði Ár-
mannsdóttur, f. 24.
júlí 1946. Þau eiga Láru, f. 28. ág.
1974, og Pétur, f. 4. júní 1977.
Dóttir Ragnheiðar er Fríða, f. 20.
okt. 1962, og hennar sonur Evan
Bartlett, f. 29. des. 1992.
Ólafur er kvæntur Katherine
Airola, f. 24. sept. 1952. Börn
þeirra eru Erika Christine, f. 29.
júlí 1982, og Stefán Matthías, f. 18
apr. 1984.
Ingibjörg fæddist á Grundarstíg
Það var alltaf tilhlökkunarefni
þegar von var á Ingibjörgu móð-
ursystur heim frá Ameríku. Allar
kynslóðir í fjölskyldunni vissu að þá
yrði gaman, því hún var vinur okkar
allra og bæði stórir og smáir nutu
sín nálægt henni. Við systur munum
vel þegar hún bjó heima hjá afa og
ömmu í Garðastræti 41 á meðan
heimsókninni stóð hér á árum áður.
Þá var spilaborðið tekið fram og
farið að spila bridge. Það var mikið
fjör og eina manneskjan sem okkur
virtist að spilaði ekki vitlaust að
mati afa var Ingibjörg, enda rökföst
og mikill reikningshaus.
Ingibjörg var sláandi glæsileg.
Há, tággrönn og fíngerð, fríð, stutt-
klippt, varð snemma hvíthærð sem
fór vel við litaraftið og fjólublá aug-
un. Fallega vaxin og fallega klædd,
svo ekki sé minnst á flottu löngu
neglurnar sem við öfunduðum hana
allar af. Elegant.
En fyrst og fremst var hún
skemmtileg. Fyndin og hláturmild,
hafði frábæra frásagnargáfu og
auga fyrir smáatriðunum sem
spegla heildina, hló lágt á meðan
hún talaði og ræskti sig létt í miðri
setningu eins og margir í fjölskyld-
unni. Hún var mjög vel að sér um
menn og málefni og ótrúlega minn-
ug. Hún var mikill mannþekkjari og
áttaði sig strax á höfuðdráttum í
eðli og fari hvers og eins. Rakti auð-
veldlega ættar- og vinatengsl og
hafði einhvern veginn lag á að
tengja þá sem um var rætt hverju
sinni. Það var gaman að tala við
hana og hlusta á hana tala við aðra,
jafnvel í síma. Tilsvörin óborganleg.
Hún var fljót að átta sig, hafði ein-
stakt lag á að greina aðalatriði frá
aukaatriðum og setja málin í auð-
skiljanlegt og spaugilegt ljós. Þeir
þurftu ekki að kemba hærurnar
sem hættu sér með moðhausinn of
nálægt hennar skörpu hugsun. En
hún var hvorki dómhörð né dóm-
ínerandi, heldur tók með húmor á
hlutunum og var þess vegna ekki
óþægileg þótt hún væri eldklár.
Hún giftist ung æskuástinni
sinni, Þorsteini Gíslasyni, en hann
var mikill vinur Thors bróður henn-
ar. Þau voru glæsilegt par. Í byrjun
búskapar þeirra fóru þau til Banda-
ríkjanna, þar sem Þorsteinn nam
verkfræði við MIT í Boston. Að
námi loknu bjuggu þau hér heima í
fáein ár, en héldu svo aftur með
synina unga vestur um haf, fyrst til
Boston og síðar til Saint Louis. Upp
úr 1960 leitaði Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna að nýjum forstjóra
Coldwater Seafood Corporation og
tók Þorsteinn við því starfi. Þar
með hófst áratuga farsælt starf
þeirra hjóna fyrir íslenskan sjávar-
útveg. Í þessari vinnu stóð Ingi-
björg við hlið Þorsteins og tók mik-
inn þátt í verkum hans. Eftir að
synir þeirra voru uppkomnir réðst
hún til starfa hjá fyrirtækinu. Hún
var borinn skipuleggjandi og stjórn-
andi og hafði næma tilfinningu fyrir
fjármálum. Þau Þorsteinn unnu
saman eins og einn maður meðan
hann var forstjóri fyrirtækisins.
Þeir eru ófáir kaupendur og selj-
endur íslenskra fiskafurða sem
kynntust henni á þeim árum bæði
sem samningakonu og glæsilegum
gestgjafa þess mikla fjölda sem þau
hjónin tóku á móti fyrir Coldwater,
en bæði voru þau höfðingjar heim
að sækja.
Eftir skilnað þeirra Þorsteins
1975 flutti Ingibjörg til Boston og
vann áfram hjá Coldwater þar, en
Þorsteinn hætti fljótlega störfum
hjá fyrirtækinu.
Vinátta systranna, Ingibjargar og
móður okkar Mörtu, og fjölskyldna
þeirra stóð mjög styrkum stoðum.
Þetta fólk átti vel skap saman og
hafði um nóg að tala fram á rauðar
nætur. En yngri kynslóðin hefur
líka notið þessarar vináttu alla tíð.
Við eigum ótal góðar minningar um
hlýju og gestrisni Ingibjargar, Þor-
steins og sona þeirra þegar við
dvöldum hjá þeim í Dobbs Ferry,
meðal annars í öllum „landlegum“ í
flugfreyjustarfi hjá Loftleiðum forð-
um daga. Heimili þeirra og hugur
stóðu okkur alltaf opin. Við þökkum
það og allar skemmtilegu minning-
arnar sem þau hafa auðgað líf okkar
með.
Ólöf og Guðrún Pétursdætur.
Síminn hringdi.
,,Komdu sæl. Ég heiti Ingibjörg
Thors, og ég er frænka þín.“ Þetta
var árið 1982 – ég var nýflutt til
Boston ásamt fjölskyldu minni.
Símtalið varð langt og skemmti-
legt. Mér fannst eins og ég væri að
tala við manneskju, sem ég hefði
þekkt alla ævi – samnefnara móð-
urfólks míns.
Húmorinn blómstrandi, hláturinn
dillandi, sögurnar margar og
hnyttnar.
Mér fannst eins og ég væri orðin
fluga á vegg á fundi hjá vinafélag-
inu ,,Hf. Útgerðin hf.“, en þann
klúbb skipuðu þrennar systur; Ingi-
björg og Marta Thors, Jórunn og
Drífa Viðar og Hildur og Helga
Kalman.
Á klúbbfundum var ekki nostrað
við hannyrðir, heldur lék listagyðj-
an þar á als oddi. Áhugasviðið
spannaði ljóðlist, leiklist, tónlist og
myndlist og var mikið fjör á fund-
um. Hver fundur hafði ákveðið tema
og var skylda að koma með frum-
samið efni. Móðir mín á það til enn
þann dag í dag, að láta fjúka kvið-
linga eftir þær stöllur, og spilar
jafnvel undir eigin tónlist, sem sam-
in var fyrir einhvern fundinn. Allt
sprellandi af lífsgleði.
Þrátt fyrir að þrír áratugir skildu
okkur Ingibjörgu að, skipti það ekki
nokkru máli, hún var sem jafnaldri
og besta vinkona, jafnt í gleði og
sorg.
Mér þótti svo mikið til hennar
koma, að alheimsmet mitt í ritlöm-
un gat ekki komið í veg fyrir að ég
héldi einhvers konar bréflegu sam-
bandi við hana í þau tuttugu ár, sem
liðin eru síðan ég flutti heim til Ís-
lands.
Ingibjörg kvaddi þennan heim á
afmælisdaginn minn, 20. ágúst. Satt
að segja fannst mér það hálf ónær-
gætið af henni, og er það í fyrsta
sinn, sem ég hef nokkuð upp á hana
að klaga. Þó verð ég að geta þess,
að ég tel að hún hafi kvatt mig
seinna, því ég átti við hana langt og
gott símtal nótt eina fyrir skömmu.
Hún var kát og hress að vanda. Að
símtalinu loknu furðaði ég mig á
því, að hafa séð dánartilkynningu í
Morgunblaðinu skömmu áður. Í
svefnrofunum var ég lengi, lengi að
átta mig á því, að samtalið hefði
verið mjög þráðlaust samtal, senni-
lega hvorki á vegum Símans.is né
Og Vodafone.
Ég kveð Ingibjörgu, frænku
mína, með söknuði og virðingu og
votta fjölskyldu hennar innilega
samúð.
Lovísa Fjeldsted.
Ingibjörg var næstyngst fimm
barna Ólafs og Ingibjargar Thors.
Þau eru nú öll látin. Ég man eftir
því þegar fjölskyldan flutti ofan af
Grundarstíg í Garðastræti, í ná-
grenni okkar á Hólavelli. Það hefur
trúlega verið vorið 1929. Það leið
ekki á löngu þar til kynni barnanna
og unglinganna í hverfinu hófust og
lágu spor okkar systkinanna á
Hólavelli og nágranna saman á leik-
velli, í skólum og innan veggja
heimila okkar. Ekki er ofsagt að
með okkur hófst bræðralag sem
entist ævilangt. Það er margs að
minnast úr þeirri langleið um vegi
lífsins. Það bar aldrei skugga á vin-
áttuna. Trygglyndi Ólafsbarna var
þar styrkur þáttur, sem gott er að
gleðjast yfir og þakka af heilum
hug.
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um það að Ólafur og Ingibjörg voru
góðir foreldrar. Ólafur var þeim
ekki aðeins vænn og ljúfur faðir,
heldur ræddi hann ávallt við börn
sín – eftir því sem aldur þeirra
INGIBJÖRG THORS
GÍSLASON
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KOLBEINN GUÐJÓNSSON,
Álfheimum 48,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mið-
vikudaginn 29. september kl. 10.30.
Kristín Kristinsdóttir,
Guðjón Kolbeinsson, Jónína Pálsdóttir,
Gunnvör Kolbeinsdóttir, Garðar R. Árnason
og barnabörn.
Ástkæra frænka mín,
SIGRÍÐUR GUÐBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR,
Hringbraut 52,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 25. september.
Magný Jóhannesdóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARGRETHE FÆRSETH,
Smáraflöt 40,
Garðabæ,
andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi sunnudaginn 12. september.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð.
Einar A. Færseth,
Pétur Færseth, Kristín Færseth,
Ómar Færseth, Helen Færseth,
Sólrún Færseth, Einar Þ. Færseth,
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
ÁRNI M. RÖGNVALDSSON
kennari
frá Dæli í Skíðadal,
andaðist á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
fimmtudaginn 23. september.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 1. október kl. 13.30.
Hákon Árnason, Bertha Sigtryggsdóttir,
Ingibjörg Árnadóttir, Hrafn Bragason,
Gerður Árnadóttir, Stefán Ólafsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
GAUKUR JÖRUNDSSON,
Kaldaðarnesi,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju mánu-
daginn 4. október kl. 13.30.
Ingibjörg Eyþórsdóttir,
Guðrún Gauksdóttir,
Jörundur Gauksson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÁSGRÍMUR JÓNSSON,
Móabarði 4,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnar-
firði miðvikudaginn 29. september kl. 13.30.
Kristjana Pétursdóttir,
Sveinbjörn Ásgrímsson,
Sóley Björk Ásgrímsdóttir, Sverrir Kr. Bjarnason,
Guðrún Jóna Ásgrímsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.